Morgunblaðið - 23.04.2003, Síða 42
MINNINGAR
42 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Málfríður Jó-hanna Matthías-
dóttir fæddist á Pat-
reksfirði 7. júní 1920.
Hún lést 11. apríl síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Stein-
unn G. Guðmunds-
dóttir, f. 5.8. 1894, d.
27.6. 1967, og Matth-
ías Pétur Guðmunds-
son, f. 22.2. 1888, d.
8.7. 1964. Systkini
hennar eru: Olgeir
Haukur, f. 5.11. 1914,
d. 19.8. 1928; Ás-
mundur, f. 30.8.
1916, d. 21.5. 1994; Þórdís, f. 7.8.
1918, d. 11.1. 2000; Guðmundur
Kristinn, f. 14.6. 1923, d. 7.8. 1939;
Áslaug, f. 14.9. 1924, d. 16.12.
1997; Inga Lára, f. 20.6. 1926, d.
5.1. 1998; Olgeir Haukur, f. 7.8.
1928; Erna Helga, f. 27.6. 1930, d.
22.2. 2002; Jón, f. 20.8. 1931; Hall-
grímur, f. 7.11. 1932; og Lárus, f.
6.12. 1933, d. 4.7. 1935.
Hinn 22. jan. 1944 giftist Mál-
fríður Sigurði Ólafssyni útgerðar-
manni frá Þorvaldseyri á Eyrar-
bakka, f. 20.10. 1920. Foreldrar
hans voru: Jenný Dagbjört Jens-
dóttir, f. 12.5. 1897, d. 2.12. 1964,
og Ólafur Engilbert Bjarnason, f.
13.1. 1893, d. 2.10. 1983. Dóttir
Málfríðar og Sigurðar er Rut Sig-
urðardóttir, f. 17.7. 1954. Eigin-
maður hennar er
Bjarni Sigurðsson, f.
23.3. 1955. Börn
hennar eru: 1) Sig-
urður Ólafsson, f.
9.8. 1973, kvæntur
Sonju Gränz, f. 4.10.
1971. Börn Sigurðar
eru Ágúst Óli, f.
16.12. 1996, og Rut,
f. 28.7. 2000. 2) Sig-
urjón Magnús Ólafs-
son, f. 25.7. 1977,
sambýliskona Guð-
rún Sunna Egons-
dóttir, f. 11.11. 1982.
3) Frímann Dór
Ólafsson, f. 25.1. 1984. Börn
Bjarna eru 1) Páll Viggó, f. 28.3.
1982, sambýliskona Gréta Ýr Jón-
geirsdóttir, f. 5.3. 1981. 2) Sigurð-
ur Haukur, f. 1.11. 1984.
Málfríður fæddist á Patreks-
firði og ólst þar upp. Sem ungling-
ur vann hún við fiskverkun og síð-
ar á Siglufirði þar sem hún
kynntist eiginmanni sínum. Þau
hófu búskap í Vestmannaeyjum
þar sem þau bjuggu í 53 ár þar til
þau fluttu í Garðabæ fyrir sex ár-
um.
Málfríður starfaði í Rebekku-
stúkunni Vilborgu í Vestmanna-
eyjum.
Útför Málfríðar Jóhönnu fer
fram frá Víðistaðakirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Elsku amma mín, það er svo erfitt
að trúa því að þú sért ekki lengur á
meðal okkar. Þú og afi hafið alltaf
verið svo stór hluti af mínu lífi að það
er erfitt að hugsa sér hvernig það sé
án þín. Frá fæðingu hef ég verið um-
vafinn þínum örmum með hlýju og
ást. Þú varst svo stór hlekkur í upp-
eldi mínu og bræðra minna því að þú
annaðist okkur þegar pabbi var á sjó
og mamma útivinnandi. Aldrei fór ég
á leikskóla fyrir utan að ég held tvo
daga þangað til þeirri hugmynd var
endanlega lagt og ég fór aftur til
hennar ömmu minnar. Þar var alltaf
best að vera.
Þegar að foreldrar mínir og bræð-
ur fluttu á fastalandið var ég eftir í
eyjum hjá ykkur afa og við tóku ár
sem ég minnist með svo mikilli gleði,
alltaf var nóg af góðum ráðum og
hlýju að finna hjá ykkur, amma mín.
Vonandi get ég miðlað einhverju af
ykkar góðu ráðum og lífsreglum til
barnanna minna því ég veit að þau
ráð hafa hjálpað mér mikið í lífinu.
Það er alveg óhætt að segja að þú haf-
ir hugsað vel um okkur afa þessi ár
sem við vorum saman þrjú á Hólagöt-
unni. Sonja mín segir stundum í gríni
að það hafi nú ekkert verið auðvelt að
taka við mér frá þér því hún segir að
ég hafi nú verið svolítið dekraður.
Hún sagði einhvern tímann að það
væri nú þannig í dag að það væri nú
ekkert sjálfsagður hlutur að manni
væri fært heitt súkkulaði og kökur í
kvöldkaffi. En svona varst þú nú, allt-
af að hugsa um mann. Alltaf hafðir þú
nú áhyggjur af því að ég borðaði ekki
nóg, en það er óhætt að segja að það
hafi verið ómögulegt að vera svangur
á þínu heimili. Eins er það minnis-
stætt að þú varst nú ekki alltaf sátt
við hvað ég væri lítið klæddur í þess-
um kulda hér heima á Íslandi, en
fram á þinn síðasta dag þá hafðir þú
nú áhyggjur af því hvað ég væri að
þvælast svona út með enga húfu á
höfðinu. Þessar athugasemdir þínar
voru nú hluti af þínum persónuleika
og mér hefði liðið illa ef þú hefðir nú
allt í einu tekið upp á því að hætta að
minnast á svona hluti við mig. Ég
fann alltaf fyrir umhyggju þinni í
þessum athugasemdum þínum. Það
var yndislegt að fá ykkur afa hingað í
bæinn þar sem þið fluttuð í Boða-
hleinina við Hrafnistu. Þar er óhætt
að segja að þið hafið hafið nýjan kafla
í ykkar giftusamlegu sambúð sem
stóð nærri í sextíu ár. Þar blómstr-
aðir þú, amma mín, í félagsstarfinu
sem er þar við lýði, t.d við alls kyns
hannyrðir, leikfimi og að sjálfsögðu í
púttinu þar sem þú vannst til ófárra
verðlauna.
Þú komst nálægt mörgu barnaupp-
eldinu enda var það sjálfsögð regla að
börnum leið alltaf einstaklega vel í
kringum þig, enda barngóð með ein-
dæmum. Börnin mín voru engin und-
antekning frá þeirri reglu, þau elsk-
uðu þig svo mikið og sakna þín
gífurlega. Ekki klikkaði það að þegar
þið afi komuð í heimsókn að það varð
hálftíma bið í það minnsta að þú
kæmist inn í stofu til okkar fullorðna
fólksins því þú varst upptekin inni í
barnaherbergi með börnunum í leik.
Ég á ekki til nógu sterk orð til að
þakka fyrir þá gæfu að hafa fengið
deila mínum árum með þér, amma
mín, þau eru ómetanleg.
Elsku amma mín, það er svo óend-
anlega sárt að þurfa að kveðja þig, en
þú lifir alltaf í minningum okkar og
við minnumst allra þeirra yndislegu
stunda sem við höfum átt með þér í
gegnum tíðina. Megi Guð geyma þig,
amma mín.
Þinn
Sigurður.
Elsku amma. Siggi bróðir hringdi
afaranótt föstudags og sagði að þú
værir á leiðinni upp á spítala. Ég og
Sunna drifum okkur niður á spítala
og eftir svolitla stund kom læknirinn
og tilkynnti okkur að þú, elsku amma
mín, værir farin frá okkur. Ég trúi því
varla enn þann dag í dag, að ég geti
ekki komið í Boðahleinina og fengið
pönnukökur og kakómalt að hætti
ömmu. Hvað þá að hlusta á Emil í
Kattholti eins og við gerðum þegar
við bræðurnir vorum litlir. Ég gleym-
ir því aldrei þegar þú kenndir mér að
hjóla, þú sýndir mikla þolinmæði við
það. Ég sat á hjólinu og þú ýttir mér
alltaf. Amma, það má segja að við
bræðurnir höfum búið hjá ykkur afa
þegar við bjuggum úti í Eyjum. Pabbi
var á sjónum með afa og mamma að
vinna á daginn. Þú varst rosalega góð
við okkur bræðurna, þú varst alltaf að
leika við okkur, t.d. í fótbolta og
körfubolta, þetta var frábær tími. Svo
fluttum við á fastalandið nema Siggi,
hann varð eftir til að klára skólann en
ég og Frímann fórum með mömmu
og pabba. Ég kom á hverju ári út í
Eyjar til að vinna eða hjálpa ykkur
afa þangað til þið komuð upp á land
og fluttuð í Garðabæinn. Það var frá-
bært að fá ykkur afa upp á land.
Amma, manstu þegar við vorum að
horfa á sjónvarpið og það kviknaði í
því og afi varð að koma og slökkva í
því því við sátum stjörf og gátum ekk-
ert aðhafst. Þegar ég þurfti að mæta í
vinnu klukkan sex á morgnana varst
þú alltaf búin að taka til morgunmat
og búa til nesti, svo kom maður alltaf
heim í hádegismat og þú passaðir allt-
af að maður færi í vinnu á réttum
tíma. Þú passaðir líka upp á það að
maður væri vel til hafður og alltaf í
hreinum fötum. Man ég það líka að þú
sofnaðir ekki fyrr en maður var kom-
inn heim á kvöldin.
Það var mjög gaman þegar þið afi
komuð upp á land. Þá gat maður
komið í pönnukökur og kakómalt og
spilað olsen olsen við afa eða farið
bryggjurúnt eins og var gert í Eyj-
um. Þetta voru bestu tímar ævi minn-
ar og sakna ég þeirra mjög.
Ég þakka þér, elsku amma, allan
þann tíma sem við áttum saman, ég
vildi óska að hann hefði orðið lengri.
Guð geymi þig, amma mín.
Sigurjón.
Nú ertu farin frá okkur, elsku
Fríða mín. Þetta gerðist allt svo hratt
að ég trúi þessu varla ennþá.
Með miklum trega og söknuði kveð
ég þig, en ég hugga mig við að núna
líður þér vel hjá englunum.
Það er svo margs að minnast og ég
gæti skrifað svo margt um hversu
yndisleg þú varst alltaf við mig.
Þegar við Siggi vorum að kynnast
þá komum við til Eyja í heimsókn til
ykkar afa á Hólagötuna, ég man hvað
ég öfundaði Sigga strax hvað hann
átti frábæra ömmu og afa.
En þið tókuð mér strax með opn-
um örmum og síðan hafið þið verið
eins og amma mín og afi líka, sem er
mér alveg ómetanlegt að fá að upp-
lifa.
Þú varst einstaklega lagin í hönd-
unum og gafst okkur svo margt fal-
legt sem þú bjóst til og það er svo
dýrmætt fyrir okkur öll að eiga.
Ég man þegar Ágúst Óli hljóp allt-
af á móti þér þegar þið afi komuð í
heimsókn og sagði: „Amma viltu
koma að leika?“ Alltaf fórstu með
honum inn í herbergi í bíló eða búð-
arleik og þið voruð svo sæt saman.
Hann saknar þín svo mikið. Hann bað
um að fá að hafa mynd af þér inni í
herberginu sínu.
MÁLFRÍÐUR
JÓHANNA
MATTHÍASDÓTTIR
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTÍN BENEDIKTSDÓTTIR,
áður til heimilis í
Smáratúni 2, Selfossi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum,
Selfossi, sunnudaginn 20. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju föstu-
daginn 25. apríl kl. 13.30.
Sólveig Jónsdóttir,
Oddbjörg Jónsdóttir, Einar Sumarliðason,
Guðfinnur Jónsson, Helga Emilsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sambýliskona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir, amma og systir,
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR,
Höskuldsstöðum,
Reykjadal,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstu-
daginn 25. apríl kl. 14.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem
vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfé-
lag Suður-Þingeyinga, (Íslandsbanki, Húsavík, 567-26-10372).
Agnar Kárason,
Sigurður B. Sigurðsson,
Sigrún Guðfinna, Andrew,
Elinborg,
Borghildur, Richard Colby,
barnabörn og systkini.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGURÁSTA ÁSMUNDSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ föstudag-
inn 18. apríl.
Svana Svanþórsdóttir, Óli B. Lúthersson,
Erla B. Vignisdóttir, Jónas Þór Arthúrsson,
Guðmunda Brynjólfsdóttir, Reynir Arnórsson,
Ester Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ERIK HÅKANSSON,
Safamýri 34,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstu-
daginn 18. apríl.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
29. apríl kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið.
Margrét H. Kristinsdóttir,
Bryndís H. Eriksdóttir Philibert, Jean-Marc Philibert,
Kristinn Frantz Eriksson, Eyrún Gestsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ÁGÚSTA UNNUR ÁGÚSTSDÓTTIR,
Litla Ósi,
Vestur-Húnavatnssýslu,
sem lést föstudaginn 11. apríl, verður jarð-
sungin frá Hvammstangakirkju föstudaginn
25. apríl kl. 13.00.
Jarðsett verður frá Kirkjuhvammskirkjugarði.
Þorvaldur Björnsson,
Már Þorvaldsson, Álfheiður Sigurðardóttir,
Jóhanna Þorvaldsdóttir, Hermann Ólafsson,
Björn Þorvaldsson, Birna Torfadóttir,
Gunnar Þorvaldsson, Gréta Jósefsdóttir,
Ágúst Þorvaldsson, Bergþóra Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
UNNAR INGIMUNDARDÓTTUR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi.
Sigurður Halldórsson,
Halldór Sigurðsson, Jóna Þorkelsdóttir,
Guðmunda Sigurðardóttir, Haraldur Haraldsson,
Ásta Sigurðardóttir, Kristján Gunnarsson,
Ómar Sigurðsson, Sigríður Þorgilsdóttir,
Svanur Sigurðsson, Matthildur Níelsdóttir,
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Jóhann Ágústsson,
Ingþór Sigurðsson, Svala Benediktsdóttir,
Jenný Sigurðardóttir, Búi Vífilsson,
barnabörn og barnabarnabörn.