Morgunblaðið - 23.04.2003, Síða 38
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í
dag kl. 13-16.30. Handavinna, spilað,
föndrað. Gestur Þorvaldur Halldórsson.
Bílaþjónusta í símum 553 8500,
553 0448 og 864 1448.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520 9700. Krakka-
klúbbar í safnaðarheimilinu: 9-10 ára
börn kl. 16-17 og 11-12 ára kl. 17.30-
18.50. www.domkirkjan.is
Grensáskirkja. Samvera aldraðra kl. 14.
Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall.
Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8.
Hugleiðing, altarisganga, léttur morgun-
verður. Opið hús fyrir foreldra ungra barna
kl. 10-12. Fræðsla: Mataræði barna. Ingi-
björg Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl.
11. Kvöldbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 lestur Pass-
íusálma og bænagjörð. Allir velkomnir. Kl.
12.30 súpa og brauð (kr. 300) Kl. 13–16
opið hús fyrir eldri borgara. Fjölbreytt dag-
skrá. Söngstund, tekið í spil, upplestur,
föndur, spjall, kaffisopi o.fl. Þeir sem
ekki komast af sjálfsdáðum eru sóttir.
Hafið samband við kirkjuvörð í síma
520 1300.
Laugarneskirkja. Kl. 10.30 gönguhópur-
inn Sólarmegin alla mið. og föst. kl.
10.30. Kirkjuprakkarar (1.-4. bekkur) kl.
14.10. TTT-fundur kl. 16.15. (5.-7. bekk-
ur). Kl. 20 Unglingakvöld Laugarneskirkju
og Þróttheima kl. 20 (8. bekkur). Umsjón
hefur Sigurvin Jónsson guðfræðinemi og
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, tómstunda-
ráðgjafi hjá Þróttheimum. (Sjá síðu 650 í
Textavarpinu).
Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12.
Fræðsla í umsjón hjúkrunarfræðinga á
Seltjarnarnesi. Agi og uppeldi ungra
barna. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. 7 ára
starf kl. 14.30. Opið hús kl. 16. Kaffi og
spjall. Biblíufræðsla kl. 17. Rætt verður
um Hirðisbréfin. Umsjón sr. Frank M.
Halldórsson. Fyrirbænamessa kl. 18.
Prestur sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur hádegisverður eftir stundina.
Fríkirkjan í Reykjavík. Alfa-námskeið í
safnaðarheimilinu kl. 20. Kyrrðar- og
bænastund í kapellu safnaðarins í safn-
aðarheimilinu, Laufásvegi 13, 2. hæð, kl.
12. Allir velkomnir.
Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há-
degi. Orgeltónlist, altarisganga, fyrirbænir
og íhugun. Kl. 13-16 opið hús.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eft-
ir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9
ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10-12
ára kl. 17.30.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10-
12. (Sjá nánar: www.digraneskirkja.is).
Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og helgi-
stund í Gerðubergu kl. 10-12 í umsjón
Lilju G. Hallgrímsdóttur, djákna.
Grafarvogskirkja. Helgistund í hádegi kl.
12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er
upp á léttan hádegisverð á vægu verði að
lokinni stundinni. Prestar safnaðarins
þjóna fyrir altari, orgelleikari Hörður
Bragason. Allir velkomnir. KFUM fyrir
drengi 9-12 ára í Grafarvogskirkju kl.
16.30-17.30. Kirkjukrakkar fyrir börn 7-9
ára í Rimaskóla kl. 17.30-18.30. TTT (10-
12 ára) í Rimaskóla kl. 18.30-19.30.
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-9. bekk í
Engjaskóla kl. 20-22.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10.
TTT-starf fyrir 10-12 ára kl. 17. 12-spora
námskeið kl. 20.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börn-
um í dag kl. 16.45-17.45 í safnaðarheim-
ilinu Borgum. Starf með 10-12 ára börn-
um TTT á sama stað kl. 17.45-18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartan-
lega velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefn-
um í kirkjunni í síma 567 0110. Æsku-
lýðsfundur fyrir unglinga 14-15 ára kl. 20.
Biblíulestraröð Seljakirkju kl. 19.30 ann-
an hvern miðvikudag. Næsti lestur er 23.
apríl.
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra
barna kl. 10-12. Heitt á könnunni. Fjöl-
mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl.
13-16 í samstarfi við Félag eldri borgara
á Álftanesi. Notalegar samverustundir
með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður
eða Erlendur sjá um akstur á undan og
eftir.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safnað-
arheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10-12. Hitt-
umst og spjöllum. Heitt á könnunni og
djús fyrir börnin. Allir foreldrar velkomnir
með eða án barna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós-
broti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu
og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Hægt er að koma fyrirbænaefnum til
sóknarprests eða kirkjuvarðar. Opið hús
fyrir eldri borgara í dag kl. 13. Gott tæki-
færi til að hittast, spjalla saman, spila og
njóta góðra veitinga. Verið velkomin.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar
í dag kl. 10-12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 20
opið hús í KFUM&K heimilinu við Vest-
mannabraut.
Lágafellskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimili kirkjunnar í Þverholti 3, 3.
hæð, frá kl. 10-12. Umsjón hefur Arndís
L. Bernharðsdóttir og Þuríður D. Hjalta-
dóttir. AA-fundur kl. 20.30 í Lágafells-
kirkju. Unnið í 12 sporunum.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Spilakvöld aldraðra
og öryrkja fimmtudaginn 24. apríl kl. 20. í
umsjá félaga úr Lionsklúbbi Njarðvíkur,
Ástríðar Helgu Sigurðardóttur og sr. Bald-
urs Rafns Sigurðssonar. Natalía Chow
organisti leikur á orgel við helgistund að
spilum loknum.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Lofgjörð, lestur orðsins, fróðleikur
og samvera. Allt ungt fólk velkomið.
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Samkoma kl. 20. Drottinn hjálpar. Sálm.
3. Ræðumaður Margrét Hróbjartsdóttir.
Kaffiveitingar eftir samkomuna. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10-
12.
Safnaðarstarf
MESSUR/KIRKJUSTARF
38 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
son, séra Anna Sigríður Pálsdóttir og
séra Bjarni Þór Bjarnason. Kór Grafar-
vogskirkju syngur. Organisti: Hörður
Bragason. Stórtónleikar í Grafarvogs-
kirkju kl. 20:00. Gloría eftir A. Vivaldi,
Missa bréve no.4 eftir Ch. Gounod. Kór
Grafarvogskirkju og Breiðholtskirkju
ásamt Barna- og unglingakór Grafarvogs-
kirkju.
HJALLAKIRKJA: Skátaguðsþjónusta kl.
11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Skát-
ar úr Kópavogi syngja og leiða safnaðar-
söng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Prestarnir.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl.
11.00. Fermingarmessa. Altarisganga.
Nöfn fermingarbarnanna eru birt annars
staðar í blaðinu. Prestar eru sr. Kristján
Björnsson og sr. Þorvaldur Víðisson. Allir
hjartanlega velkomnir að fagna komu
vorsins með fermingarbörnunum. Kl.
14.30. Helgistund á Heilbrigðisstofnun-
inni, dagstofu 2. hæð. Heimsóknargest-
ir velkomnir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Blóma-
messa sumardaginn fyrsta kl. 14. Kirkju-
kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn
Úlriks Ólasonar.
ÁSPRESTAKALL: ÁSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11:00.
HRAFNISTA: Guðsþjónusta kl. 14:00.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Skátaguðsþjón-
usta kl. 11:00 í umsjón sr. Jóns Dalbú
Hróbjartssonar.
LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
GRENSÁS: Guðsþjónusta kl. 20:00. Sr.
Sigfinnur Þorleifsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Ferming kl. 11:00.
Organisti Jón Stefánsson. Prestur sr.
Guðný Hallgrímsdóttir.
LAUGARNESKIRKJA: Fermingarmessur
kl. 11:00 og kl. 13:30. Kór Laugarnes-
kirkju syngur. Organisti Gunnar Gunnars-
son. Prestur sr. Bjarni Karlsson. (Sjá
síðu 650 í Textavarpi).
NESKIRKJA: Helgistund kl. 13:00 í sam-
vinnu við hverfafélög í Vesturbænum,
s.s. skáta og KR. Prestur sr. Örn Bárður
Jónsson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Fermingar-
guðsþjónusta kl. 11. Tónlist Carl Möller,
Anna Sigga og Kór Fríkirkjunnar. Sr.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
GRAFARVOGSKIRKJA: Ferming kl.
10:30. Prestar: séra Vigfús Þór Árna-
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Fermingar-
messa sumardaginn fyrsta 24. apríl kl.
14.
ÁSTJARNARKIRKJA: Fermingarmessa í
Hafnarfjarðarkirkju kl. 14.
KÁLFATJARNARSÓKN: Fermingarmessa
kl. 10.30.
HVALSNESKIRKJA: Safnaðarheimilið í
Sandgerði. Æskulýðsguðsþjónusta kl.
14. Skátavígsla Heiðabúa. Skátar ann-
ast söng ásamt kirkjukórum Hvalsnes-
og Útskálakirkna. Organisti Steinar Guð-
mundsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sumardagurinn
fyrsti. Skátaguðsþjónusta kl. 11 árd. (At-
hugið breyttan messutíma). Prestur: sr.
Sigfús Baldvin Ingvason. Skátar aðstoða
og lesa ritningarlestra. Kór Keflavíkur-
kirkju leiðir söng. Organisti og söng-
stjóri: Hákon Leifsson. Meðhjálpari:
Laufey Kristjánsdóttir.
LAUFÁSPRESTAKALL: Svalbarðskirkja.
Fermingarmessa sumardaginn fyrsta kl.
13.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Fermingar-
messa sumardaginn fyrsta kl. 11.
SELFOSSKIRKJA: Skátaguðsþjónusta
sumardaginn fyrsta kl. 22.
Á sumardaginn fyrsta eru liðin 90 ár frá stofnun Fríkirkjusafnaðarins í Hafnarfirði.
AÐ kvöldi sumardagsins
fyrsta, 24. apríl, verður haldin
unglingaguðsþjónusta í Selja-
kirkju undir yfirskriftinni
KOMDU. Athöfnin hefst kl. 20.
Haukur Árni Hjartarson pré-
dikar og sönghópur úr kristi-
legum skólasamtökum KSS
leiðir hressandi söng.
Verið velkomin í Seljakirkju.
Unglinga-
guðsþjónusta
í Seljakirkju
FRÉTTIR
UMHYGGJA, félag til stuðnings
langveikum börnum, tók á dög-
unum við 150 þúsund króna styrk
frá Lionsklúbbi Hafnarfjarðar. Um-
hyggja hefur milligöngu um að
styrkurinn gangi beint til fjöl-
skyldu í Hafnarfirði þar sem eitt
barnanna er langveikt.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Dögg Káradóttir, framkvæmdastjóri Umhyggju, tekur við styrknum úr
hendi Gissurar Kristjánssonar, forseta Lionsklúbbs Hafnarfjarðar.
Lionsmenn styrkja
Umhyggju
YFIR páskahelgina, frá
miðvikudegi að telja,
stöðvaði lögreglan í
Reykjavík 140 öku-
menn fyrir of hraðan akstur. Sex
ökumenn mældust á meiri en 50 km
hraða yfir leyfilegum hámarks-
hraða. Sá sem hraðast fór mældist á
151 km/klst. á Suðurlandsvegi við
Rauðhóla þar sem leyfilegur há-
markshraði er 80 km/klst.
Á laugardag var ekið yfir fót
barns á horni Laugavegs og
Smiðjustígs. Ökumaður hélt áfram
för sinni án þess að nema staðar en
faðir barnsins fór með það á slysa-
deild.
Á páskadag var tilkynnt um bif-
reið sem ekið var utan vega og hafði
valdið þó nokkrum skemmdum. Bif-
reiðin var númerslaus og var dregin
af vettvangi. Gróður er mjög við-
kvæmur á þessum árstíma og akst-
ur utan vega því sérlega skaðlegur.
Á miðvikudag féll 20 metra ljósa-
mastur með fjórum kösturum ofan á
bifreið við Holtabakka. Festing við
eina af þremur stoðum mastursins
hafði gefið sig. Ekki urðu slys á
fólki. Um kvöldmatarleytið kom
maður og tilkynnti um einelti sem
hann verður fyrir á vinnustað sínum
í Mosfellsbæ.
Aðfaranótt skírdags var tiltölu-
lega róleg þó svo að nokkuð væri
um pústra og slagsmál. Óskað var
eftir aðstoð lögreglu til að kanna
leyfi leigubílstjóra í akstri og á
skemmtistað í miðborginni voru
gestir með hótanir í garð starfs-
fólks. Svo fór að þeir ruddust inn á
staðinn, brutu þar spegil og dyra-
vörður var bitinn í eyra. Undir
morgun óskaði hótelgestur aðstoðar
vegna tveggja kvenna sem voru að
slást. Í ljós kom að hótelgesturinn
hafði leigt herbergi fyrir sig og
konu eina en eiginkona hans fengið
af því pata og mætti hún á staðinn.
Upphófust þá slagsmálin milli
kvennanna.
Um hádegi á skírdag kom rúm-
enskur karlmaður á lögreglustöðina
á Hverfisgötu, framvísaði vegabréfi
og óskaði eftir hæli á Íslandi.
Ekið var á lögreglumann að
kvöldi skírdags eftir að ökumaður
missti stjórn á skapi sínu vegna
stöðumælasektar sem hann hafði
fengið. Ruddi hann lögreglumann-
inum ½–1 metra á undan sér. Lög-
reglumanninn sakaði ekki.
Aðfaranótt laugardags voru tveir
piltar staðnir að því að selja landa í
Grafarvogi. Voru þeir handteknir
og viðurkenndu brotið. Seinna um
nóttina voru tveir menn teknir í
Breiðholti, grunaðir um viðskipti
með fíkniefni. Um hálffimmleytið
var tilkynnt um mann sem klifrað
hafði upp á stjórnarráðið. Maðurinn
var handtekinn, hann var ölvaður
og sagðist hafa klifrað upp til að ná í
skó.
Á mánudagsmorgun hafði lög-
reglan einnig afskipti af stúlku sem
klifrað hafði upp í byggingakrana í
miðbænum. Henni var hjálpað nið-
ur og rætt við forsvarsmenn fyr-
irtækisins um að tryggja betur ör-
yggismál á svæðinu. Fjöldi
tilkynninga barst einnig um börn
sem væru að klifra eða leika sér á
þökum húsa. Forráðamenn barna
eru hvattir til að ræða við þau um
slysahættuna sem fylgir slíku klifri.
Stuttu fyrir hádegi á laugardag
réðst maður með exi inn í verslun í
austurborginni, ógnaði starfsfólki
og stal hljómtæki úr hillu. Ræning-
inn náðist nokkrum klukkustundum
síðar og fannst þýfið í vistarverum
hans.
Undir morgun sáust slagsmál á
milli nokkurra manna á eftirlits-
myndavélum í miðbænum. Slags-
málin enduðu með því að sparkað
var í mann sem lá á gangstétt. Þeg-
ar lögregla kom á staðinn hljóp ger-
andi brott, en náðist. Þolandi vildi
ekki leggja fram kæru.
Nokkrar tilkynningar bárust um
skemmdarverk í skólum um
páskana. Í fæstum tilfellum var um
miklar skemmdir að ræða en þó
voru allar rúður brotnar í skóla í
austurborginni.
Um fimmleytið á mánudagsmorg-
un var tilkynnt um stúlku sem lenti
illa er hún féll úr fangi pilts við úti-
taflið í Lækjargötu. Hún var flutt á
slysadeild með höfuðáverka. Klukk-
an átta sama morgun tilkynnti
starfsmaður Vesturbæjarlaugar að
hann hefði komið að þremur ölvuð-
um mönnum ofan í lauginni. Þeim
var vísað úr sundlauginni. Tuttugu
mínútum síðar voru þessir sömu
menn á ferð í nágrenninu og brutu
þá rúðu í nálægu fyrirtæki. Voru
þeir þá vistaðir í fangaklefa.
Rétt fyrir kvöldmat á annan í
páskum var óskað aðstoðar lögreglu
vegna hunds sem bitið hafði dreng í
vinstri framhandlegg.
Lögreglunni bárust nokkrar til-
kynningar um hávaða frá unglinga-
partíum. Af því tilefni viljum við
minna foreldra á að leyfa ekki for-
eldralaus partí og virða reglur um
útivistartíma barna og unglinga –
líka þegar vorar og birtir! Stað-
reyndin er sú að flestir unglingar
byrja að neyta áfengis og annarra
vímuefna yfir sumartímann og því
full ástæða til að passa sérstaklega
vel upp á börnin á þeim tíma sem nú
fer í hönd.
Úr dagbók lögreglu 16.–22. apríl
Ekki sátt við gestinn
á hótelherberginu