Morgunblaðið - 23.04.2003, Blaðsíða 52
ÍÞRÓTTIR
52 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
AUÐUN Helgason lék allan leik-
inn í stöðu hægri bakvarðar í liði
Landskrona sem gerði 2:2 jafntefli á
útivelli á móti Malmö í sænsku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu í fyrra-
kvöld. Hjálmar Jónsson kom ekkert
við sögu hjá Gautaborg sem gerði
markalaust jafntefli við Öster.
JÓN Arnór Stefánsson skoraði 11
stig fyrir Trier sem tapaði fyrir
Bonn, 104:90, í þýsku úrvalsdeildinni
í körfuknattleik á sunnudag. Þetta
var lokaumferð deildarkeppninnar.
Trier varð neðst með 10 stig en
Bonn efst með 38 stig.
LOGI Gunnarsson skoraði 13 stig
fyrir Ulm sem tapaði á heimavelli
fyrir Tübingen, 107:102 í suðurriðli
þýsku 2. deildarinnar í körfuknatt-
leik. Ulm er í þriðja sæti með 48 stig,
Tübingen í öðru með 50 en Karls-
ruhe er efst með 52 stig.
RAÚL framherji Real Madrid og
spænska landsliðsins getur ekki leik-
ið með Madridarliðinu þegar það
mætir Manchester United í síðari
viðureign liðanna í Meistaradeildinni
á Old Trafford í kvöld. Raúl, sem
skoraði 2 mörk í 3:1 sigri Real Madr-
id á United fyrir hálfum mánuði,
kvartaði undan verk í kviðarholi og
við læknisskoðun kom í ljós að um
botnlangabólu var að ræða og gekkst
hann undir aðgerð á sjúkrahúsi í
Madrid.
JUAN Sebastian Veron kemur að
öllum líkindum inn í leikmannahóp
Manchester United en Argentínu-
maðurinn hefur verið frá vegna
meiðsla síðan hann meiddist í leik á
móti Leeds hinn 5. mars. Veron tek-
ur þá stöðu Paul Scholes miðjunni
en hann er í leikbanni sem og Gary
Neville.
GERARD Houllier, stjóri Liver-
pool, segist ekki ætla að erfa það við
Danny Murphy hvernig hann brást
við þegar Houllier ákvað að taka
hann af velli 17 mínútum fyrir leiks-
lok í leik Liverpool og Charlton.
Murphy varð mjög reiður, kastaði
flösku með vatni í á varamannabekk-
inn og átti hvöss orðaskipti við Phil
Thompson, aðstoðarstjóra félagsins.
CLAUDIO Ranieri, stjóri Chelsea,
grátbiður Ítalann Gianfranco Zola
að framlengja samning sinn við
Lundúnaliðið um eitt ár takist liðinu
að komast í Meistaradeildina. Zola
hefur átt frábært tímabil með
Chelsea á leiktíðinni og skoraði sitt
14. mark í úrvalsdeildinni í fyrradag
þegar Chelsea steig stórt skref í átt
að meistaradeildarsætinu.
FORMAÐUR samtaka knatt-
spyrnumanna í Danmörku, Mads
Øland, segir við Ekstra Bladet að at-
vinnumenn þar í landi fái lág laun í
samanburði við aðra leikmenn í Evr-
ópu. Að meðaltali fékk atvinnumað-
ur í efstu deild í Danmörku um 6
milljónir ísl. kr. í laun á sl. ári. Øland
segir að Danir standi öðrum löndum
langt að baki í þessum efnum og að
knattspyrnumenn fái mun hærri
laun í Noregi.
Jordan, sem er fæddur 17. febrúarí Brooklyn í New York fyrir
fjórum áratugum, getur státað af sex
meistaratitlum með
Chicago Bulls. Hann
varð háskólameistari
með Norður-Karól-
ínu, Ólympíumeist-
ari árið 1992 með hinu eina sanna
„draumaliði“, auk þess sem hann
hefur unnið til margra einstaklings-
verðlauna í ýmsum þáttum leiksins.
Á þeim tíma sem Jordan hefur látið
að sér kveða inná vellinum frá árinu
1984 hafa margir aðilar hagnast
gríðarlega á þekktasta íþróttamanni
veraldar. Fyrsti samningur Jordans
við Chicago Bulls var samt sem áður
ekkert sérstakur, en þá fékk kapp-
inn 67 millj. ísl. kr. á ári og átti sá
samningur að gilda í sjö ár.
Jordan gerði Bulls að stórveldi en
hætti að leika með liðinu í þrígang,
en hann lagði skóna á hilluna árið
1993, reimaði þá á sig 1995 og hætti á
ný árið 1998. Árið 2001 gat hann eki
hamið sig og hóf að leika með Wash-
ington Wizards. Jordan hefur snúið
við blaðinu utan vallar fyrir Wash-
ington Wizard frá því að hann var
ráðinn til starfa sem forseti félagsin
árið 1999 og síðar fór Jordan að leið-
ast þófið á skrifstofunni og hóf að
leika á ný ári síðar með liðinu.
Uppselt hefur verið á alla heima-
leiki Wizards í tvö ár, og ekkert lið
fær eins marga áhorfendur á útivelli
– það er meira að segja uppselt á
leiki liðsins í Cleveland! Sjónvarps-
stöðvar hafa keppt sín á milli um
leiki með Wizards og undanfarin tvö
ár var liðið nánast alltaf í beinni út-
sendingu á landsvísu vestanhafs. Áð-
ur en Jordan hóf að leika með liðinu
voru Wizards jafn oft á þeim vett-
fangi og snjókoma í Los Angeles.
Sérfræðingar um íþróttina á
ESPN-sjónvarpsstöðinni hafa tekið
saman lista um þá fjölmörgu aðila
sem hafa hagnast myndarlega á
ímynd Michaels Jordans undanfarna
tvo áratugi en margir hafa sagt að
hann sé eitt af undrum veraldar –
slík séu áhrif hans.
Jerry Reinsdorf
Reinsdorf er aðaleigandi Chicago
Bulls en hann keypti meirihluta þeg-
ar Jordan hóf að leika með því árið
1984. Reinsdorf greiddi um 720 millj.
ísl. kr. fyrir hlut sinn og í kjölfarið
fóru Jordan og félagar að vekja
mikla athygli. Uppselt var á 610
heimaleiki í röð eða í 13 tímabil í röð.
Bulls er nú metið á um 26 milljarða
ísl. kr. en liðið landaði sex NBA titl-
um á meðan Jordan lék með liðinu.
David Stern
Stern er framkvæmdastjóri NBA-
deildarinnar og fær sinn hlut af
hagnaðinum. Ævintýrið hófst þegar
þeir Larry Bird (Boston) og Magic
Johnson (LA Lakers) hófu að leika í
NBA-deildinni en Jordan hafði þau
áhrif að hún varð að stórveldi á
heimsvísu. Meðallaun leikmanna í
deildinni voru 22 millj. ísl. kr. í upp-
hafi keppnistímabilsins 1983-1984
eða ári áður en Jordan hóf að leika í
deildinni. Meðallaun í deildinni þessa
stundina eru 350 millj. ísl. kr. en í
hverju liði eru a.m.k. 12 leikmenn og
liðin eru 29. Sjónvarpsstöðvar hafa
greitt himinháar upphæðir til þess
að fá sýningarréttinn frá NBA. Árið
1989 lauk samningi NBA við CBS
sem hafði greitt um 3,3 milljarða ísl.
kr. á ári. NBC bætti um betur og
greiddi 11,7 milljarða ísl. kr. á ári
næstu fjögur árin og í dag fær NBA-
deildin um 47 milljarða á ári frá
ESPN og ABC stöðvunum.
Stern hefur hagnast mikið á vel-
gengni NBA og hefur hann fengið
um 550 millj.ísl. kr. í tekjur á ári und-
anfarin fimm ár eða um 2,8 milljarða.
Michael Jordan hafði mikil áhrif á
þróun mála á þessu sviði.
Richard Esquinas
Esquinas er lítt þekktur viðskipta-
jöfur frá San Diego sem lék um 100
golfhringi með Jordan á fjögurra ára
tímabili, 1989-1992. Esquinas segir
að hann hafi unnið um 70 milljónir
ísl. kr. af Jordan á þessu tímabili en
sjálfur segir Jordan að hann hafi að-
eins tapað um 17 milljónum ísl. kr.
Hvað um það, Esquinas, hagnaðist
vel á þessum viðskiptum en Jordan
er lunkinn golfari og er með um 6 í
forgjöf.
Karla Knafel
Jordan greiddi Kafael um 20 millj.
ísl. kr. fyrir að þegja um ástarsam-
band þeirra sem átti sér stað á ár-
unum 1989-1991. Jordan höfðaði mál
gegn Knafel á s.l. ári þar sem Jordan
sagði Knafel hafa krafist um 400
millj. kr. fyrir það eitt að þegja
áfram um samband þeirra. Jordan
og Knafel komust að samkomulagi
án dóms en hún heldur því fram að
Jordan sé faðir barnsins sem hún
gekk með undir belti meðan á rétt-
arhöldunum stóð yfir.
Oscar Gracia
Gracia er einn athafnamesti safn-
ari muna sem tengjast ferli Jordan
og á um 12.000 mismunandi hluti.
Árið 1995 seldi hann tvær körfu-
boltamyndir af Jordan fyrir samtals
1 milljón ísl. kr. og notaði Gracia féð
til þess að greiða fyrstu afborgun af
húsi sem hann fjárfesti í á þeim tíma.
Ray Clay
Clay sá um að kynna leikmenn
Bulls á heimaleikjum liðsins á árun-
um 1990-2002, fékk mikið að gera við
að tala inná kynningar fyrir kvik-
myndir, sjónvarpsþætti og leiki í
leikjatölvur.
David Falk
Falk er umboðsmaður Jordans og
hefur gegnt því starfi til margra ára.
Fyrirtæki Falks landaði samningum
tengdum Jordan að andvirði um 32
milljarðar ísl. kr. áður en Falk seldi
síðan fyrirtæki sitt fyrir um 8 millj-
arða ísl. kr.
Margir af þekktustu íþróttamönn-
um Bandaríkjanna eru skjólstæðing-
ar Falks og lagði Jordan grunninn að
ríkidæmi hans.
Háskóli N-Karolínu
Jordan varð háskólameistari með
liðinu og selur skólinn keppnisbún-
inga merkta Jordan fyrir um 280
millj. ísl. kr. á ári. Að auki fær skól-
inn um 70 millj. ísl. kr. á ári vegna
samnings síns við Nike fyrirtækið.
Tim Grover
Grover var einkaþjálfari Jordans
frá árinu 1989. Sex árum síðar hafði
Grover stofnað eigið fyrirtæki sem
sá um einkaþjálfun þeirra Charles
Barkley, Hakeem Olajuwon, Mich-
ael Finley auk þess sem um 50 aðrir
NBA-leikmenn voru á hans snærum.
Grover er vel efnaður í dag – þökk sé
áhrifum frá Jordan.
Phil Knight
Knight er stjórnarformaður Nike
fyrirtækisins og einn af aðaleigend-
um. Árið 1984 samdi Nike við Jordan
um að hann léki í skóm með eigin
nafni, Air Jordan, og var velta Nike á
þeim tíma 78 milljarðar ísl. kr. Á sl.
ári var velta Nike um 780 milljarðar
og eign Knight í fyrirtækinu er met-
in á um 330 milljarða ísl. kr.
Scottie Pippen
Var hægri hönd Jordans á gullald-
arárum Bulls og kunni vel við sig í
skugga Jordans á meðan liðið land-
aði þremur NBA-titlum í röð. Pippen
var kjörinn í hóp 50 bestu leikmanna
allra tíma í NBA-deildinni. Eftir að
Pippen yfirgaf Bulls hefur hann
skorað að meðaltali 12 stig í leik og
tekið 5,5 fráköst sem er í raun ekkert
sérstakur árangur en Pippen hefur
fengið greidda um 5,7 milljarða í
laun frá Bulls og Portland Trail-
blazers frá árinu 1997.
Suntory
Áfengisframleiðandi frá Japan
sem átti varalið hafnaboltaliðsins
Chicago White Sox árið 1994. Jordan
reyndi fyrir sér á þeim vettvangi og
gerðist atvinnumaður í hafnabolta
árið 1994 en lék fáa leiki með aðalliði
White Sox. En áhorfendur létu sig
ekki vanta á leiki varaliðsins og
keyptu 467.867 áhorfendur sig inná
leiki liðsins sem gerir um 180 millj.
ísl. kr. í tekjur af miðasölu.
Gatorade
Dr. Robert Cade, dr. Alex de
Quesada, dr. Jim Free og Dana Shir-
es eiga rúmlega 50% hlut í drykkjar-
vörufyrirtækinu Gatorade sem þau
stofnuðu. Jordan var fyrsti íþrótta-
maðurinn sem fyrirtækið gerði
samning við árið 1991. Veltan marg-
faldaðist í kjölfarið og er nú í dag um
156 milljarðar ísl. kr. á ári.
Tiger Woods
Eftir vel heppnað samstarf við
Jordan sá Nike sér leik á borði þegar
Woods kom fram á sjónarsviðið. Árið
1996 fékk Woods 3,1 milljarða ísl. kr.
fyrir fimm ára samning við fyrirtæk-
ið og í dag hefur Woods gert nýjan
Punkturinn settur fyrir aftan glæstan feril körfuknattleiks-
mannsins Michael Jordan í þriðja og allra síðasta sinn
„Jordan er eitt af
undrum veraldar“
MICHAEL Jordan er án vafa þekktasti körfuknattleiksmaður allra
tíma og fáir efast um að hann sé einnig sá besti sem reimað hefur á
sig körfuboltaskó. Ferill Jordans sem leikmanns er einstakur þar
sem hann hefur leikið samanlagt í 16 ár í NBA-deildinni og unnið til
allra þeirra verðlauna sem hægt er að vinna til. Jordan lék sinn síð-
asta leik í NBA-deildinni s.l. miðvikudag með Washington Wizards
og verður erfitt að fylla það skarð sem hann skilur eftir sig í NBA-
deildinni. Skiptir þá engu máli hvort litið er á áhrif hans sem leik-
manns inni á vellinum eða áhrif hans utan vallar.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
„ÉG væri að skrökva ef ég segði annað en að ég
hafi hug á því að leika sem atvinnumaður í öðru
landi. Þetta tímabil er síðasta tækifærið fyrir
mig til þess að sýna mig og sanna, enda er ég 28
ára gamall,“ segir landsliðsmaðurinn Tryggvi
Gudmundsson við norska Dagbladet í gær.
Tryggvi lék vel með norska úrvalsdeildarliðinu
Stabæk á mánudag í 4:1 sigri liðsins gegn Odd/
Grenland þar sem hann skoraði eitt marka liðs-
ins og lagði upp eitt. Tryggvi segir ennfremur
að markmið Stabæk sé að vinna alla leiki liðsins
á heimavelli þeirra á Nadderud í Bærum en lið-
ið verði að bæta árangur sinn á útivelli ætli það
sér að blanda sér í baráttu efstu liða.
Síðasta
tækifærið hjá
TryggvaFORRÁÐAMENN þýska knattspyrnu-
félagsins Herthu Berlín hyggjast koma á
kveðjuleik fyrir Eyjólf Sverrisson og fyr-
irliðann Michael Preetz í vor en báðir
munu þeir hætta að leika með liðinu í lok
leiktíðar. Eyjólfur hefur tekið ákvörðun
um að flytja heim en Preetz hefur verið
ráðinn til að sinna stjórnarstörfum hjá liði
Herthu.
Eyjólfur sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að hann væri ekki búinn að
taka ákvörðunn ennþá hvort hann léki hér
heima í sumar en vitað er að Fylkismenn
og Grindvíkingar hafa mikinn áhuga á að
fá hann til liðs við sig í sumar.
„Ég held möguleikanum opnum á að
spila heima en ég er svo sem ekkert að
flýta mér að taka endanlega ákvörðun,
hvorki hvort ég ætla yfir höfuð að spila og
eins með hvaða liði. Þetta kemur bara í
ljós á komandi vikum,“ sagði Eyjólfur við
Morgunblaðið.
Meiðsli hafa verið að plaga Sauðkræk-
inginn af og til í vetur og þar að leiðandi
hefur hann aðeins spilað sex leiki með
Herthu-liðinu í þýsku 1. deildar keppninni
á tímabilinu.
„Ég er allur að koma til og hef getað æft
síðustu vikuna af fullum krafti,“ sagði Eyj-
ólfur sem lék síðustu mínúturnar í liði
Herthu í 1:0-sigri liðsins á Hansa Rostock
um nýliðna helgi.
Hertha heldur kveðjuleik fyrir
Eyjólf og Preetz í Berlín
Eyjólfur Sverrisson