Morgunblaðið - 23.04.2003, Side 12
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÝJAR höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur
á Bæjarhálsi 1 verða vígðar í dag. Þær koma
til með að hýsa vatns-, rafmagns- og hitaveit-
una undir einu þaki en hingað til hafa þessar
stofnanir fyrirtækisins verið hver í sínu hús-
næði. Hin nýja bygging er um 14 þúsund fer-
metrar að flatarmáli en gert er ráð fyrir að
þegar öllum framkvæmdum verði lokið muni
heildarflatarmál höfuðstöðvanna verða um 22
þúsund fermetrar, að sögn Ögmundar Skarp-
héðinssonar og Ólafs Hersissonar, arkitekta
hjá arkitektastofunni Hornsteinum. Húsið er
byggt á verðlaunatillögu Hornsteina sem unn-
in var í samvinnu við Teiknistofu Ingimundar
Sveinssonar. Verkfræðivinna var í höndum Al-
mennu verkfræðistofunnar, Fjarhitunar,
Línuhönnunar, Rafhönnunar og Verkfræði-
stofu Snorra Ingimarssonar.
Heildarkostnaður við skrifstofubygginguna
er áætlaður um 2,9 milljarðar króna eða u.þ.b.
213 þúsund krónur á fermetra samkvæmt
upplýsingum frá VSÓ ráðgjöf sem annaðist
verkefnisstjórn með byggingunni en að sögn
Ögmundar er það lægri kostnaður en við sam-
bærilegar byggingar sem reistar hafa verið
undanfarin ár.
Þrjár afar ólíkar byggingar
Húsið samanstendur af þremur byggingum
þar sem tvær afar ólíkar skrifstofubyggingar
standa ofan á þeirri þriðju, sem er eins konar
klöpp. Anddyri hússins er glersalur sem
stendur á klöppinni og tengir byggingarnar
saman. „Austurhúsið er frekar formfast, stíft,
og klassískt, ferkantað og klætt svörtu graníti.
Vesturhúsið er byggt á allt annan hátt og er
annars eðlis, meira svífandi og létt yfir því
enda er það allt úr stáli og gleri. Sú bygging er
aldrei eins heldur breytist eftir sjónarhorni,
tíma og veðri,“ útskýrir Ögmundur. Hann
bendir á að byggingarnar tvær séu lýsandi
fyrir ímynd fyrirtækisins sem sé bæði gamalt
og gróið en einnig framsækið hátæknifyrir-
tæki.
Hann bætir við að jarðhæðin verði opin al-
menningi, þar verði þjónustuver, upplýsinga-
borð, sparisjóður, sýningar- og fyrirlestrasalir
og kaffihús. „Anddyrið er þannig að gestur
sem kemur inn skynjar samstundis hvar allt
er. Þá gerir glerið það að verkum að þaðan er
víðsýnt til allra átta.“
Byggt á rúmum tveimur árum
Bygging hússins hófst í janúar 2001 og mun
frágangi að mestu ljúka í sumar. Í húsið fóru
6.200 rúmmetrar af steinsteypu og 1.590 tonn
af stáli. Efni í byggingarnar var sótt víða, gler-
ið er frá Bretlandi, stálgrindin frá Danmörku
og granítið frá Kína. „Tjörn og foss verða fyrir
framan húsið auk þess sem mikið af listaverk-
um mun prýða það,“ segir Ögmundur.
Starfmenn hússins verða um 500 talsins en
skrifstofurýmin eru öll opin jafnt hjá forstjór-
um og öðrum starfsmönnum enda segir Ög-
mundur að slíkt fyrirkomulag sé víða í fyr-
irtækjum nú orðið. Hugmyndin sé sú að stuðla
að samhæfðara vinnuumhverfi og því sitji nán-
ast enginn einn í lokaðri skrifstofu. Hann
bendir á að þegar komi að innanhússhönnun
hafi einfaldleikinn verið látinn ráða og ekki
hafi verið bruðlað með dýr efni, t.d. sé stór
hluti gólfa úr slípaðri steinsteypu. „Síðan verð-
ur það fólkið, starfsmenn jafnt og gestir sem
gefa umhverfinu lit en öll hönnun miðar að því
að starfsmenn hafi góða yfirsýn og greiðan að-
gang hver að öðrum.“
Nýtt 14 þúsund fermetra húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur vígt í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skrifstofur forstjóranna eru á efstu hæð og
þaðan er gríðargott útsýni. Þær eru opnar
eins og aðrar skrifstofur í húsinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hér má sjá hvernig austur- og vesturbyggingarnar tengjast með brúm á hverri hæð. Á milli
bygginganna er glerhýsi en hér er horft niður í anddyri hússins af efstu hæðinni.
Byggingin er í takt við
ímynd fyrirtækisins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ögmundur Skarphéðinsson og Ólafur Hers-
isson, arkitektar hjá arkitektastofunni Horn-
steinum, en stofan fékk 1. verðlaun fyrir til-
lögu sína í hugmyndasamkeppni um nýtt
húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur ásamt
Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar.
INDRIÐI H. Þorláksson ríkisskatt-
stjóri telur eðlilegt að embættið hafi
afhent fjármálaráðherra útreikninga
Samfylkingarinnar í skattamálum, en
í bréfi til ríkisskattstjóra gagnrýnir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þá máls-
meðferð og telur flokkana búa við að-
stöðumun hvað þetta varðar.
Indriði segir að þeir útreikningar
sem embættið vinni með séu ekkert
leyndarmál. Þegar Samfylkingin hafi
óskað eftir að embætti ríkisskatt-
stjóra ynni útreikninga hafi það verið
gert með vitund fjármálaráðherra,
sem óskað hafi eftir því að fá afrit af
þeim niðurstöðum sem fengjust.
„Það er fullkomlega eðlilegt að
mínu mati að þegar við vinnum al-
menn verkefni liggi niðurstöðurnar
ljóst fyrir. Ef Samfylkingin mun óska
eftir aðgangi að slíkum gögnum tök-
um við afstöðu til þess þegar að því
kemur,“ segir Indriði. Hann segir
embætti ríkisskattstjóra gæta fyllsta
trúnaðar um meðferð upplýsinga er
varða einstaka skattgreiðendur.
Í bréfinu til ríkisskattstjóra segir
Ingibjörg Sólrún ennfremur að trún-
aðarmenn Samfylkingarinnar megi
búa við það að allir útreikningar sem
þeir óska eftir fari sjálfkrafa í hendur
varaformanns Sjálfstæðisflokksins
vegna stöðu hans sem ráðherra.
Ekki í einkaþjónustu fyrir
Samfylkinguna segir ráðherra
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
segir það ekki hafa tíðkast til þessa að
embætti ríkisskattstjóra blandaðist
með þessum hætti inn í kosningabar-
áttu eða kosningaútreikninga tiltek-
inna stjórnmálaflokka. Upplýst um-
ræða um skattamál og óvéfengjan-
legir útreikningar séu hins vegar af
hinu góða. Samfylkingin, eða öllu
heldur Jóhanna Sigurðardóttir, hafi
óskað eftir því við sig að ríkisskatt-
stjóri ynni útreikninga fyrir flokkinn.
Geir segist ekkert hafa séð óeðlilegt
við það en af hálfu fjármálaráðuneyt-
isins hafi verið óskað eftir því að fá þá
útreikninga í hendur. Fram komi í
bréfi ríkisskattstjóra til Samfylking-
arinnar að eðli máls samkvæmt geti
útreikningar af þessu tagi ekki verið
trúnaðarmál.
„Jafnframt var hnykkt á því af
minni hálfu að þeir sem biðja um
svona útreikninga verða að sjálfsögðu
að greiða fyrir þá vinnu. Síðan sé ég
það í bréfi Ingibjargar Sólrúnar að
hún er óánægð með þetta fyrirkomu-
lag. Það virðist þá hafa vakað fyrir
Samfylkingunni að fá embætti ríkis-
skattstjóra í einkaþjónustu fyrir sig.
Það gengur auðvitað ekki.“
Viðbrögð ríkisskattstjóra við bréfi Samfylkingarinnar
Eðlilegt að afhenda
ráðherra útreikninga
TVISVAR í viku hittast betri
borgarar á kosningaskrifstofu
Vinstri grænna í Kópavogi og
ræða um lífsins gagn og nauð-
synjar. Sá yngsti í hópnum er 65
ára en aldursforsetinn er 92 ára.
Rætt er um allt milli himins og
jarðar og stundum koma góðir
gestir í heimsókn og leggja orð í
belg.
Á myndinni eru Sveinn Jóns-
son, Guðsteinn Þengilsson, Helgi
Seljan, Kolbrún Valvesdóttir og
Benedikt Guðbrandsson.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Betri borgarar
ræða málin