Morgunblaðið - 23.04.2003, Síða 2
SIGURÐUR Kristjánsson skipstjóri
og hans menn á grásleppubátnum
Von ÞH 54 komu með grásleppubát
í togi til Húsavíkur í gær. Þetta var
annar grásleppubáturinn sem Von
dró til hafnar á Húsavík á jafn-
mörgum dögum, báða vegna bilana.
Að sögn skipverja á Kalla í Höfða
ÞH 234 höfðu þeir dregið net sín
við Tjörnes og voru lagðir af stað í
land þegar bilunin varð. Báturinn
var staddur út af Breiðuvík þegar
gírinn bilaði, að því er talið er, og
því ekki annað að gera en fá annan
bát til að draga Kalla í land.
Aðalsteinn Pétur Karlsson skip-
stjóri segir veiðina hafa verið góða
hjá þeim bátum frá Húsavík sem
róa með grásleppunet á þessari
vertíð. Þeir á Kalla í Höfða væru komnir með 70 tunnur af hrognum í
gær, en til samanburðar sagði hann að í fyrra, þegar stóran norðangarð
gerði 12. maí, hefði aflinn verið kominn í 50 tunnur.
Húsavík. Morgunblaðið.
Von kemur inn til Húsavíkur með
Kalla í togi.
Drógu tvo grásleppubáta í
land á jafnmörgum dögum
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FERJA Í JÓMFRÚARFERÐ
Ný Norræna lagðist að bryggju á
Seyðisfirði í gær en ferjan getur bor-
ið allt að 1.500 farþega. Gert er ráð
fyrir að 25 þúsund farþegar komi
með Norrænu til landsins á þessu ári
og eru það 50% fleiri en á því síðasta.
Til að þjónusta nýja skipið var farið í
verulegar framkvæmdir við bryggj-
una sem er næstum lokið.
Ráðstafanir vegna HABL
Auknar ráðstafanir hafa verið
gerðar hér á landi til að takast á við
bráðalungnabólgu berist hún til
landsins. Sóttvarnarlæknir segir að-
stöðu hér á landi til að takast á við
tilfelli af sjúkdómnum fullnægjandi.
Hann segir viðbúið að sjúkdómurinn
berist hingað.
Starfsfólk flyst milli banka
Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
Búnaðarbankans, hefur verið ráðinn
bankastjóri Landsbankans. Fjórir
lykilstjórnendur frá Búnaðarbanka
hafa verið ráðnir til Landsbankans.
Sex starfsmenn Búnaðarbankans til
viðbótar hafa sagt upp. Formaður
bankaráðs BÍ sagði leitt að missa
starfsmennina en að maður komi í
manns stað. Sagði hann að ekki væri
ástæða til að telja fólkið misnota
trúnaðarupplýsingar.
Viðskiptabanni aflétt?
Frakkar lögðu óvænt til í gær að
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
frestaði þegar í stað framkvæmd
viðskiptaþvingana sem bitnuðu á
íröskum borgurum. Verði tillagan
samþykkt tekur öryggisráðið mik-
ilvægt skref í þá átt að aflétta við-
skiptabanninu á Írak eins og Banda-
ríkjastjórn hefur lagt til. Frakkar
settu það ekki sem skilyrði að eft-
irlitsmenn Sameinuðu þjóðanna
yrðu sendir aftur til Íraks en töluðu
um að haga þyrfti vopnaleitinni
þannig að þeir gætu starfað með inn-
rásarliðinu í landinu.
Deilt um stjórnarmyndun
Líkurnar á að mynduð yrði ný pal-
estínsk heimastjórn minnkuðu í gær
vegna deilu forsætisráðherraefn-
isins Mahmuds Abbas við Yasser
Arafat. Abbas hótaði að hætta við að
mynda nýja heimastjórn.
NÖFN BÍLANNA
LAND CRUISER V6
JEPPAHORNIÐ
TÜV-KÖNNUNIN
KVARTMÍLUBRAUTIN
CADILLAC-LÚXUSREIÐIN
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 6025 • www.kia.is
K IA ÍSLAND
Bílar sem borga sig!
Alhliða
lausn í
bílafjármögnun
Suðurlandsbraut 22 540 1500
www.lysing. is
Handfrjáls búnaður í bíla
fyrir flestar gerðir GSM síma.
Ísetning á staðnum.
CADILLAC SXR-LÚXUSREIÐIN
mynduð á Íslandi
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 31/37
Viðskipti 18/19 Fermingar 38 /39
Erlent 20/23 Minningar 40/4
Höfuðborgin 24 Bréf 48
Akureyri 25/26 Brids 49
Suðurnes 26 Dagbók 50/52
Landið 27 Íþróttir 52/55
Listir 28/30 Fólk 56/61
Forystugrein 32 Ljósvakamiðlar 62
Viðhorf 36 Veður 63
* * *
MIKIL umferð var upp á Kárahnjúkasvæðið í
blíðviðrinu um páskana, enda vegurinn fær öll-
um ökutækjum. Nokkuð var um það að ekið var
niður sneiðinginn í Hafrahvammagljúfrinu sem
Arnarfellsmenn luku nýlega við. Steinunn og
Guðrún Sigurðardætur voru meðal þeirra
mörgu sem fóru ofan í gljúfrið. Þær standa fyrir
framan heljarinnar drang sem er á miðri leið
niður og setur mikinn svip á umhverfið. Mæl-
ingamaður og jeppi við hlið drangsins virka agn-
arsmáir í samanburðinum en berghamarinn er
nærri 100 metra hár.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Mikil umferð að Kárahnjúkum
HÁTT í 70 erlendir fjölmiðlamenn
verða viðstaddir opnun nýrrar
vetnisstöðvar Skeljungs og Ís-
lenskrar nýorku við Vesturlands-
veg sumardaginn fyrsta. Stöðin
mun framleiða vetnisgas sem nýtt
verður til að knýja þrjá vetnis-
strætisvagna. Meðal þeirra fjöl-
miðla sem senda hingað fulltrúa
sína eru BBC World News, Guard-
ian, Times og Der Spiegel.
Jón Björn Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar nýorku,
segir að sú mikla athygli sem opn-
unin hefur vakið skýrist að ein-
hverju leyti af því að um sé að ræða
fyrstu vetnisstöð í heiminum sem
opnuð er á almenningsbensínstöð.
Hann segir að Íslensk nýorka
muni standa fyrir vetnisráðstefnu
samfara opnuninni. „Við ákváðum
að halda ráðstefnu til þess að svara
þeim ótrúlega áhuga og umfjöllun
sem hefur verið um þetta mál. Nú
þegar hafa verið gerðir á milli 20
og 30 sjónvarpsþættir og á annað
hundrað greinar hafa birst í er-
lendum blöðum um vetnishug-
myndir á Íslandi,“ segir Jón Björn.
Ráðstefnan verður haldin á Hót-
el Nordicu. Hún hefst klukkan 14 á
morgun og stendur fram á föstu-
dag.
Vetnisstöð
vekur heims-
athygli
SVEITARSTJÓRN Mýrdalshrepps
hefur ákveðið að nýta sér ekki for-
kaupsrétt á tveimur bújörðum sem
svissneskur fiskiræktandi, Rudolf
Lamprecht, hefur sýnt mikinn
áhuga á að kaupa í Heiðardal. Um
er að ræða bæina Litlu-Heiði og
Stóru-Heiði en auk þess liggur fyrir
kauptilboð frá Svisslendingnum í
eyðijörðina Engigarð sem er í eigu
hreppsins. Tilboðinu þarf að svara á
föstudag, en að sögn Sveins Páls-
sonar, sveitarstjóra Mýrdalshrepps,
hafa fleiri aðilar sýnt þeirri litlu jörð
áhuga.
Lamprecht hefur sömuleiðis sam-
ið við Veiðifélag Vatnsdalsár, Kerl-
ingardalsár og Heiðarvatns um
leigu á þessum veiðisvæðum til
næstu tíu ára. Veiðifélagið mun þó
sjá áfram um netaveiði á vatninu, að
sögn Guðna Einarssonar í Þóris-
holti, formanns félagsins.
Svisslendingurinn rekur um-
fangsmikið fyrirtæki sem sérhæfir
sig í eldi á beitarfiski og sölu á
ferskum og frystum beitarfiskflök-
um. Hann kom til Íslands síðasta
sumar og sýndi þá áhuga á Heið-
ardal í því augnamiði að rækta þar
upp náttúrulega fiskistofna á svæð-
inu. Búskapur er bæði á Litlu- og
Stóru-Heiði en hefur farið minnk-
andi á seinni árum. Töluverð sil-
ungsveiði er í Heiðarvatni og lax- og
sjóbirtingsveiði í Vatnsá og Kerling-
ardalsá.
Vonast eftir uppbyggingu
Mikil umræða var um málið í
hreppsnefnd Mýrdalshrepps í síð-
ustu viku. Að henni lokinni var sam-
hljóða samþykkt bókun, þar sem
segir að fyrirhuguð eignaskipti séu
ekki andstæð hagsmunum sveitarfé-
lagsins. Áformuð ráðstöfun eign-
anna sé samþykkt og fallið sé frá
forkaupsrétti.
Sveinn Pálsson segir Mýrdælinga
og forráðamenn sveitarfélagsins
binda vonir við að Lamprecht nýti
svæðið til einhverrar uppbyggingar,
enda séu möguleikar til þess margir
í Heiðardal. Áhuganum hafi verið
tekið jákvætt af heimamönnum en
ekki liggi fyrir hver áformin séu ná-
kvæmlega, þ.e. hvort þau séu í at-
vinnuskyni eða til einkanota.
Varðandi eyðijörðina Engigarð,
sem er við Heiðardal, segist Sveinn
hafa heimild sveitarstjórnar til að
ganga að tilboði Svisslendingsins,
berist ekki annað fyrir föstudag. Að-
spurður vill hann ekki gefa upp fjár-
hæð tilboðsins að svo stöddu.
Jarðir í Heiðardal sem Svisslendingur vill kaupa
Mýrdalshreppur nýtir
sér ekki forkaupsrétt