Morgunblaðið - 23.04.2003, Side 25
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 25
fyrir fjölskylduna
KRINGLAN SMÁRALIND AKUREYRI EGILSSTAÐIR
HALLÓ
KRAK
KAR
- ÉG H
EITI
BOMM
SI
VINNINGSHAFAR Í SUMAR ERU SKÍRTEINI
NÚMER 57, 169, 295, 403, 662 OG 681.
(ÞESSIR KRAKKAR FÁ SPORTSKÓ FRÁ BE WILD)
Verð frá
kr. 2,995
HALLÓ KRAKKAR
BOMMSI BÝÐUR NÚ UPP Á FULLAR
BÚÐIR AF FLOTTUM SKÓM Á ALLA
KRAKKA FYRIR SUMARIÐ.....
SPORTSKÓR, SPARISKÓR,
SANDALAR O.FL. O.FL.
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur
samþykkt aðgerðaráætlun í
tengslum við markaðssetningu Akur-
eyrar á fyrirtækjamarkaði. Þar kem-
ur m.a. fram að stytta þurfi leiðina
milli Akureyrar og Reykjavíkur,
þannig að aksturstími fari ekki yfir 3
klst. og jafna þurfi flutningsgjöld. Að
FSA verði gert kleift að gegna hlut-
verki sínu sem aðalvarasjúkrahús,
með tilliti til almannavarna, að vera
öflugt sérdeilda- og háskólasjúkra-
hús og að þar verði teknar upp
hjartaþræðingar. Einnig er lagt til að
stjórnsýsla fiskeldismála verði flutt
til Akureyrar.
Þá er í aðgerðaráætluninni lagt til
að sett verði upp öndvegissetur í auð-
lindatækni við Háskólann á Akur-
eyri, að Akureyrarbær leggi áherslu
á að úthýsa þjónustuverkefnum á
vegum bæjarins og nýta árangurs-
stjórnun, að bærinn standi fyrir út-
gáfu á Viðburðardagatali og stuðli að
menningartengdum verkefnum og
viðburðum og að skipulag miðbæjar-
ins verði mótað og framkvæmdir
tryggðar. Loks að skipulag bæjarins
sé þannig úr garði gert að atvinnu-
málafulltrúi eða „sölumaður“ á fyr-
irtækjamarkaði sé í nánum tengslum
við atvinnulífið, hagsmunaðila og hafi
frumkvæði að markaðssetningu Ak-
ureyrar á fyrirtækjamarkaði.
Stytting á leiðinni milli Akureyrar
og Reykjavíkur hefði mikil jákvæð
fjárhagsleg áhrif fyrir framleiðslu-,
matvæla-, ferðaþjónustu- og önnur
fyrirtæki á Akureyri. Stytting leið-
arinnar yki samkeppnishæfni þeirra
fyrirtækja sem fyrir eru, auk þess að
vera stór þáttur í að draga að nýja
starfsemi og ný fyrirtæki. Þá lögðu
þátttakendur í vinnuhópnum áherslu
á samgöngubætur með göngum
gegnum Vaðlaheiði og beint flug til
útlanda.
Í tillögu að eflingu FSA er lagt til
að fjölga sérfræðingum í heilbrigð-
isþjónustu á Akureyri, taka upp
hjartaþræðingar við FSA og efla
endurhæfingu í bænum. Árlega
koma um 10 þúsund sjúklingar á
FSA til þess að fá sérfræðiþjónustu.
Markmið þess að fjölga sérfræðing-
um er að hækka markaðshlutdeild
FSA úr 60% í 70–80%, eða fjölga
komum um 1.600–3.300 árlega. Einn-
ig að jafna aðstöðu íbúa, auka þjón-
ustustig og tryggja jafnari aðgang að
sérfræðingum. Þá er bent á að þörfin
fyrir hjartaþræðingar fari vaxandi og
því sé nauðsynlegt að taka slíkar að-
gerðir upp á FSA. Árlega sækja um
200 manns í Eyjafirði þessa þjónustu
til höfuðborgarsvæðisins. Þá er talið
að þörf sé fyrir 20–25 starfsmenn til
þess að sinna endurhæfingu á svæð-
inu.
Varðandi flutning stjórnsýslu fisk-
eldismála til bæjarins, er bent á að sú
stjórnsýsla sé nú staðsett í nokkrum
ráðuneytum. Lagt er til í tillögu
vinnuhópsins að öll stjórnsýsla sem
tengist fiskeldi verði færð undir einn
hatt og staðsett á Akureyri, í nálægð
við öflugustu sjávarútvegsfyrirtæki
landsins, Verðlagsstofu skiptaverðs
og HA, sem starfrækir auðlindadeild,
þá einu sinnar tegundar hérlendis.
Upphafið rakið til
íbúa bæjarins
Þá er bent á að á Akureyri séu góð
skilyrði fyrir öndvegissetur í sjávar-
eða auðlindalíftækni. Því sé mikil-
vægt að Akureyrarbær vinni að því
að fá fjármagn, 200–300 milljónir á
ári, til þessa uppbyggingarstarfs.
Upphaf vinnu við markaðssetn-
ingu Akureyrar á fyrirtækjamarkaði
má rekja til íbúa bæjarins, segir í
greinargerð atvinnumálanefndar,
sem stóð fyrir verkefninu. Komið
hafi í ljós við rannsóknir á búferla-
flutningum og lífsgæðum að atvinnu-
mál vega þungt í hugum íbúa og að
það sé ósk íbúanna að stuðlað sé að
fjölbreyttu atvinnulífi og starfsör-
yggi.
Markaðssetning á fyrirtækja-
markaði felur í sér að hafa áhrif á fyr-
irtæki þannig að þau líti á Akureyri
sem ákjósanlegan kost þegar kemur
að staðsetningu eða áframhaldandi
uppbyggingu. Tillögur atvinnumála-
nefndar miða að aukinni hagsæld á
Akureyri og að styrkja stoðir þess at-
vinnulífs sem fyrir er á svæðinu og
auka fjölbreytni þess. Tillögurnar
miða að „dýnamísku“ samfélagi og
umhverfi og að því að draga hæfi-
leikaríkt fólk til bæjarins og stuðla að
nýsköpun, sem og að því að skipa
Akureyri í forystusveit íslenskra
sveitarfélaga.
Aðgerðaráætlunin sjálf var unnin í
nánu samstarfi við forsvarsmenn ein-
hverra öflugustu fyrirtækja, mennta-
og menningarstofnana landsins en
unnið var í þremur vinnuhópum.
Ráðgjafafyrirtækið IMG á Akureyri
kom að vinnunni ásamt atvinnumála-
nefnd. Fjölmargar tillögur að verk-
efnum komu fram í starfi vinnuhóp-
anna en megináherslan er lögð á átta
tillögur.
Aðgerðaráætlun fyrir markaðssetn-
ingu Akureyrar á fyrirtækjamarkaði
Stjórnsýsla fisk-
eldismála verði
flutt til bæjarins
SKÍÐAVERTÍÐINNI í Hlíðarfjalli er lokið á þessum
vetri og eru starfsmenn Skíðastaða farnir að ganga frá
en um leið að búa sig undir næsta vetur. „Þetta er búið
þennan veturinn, nema það geri sögulega stórhríð fyrir
vorið,“ sagði Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður
Skíðastaða. „Veturinn hefur verið með þeim erfiðari en
við höfum aðeins haft opið í um 50 daga og byrjenda-
lyftan í Hólabraut hefur aðeins verið opin í 19 daga.
Botninum er náð og ástandið getur varla orðið verra en
þetta. En það þýðir ekkert að örvænta, eða láta þetta
fara í skapið á sér. Næsti vetur verður bara ennþá
skemmtilegri,“ sagði Guðmundur Karl.
Morgunblaðið/Kristján
Skíðavertíðinni í Hlíðarfjalli er lokið en snjóleysi hefur gert mönnum erfitt fyrir í vetur. Stólalyftan Fjarkinn var
notuð til að flytja fólk bæði upp og niður fjallið vegna snjóleysis neðan við Strýtu.
Skíðavertíðinni lokið