Morgunblaðið - 23.04.2003, Síða 24
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
24 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TILLAGA að deiliskipulagi nýs
tæplega 2.800 manna íbúðarsvæðis
á Hörðuvöllum við Vatnsenda í
Kópavogi verður kynnt á næstunni
en bæjarstjórn Kópavogs sam-
þykkti á fundi sínum í gær að aug-
lýsa hana. Búist er við að fyrstu
lóðum á svæðinu verði úthlutað
þegar á þessu ári.
Svæðið sem um ræðir er dalurinn
milli Rjúpnahæðar og Vatnsenda-
hæðar og nefnist sem fyrr segir
Hörðuvellir. Það er um 70 hektarar
að flatarmáli en þar af er íþrótta-
svæði um 8 hektarar.
Gert er ráð fyrir 1.064 íbúðum í
hverfinu í fjölbýli, sérbýli og sam-
býli. Áformað er að ný einbýlishús
verði 90 talsins, 18 íbúðir verði í tví-
býlum, 24 í raðhúsum, 72 í svoköll-
uðum klasahúsum, 368 íbúðir í fjöl-
býlishúsum, 324 í háhýsum, 8 íbúðir
verði fyrir geðfatlaða auk 160 þjón-
ustuíbúða. Háhýsin verða sjö tals-
ins og 10 til 14 hæðir, fjölbýlishúsin
verða 14 talsins og tvær til þrjár
hæðir en sérbýlin ein til tvær hæð-
ir.
Áformað er að reisa heildstæðan
grunnskóla á svæðinu, tvo leikskóla
og íþróttahús auk tveggja húsa fyr-
ir verslun og þjónustu. Þar sem
svæðið er hluti af stærri skipulags-
heild í Vatnsenda er gert ráð fyrir
að ýmis þjónusta verði sameiginleg
með henni.
Mislæg gatnamót komi
í síðari áfanga
Aðkoma að byggðinni verður um
Vatnsendaveg, Vatnsendahvarf og
þjóðveginn milli Arnarnesvegar og
Vatnsendavegar. Í seinni áfanga er
gert ráð fyrir að íbúðasvæðið teng-
ist um Vatnsendaveg með mislæg-
um gatnamótum við Arnarnesveg
og Breiðholtsbraut.
Fram kemur í greinargerð með
skipulagstillögunni að landið, sem
fer undir byggðina, halli til vesturs
og suðurs. Segir að mikið og fagurt
útsýni sé yfir Elliðavatn og Heið-
mörk og allt að Hengilssvæðinu,
Vífilsfelli og Bláfjöllum frá bygg-
ingasvæðinu í sunnanverðri Vatns-
endahlíð. Þá sé fagurt útsýni yfir
Faxaflóa frá vestanverðri hlíðinni
og Rjúpnahæð.
Að öðru leyti einkenna melar,
móar og graslendi gróðurfar svæð-
isins en hluti þess er innan vatns-
verndarsvæðis, svokallaðs fjarsvæð-
is B. „Á því svæði gilda ákveðnar
reglur um notkun efna, t.d. við
gatnagerð og ræktun svo og hús-
dýrahald,“ segir í greinargerðinni.
Gönguleiðir munu liggja um
svæðið auk þess sem reiðleiðir
liggja um jaðar svæðisins sem
tengjast öðrum reiðleiðum í Vatns-
enda. Þá liggur svæðið að stóru
opnu svæði til vesturs í Vatnsenda-
hvarfi. Á völdum stöðum er áform-
að að gróðursetja trjágróður til
skjólmyndunar og til að mynda
snjógildrur en fram kemur í grein-
argerðinni að gera megi ráð fyrir
að vegna landslags og hæðar svæð-
isins séu meiri snjóalög í Vatnsenda
en annars staðar í byggð í Kópa-
vogi.
Þá kemur fram að gert sé ráð
fyrir að virk fjarskiptamöstur á
leigulandi Landsíma Íslands í
Rjúpnahæð standi til ársins 2026.
Er sérstaklega bent á að vanda
þarf uppsetningar á sjónvarps- og
útvarpsloftnetum á íbúðum í hverf-
inu og að truflana gæti orðið vart í
vissum gerðum ferðaútvarpa. Að
sögn Birgis Sigurðssonar, skipu-
lagsstjóra í Kópavogi, hefur ekki
verið ákveðið hvernig framkvæmd-
um á svæðinu verður áfangaskipt.
Þó megi búast við að hluta lóða á
svæðinu verði úthlutað þegar á
þessu ári.
Hönnuður deiliskipulagsins er
Smári Smárason arkitekt.
Nýtt 2.800 manna íbúðarsvæði samþykkt til auglýsingar í bæjarstjórn Kópavogs í gærkvöld
Útsýni allt að
Hengilssvæðinu
og Bláfjöllum
Vatnsendi
Tölvumynd/Onno
Sjö háhýsi og 14 fjölbýlishús verða á svæðinu en íbúðir verða alls 1.064 talsins, þar af 160 þjónustuíbúðir og átta
íbúðir fyrir geðfatlaða. Hönnuður skipulagsins er Smári Smárason arkitekt á bæjarskipulagi Kópavogs.
ÞAÐ var ljót aðkoma hjá starfs-
mönnum endurvinnslustöðvar
Sorpu að Sævarhöfða í gærmorgun
þegar þeir mættu til vinnu eftir
páskafrí en þar blasti við þeim gríð-
arstór haugur af rusli sem hafði ver-
ið skilinn eftir utan við stöðina. Um-
sjónarmaður endurvinnslustöðv-
anna segir um undantekningar-
tilfelli að ræða.
Að sögn Steinunnar Jónsdóttur,
umsjónarmanns endurvinnslustöðva
Sorpu var stöðin lokuð á föstudaginn
langa, páskadag og annan í páskum
en opin á skírdag og laugardag. Hún
var svo opnuð á ný í gærmorgun eft-
ir páskafrí og hefur sumaropnunar-
tími nú tekið við þar sem opið er til
kl. 21 á kvöldin. Hún segir því opn-
unartíma endurvinnslustöðvanna
mjög rúman og því ætti fólk ekki að
þurfa að bregða á það ráð að skilja
óvarið sorp eftir utan við stöðina.
„Þetta var skelfileg aðkoma því
þetta voru örugglega tveir vörubíls-
farmar sem lágu þarna fyrir utan,“
segir hún.
Slíkur sóðaskapur liðin tíð
Sigríður bendir á að umræddur
haugur sé greinilega upprunnin á
heimilum en ekki í fyrirtækjum og
það sé afar sjaldgæft að starfsmenn
Sorpu upplifi slíkan sóðaskap við
stöðvarnar.
„Þetta kom okkur verulega á
óvart. Fyrst eftir að við lokuðum
stóru haugunum í Gufunesi var fólk
svolítið að skilja eftir sorp þar fyrir
utan en þetta er í rauninni liðin tíð.
Eftir þessa aðkomu ók ég milli end-
urvinnslustöðvanna hér á Reykja-
víkursvæðinu og það var t.d. ekkert
fyrir utan stöðvarnar í Kópavogi
nema einn svartur ruslapoki sem er í
sjálfu sér ekkert óvenjulegt. Þannig
að ég skil hreinlega ekki hvað fólk
hefur verið að hugsa í þessu tilfelli.“
Bílfarmar af sorpi
skildir eftir óvarðir
Menn voru stórtækir við tiltektir yfir hátíðirnar ef marka má ruslahauginn
sem beið fyrir utan endurvinnslustöð Sorpu við Sævarhöfða í gærmorgun.
Umsjónarmaður stöðvarinnar segir slíkan sóðaskap afar óalgengan.
Ártúnshöfði
HILMAR Hilmarsson, skóla-
stjóri Borgaskóla í Grafar-
vogi, hefur verið ráðinn skóla-
stjóri Réttarholtsskóla. Var
hann valinn úr hópi 8 um-
sækjenda.
Hilmar á að baki langa
reynslu af skólastjórnun í
litlum og stórum skólum og
hefur lokið meistaranámi í
skólastjórnun og auk þess
námi í sérkennslu og tal-
kennslu. Síðastliðin ár hefur
hann verið í starfi sem skóla-
stjóri Borgaskóla í Grafar-
vogi, en sú staða er nú auglýst
laust til umsóknar.
Haraldur Finnsson sem
verið hefur skólastjóri Rétt-
arholtsskóla í 22 ár lætur af
störfum fyrir aldurs sakir á
komandi sumri.
Tveir aðstoðarskóla-
stjórar ráðnir til
afleysinga í eitt ár
Tveir nýir aðstoðarskóla-
stjórar hafa verið ráðnir til
Grunnskóla Reykjavíkur fyrir
næsta skólaár vegna náms-
leyfa. Marinó Einarsson hefur
verið ráðinn í stöðu aðstoð-
arskólastjóra Engjaskóla í
námsleyfi Guðrúnar Erlu
Björgvinsdóttur. Þá hefur Jó-
hann A. Kristjánsson verið
ráðinn í stöðu aðstoðarskóla-
stjóra Öskjuhlíðarskóla næsta
skólaár og mun hann leysa
Jónu S. Valbergsdóttur af,
þar sem hún mun gegna stöðu
skólastjóra í námsleyfi Einars
Hólm Ólafssonar.
Nýr
skóla-
stjóri
Réttar-
holtsskóla
Bústaðahverfi
SUMARDAGURINN fyrsti verður haldinn hátíð-
legur með pomp og prakt víða um höfuðborg-
arsvæðið á fimmtudag. Hafa sumarskemmtanir
verið skipulagðar á vegum skátafélaga og fé-
lagsmiðstöðva á fjölda staða.
Þannig er skipulagning hátíðarhalda í Kópa-
vogi í höndum Skátafélagsins Kópa og hefjast
þau með skátamessu í Hjallakirkju kl. 11 þar
sem vígðir verða skátar, ljósálfar og ylfingar. Þá
verður farið í skrúðgöngu frá Digraneskirkju kl.
13.30 og gengið að Íþróttahúsinu Smáranum þar
sem haldin verður fjölskylduskemmtun sem
hefst kl. 14. Meðal annars munu krakkar úr
Kópavogi syngja, íþróttafélögin Gerpla og
karatedeild Breiðabliks verða með atriði og
Sjónleikhúsið sýnir leikritið um Stígvélaða kött-
inn sem gengið hefur í Borgarleikhúsinu að und-
anförnu.
Í Garðabæ munu skátar einnig sjá um hátíð-
arhöld á fimmtudag en Skátafélagið Vífill á ein-
mitt afmæli þennan dag. Dagskráin hefst með
fánaathöfn við Vídalínskirkju laust fyrir klukk-
an 13 en strax á eftir verðu skátaguðsþjónusta í
kirkjunni þar sem m.a. verður vígsla nýliða í fé-
lagið. Að venju hefst svo skrúðganga klukkan 14
og verður gengið frá Vídalínskirkju, niður Hofs-
staðabraut, eftir Bæjarbraut og að Hofsstaða-
skóla. Lúðrasveit Garðabæjar mun ýta undir
göngutaktinn með hressum undirleik. Við Hofs-
staðaskóla verður síðan fjölbreytt dagskrá þar
sem m.a. verður boðið upp á þrautabraut, leik-
tæki, söng og skemmtiatriði.
Fjöltefli og Tóti trúður
Félagsmiðstöðvarnar Tónabær og Þrótt-
heimar standa að sumarhátíð í Tónabæ á sum-
ardaginn fyrsta milli klukkan 14 til 16. Dag-
skráin mun að mestu fara fram utandyra á lóð
Tónabæjar og verður m.a. boðið upp á Harry
Potter-hoppkastala, víkingaleiki, hokkíkynn-
ingu, söng, sápubandý, danssýningu og svo
mætti lengi telja. Þá verður efnt til fjölteflis
skákmeistara við börn og unglinga og hefst það
klukkan 11 hjá Taflfélagi Reykjavíkur að Faxa-
feni 12.
Loks munu hverfasamtökin Betra líf í Bú-
staðahverfi standa fyrir hátíðarhöldum sum-
ardaginn fyrsta og hefst hátíðin kl. 13 við
Grímsbæ þar sem gengið verður í skrúðgöngu
að Bústaðakirkju. Í kirkjunni verður sam-
verustund í tali og tónum en þaðan verður síðan
gengið fylktu liði niður í Vík þar sem boðið verð-
ur upp á leiktæki, sumargrín og trönur utandyra
auk þess sem sölutjöld verða á staðnum. Innan-
dyra verða ýmis atriði frá skólum hverfisins,
andlitsmálun, kökuhlaðborð og Tóti trúður og
félagar mæta á svæðið auk þess sem íþróttamað-
ur Víkings verður krýndur.
Aðgangur að ofangreindum hátíðum er
ókeypis.
Morgunblaðið/Golli
Skátar sjá víða um hátíðarhöld í tilefni af sum-
ardeginum fyrsta á morgun. Myndin er frá há-
tíðarhöldum í Reykjavík í fyrra.
Sumarskemmtanir víða
Höfuðborgarsvæðið