Morgunblaðið - 23.04.2003, Side 27
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 27
ÁRSHÁTÍÐIR Grunnskóla Egils-
staða og Eiða- og Fellahrepps voru
haldnar á dögunum, annars vegar í
Valaskjálf á Egilsstöðum og hins
vegar í Fellaskóla.
Mikil aðsókn var að báðum há-
tíðum og höfðu nemendur undirbú-
ið sig af kostgæfni.
Meðal atriða var kórsöngur
skólakórs Egilsstaðaskóla og ind-
verskur dans um 60 nemenda
Fellaskóla.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Nemendur sungu á árshátíðinni og var gerður góður rómur að söngnum.
Hillir undir
lok skólaársins
Egilsstaðir
KRÍAN kom til Hornafjarð-
ar í fyrradag. Það var Björn
Arnarson fuglaáhugamaður
sem sá tvo fugla á sveimi yfir
Höfn um áttaleytið í fyrra-
kvöld.
Krían er stundvís því hún
kemur til landsins sama dag
og í fyrra. Nú eru allir far-
fuglarnir komnir til landsins
nema óðinshani og þórshani,
en þeir birtast venjulega
ekki fyrr en um miðjan maí.
Um páskana sást holudúfa
(Columba oenas) í fyrsta
sinn á Íslandi. Björn sá dúf-
una við Hala í Suðursveit á
páskadag. Í fyrradag fór
hann ásamt Brynjúlfi
Brynjólfssyni og Hálfdani
Björnssyni á Kvískerjum og
sáu þeir þá fuglinn aftur.
Holudúfa á heimkynni í
Evrópu og á Bretlandseyj-
um.
Krían
komin til
Horna-
fjarðar
Hornafjörður
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur um stækkun Mennta-
skólans á Egilsstöðum um rúm-
lega 1000 m2.
Byggja á við núverandi kennslu-
álmu skólans, skv. teikningum
Ormars Þórs Guðmundssonar
arkitekts. Viðbyggingin verður
1.067 m2 að stærð og mun hýsa
kennslu- og stjórnunarrými,
ásamt fyrirlestrasal. Taka á við-
bygginguna í notkun haustið 2004,
ef allt gengur eftir.
Þrengsli hafa háð mennta-
skólanum undanfarin ár og sem
dæmi um það hefur t.d. skrifstofa
rektors verið í geymslukompu.
Þar sem aðsókn að skólanum er
góð mun stækkun hans gjörbylta
allri vinnuaðstöðu starfsmanna og
nemenda.
Kennslurýmið sjálft eykst um
50% og félagsaðstaða nemenda
batnar með auknu húsrými þar
sem pláss sem nú er notað fyrir
stjórnun og kennslu losnar.
Ríkissjóður greiðir 60% af
kostnaði við stækkun ME og sveit-
arfélög á Austurlandi 40%. Heima-
sveitarfélögin Austur-Hérað og
Fellahreppur munu gera samning
við önnur sveitarfélög innan Sam-
bands sveitarfélaga á Austurlandi
um kostnaðarþátttöku þeirra í
samræmi við kynningu sem þegar
hefur farið fram. Tómas Ingi Ol-
rich menntamálaráðherra und-
irritaði samninginn fyrir hönd ís-
lenska ríkisins og Eiríkur Bj.
Björgvinsson, bæjarstjóri Austur-
Héraðs, og Jens P. Jensen, sveit-
arstjóri Fellahrepps, fyrir hönd
sveitarfélaga sinna.
Rektor Menntaskólans á Egils-
stöðum er Helgi Ómar Bragason.
ME stækkaður um 1.000 m2
Egilsstaðir
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra, Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjar-
stjóri Austur-Héraðs, og Jens P. Jenssen, sveitarstjóri Fellahrepps, undir-
rituðu samninginn um stækkun Menntaskólans á Egilsstöðum.
Viðbygging menntaskólans tekin í notkun haustið 2004
PÍSLARGANGAN, sú tíunda í röð-
inni, hófst með hefðbundnum hætti í
hægviðri og sólskini við Hótel
Reynihlíð á föstudaginn langa. Að
þessu sinni voru þátttakendur fleiri
en nokkru sinni eða vel á þriðja
hundrað strax við upphaf göngunn-
ar. Þar sem ekki er um keppni við
tímann að ræða þá hefur gangan öll
nokkuð annað og rólegra yfirbragð
heldur en íþróttamót. Saman ganga
gjarnan kunningjar og vinir eða fjöl-
skyldur og mátti sjá krakka á hjól-
um sem fylgdu foreldrum sínum eft-
ir og nutu þannig tilverunnar. Ef
einhver týndi sínum félaga þá
hringdu menn sig saman aftur.
Yfir öllu vakti Finnur Baldursson
hagyrðingur á rútubíl, þar sem fólk
gat geymt nesti eða yfirhafnir og
sest inn til að hvílast smástund.
Gestabók ein merkileg tilheyrir
þessari göngu og rita menn nöfn sín
í hana annaðhvort á hótelinu við
upphaf göngu eða þá í rútunni. Í
bókina hefur verið skráður annáll
þessarar göngu frá upphafi. Einnig
fljóta þangað inn vísur oftast eftir
Finn bílstjóra. Þessi varð til nú með-
an gengið var:
Ótrúlegur fjöldi fór
í fínu veðri í göngu þessa.
Hádegishríðar höfnun stór
heitt fáum kakó og svo er messa.
Venjulega er dokað við nærri
Geirastöðum og gripið til nestis, síð-
an er gengið upp í Skútustaði þar
sem bæði andinn og efnið eru fóðruð
eftir smekk hvers og eins. Í Selinu
fæst heitt orkukakó, margrómað
fyrir gæði. Fjölmargir ganga til
kirkju, en á Skútustöðum er einhver
hin fegurst kirkja og er 140 ára göm-
ul á þessu ári. Þar stóð fyrir altarinu
sr. Örnólfur J. Ólafsson og fagnaði
göngufólki sem kom til kirkju. Hann
beið eftir kraftaverki því enginn var
organistinn þegar 3 mínútur voru til
athafnarinnar enda enginn til þess
kvaddur og kirkjan að fyllast. En þá,
svo sem fyrir forsjón birtist á síð-
ustu mínútu göngukona Sólveig
Jónsdóttir sem oftar en ekki hefur
leikið undir við þessar föstudagsat-
hafnir. Þau stungu saman nefjum
presturinn og listamaðurinn og náðu
skjótt samkomulagi um hvað skyldi
syngja og spila. Presturinn las 41.
passíusálm og blessaði söfnuðinn
sem fyllti kirkjuna. Loks samhringdi
Óli Kristjánsson klukkum kirkjunn-
ar, svo sem hann hefur gert í nær-
fellt hálfa öld – og göngufólkið hélt
áfram sinni för austur um Arabrúar-
læk og Grænalæk. Í Garði hafði Kári
bóndi hleypt fjársafni sínu út í góð-
viðrið. Veðrið var áfram yndislegt en
þónokkur vestan gola og fór vaxandi
en nú var hún á bak göngufólksins.
Við Voga bauluðu kusur Ólafar á
göngumenn en þær hafa gengið á
túni nú síðustu daga á milli mjalta og
er það með öðru til marks um veð-
urblíðuna.
Í lok göngunnar fóru margir í
sundlaugina, einhverjir í Bjarnar-
flagslón og margir í jarðbaðið óvið-
jafnanlega. Hvergi hverfur þreytan
skjótar en þar. Af einum fréttist sem
ekki gat gengið um daginn. Frekar
en ekki gekk hann því nóttina fyrir.
Á þriðja hundr-
að manns í
píslargöngu
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Gönguforinginn Snæbjörn Pétursson er lengst til hægri á myndinni.
Mývatnssveit
áfram Ísland
Til fundar vi› flig
Daví› OddssonGeir H. Haarde
Blönduós
Mi›vikudagur 23. apríl
Félagsheimili› kl. 17.30
Sau›árkrókur
Mi›vikudagur 23. apríl
Fjölbrautaskólinn kl. 20.30
Á næstu dögum og vikum munu Daví› Oddsson, forsætisrá›herra og forma›ur Sjálfstæ›isflokksins, og Geir H.
Haarde, fjármálará›herra og varaforma›ur Sjálfstæ›isflokksins, ásamt ö›rum flingmönnum og frambjó›endum
Sjálfstæ›isflokksins halda fundi um land allt og heimsækja vinnusta›i.
Vi› hlökkum til a› fá tækifæri til a› kynnast sjónarmi›um flínum, ræ›a vi› flig um flann mikla árangur sem vi›
Íslendingar höfum í sameiningu ná› og hvernig vi› getum best tryggt a› Ísland ver›i áfram í fremstu rö›.
xd.is