Morgunblaðið - 23.04.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.04.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ VINKONURNAR Gunnþóra, Sig- rún, Katrín, Björk og Sara komu hjólandi úr Fossvoginum niður í Nauthólsvík í gær og létu sig ekki muna um að fara á handa- hlaupum í sandinum enda um að gera að njóta lífsins í góða veðr- inu þegar starfsdagur er í skól- anum. Morgunblaðið/Ómar Á handahlaupum í góða veðrinu FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ segir í svari við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar, formanns Sam- fylkingar, um ástæðu þess að skatt- byrði á Íslandi árin 2003 og 2004 hafi ekki komið fram í heftinu Þjóð- arbúskapurinn sem kom út fyrir rúmri viku, að slíkar tölur hafi ekki alltaf verið gefnar út í heftinu und- anfarin ár. Þá kemur fram í svari ráðuneytisins að allar upplýsingar sem þarf til að reikna þessi hlutföll sé að finna í töfluviðauka Þjóðarbú- skaparins. „Það er ekki sjálfgefið að allar töflur í riti sem þessu haldist óbreyttar um aldur og ævi heldur hlýtur framsetning talnaefnis að vera til stöðugrar endurskoðunar. Þannig hefur t.d. nú í vorskýrslunni bæði verið bætt við töflum og aðrar felldar út frá því sem áður var. Sér- fræðingar ráðuneytisins taka ákvörðun um á hvaða formi talna- efni er birt.“ Staðfestir það sem Samfylking hefur haldið fram Össur svarar bréfi ráðuneytisins í fréttatilkynningu til fjölmiðla í gær en þar kemur fram að nýjar tölur frá ráðuneytinu sem Össur óskaði eftir staðfesti það sem Samfylk- ingin hefur haldið fram, að skatt- byrðin hafi aukist á tíma núverandi ríkisstjórnar. „Í ljós kemur að fjár- málaráðuneytið reiknar með auk- inni skattbyrði í ár og á næsta ári miðað við 2002 og 2001,“ segir í bréfi Össurar. „Árið 2003 telur ráðuneytið að skatttekjur hins op- inbera verði 38,5% af landsfram- leiðslu og 38,3% árið 2004.“ Skattbyrði fór úr 33,9 í 39,3% Össur segir að skattbyrðin hafi verið 37,8% árið 2002 og 37,2% árið 2001. „Árið 1995, þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks tók við völdum var skatt- byrðin 33,9% af landsframleiðslu en hefur á stjórnartímanum farið hæst í 39,3% árið 1999.“ Fjármálaráðuneytið tók við út- gáfu Þjóðarbúskaparins eftir að Þjóðhagsstofnun var lögð niður. Í bréfi Össurar kemur fram að það sé álit Samfylkingarinnar að útgáfa ritsins og þjóðhagsspáin sjálf sé betur komin annars staðar en á skrifstofu fjármálaráðherra. „Þetta atvik hefur styrkt það álit,“ segir Össur. Upplýsingar um skattbyrði er að finna í töfluviðauka Þjóðarbúskaparins Össur segir töl- urnar staðfesta aukna skattbyrði Tómas Ingi Olrich menntamála- ráðherra sagði í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöld að af sinni hálfu og ráðuneytisins gerðist að svo stöddu ekki annað en það að menn myndu fara gaumgæfilega yfir skýrslu Rík- isendurskoðunar. „Við munum gefa okkur tíma til þess og sjá síðan hvað setur,“ segir ráðherra. Þorfinnur Ómarsson, sem staddur er erlendis, sagðist ekki hafa séð skýrslu Ríkisendurskoðunar en dró ekki dul á að sér þætti óskemmtilegt að frétta um þetta í fjölmiðlum, ekki ósvipað og þegar ráðherra vék hon- um frá störfum tímabundið. „Í fyrra skiptið þegar mennta- málaráðherra vék mér tímabundið úr starfi braut hann stjórnsýslulög og hann virðist ekkert hafa lært af þeirri reynslu heldur virðist ætla að viðhafa áfram svipuð vinnubrögð gagnvart mér.“ Athugasemdir við reikninga að upphæð liðlega 70 þúsund kr. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar eru gerðar athugasemdir við nokkra reikninga frá veitingahúsum sem for- stöðumaðurinn lét Kvikmyndasjóð greiða, samtals að upphæð liðlega 70 þúsund króna, og telur Ríkisendur- skoðun að Kvikmyndasjóður eigi ekki að bera kostnað vegna þeirra. Þá beri að endurkrefja forstöðu- manninn um ferðakostnað til og frá flugvelli vegna ferða til útlanda svo og vegna hreinsunar á fatnaði hans. Að því er ákvarðanir um styrkveit- ingarnar varðar telur Ríkisendur- skoðun að engu breyti þó fyrir hafi legið lögfræðiálit á þá leið að for- RÍKISENDURSKOÐUN telur að ekki fari á milli mála að Þorfinni Óm- arssyni, fyrrverandi forstöðumanni Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, hafi verið óheimilt að úthluta þremur nýj- um styrkjum að upphæð 28,5 millj- ónir króna til kvikmyndagerðarfyrir- tækja og hækka vilyrði um styrk til eins fyrirtækis áður en hann lét af störfum 14. febrúar; fyrir hafi legið lögmæt og rökstudd tilmæli af hálfu menntamálaráðuneytisins þess efnis að forstöðumaðurinn aðhefðist ekk- ert að svo stöddu þar sem lagaskil- yrði fyrir styrkveitingum væru ekki enn til staðar. stöðumaðurinn hefði formlegar heimildir á grundvelli gildandi laga til að taka ákvörðun um umræddar styrkveitingar. Kemur raunar fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að ætla megi af gögnum að Hrafn Gunn- laugsson hafi farið þess á leit við Vil- hjálm H. Vilhjálmsson hrl. að hann skilaði umræddu áliti um réttarstöðu forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðv- ar. Ríkisendurskoðun leggur áherslu á að í áliti Vilhjálms hafi ekki verið tekin afstaða til þess hvort forstöðu- maðurinn gæti tekið ákvörðun um styrkveitingar þvert gegn skýrum og rökstuddum fyrirmælum mennta- málaráðherra sem æðra stjórnvalds. Ríkisendurskoðun komin út fyrir eigið verksvið Vilhjálmur H. sagðist í gærkvöld ekki hafa séð skýrslu Ríkisendur- skoðunar og hann geti því ekki tjáð sig um hana. „Ég hef hins vegar skoðun á þætti Ríkisendurskoðunar í þessu máli. Stofnunin starfar sam- kvæmt sérstökum lögum á vegum Al- þingis. Hennar verksvið er að annast endurskoðun ríkisreiknings og að hafa eftirlit með reikningshaldi og fjárreiðum ríkisstofnana eða sjóða o.s.frv. á vegum ríkisins. Það er henn- ar hlutverk. Það er ekki hennar hlut- verk að gefa út lögfræðiálit um ein- stakar stjórnsýsluathafnir og ég tel að hún sé komin út fyrir verksvið sitt í þessu máli og virðist misskilja hlut- verk sitt algerlega. Stofnunin er ekki stjórnsýsludómstóll,“ sagði Vilhjálm- ur. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er tekið fram að Þorfinnur Ómarsson sé ósammála áliti stofnunarinnar og að hann hafi í athugasemdum ítrekað niðurstöður í lögfræðiáliti Vilhjálms. Telur hann að Kvikmyndamiðstöðin sé sjálfstætt stjórnvald sem heyri að- eins stjórnarfarslega undir mennta- málaráðherra. Ákvarðanir forstöðu- mannsins séu því ekki kæranlegar til menntamálaráðuneytisins og boð- vald ráðherra yfir Kvikmyndamið- stöðinni nái ekki til einstakra ákvarð- ana sem forstöðumaður hennar tekur. Honum sé því ekki skylt að fara að tilmælum ráðherra um ein- stakar úthlutanir. Ráðherra gaf bindandi fyrirmæli Þessu hafnar Ríkisendurskoðun og segir ljóst að menntamálaráðherra fari með yfirstjórnunarvald gagnvart forstöðumanni Kvikmyndastöðvar Íslands og geti gefið honum bindandi fyrirmæli. Brjóti þau fyrirmæli ráð- herra ekki gegn lögum beri forstöðu- manni að virða þau og fara eftir þeim. Ekki verði ráðið af kvikmyndalögum né greinargerð með frumvarpi að lögunum að Kvikmyndamiðstöðin skuli vera sjálfstætt stjórnvald. Ríkisendurskoðun tekur fram að ekki sé um það deilt að þau verkefni sem úthlutanir fengu hafi verið styrkhæf á grundvelli fyrri reglna en tekur jafnframt fram að það sé sér- stakt lögfræðilegt álitaefni hvort styrkurinn sé endurkræfur af styrk- þegunum. Um það verði þó aðrir en Ríkisendurskoðun að kveða úr um. Umræddir styrkir, sem forstöðu- maðurinn úthlutaði í trássi við fyr- irmæli menntamálaráðherra, voru greiddir af ríkisféhirði með milli- göngu greiðsludeildar menntamála- ráðuneytisins og telur Ríkisendur- skoðun æskilegt að ráðuneytið endurskoði innbyrðis boðskipti í mál- um af þessu tagi. Skýrsla Ríkisendurskoðunar um starfsskil forstöðumanns Kvikmyndasjóðs Þorfinni var óheimilt að úthluta nýjum styrkjum Þorfinnur segir menntamálaráðherra ekkert hafa lært af fyrri mistökum LÍÐAN ökumanns pallbíls, er lenti í hörðum árekstri við mal- arflutningabíl á Sauðárkróki 12. apríl sl., var í gær óbreytt, að sögn vaktlæknis á gjörgæslu- deild Landspítalans í gær. Ökumanninum hefur verið haldið sofandi í öndunarvél frá því hann gekkst undir aðgerð vegna alvarlegra höfuðáverka. Karlmanni sem féll niður af þriðju hæð blokkar í Sólheimum í Reykjavík aðfaranótt fimmtu- dags er enn haldið sofandi í önd- unarvél á Landspítalanum. Líð- an hans er óbreytt. Hið sama á við um karlmann sem féll fram af svölum á íbúð- arhúsi á Akureyri á sunnudags- kvöld. Líðan slasaðra óbreytt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.