Morgunblaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 25
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 25
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Hákon Svavarsson
sölumaður - sími 898 9396
SELJENDUR Í GARÐABÆ
ATHUGIÐ
Ég hef verið beðinn um að leita eftir sérbýli
í Garðabæ fyrir hjón sem eru á leið til
landsins. Um er að ræða fjársterka aðila,
sem eru tilbúnir að veita ríflegan afhending-
artíma. Óskað er eftir einbýlishúsi á einni
hæð með bílskúr. Áhugasamir vinsamleg-
ast hafið samband og ég mun fúslega veita
nánari upplýsingar.
Með kveðju, Hákon
Hafðu samband - það kostar ekkert
Hitt húsið og JC á Íslandi býður
ungu fólki (16–30 ára) á stefnumót
við frambjóðendur stjórnmálaflokk-
anna sem bjóða fram í Reykjavík í
komandi alþingiskosningum. Stefnu-
mótið fer fram í Hinu húsinu, Póst-
hússtræti 3–5, þriðjudaginn 15. apríl
kl. 20. Á stefnumótinu gefst fram-
bjóðendum í Reykjavík tækifæri til
þess að kynna stefnumál sín fyrir
ungu fólki og kynnast sjónarmiðum
þess. Eins gefst ungu fólki tækifæri
til þess að koma sínum málum á
framfæri við frambjóðendur.
STJÓRNMÁL
Friðrik 7. og Friðrik 8.
Í viðhorfsgrein sem birtist sl.
laugardag um Kristján 9. konung
Danmerkur var ekki farið rétt með
forvera hans og eftirmann. Eins og
kemur fram í greininni tók Kristján
við völdum árið 1863 þegar Friðrik 7.
lést. Eftirmaður Kristjáns 9. var
sonur hans, Friðrik 8, en ekki Frið-
rik 7. eins og sagði í greininni.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
1.848 sinnum hærri upphæð
Í grein minni hér í þættinum 10.
apríl voru þau mismæli, að Frakkar
voru sagðir hafa selt vopn til Íraks
1973–91 fyrir 28-falt hærri upphæð
en Bandaríkjamenn, en það rétta er,
að vopnasalan var 28-föld á við
vopnasölu Breta, en 1.848 sinnum
meiri en Bandaríkjamanna, eins og
sést reyndar þegar menn rýna í töl-
urnar sjálfar í greininni (Bandaríkin
seldu fyrir 5 millj. dala, Bretar fyrir
330 milljónir og Frakkar fyrir 9.240
millj. dala). Orðabrengl í fyrsta
málslið greinarinnar skýrir sig hins
vegar sjálft.
Jón Valur Jensson.
LEIÐRÉTT
NÝLEGA útskrifuðust fyrstu nem-
endurnir af námskeiði sem ætlað er
þeim sem stunda efnis- og vöru-
flutninga. Samkvæmt lögum, sem
tóku gildi á síðasta ári, þurfa allir
sem ætla að stunda efnis- og vöru-
flutninga að hafa rekstrarleyfi. Til
að öðlast slík leyfi þarf t.d. að hafa
jákvæða fjárhagsstöðu, gera við-
skiptaáætlun og sækja námskeið.
Vegagerðin hefur með útgáfu
leyfanna að gera og sér einnig um
námskeiðin. Vegagerðin hefur síðan
fengið Iðntæknistofnun, Háskólann
á Akureyri og Ökuskólann í Mjódd í
samstarf um námskeiðshaldið.
Fyrstu 17 nemendur útskrifuðust
nýlega af þessu námskeiði.
Í fréttatilkynningu frá Lands-
sambandi vörubifreiðastjóra segir
að sambandið fagni tilkomu rekstr-
arleyfanna og vænti þess að þau
auki stöðugleika greinarinnar og
fagmennsku.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útskrifast með rekstrar-
leyfi til vöruflutninga
NÍUTÍU ungmenni fermdust
borgaralegri fermingu í Há-
skólabíói í gær. Mikil þátt-
taka var í borgaralegri ferm-
ingu þetta árið þar sem 90
ungmenni fermdust borgara-
lega. Í fyrra fermdust 49 og
73 árið 2001 sem þá var met-
ár. Þetta er í fimmtánda sinn
sem borgaraleg ferming er
haldin á Íslandi en síðan 1989
hafa tæplega 600 ungmenni
fermst borgaralega og um
7.000 manns verið viðstaddir
athöfnina. Fermingarathöfnin
er útskriftarhátíð eftir 3ja
mánaða námskeið í siðfræði,
mannlegum samskiptum,
ábyrgð, frelsi og mannrétt-
indum.
Tilgangur borgaralegrar
fermingar er að efla heilbrigð
og farsæl viðhorf ungmenna
til lífsins. Þátttakendur rækta
meðal annars með sér já-
kvæðni og ábyrgðarkennd
gagnvart sjálfum sér og sam-
borgurum sínum.
Fermingarbörnin tóku
virkan þátt í athöfninni, en
þau fluttu stutt ávörp, ljóð og
léku tónlist. Utanaðkomandi
ræðumenn þetta árið voru
Einar Már Guðmundsson, rit-
höfundur, og Eyrún Ósk
Jónsdóttir, leiklistarnemi,
sem sjálf var fermd borgara-
legri fermingu. Fermingar-
stjóri að þessu sinni var Sig-
rún Valbergsdóttir, leikstjóri.
90 fermast
borgara-
legri
fermingu
Á AÐALFUNDI Ferðafélags Ís-
lands sem haldinn var 19. mars sl.
var Kvískerjabræðrum veitt Páls-
varðan, en hún er farandgripur
sem veittur er þeim aðilum „sem í
máli og / eða myndum hafa stuðlað
að þekkingu manna á landi og
þjóð,“ eins og segir í skipulagsskrá
sjóðsins.
Páll Jónsson bókavörður sat í
stjórn Ferðafélags Íslands um ára-
bil og var ritstjóri Árbókar félags-
ins í mörg ár. Hann andaðist árið
1985 þá 76 ára að aldri.
Páll hafði í huga að stofna sjóð,
er hefði það markmið að styrkja þá
aðila, sem ynnu að kynningu á landi
og þjóð, með ljósmyndum eða öðru
efni því skildu.
Hann hafði ætlað þessum sjóði
nokkra fjárupphæð af eigum sín-
um.
Áris 1995 gekkst Ferðafélag Ís-
lands fyrir stofnun sjóðsins og var
skipulagsskrá hans síðan staðfest
af réttum yfirvöldum.
Frá stofnun sjóðsins hefur þessi
viðurkenning verið veitt fimm að-
ilum, sem að dómi sjóðsstjórnar
hafa uppfyllt fyrrgreind skilyrði,
segir í fréttatilkynningu.
Kvískerja-
bræður
hlutu Páls-
vörðuna
Pálsvarðan
KRISTJÁN Pálsson, alþingismaður
og leiðtogi T-listans, hefur sent
Morgunblaðinu eftirfarandi tilkynn-
ingu:
„Framboð óháðra í Suðurkjör-
dæmi, T-listinn, mótmælir harðlega
þeirri mismunun sem beitt er í út-
varpi og sjónvarpi gagnvart fram-
boðum til Alþingis 10. maí nk. Það
getur vart talist styrkja lýðræðið að
þjóna aðeins þeim stóru. Framboð
sem koma fram í einu kjördæmi
hljóta að hafa sama rétt til að koma
sínum stefnumálum á framfæri í fjöl-
miðlum og önnur framboð. Stefnu-
mál T-listans hafa áhrif um allt land
og þjóna þeim tilgangi að bæta þjóð-
lífið almennt og eiga kjósendur full-
an rétt á að kynnast þeim til jafns við
sjónarmið þeirra stóru. Bent skal á
að á Alþingi er hver þingmaður eitt
atkvæði og á að greiða atkvæði þar
samkvæmt samvisku sinni og halda
stjórnarskrána í heiðri.
Framboð óháðra í Suðurkjör-
dæmi, T-listinn, krefst þess að þeirri
mismunum sem beitt hefur verið af
ljósvakamiðlum fram að þessum
verði hætt. Kjósendur um allt land
fái jafnan rétt og öllum framboðum
sem uppfylla skilyrði samkvæmt lög-
um til að bjóða fram verði gefinn
kostur á því að tjá skoðanir sínar á
jafnréttisgrundvelli í útvarpi og
sjónvarpi.“
T-listinn
mótmælir
mismunun í
fjölmiðlum
♦ ♦ ♦
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Stofnfundur félags þeirra sem
eru einar/einir verða með fram-
hald á stofnfundi sem haldin var 2.
apríl sl. Framhaldsfundurinn verð-
ur á Grand hóteli á morgun, þriðju-
daginn 15. apríl, kl. 20. Félagið
verður stofnað, kosið í stjórn og
skipt í áhugahópa. Aðgangseyrir er
800 kr., veitingar innifaldar.
Kvenfélag Bústaðasóknar hittist
í kvöld kl. 20. Auk þess að spila
bingó er ætlunin að taka á fundinum
ákvörðun um sumarferð hópsins.
Á MORGUN
DILBERT
mbl.is