Morgunblaðið - 23.04.2003, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 23.04.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 51 DAGBÓK SVEIT Íslenskra að- alverktaka vann knappan sigur í úrslitum Íslands- mótsins, sem spiluð voru í páskavikunni. Þrjár sveitir voru í baráttunni fram á síð- asta spil og þegar upp var staðið munaði aðeins 3,5 stigum á fyrsta og þriðja sætinu. En þótt litlu hafi munað í lokin var sveit ÍAV vel að titlinum komin. Ís- landsmeistararnir unnu báða helstu keppinauta sína örugglega, sveit Guð- mundar Sv. Hermannssonar 22-8 og Subarusveitina 24-6. Lokatölur urðu þær að ÍAV fékk 171,5 stig, sveit Guð- mundar 170 og sveit Subaru 168. Skeljungur varð í fjórða sæti með 144 stig. Fyrirliði sigursveitarinnar er Sævar Þorbjörnsson, en með hon- um spiluðu: Matthías Þor- valdsson, Anton Haralds- son, Sigurbjörn Haraldsson, Þröstur Ingimarsson og Bjarni H. Einarsson. Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ Á876 ♥ KG1062 ♦ 4 ♣K43 Vestur Austur ♠ 42 ♠ KG109 ♥ D43 ♥ Á985 ♦ ÁDG106 ♦ 85 ♣876 ♣DG5 Suður ♠ D53 ♥ 7 ♦ K9732 ♣Á1092 Spilið að ofan kom upp í viðureign tveggja efstu sveitanna. Sævar og Matthías voru í AV gegn Ás- mundi Pálssyni og Guðm. P. Arnarsyni: Vestur Norður Austur Suður Sævar Guðm. Matth. Ásm. -- -- 1 lauf 1 tígull Pass 1 hjarta Pass 1 grand Dobl Redobl Pass Pass Pass Leikurinn var sýndur á töflu og áhorfendum í sýn- ingarsal var skemmt þegar Ásmundur fékk óvænt það verkefni að spila eitt grand redoblað. Það leit út fyrir að vera erfitt spil, bæði í sókn og vörn. Sævar kom út með lauf- áttu. Ásmundur lét lítið úr borði og dúkkaði gosa aust- urs. Matthías skipti yfir í tíguláttu, nían frá Ásmundi og Sævar drap með tíu. Og spilaði nú spaða. Lítið úr borði og Matthías tók með kóng til að spila aftur tígli. Ásmundur lét sjöuna og Sævar átti slaginn á gosann. Eftir langa umhugsun ákvað Sævar réttilega að taka ekki á tígulásinn og spilaði spaða. Ásmundur horfði nú á fimm slagi, en sá möguleika á tveimur í viðbót á hjarta. Hann tók á spaða- drottningu og ás, síðan þrjá slagi á lauf og spilaði hjarta á gosann í þessari stöðu: Norður ♠ 8 ♥ KG10 ♦ -- ♣-- Vestur Austur ♠ -- ♠ G ♥ D43 ♥ Á98 ♦ Á ♦ -- ♣ ♣ -- Suður ♠ -- ♥ 7 ♦ K32 ♣-- Við þessu átti vörnin ekk- ert svar. Ef austur dúkkar hjartagosann, verður hann sendur inn á spaða í næsta slag til að gefa sjöunda slag- inn á hjartakóng. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson ÁRNAÐ HEILLA STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Persóna þín er skipulögð, jarðbundin og vill hafa stjórn á hlutunum. Þá eyðir hún engum tíma til einskis. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Góður tími er framundan með vinum, einkum vinkon- um þínum. Ræddu drauma þína við vini þína. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þér gengur vel í starfi og árangur þinn vekur athygli yfirmanna á staðnum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú hefur sterka löngun til þess að breyta út af van- anum í stað þess að vera í sama farinu. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Eyddu tíma í að fara í gegn- um reikninga, kreditkorta- reikninga og skoðaðu skuldastöðu þína. Slík skipulagning kemur reglu á hlutina hjá þér. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú gætir þurft að miðla málum í samræðum þínum við vini í dag. Þú verður að sætta þig við þetta því sam- vinna getur skilað árangri. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Reyndu að skipuleggja þig betur á heimili eða í starfi. Þú sefur betur þegar líf þitt er í föstum skorðum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú leiðir hugann að róm- antík eða ástarævintýrum í dag því einhver er þér of- arlega í huga nú um stund- ir. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Spenna og óreiða eru til staðar á heimilinu í dag, en hægt er að vinna bug á vandanum með því að sýna þolinmæði. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú hefur sérstaka hæfileika til þess að sannfæra fólk í kringum þig í dag, hvort sem þú þarft að selja eða kenna því. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú gleðst yfir þeim fjár- munum sem þú hefur eytt í börn, afþreyingu eða róm- antíska kvöldstund. Notaðu daginn til þess að kaupa hluti fyrir einhvern sem þér þykir vænt um. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú sérð nú hve heimili og fjölskylda skiptir þig máli eftir erfiðar stundir í vinnu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú býrð yfir leyndarmáli, viðskiptatækifæri, sem þú vilt nýta þér og hefur ekki áhuga á að aðrir komist að því. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 23. apríl, er fimmtug Sigfríð Þórisdóttir, eigandi Potta- galdra ehf. Sigfríð tók for- skot á sæluna í mars sl. og fór í pílagrímsför til Kerala- héraðs á Indlandi sem er mekka aurvediskra fræða. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. Bg5 dxe4 5. Rxe4 Be7 6. Bxf6 Bxf6 7. Rf3 O-O 8. Dd2 Rd7 9. O-O-O Be7 10. Bd3 b6 11. Reg5 h6 12. Bh7+ Kh8 13. Be4 hxg5 14. g4 Hb8 15. h4 g6 16. hxg5+ Kg7 17. Df4 Bb7 Staðan kom upp á of- urmóti sem lauk fyrir skemmstu í Búdapest. Snilli ungversku skákdrottning- arinnar Judit Polgar (2715) leynir sér ekki í þessari skák en hún hafði hvítt gegn Ferenc Berkens (2578). 18. Hh7+! Kxh7 19. Dh2+ Kg8 20. Hh1 Bxg5+ 21. Rxg5 Dxg5+ 22. f4 Dxf4+ 23. Dxf4 Bxe4 24. Dxe4 og svartur gafst upp saddur lífdaga. Frá og með ellefta leik hvíts er ekki ósennilegt að framhaldið hafi komið upp í eldhúsborði Juditar og þýðverska for- ritsins Fritz. Lokastaða mótsins varð þessi: 1. Nigel Short (2686) 6½ vinning af 9 mögulegum. 2. Judit Polgar (2715) 5½ v. 3. Peter Leko (2746) 5 v. 4.-6. Peter Acs (2600), Boris Gelfand (2700) og Christopher Lutz (2640) 4½ v. 7.-8. Viktor Korsnoj (2632) og Sergei Movsesjan (2659) 4 v. 9. Ferenc Berkes (2578) 3½ v. 10. Zoltan Alm- asi (2676) 3 v. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. GEÐFRÓ Faðir, sonur og friðarins andi, fyrst ég beiði þig. Náð þín yfir mér stöðugt standi, styrk þú, drottinn, mig. Náðugi guð, í nafni þínu, neyð so verði kvitt, nú skal varpa út neti mínu í náðardjúpið þitt. Fyrst þú hefur einn fyrir alla angurs þolað pín, aum manneskja, eg því kalla upp í dýrð til þín. Aldrei skal ég af því láta, ógn þó reynist þver, til þín kalla, kveina og gráta, Kristur, gegndu mér. Innra hjartað of mjög hrærir angurs pillan stinn. Líttu’á, hvörnin sorg mig særir, sæti Jesú minn. - - - Sigga skálda LJÓÐABROT MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- blað. Samþykki afmæl- isbarns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgð- armanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á net- fangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Sæll elskan, í kvöld borðum við kjötbollurnar sem mamma þín sendi okkur. FRÉTTIR GUÐNI Ágústsson, landbún- aðarráðherra, opnaði nýverið kosn- ingaskrifstofu framsóknarmanna á Höfn í Hornafirði. Það var létt yfir Guðna að vanda og allt látið flakka enda á heimavelli í framsóknarhús- inu á Höfn. Guðni hefur undanfarna daga verið á yfirreið um austasta hluta kjördæmisins. Með í för voru Mar- grét Hauksdóttir, eiginkona ráð- herrans og Birgir Þórarinsson, sem skipar ellefta sæti á lista framsókn- armanna í Suðurkjördæmi. Þau héldu opna fundi á Hótel Höfn og í Hofgarði í Öræfum auk þess sem ráðherrann heimsótti fjölmarga vinnustaði og sveitabæi í sýslunni. Ráðherra opnaði kosningaskrifstofu Höfn. Morgunblaðið. Hlíðarhjalli - Bílskúr Vorum að fá í sölu 3ja herb. íbúð á 1. hæð með frábæru útsýni. Þvottahús í íbúð. Flísar og parket á gólfum. Sólríkar sa-svalir. Rúmgóður bílskúr. Áhvílandi Byggingasj. ríkisins 4,9% vextir. Eign sem vert er að skoða. Laus fljótlega. Verð 15,8 millj. 21107 Kaffihúsakvöld hjá B-listanum á Akranesi Eydís Líndal ásamt öðrum frambjóðendum B-listans í Norðvest- urkjördæmi verður með kaffi- húsakvöld á Kaffi Mörk á Akranesi í kvöld, miðvikudagskvöld kl. 20.30. Til skemmtunar verður m.a. Helga Braga, rapparinn Iceberg o.fl. Á morgun, fimmtudaginn 24. apríl, verða frambjóðendur B-listans í Norðvesturkjördæmi á Hólmavík kl. 13.30, vegna sjúkrahúss og kl. 14 verður fjölskylduhátíð á Sauðárkróki, Suðurgötu 3. Kl. 17 verður opinn fundur með frambjóðendum í Sam- komuhúsinu Baldri, Drangsnesi, og kl. 21 verður opinn fundur á Kaffi Krók, Sauðárkróki. Vinstri-grænir kveðja veturinn með skemmtun í kvöld, mið- vikudagskvöld kl. 21. Hrólfur Sæ- mundsson, barítón, syngur og Stein- unn Birna Ragnarsdóttir spilar á píanó, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir syngur, rapparinn Dóri DNA kveður rímur. Að lokum leikur pönksveitin Ekkert kjaftæði, hana skipa fram- bjóðendur og liðsmenn Vinstri- grænna, þeir Kolbeinn Óttarsson Proppé, Gestur Svavarsson, Grímur Atlason, Hrólfur Sæmundsson, Krist- inn Schram og Flosi Þorgeirsson. STJÓRNMÁL AÐALFUNDUR Okkar manna, sem er félag fréttaritara Morgunblaðsins á landsbyggð- inni, verður haldinn í blaðhúsi Morgunblaðsins næstkomandi laugardag og hefst klukkan 13. Fundurinn hefst á venjuleg- um aðalfundarstörfum en síðan verður á dagskrá sérstakur lið- ur þar sem fjallað verður um breytingar á Morgunblaðinu og stöðuna á fjölmiðlamarkaði. Styrmir Gunnarsson ritstjóri ávarpar fundinn og situr síðan fyrir svörum ásamt Birni Vigni Sigurpálssyni fréttaritstjóra og Sigtryggi Sigtryggssyni frétta- stjóra. Ljósmyndasamkeppni Í lok fundarins verða kynnt úrslit í ljósmyndasamkeppni fréttaritara vegna mynda frá síðustu tveimur árum og verð- laun afhent. Úrval ljósmynda úr samkeppninni verður til sýnis í verslunarmiðstöðinni Kringl- unni eftir fundinn og til 10. maí næstkomandi. Aðalfundur Okkar manna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.