Morgunblaðið - 23.04.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.04.2003, Blaðsíða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 18 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ og boðið þeim væntanlega gull og græna skóga. Það jaðrar við skemmdarstarfsemi þegar svona er farið að en kannski er þetta allt leyfi- legt,“ segir Sólon. Að sögn Sólons hafa tveir starfs- menn af fyrirtækjasviði og að minnsta kosti tveir af verðbréfasviði sagt upp störfum og ætla að hefja störf hjá Landsbankanum. Segir Sólon hugsanlegt að fleiri muni fylgja í kjölfarið. Þetta muni þó ekki tefja samrunaferlið við Kaupþing heldur frekar flýta því. Í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi sagði Hjörleifur Jakobsson, formaður bankaráðs Búnaðarbank- ans að alls hafi sex starfsmenn bank- ans sagt upp í gær í kjölfar uppsagn- ar fjórmenninganna á mánudags- kvöld. SIGURJÓN Þ. Árnason hefur verið ráðinn bankastjóri Landsbanka Ís- lands við hlið Halldórs J. Kristjáns- sonar. Sigurjón, sem áður var fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs Bún- aðarbankans, mun fara fyrir fyrirtækjasviði, verðbréfasviði og stoðsviðum. Halldór mun fara fyrir alþjóða- sviði, viðskiptabankasviði og eigna- stýringarsviði. Báðir munu fara með viðskiptatengsl og viðskiptamál. Auk Sigurjóns hafa þrír nýir fram- kvæmdastjórar verið ráðnir til Landsbankans. Koma þeir allir frá Búnaðarbankanum. S. Elín Sigfúsdóttir verður fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs en hún var áður framkvæmdastjóri fyr- irtækjasviðs Búnaðarbankans og bankaráðsmaður í Búnaðarbankan- um. Yngvi Örn Kristinsson verður framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Landsbankans en hann var áður framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Búnaðarbankans. Ársæll Hafsteinsson verður fram- kvæmdastjóri lögfræðisviðs og út- lánaeftirlits en hann var áður aðal- lögfræðingur Búnaðarbanka Ís- lands. Fleiri segja upp hjá Búnaðarbankanum Sólon R. Sigurðsson, bankastjóri Búnaðarbankans, segir að uppsagnir fjórmenninganna hafi komið sér verulega að óvörum. „En alltaf er það nú þannig að það kemur maður í manns stað,“ segir Sólon. Hann segir að þegar hafi stað- gengill Elínar, Karl Þorsteins, verið ráðinn framkvæmdastjóri fyrir- tækjasviðs. Ekki hafi verið gengið frá fleiri breytingum enda stutt síðan starfsmennirnir sögðu upp störfum. Þegar hafi fleiri starfsmenn bankans til viðbótar sagt upp störfum. „Við vitum það að bankaráðsmaður í Landsbankanum, Andri Sveinsson, hefur verið að elta okkar starfsmenn Ætlar ekki að vera minnsti bankinn lengi Björgólfur Guðmundsson, formað- ur bankaráðs Landsbankans, segir þessa breytingu á yfirstjórn Lands- bankans vera lið í sókn bankans og hann ætli sér ekki að vera minnsti bankinn lengi. „Við höfum ákveðið að blása til sóknar með því að styrkja heildarstarf bankans. Gjörbreyta skipuritinu og fá til okkar nýtt fólk úr bankakerfinu sem hjálpar okkur við að ná þessum áfanga sem við höf- um sett okkur: að vera ekki minnsti bankinn mjög lengi. Við þessar sam- einingar höfum við orðið minnstir en á því verður breyting. Til þess að ná þeirri breytingu þá ætlum við að styrkja innviðina,“ segir Björgólfur. Hann segir að það hafi verið ljóst frá því að Samson hópurinn kom að Landsbankanum að breytingar yrðu á bankanum með nýjum markmið- um. „Sókn er besta vörnin og við munum hefja mikla sókn núna í þeirri vörn sem fylgir því að vera skilinn eftir eða vera einn.“ Björgólfur segir að vel komi til greina að fleiri starfsmenn verði ráðnir til Landsbankans en bankinn hafi boðið fleiri einstaklingum á fjár- málamarkaði vinnu. Vegna þeirrar vinnu sem nú fer í hönd í útrás bank- ans sé mikilvægt að hafa tvo banka- stjóra. Halldór, sem er þaulvanur á alþjóðamarkaði, mun sjá um alþjóða- væðingu bankans og Sigurjón, sem þekkir rekstur banka mjög vel, mun sjá um rekstur bankans. Björgólfur segir mikilvægt fyrir banka að vera stór, meðal annars út af þeim kjörum sem þá bjóðast á er- lendum lánamörkuðum. Hins vegar séu ekki miklir möguleikar á að stækka hérlendis en Landsbankinn horfi þar til Englands. Björgólfur segir mikilvægt að var- lega sé farið í stækkun Landsbank- ans og ekki megi taka neina áhættu sem yrði til þess að bankinn fengi ekki bestu kjör. Þar skipti máli stærð bankans, hversu vel hann sé rekinn og að áhættan sé hæfileg. Sigurjón er verkfræðingur að mennt og með MBA-próf í fjármála- fræðum frá University of Minnesota í Bandaríkjunum. Hann hefur starf- að hjá Búnaðarbankanum frá 1995 og verið framkvæmdastjóri frá 1998. Að sögn Sigurjóns hafði Björgólf- ur Guðmundsson samband við hann sem og þá stjórnendur sem einnig komu frá Búnaðarbankanum til Landsbankans rétt fyrir páska og þau hefðu síðan ákveðið að taka starfstilboðinu nú um páskana og farið á fund Sólons á mánudagskvöld og sagt starfi sínu lausu. Hann segir að uppsagnirnar tengist ekki sam- einingu Kaupþings og Búnaðarbank- ans heldur hafi þeim verið boðið ákveðið tækifæri. „Það vita það allir sem hafa unnið í bankaheiminum að þú hafnar því ekki þegar þér er boðið að verða bankastjóri Landsbankans. Þannig að það er alls ekki út af neinni óánægju sem ég er að hætta,“ segir Sigurjón. Leitað eftir stækkun Heritablebankans Halldór segir það mikinn styrk að fá Sigurjón til starfa hjá Landsbank- anum enda hafi hann gríðarlega reynslu af rekstri banka. Ætlunin sé að vaxa erlendis og þá fyrst og fremst í Bretlandi. Kaupin á Her- itable hafi tekist vel og gert sé ráð fyrir hröðum vexti þar í ár. „Við ger- um ráð fyrir því að setja aukinn kraft í að finna nýjar einingar sem við get- um sameinað Heritablebankanum og stækka þar með efnahagsreikning og ná fram meiri stærðarhagkvæmni í rekstri bankans,“ segir Halldór. Hann segir að jafnframt verði úti- búanetið styrkt hér á landi og verði tilkynnt síðar um hvernig verði stað- ið að því. Markaðsstaða bankans í al- mennri viðskiptabankaþjónustu verði einnig styrkt. Því þrátt fyrir að vera þriðji bankinn að stærð þá sé bankinn langstærsti viðskiptabanki landsins, með langstærstu hlutdeild- ina í almennum bankaviðskiptum. Tengist ekki uppsögnum nýverið Halldór og Björgólfur segja þær ráðningar sem nú hefur verið til- kynnt um ekki tengjast þeim upp- sögnum sem urðu hjá Landsbankan- um fyrir skömmu. Björgólfur segir að einhugur hafi verið meðal bankaráðsmanna um þær breytingar sem nú hafi átt sér stað og þær gerst mjög snöggt. „Við erum kannski lengi að skoða hverjir passa inn í hópinn en þegar við erum búnir að finna út hverjir þeir eru þá göngum við hreint til verks,“ segir Björgólfur. Lykilstarfsmenn Búnaðarbankans koma til starfa hjá Landsbankanum Sigurjón Þ. Árnason ráðinn bankastjóri Landsbankans Morgunblaðið/Sverrir Bankaráð Landsbankans hefur ráðið Sigurjón Þ. Árnason sem bankastjóra við hlið Halldórs J. Kristjánssonar.                    !"     #"#"          $ % &$ %   '            ( )&   $  *!        $&  $+   ,!          -&      $    &     !"!# $  .     %& " & .+       $ /  00&/ 0112 '    3& %  '   $   -&.  BANKARÁÐ Landsbanka Íslands hefur ákveðið breytingar á stjórn- skipan bankans og verður núver- andi verðbréfasviði skipt í tvennt. Annars vegar eignarstýringarsvið, sem Stefán H. Stefánsson stýrir, sem annast eignastýringu, sér- bankaþjónustu, lífeyris- og líf- tryggingarþjónustu og samræmda bakvinnslu allra verðbréfa- viðskipta, og hins vegar verð- bréfasvið, sem Yngi Örn Krist- insson stýrir, sem mun annast alla verðbréfamiðlun samstæðunnar, gjaldeyrismiðlun, afleiðuviðskipti auk verkefna fjármálamarkaða og rannsókna og greininga, sem nú eru á alþjóða- og fjármálasviði. Sérstakt áhættustýringarsvið er lagt niður og áhættustýring og gæðamál verða á alþjóðasviði en sérstakt lögfræðisvið verður stofn- að, sem Ársæll Hafsteinsson stýrir og yfirtekur það útlánaeftirlit og samræmda lögfræðiþjónustu. Til viðskiptabankasviðs, sem Kristín Rafnar stýrir, heyrir úti- búanet, markaðs- og þróunardeild, útlánastýring útibúa, aðalféhirðir, fasteigna- og heimilislán og bak- vinnsla. Undir alþjóðasvið, sem Brynj- ólfur Helgason stýrir, falla al- þjóðasamskipti, alþjóðleg greiðslu- miðlun, áhættustýring og gæðamál, sambankadeild, beinar erlendar fjárfestingar, fjár- festatengsl og skuldabréfaútgáfa auk Heritable-bankans. Fyrirtækjasvið, sem S. Elín Sig- fúsdóttir stýrir, annast fyrirtækja- viðskipti, útlánaþróun, útlánamat/ upplýsingaþjónustu, útlánamat og Hömlur. Undir rekstrarsvið, sem Haukur Þ. Haraldsson stýrir, fellur starfs- mannadeild, fjárhagsdeild og eignadeild. Til upplýsingasviðs sem Sigur- jón G. Geirsson stýrir, heyrir hug- búnaðardeild, upplýsingaþjónusta og vefmál. Verðbréfa- sviði skipt í tvennt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.