Morgunblaðið - 23.04.2003, Side 41
skilið fyrir. Eftir að afi lést fannst mér
sem ég yrði að vera hjá þér og vernda
þig og passa. Þetta er í minningunni
eins og gerst hefði í gær. Ég lék mér
með fallegu tölurnar þínar í búðar-
leik, þú last fyrir mig fallegar sögur.
Ég svaf alltaf til fóta hjá þér í litla
rúminu þínu, við fórum saman með
bænirnar okkar og fyrir ofan rúmið
þitt hékk gullfallega myndin þín, sem
er alltaf í mínu uppáhaldi, af englinum
sem verndaði börnin sem gengu yfir
brúna. Þetta er tákn mitt um þig. Þú
varst engillinn sem vaktir yfir börn-
um, barnabörnum, og ekki síst barna-
barnabörnum þínum. Þar sem þú
eignaðist 16 börn er hópurinn orðinn
stór. Það hefur þurft dugnað og orku
til að ala öll þessi börn upp og þið lét-
uð ykkur ekki muna um að taka að
ykkur eitt barnabarn, nýfætt og ala
upp, hana Dóru frænku, sem ykkar
17. barn. Þú hefur alltaf verið dugleg
og sterk, þú gekkst í gegnum lífið og
tókst áföllum sem yfir þig dundu og
varðst bara sterkari, fyrir vikið. Þú
ert hetjan mín.
Það var alltaf svo gaman að koma
með börnin til þín, þú varst mikil
barnagæla, hafðir alltaf nóg að spjalla
um við börnin. Strákarnir mínir fóru
alltaf að heimsækja ömmu á rauða
Bensinum er við fórum á Akranes en
það varst þú sem gafst hjólastólnum
þínum þá merkingu og hún lifði alltaf
með mínum börnum. Mér þykir mjög
sárt að þau hafi ekki fengið meiri tíma
með þér, en ég mun hjálpa þeim að
varðveita minningu þína í hjarta sér.
Síðustu dagana hefur Hekla Lind tek-
ið mynd af þér af náttborðinu mínu, og
hún segir: „Amma, elska þig.“ Það er
eins og sagt af mínum vörum: „Amma,
ég elska þig meira en nokkur orð fá
lýst.“
Ég hef þó orðið þeirra gæfu aðnjót-
andi að hafa átt mörg góð ár með þér.
Síðustu árinn hefur mér fundist ég
alltof langt í burtu frá þér, en ég kom
reglulega til þín og við spjölluðum um
allt milli himins og jarðar. Stundum
er ég kom til þín varstu búin að vera
veik, og ég grét á leiðinni heim, því ég
hélt að ég fengi aldrei aftur að sjá þig,
en ævinlega varstu staðin upp úr
veikindunum nokkrum dögum seinna
og enn hressari. Ég bað þess að sú
yrði raunin líka núna, en ég var ekki
bænheyrð í þetta skiptið. Mér fannst
að þú yrðir alltaf til staðar fyrir mig.
Við áttum með þér góðan dag á síð-
asta ári, er þú varst 90 ára, yndislega
fallegur dagur, og vel varðveittur í
minningunni.
Þú varst með ótrúlegt minni,
mundir meira en ég, afmælisdaga,
nöfn á öllum barnabarnabörnunum,
sem stöðugt bætast í hópinn, og voru
þinn fjársjóður. Þú varst mjög trúuð
kona, og held ég að þú hafir kennt
mér það líka, og mun ég halda áfram
að hafa trúna að leiðarljósi.
Elsku Elsa frænka, þér færi ég
mínar bestu þakkir fyrir að vera til
staðar fyrir ömmu og hugsa svo vel
um hana. Öllum börnum hennar,
barnabörnum og barnabarnabörnum
svo og öðrum ástvinum votta ég sam-
úð mína og bið guð að styðja ykkur og
styrkja í sorg ykkar. Starfsfólki
sjúkrahúss Akraness færi ég mínar
bestu þakkir fyrir að vera hennar
stoð, fyrir umönnun hennar og fyrir
félagsskap, þau sjö ár er hún dvaldi
þar. Guð blessi ykkur öll.
Elsku amma mín, það er komið að
leiðarlokum, og leiðir okkar skilur,
ég bið þig að vaka yfir mér og mínum
og fylgja mér áfram í gegnum lífið,
þar til við hittumst á ný, þá veit ég að
þú bíður okkar með bros þitt og hlýtt
faðmlag. Ég kveð þig með söknuði,
hugur minn er hjá þér. Minningin
um bestu ömmu í heimi mun lifa í
hjarta okkar. Ég vil að lokum kveðja
þig með þeim orðum er þú kvaddir
mig alltaf með. Guð geymi þig.
Þitt barnabarn
Dýrleif Ólafsdóttir.
Í dag, 23. apríl 2003, er kvödd
hinstu kveðju, amma mín, Helga Jón-
ína Ásgrímsdóttir, sem orðin var 91
árs gömul, þreytt og þjáð, eftir alvar-
leg veikindi síðustu vikurnar.
Eflaust hefur hún verið hvíldinni
fegin og er nú komin í faðm eigin-
manns, barna og ástvina í ríki
föðurins á himnum. Þetta veitir
mikla huggun til að hugsa þeim sem
eftir lifa og trega horfinn ástvin sinn.
Mig langar aðeins með þessum fá-
tæklegu orðum að þakka þessari hug-
ljúfu og sterku konu fyrir allar góðu
stundirnar, er ég átti, er ég dvaldi sem
barn hjá ömmu og afa á Akranesi.
Nú ertu leidd mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga’ og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum guði,
í guði sofnaðir þú.
Í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(Hallgr. Pét.)
Ég kveð þig, elsku amma mín, með
hlýju og virðingu.
Blessuð sé minning þín.
Þín dótturdóttir,
Helga Lára Árnadóttir.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 41
Þá er komin sú stund sem er svo
erfið, að kveðja ástvini. Amma mín
er búin að fá hvíldina.
Það er svo sárt að kveðja þig,
elsku amma mín, en þér líður vænt-
anlega betur á þeim stað þar sem þú
ert núna.
Amma var búin að vera veik
nokkuð lengi og erfitt að horfa upp á
það. Hún var svo til nýflutt á Hjúkr-
unarheimilið Sóltún og þar leið
henni vel, naut góðrar umönnunar
og vil ég færa því góða fólki, sem
þar starfar, mínar bestu kveðjur.
Amma var létt í lund og fannst
gaman að góðu gríni. Hún var mikið
JÓNÍNA
GÍSLADÓTTIR
✝ Jónína Gísladóttirfæddist á Blauta-
læk á Brunasandi
V-Skaftafellssýslu 19.
nóv. 1914. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Sóltúni 10. apríl síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Gísli
Jónsson og Agnes
Hreiðarsdóttir. Maki
hennar var Ragnar
Guðjónsson, f. 10.1.
1911, d. 27.10. 1975.
Fósturbarn þeirra er
Ingibjörg Jónsdóttir,
f. 14.11. 1942.
Útför Jónínu fer fram frá kapell-
unni í Fossvogi í dag og hefst at-
höfnin klukkan 10.30.
fyrir lestur góðra
bóka og var oftast
jólapakki ömmu ein-
hver góð bók til að
lesa. Á seinni árum
var sjónin farin að
dofna og tóku þá
hljóðlestrarbækur við.
Þegar ég var yngri
var voða gaman að
fara í stætó til ömmu í
Reykjavík og rölta um
bæinn með henni. Hún
bjó í miðbænum og
voru margar ferðirnar
niður á Tjörn farnar.
Hún átti alltaf einhver
gæludýr og er mér minnisstæðust
litla hvíta kisan hennar sem var al-
veg heyrnarlaus. Hún átti heima við
Hverfisgötu þá og litla kisa lagði sig
oft á þeirri götu. Amma varð oft að
hlaupa út og bjarga henni frá voða
eða einhver kom með hana og sagði
að hún væri aðeins fyrir.
Amma var dugleg að kenna mér
að spila á spil og fannst henni fátt
skemmtilegra en að spila, og naut
ég góðs af því. Hún var mikil dýra-
kona og saknaði sveitarinnar sinnar
og dýranna.
Elsku amma mín, ég sit með tárin
í augunum og kveð þig að sinni. Það
er skrýtið að hafa þig ekki með okk-
ur lengur. Ég þakka þér samfylgd-
ina, elsku amma.
Sólveig Sigurðardóttir.
✝ Jóhanna GuðrúnJónsdóttir var
fædd í Reykjavík 29.
júní 1924. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Sólvangi í Hafnar-
firði 11. apríl síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Jón Símonarson bak-
arameistari og Hann-
esína Ágústa Sigurð-
ardóttir. Bræður
Jóhönnu voru Sig-
urður Óskar Jónsson
bakarameistari og
Símon Jónsson bankafulltrúi. Þeir
eru báðir látnir. Einnig átti hún
uppeldisbróður, Jón Baldur Gísla-
son, látinn.
Jóhanna giftist Ólafi Maríussyni
kaupmanni 24. apríl
1943. Börn þeirra
eru: 1) Jón Magni,
kvæntur Sigríði H.
Magnúsdóttur og
eiga þau tvö börn. 2)
Ólafur Maríus, látinn.
Hann átti eina dóttur.
3) Gunnar, kvæntur
Rannveigu Sturlaugs-
dóttur og eiga þau
fimm börn og fjögur
barnabörn. 4) Símon,
kvæntur Maríu Júlíu
Alfreðsdóttur og eiga
þau tvo syni og tvö
barnabörn. 5) Hanna, gift Einari
Gíslasyni og eiga þau þrjá syni.
Útför Jóhönnu fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku amma. Þegar við fréttum að
þú værir farin var okkur brugðið,
þrátt fyrir að við vissum að í þetta
stefndi. Þær stundir sem við áttum
saman munum við alltaf minnast til
dæmis þegar við komum til ykkar afa
á Heiðvanginn í gistingu sem litlir
strákar og spiluðum á spil fram á nótt
og svo áður en við sofnuðum fórst þú
alltaf með bænirnar með okkur. Svo
má ekki gleyma lambalærinu sem þú
eldaðir oft fyrir okkur, það var þín
sérgrein, ,,well done“ eins og við köll-
uðum það.
Þú varst með góðan húmor og það
þurfti ekki mikið til að þú skelltir upp
úr, síðan sagðir þú alltaf svo
skemmtilega frá hlutum og lékst jafn-
vel með, og þó að þú hefðir orðið fyrir
áfalli og gætir ekki búið heima hjá þér
var húmorinn alltaf í lagi.
Elsku amma, það er mikill sökn-
uður sem fylgir því að þurfa að kveðja
þig en við vitum öll að þú ert á betri
stað því þú varst okkur öllum svo góð
og við erum vissir um að við munum
sjást aftur.
Elsku afi, við biðjum Guð að
styrkja þig í þeirri sorg sem þú ert að
ganga í gegnum núna.
Ykkar strákar,
Gísli, Ásgeir og Helgi.
Með fáum orðum langar mig að
minnast æskuvinkonu og nöfnu minn-
ar, Jóhönnu G. Jónsdóttur. Við höfum
átt samleið frá því við hittumst í
barnaskóla tíu ára gamlar.
Síðan hefur vinátta okkar haldist
án nokkurra styggðaryrða, sem lík-
lega telst mjög sjaldgæft, sérstaklega
á unglingsárunum, þar sem oft vill
brenna við að smá ergelsi geti komið
stórstyrjöld af stað sem jafnvel seint
jafnar sig.
Gulla, eins og hún var ávallt kölluð
af sínum nánustu ættingjum og vin-
um, kom til dyranna eins og hún var
klædd, laus við alla tilgerð og hafði
hún mesta ímugust á slíku í fari fólks.
Hún var raungóð og alltaf tilbúin til
hjálpar ef eitthvað bjátaði á.
Hún var vel skipulögð í öllu sínu
húshaldi, myndarleg og allt varð að
vera í röð og reglu.
Gulla var glaðvær og skemmtileg,
ávallt í góðu skapi og alltaf var tekið
vel á móti okkur, þótt óvænt væri, og
framborið allt það besta sem til var í
húsinu.
Við höfum átt margar góðar og
skemmtilegar stundir í gegnum tíð-
ina, ferðast saman innanlands sem
utan með okkar elskulegu eiginmönn-
um. Mikið var hlegið, þar sem við
höfðum sama skopskyn á tilveruna.
Í veikindum Gullu í rúm þrjú ár,
hafa Óli eiginmaður hennar og henn-
ar elskulegu börn sýnt henni sérstaka
umhyggju og hlýju, svo eftir var tek-
ið, sem eflaust hefur létt henni til-
veruna.
Elsku Gulla mín, ég kveð þig
hinstu kveðju með þökk fyrir allt og
allt.
Þín æskuvinkona og nafna,
Jóhanna Thorarensen.
JÓHANNA GUÐRÚN
JÓNSDÓTTIR
✝ Veronika Kon-ráðsdóttir fædd-
ist í Ólafsvík 31.
mars 1909. Hún lést
í Reykjavík 13. apríl
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Konráð Konráðsson,
Ólafsvík og Jóhanna
Guðrún Þórðardótt-
ir. Systkini Vero-
niku voru Ragnar,
Gísli og Andrés,
látnir, og Axel og
Guðríður.
Veronika ólst upp
hjá Ingveldi Jóns-
dóttur og Jósafat Hjaltalín í
Stykkishólmi frá sex ára aldri.
Hinn 23. apríl 1931 giftist
Veronika Þorsteini G. Þorsteins-
syni, sjómanni, f. 24. júní 1906, d.
26. janúar 1990. Þau eignuðust
fjögur börn. Þau eru: 1) Pétur, f.
28.11. 1929, maki Þórarna Ólafs-
dóttir. Þau eignuðust fimm börn,
Láru, Þorstein (látinn), Kolbein,
Konráð og Söru. Pétur átti áður
dóttur, Áslaugu. 2) María Berg-
þóra, hún á tvær
dætur, Veroniku og
Ingveldi Gyðu.
Veronika á þrjú
börn og Gyða tvö. 3)
Jóhann kvæntist
Halldóru Gunnars-
dóttur. Þau áttu
eina dóttur, Arn-
björgu Lindu. Þau
slitu samvistum. 4)
Sveinn (látinn),
kona Anna S. Ing-
ólfsdóttir. Þau áttu
þrjú börn, Guð-
björgu, Þorstein og
Ingólf.
Veronika fluttist frá Stykkis-
hólmi til Reykjavíkur árið 1946,
og bjó þar síðan. Hún vann öll al-
menn verkakvennastörf fyrri
hluta ævinnar fyrir utan að ann-
ast um sitt stóra heimili. Veron-
ika bjó á sínu eigin heimili þar til
yfir lauk, síðustu árin með aðstoð
dóttur sinnar, Maríu.
Útför Veroniku verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Ertu horfin? Ertu dáin?
Er nú lokuð glaða bráin?
Angurs horfi ég út í bláinn,
autt er rúm og stofan þín
elskulega mamma mín.
Gesturinn með grimma ljáinn
glöggt hefir unnið verkin sín.
Ég hef þinni leiðsögn lotið.
líka þinnar ástar notið,
finn hve allt er beiskt og brotið
burt er víkur aðstoð þín,
elsku góða mamma mín. –
Allt sem gott ég hefi hlotið
hefir eflst við ráðin þín.
Þó skal ekki víla né vola
veröld þótt oss brjóti í mola,
starfa, hjálpa, þjóna, þola,
það var alltaf huggun þín,
elsku góða mamma mín. –
Og úr rústum kaldra kola
kveiktirðu skærust blysin þín.
Flýg ég heim úr fjarlægðinni.
fylgi þér í hinsta sinni.
krýp með þökk að kistu þinni,
kyssi í anda sporin þín,
elsku góða mamma mín. –
Okkur seinna í eilífðinni
eilíft ljós frá guði skín.
(Árni Helgason.)
Kveðja frá börnum.
Elsku amma mín. Þú kvaddir
þennan heim sunnudaginn 13. apríl
orðin 94 ára gömul. Þessi dagur
mun ávallt geymast í minningu
minni, því þennan dag fermdist
elsta dóttir mín og nafna þín,
Veronika.
Ég verð þér og afa ávallt þakklát
fyrir að hafa búið mér heimili. Í
gegnum þig hef ég eignast fjársjóð
minninga frá liðnum áratugum. Þín
kynslóð hefur svo sannarlega lifað
tímana tvenna. Á þinni ævi hefur
Ísland breyst úr bændasamfélagi í
tæknivætt borgarsamfélag með öll-
um þeim breytingum sem því
fylgir. Þú hafðir einstaklega gaman
af því að segja sögur og miðlaðir
þannig reynslu þinni til komandi
kynslóða.
Þú varst mjög sterkur persónu-
leiki, skapmikil, vitur og traustur
vinur sem gott var að leita til. Þess-
ir eiginleikar urðu til þess að þú
varst höfuð fjölskyldunnar. Þú
varst dugleg að halda fjölskylduboð
og hélst fjölskyldunni þannig sam-
an. Minning þín mun ávallt lifa með
okkur.
Þín dótturdóttir,
Ingveldur Gyða.
Elsku amma mín, þegar ég sit
hér og skrifa þessar línur liggur
langalangömmubarnið þitt í rúm-
inu sem amma hennar svaf í á sín-
um tíma og sefur vært. Hún kemur
ekki til með að muna eftir þér, en
ég mun segja henni frá þér, amma
mín. Ég segi henni frá því hversu
stórkostleg kona þú varst, amma,
og hversu þakklát ég er fyrir að
hafa fengið að kynnast þér og eiga
þig sem langömmu.
Ég segi henni frá bernskuminn-
ingum mínum úr Bogahlíðinni,
hversu gott var að koma þangað
sem barn, alla leið frá Svíþjóð.
Ég mun segja henni frá öllum
sögunum sem þú sagðir mér um
þína æsku, þinn ungdóm og þitt líf
og reyna að útskýra fyrir henni að
við höfum allar erft þitt skap og
þína þrautseigju.
Ég segi henni hversu stolt þú
varst þegar hún fæddist, fimmti
ættliðurinn í beinan kvenlegg. Og
frá skírninni þar sem hún fékk þitt
nafn, amma mín, og þú sagðir okk-
ur frá því að þann dag var eins og
einhver hefði séð til þess að þú
heyrðir allt sem fram fór.
Allt sem þú hefur kennt mér um
lífið reyni ég að kenna henni, því
amma, þú vissir svo margt og
þekktir svo margt. Þú gafst mér
innsýn inn í gamla tíma og kenndir
mér að virða allt og alla.
Elsku amma, þú varst orðin
þreytt og fékkst hvíldina, en minn-
ing þín lifir áfram í okkur og mun
aldrei gleymast.
Hvíl í friði, elsku langamma og
langalangamma.
Þín
María, Smári og
Veronika Heba.
VERONIKA
KONRÁÐSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar
um Helgu Jónínu Ásgrímsdóttur
bíða birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.