Morgunblaðið - 23.04.2003, Page 26
SUÐURNES
26 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
UMHVERIS- og skipulagsráð
Reykjanesbæjar hefur samþykkt
að auglýsa deiliskipulag að nýju
íbúðahverfi í Njarðvík, svokölluðu
Hlíðarhverfi. Í hverfinu verður
unnt að byggja 143 íbúðir, mun
færri en reiknað var með á þessu
svæði sem í daglegu tali er nefnt
Neðra-Nikelsvæði.
Neðra-Nikelsvæði er í Njarðvík,
milli byggðarinnar þar og í Kefla-
vík. Varnarliðið var með starfsemi
þar en skilaði svæðinu til varn-
armálaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins síðastliðið sumar þegar
lokið var við að fjarlægja mann-
virki og hreinsa landið.
Við þá athöfn lýsti Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra því yf-
ir að landið myndi nýtast Reykja-
nesbæ en það yrði auglýst til sölu.
Mun það verða gert í tengslum við
skipulagsvinnuna.
Nýr Flugvallarvegur
Landið sem varnarliðið skilaði er
um 66 hektarar að stærð. Þar af er
15 hektara öryggissvæði við enda
flugbrautar Keflavíkurflugvallar
sem áskilið var í samningum við
varnarliðið að ekki yrði byggt á.
Viðar Már Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri umhverfis- og skipu-
lagssviðs Reykjanesbæjar, segir að
búið sé að leggja mikla vinnu í að
mæla hávaða frá flugumferð og
niðurstaða Heilbrigðiseftirlitsins
hafi orðið sú að aðeins mætti
byggja íbúðir á um 19 hektara
svæði. Að auki væri unnt að nota
hluta svæðisins sem útivistarsvæði.
Hugmyndir hefðu komið upp um
að gera þar íþróttasvæði fyrir allt
bæjarfélagið í framtíðinni.
Gert er ráð fyrir að í gegn um
svæðið verði lagður nýr Flugvall-
arvegur og að hann komi niður á
Njarðarbraut/Hafnargötu hjá
Reykjaneshöllinni. Þar verði ein
helsta aðkoman í bæinn. Þá verða
ný gatnamót sett á Reykjanes-
brautina þar sem nýr Flugvall-
arvegur kemur inn á hana. Viðar
lætur þess getið að sá vegur flokk-
ist sem þjóðvegur í þéttbýli og
myndi verða lagður í samvinnu við
Vegagerðina.
Blandað og frjálst
Skipulag arkitektanna gerir ráð
fyrir því að í Hlíðarhverfi verði
blandað saman einbýlishúsum, par-
húsum og raðhúsum, alls 99 lóðum
fyrir hús með 143 íbúðum. Þar af
eru 63 einbýlishús, 60 íbúðir í par-
húsum og 20 íbúðir í raðhúsum.
Gert er ráð fyrir að parhúsin verði
efst á svæðinu, í hringnum sem
sýndur er á meðfylgjandi teikn-
ingu, en einbýlishúsin neðst. Rað-
húsin þar á milli eru í skipulags-
legum tengslum við raðhús sem
þar hafa verið skipulögð. Gert er
ráð fyrir að væntanlegir lóð-
arhafar geti byggt nokkuð frjálst á
lóðum sínum, þannig er í grein-
argerð með skipulagstillögunum
tekið fram að staðsetning innan
byggingarreits sé frjáls, svo og
mænistefna, svo fremi ákvæðum
byggingareglugerðar sé fylgt.
Í gildandi aðalskipulagi Reykja-
nesbæjar hefur verið miðað við að
þarna yrði unnt að byggja mun
meira í framtíðinni, auk iðn-
aðarhúsnæðis sem alveg hefur
verið fallið frá að hafa þarna.
Viðar Már segir að Ríkiskaup
áformi að auglýsa landið til sölu.
Þegar skipulagsferlið verði búið og
ljóst um eignarhald landsins verði
hægt að hefja úthlutun lóða í Hlíða-
hverfi, væntanlega þegar í sumar.
Ekki hefur verið ákveðið hvort
Reykjanesbær mun sækjast eftir að
kaupa landið, að sögn Viðars, þótt
hann taki fram að almennt sé talið
æskilegt að sveitarfélög eigi sjálf
það land sem þau úthluta til bygg-
inga. Þess ber að geta að upphaf-
legir eigendur landsins, Njarðvík-
urbændur, eiga forkaupsrétt þegar
að sölu landsins kemur.
Aðeins hægt að byggja á 19 ha. landi á Neðra-Nikelsvæði
Gert ráð fyrir 143 íbúðum
í einbýlis- og parhúsum
Á uppdrætti Teiknistofunnar Arkar af Hlíðarhverfi eru byggingarlóðir
sýndar bleikar í græna þríhyrnda rammanum. Nýr flugvallarvegur liggur
meðfram hverfinu og upp á Reykjanesbraut. Reykjaneshöllin er fyrir neð-
an nýja hverfið og þar í totunni er gert ráð fyrir bílastæðum fyrir íþrótta-
húsið og fjölbrautaskólann. Á útivistarsvæðinu ofan Reykjaneshallar, þar
sem rissaðir eru upp knattspyrnuvellir, er gert ráð fyrir að hægt verði að
byggja í framtíðinni íþróttaleikvang og æfingavelli fyrir íþróttafélögin.
Njarðvík
LÖGREGLAN leitar upplýs-
inga um ferðir bifreiðar sem
stolið var í Reykjavík en fannst
í Vogum með bílnúmerum sem
stolið var í Garði.
Miðvikudaginn 2. apríl 2003
var bifreiðinni VF-156, Mitsub-
ishi Lancer station, rauðri á lit,
árgerð 2000, stolið í Reykjavík.
Hinn 14. apríl 2003 fannst bif-
reiðin á Stapavegi við hesthús-
in í Vogum mikið skemmd, en
þá bar hún skráningarnúmerin
OA-596. Þeim númerum var
stolið af bifreið í Garði 6. apríl
2003.
Lögreglan biður þá sem geta
gefið upplýsingar um hverjir
hafi verið á þessari bifreið á
þessum tíma um að hafa sam-
band við lögregluna í Keflavík
Fannst með
stolin númer
Vogar
skrúðgöngunum en hvetja bæjarbúa
til að taka þátt. Vegna skrúðgöngunn-
ar er mæting í skátahúsið í Keflavík
kl. 10 og að Suðurgötu 10 í Sandgerði
klukkan 13. Skátavígsla fer fram í
Safnaðarheimlinu í Sandgerði.
SKÁTAR fagna sumri með skrúð-
göngum og skátamessum í Keflavík
og Sandgerði á sumardaginn fyrsta.
Skátafélagið Heiðabúar standa fyrir
Skrúðgöngur og skátamessur
Keflavík/Sandgerði
LONE Rud sem kennir við þekktan
listaskóla í Kaupmannahöfn hvernig
framleiða má tónlist með alls konar
hlutum og með sjálfum líkamanum,
heldur námskeið í Púlsinum í Sand-
gerði. Námskeiðið verður 26. og 27.
apríl, frá klukkan 10 til 17 báða dag-
ana.
„Örvandi námskeið fyrir þá sem
vilja víkka út hugmyndir sínar í tón-
listarkennslu eða kynnast þessari
tegund tónlistar sem nefnd er Stomp
í daglegu tali. Stomp á uppruna sinn
í Brasilíu. Rytmarnir (taktarnir)
koma frá hlutnum sjálfum. Þegar
þátttakandi námskeiðsins fær rétta
örvun og leiðbeiningu þá getur hann
t.d. látið kústskaft, plastpoka, zippo
kveikjara og fleira gefa frá sér heil-
mikla tónlist,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Púlsinum.
Á námskeiðinu er stigið inn í heim
funk/R&B tónlistar og fleiri tónlist-
arstefna sem hljóma hressandi.
Danshreyfingar koma einnig við
sögu og jafnvel sönglistin.
Stomp og steinar
Sandgerði
MIKILL fjöldi fólks kom í Sundlaug
Akureyrar um páskana, enda ein-
muna veðurblíða á Akureyri eins
og víðast hvar á landinu. Gísli
Kristinn Lórenzson forstöðumaður
sundlaugarinnar sagði að 8-9 þús-
und gestir hefðu komið í laugina
frá skírdegi og fram á annan í pásk-
um en það er þó um 1.000 manns
færra en um páskana um fyrra.
Sagði Gísli Kristinn að snjóleysi í
Hlíðarfjalli nú hefði ráðið mestu um
fækkunina milli ára.
Hann sagði að fjöldi fólks hefði
verið í bænum og að flestir hefðu
gestirnir verið hjá sér á föstudag-
inn langa en þá fór hitastigið á Ak-
ureyri upp undir 20 gráður. Fyrstu
þrjá mánuði ársins voru gestakom-
ur í Sundlaug Akureyrar rúmlega
7.000 færri en á sama tímabili í
fyrra. Það helgast einnig af snjó-
leysi og færra ferðafólki þess
vegna, að sögn Gísla Kristins.
Ein allra stærsta helgin á hverju
ári í Sundlaug Akureyrar er í
tengslum við Andrésar Andar-
leikana á skíðum, þegar hátt í 1.000
börn og annað eins af gestum
tengdum þeim, hafa komið til bæj-
arins. Leikunum hefur nú verið af-
lýst vegna snjóleysis í Hlíðarfjalli
en þeir áttu að hefjast í kvöld og
standa fram á laugardag. Gísli
Kristinn, sem jafnframt er einn for-
svarsmanna Andrésar Andar leik-
anna, sagði að það kæmu því færri í
sund næstu daga en venjulega í
kringum sumardaginn fyrsta. Önn-
ur stærsta helgin á hverju ári í
sundlauginni er í kringum Essomót
KA og Pollamót Þórs í byrjun júlí
ár hvert. Þar á eftir kemur svo
verslunarmannahelgin. „Þessar
uppákomur hafa gríðarlega þýð-
ingu fyrir bæjarfélagið,“ sagði Gísli
Kristinn, sem er þegar farinn að
undirbúa Andrésar Andar-leikana
að ári, ásamt félögum sínum í fram-
kvæmdanefndinni.
Morgunblaðið/Kristján
Fjöldi fólks lagði leið sína í sundlaugina um páskana í einmuna veðurblíðu.
Mikill fjöldi fólks í sundi
HELDUR færra fólk var í bænum
en um páska undanfarin ár þegar
bærinn hefur fyllst af skíðafólki. Síð-
astliðin vika var í heild róleg og fátt
stórra tíðinda, segir í dagbók lög-
reglunnar á Akureyri. Allmikil um-
ferð var þó og gekk hún vel og slysa-
laust fyrir sig þrátt fyrir tíu
minniháttar umferðaróhöpp.
Fimmtán ökumenn voru kærðir
fyrir of hraðan akstur og fjórir tekn-
ir grunaðir um ölvun við akstur.
Skemmtistaðir voru opnir með hefð-
bundnum hætti og fór skemmtana-
lífið almennt vel fram. Þrjár líkams-
árásir voru tilkynntar, allar minni-
háttar. Hafðar voru gætur á fíkni-
efnaneytendum og eru fjögur mál
skráð þar sem afskipti voru höfð af
þeim vegna neyslu fíkniefna.
Rólegt hjá lögreglunni í páskavikunni
Færra fólk í bænum
en venjulega
Ferðafélagið Hörgur efnir til
gönguferðar í Baugasel í Barkárdal
á sumardaginn fyrsta. Í Baugaseli
verður nesti borðað, en þar er gam-
all endurbyggður torfbær. Leiðin er
um 7 km löng, auðgengin og á allra
færi. Lagt verður af stað frá Bugi í
Hörgárdal klukkan 10 og allir eru
velkomnir.
Á MORGUN
Nemendum í grunn-
skólum fjölgar
Ávallt verði
boðið upp
á bestu
þjónustu
SKÓLANEFND hefur samþykkt
úthlutun almennra kennslustunda
til grunnskólanna á Akureyri næsta
skólaár. Alls eru kennslustundirnar
4.656, sem er fjölgun um 48
kennslustundir frá fyrra ári en
nemendum fjölgar um 25 á sama
tíma.
Með þessari fjölgun stunda er
meðalstundafjöldi pr. nemanda sá
sami milli ára eða 1,85 stundir. Við-
bótarkostnaður sem af þessari
fjölgun leiðir nemur 2,3 milljónum
króna.
Þá samþykkti skólanefnd að fela
deildarstjóra að afla frekari upplýs-
inga um fjölda kennslustunda til al-
mennrar kennslu hjá sambæri-
legum sveitarfélögum til saman-
burðar við það sem gerist á
Akureyri, þar sem skólanefnd vill
að þjónusta grunnskólanna á Ak-
ureyri sé ávallt sambærileg við það
besta sem gerist í landinu.
Karlakór Dalvíkur
Vorhátíð
að Rimum
KARLAKÓR Dalvíkur heldur
Vorhátíð í tilefni sumarkomu, að Rim-
um í Svarfaðardal síðasta vetrardag,
miðvikudagskvöldið 23. apríl kl. 20:30.
Dagskrá: Jóhannes Kristjánsson,
eftirherma, skemmtir fólki með því að
leika þjóðkunnar persónur.
Einsöngur, tvísöngur, kvart-
ettsöngur og svo tekur Karlakórinn
lagið undir stjórn Guðmundar Óla.
Veislustjóri: Björn Þór Ólafsson
Píanóleikari: Daníel Þorsteinsson
Að lokinni skemmtidagskrá verður
stiginn dans þar sem hljómsveit húss-
ins sér um fjörið. Boðið verður uppá
léttan náttverð sem eiginkonur kór-
félaga framreiða. Verð aðgöngumiða
er 2.900 krónur