Morgunblaðið - 23.04.2003, Page 56
SAMBAND skáldverka hroll-
vekjumeistarans Stephens King við
kvikmyndaformið er bæði langvinnt
og misjafnt. Þótt King mistakist
sjaldnast að skrifa bækur sem grípa
lesendur heljartökum virðist miðlun
hrollvekna hans yfir á hvíta tjaldið
vera vandaverk sem aðeins fáum
leikstjórum tekst að leysa vel af
hendi. Kvikmyndin Draumafangar-
inn, sem byggð er á samnefndri bók
höfundarins, kemst bara nokkuð ná-
lægt því að ná að fanga hinn eina
sanna tón Stephens King. Unnið er
með hrollvekju sem getur að mörgu
leyti talist dæmgerð fyrir höfundinn,
blaðsíðufjöldinn nálgast þúsundið og
söguheimurinn er vandlega kortlögð
blanda bandarísks smábæjarhvers-
dagsleika og viðkynna við annarleg
öfl.
Í upphafi kvikmyndarinnar tekst
vel að byggja upp þennan söguheim,
og gæða heildina blöndu af undir-
liggjandi spennu gagnvart yfirvof-
andi ógn og skemmtilegum húmor
sem gerir áhorfendum kleift að lifa
sig inn í fantasíuna. Sagt er frá hópi
æskuvina sem koma saman í af-
skekktum veiðiskála til þess að rifja
upp gamla tíma. Þetta er enginn
venjulegur vinahópur, en sem börn
öðluðust þeir dulsálarlega hæfileika
eftir að hafa bjargað hinum þroska-
skerta Duddits úr klóm hrekkju-
svína. Duddits er nokkurs konar
blanda einfeldnings og dýrlings og
launaði hann hinum nýju vinum sín-
um hjálpina með því að gefa þeim
m.a. hæfileika til hugsanalesturs. Í
upprifjun á þessum atburðum er
sterklega gefið í skyn að ekki muni
veita af dálitlum ofurmannlegum
hæfileikum í framtíðinni, þegar óum-
flýjanleg ógn muni gera vart við sig.
Og viti menn, þegar vart verður ill-
skeyttra geimvera í nágrenni veiði-
kofans, reynir aldeilis á söguhetjurn-
ar.
Ef áhorfandinn er reiðubúinn að
fyrirgefa hina fyrirfram dauða-
dæmdu tilraun handritshöfundanna
til að koma viðamiklu söguefninu
fyrir í kvikmyndinni, og gera sitt
besta við að fylla upp í frásagnareyð-
urnar, getur Draumafangarinn orðið
hin allra skemmtilegasta hrollvekju-
upplifun. Fyrri hluti myndarinnar
byggir upp sterka heild, en upp úr
miðbikinu eru handritshöfundar
komnir í alvarleg vandræði með það
mikla efni sem þeir eru að reyna að
miðla. Þetta veldur m.a. því að kvik-
myndin tekur talsvert miklum sveifl-
um milli þess að virðast vera hroll-
vekja, smábæjarsaga og hrein
hasarmynd (þar sem leikarinn
Morgan Freeman kemur sterkur
inn), og skyndileg innkoma Duddits
á fullorðinsaldri verður einkar lang-
sótt. Hinir betur heppnuðu þræðir
myndarinnar halda henni þó uppi,
einkum útfærslan á andlegri yfir-
töku aðalgeimverunnar á einni sögu-
hetjunni, og þeirri vitsmunalegu
baráttu sem fram fer milli þeirra.
Leikarahópurinn heldur einnig góð-
um dampi, og klikkar leikstjórinn
aldrei á því að halda hinum hressi-
lega húmor myndarinnar gangandi.
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó
DREAMCATCHER / DRAUMA-
FANGARINN Leikstjórn: Lawrence Kasdan. Handrit:
William Goldman og Lawrence Kasdan.
Byggt á skáldsögu eftir Stephen King.
Kvikmyndataka: John Seale. Aðal-
hlutverk: Morgan Freeman, Thomas
Jane, Jason Lee, Damian Lewis, Tom
Sizemore, Timothy Olyphant, Donnie
Wahlberg. Lengd: 136 mín. Bandaríkin.
Warner Brothers, 2003.
Heiða Jóhannsdóttir
Damian Lewis „heldur dampi“
líkt og aðrir leikarar í Drauma-
fangaranum.
Hressi-
leg hroll-
vekja
KVIKMYNDIR
56 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞAÐ er ekkert einsog það sýnist“,
tönnlast hann á, gamli jaxlinn Burke
(Pacino), við James Clayton (Colin
Farrell), titilpersónuna í njósnatryll-
inum Nýliðanum eftir Ástralann Rog-
er Donaldson. Laglega gerð, þó hæg-
geng afþreyingarmynd. Hún kemur
að miklu leyti úr endurvinnslu Holly-
woodborgar, efnið minnir óneitanlega
á Training Day og tugi samsæris-
kenndra njósna- og spennumynda í
gegnum árin. Það sem gerir herslu-
muninn er þó gamli, góði Pacino sem
smjattar á klisjukenndum línum svo
úr verður allt að því hnossgæti fyrir
bíógesti.
Clayton er tölvusnillingur, nýút-
skrifaður með láði frá MIT og er að
byrja að velja úr vænlegum atvinnu-
tilboðum er Burke stingur upp koll-
inum. Hann er útsendari CIA, einkar
naskur á að finna efnilega framtíðar-
spæjara fyrir leyniþjónustuna. Það
verður úr að Clayton slæst í nýliða-
hópinn sem berst um svo sem eitt
sæti laust – ef einhver sleppur í gegn-
um kaldrifjaðan inngönguskólann.
Meðal keppinauta Claytons um stöðu
hjá CIA er Layla (Bridget Moynah-
an), þau verða hrifin hvort af öðru, en
slíkt reynist flókið mál undir þessum
kringumstæðum.
Það verður að fara gætilega í sak-
irnar til að segja ekki of mikið um
innihaldið, en óhætt að fullyrða að fátt
er eins og það sýnist innan veggja
leyniþjónustunnar sem leggur hart að
nemendum sínum, bæði andlega og
líkamlega. M.a. alið á grunsemdum
sem jaðra við ofsóknaræði, manneskj-
um stillt upp hverri á móti annarri og
erfitt fyrir nýliðana að greina vin frá
óvini.
Handritið er skemmtilega skrifað á
köflum, mikið lagt upp úr sálfræðileg-
um tökum Burkes á nýliðunum. Ekki
síst í sambandi hans við Clayton en
Burke gefur honum í skyn að hann
hafi þekkt til föður hans sem fórst á
voveifilegan hátt í Perú fyrir áratug
síðan. Framvindan er yfir höfuð frek-
ar kunnugleg en tvísýnan um hvað
býr að baki öllum blekkingarvefnum
bætir upp hægagang um miðja mynd.
Sem fyrr segir heldur Pacino
áhorfandanum við efnið og fær nokk-
urn stuðning frá nýstirninu Farrell,
sem þó verður að finna þéttari tök á
hlutverkum sínum til að komast af í
kvikmyndaheiminum. Annars gleym-
ist hann einsog hvert annað sætt and-
lit – sem gætu einnig orðið örlög hinn-
ar stæðilegu Moynaham (Sum of All
Fears). Donaldson á hinsvegar sinn
besta dag síðan hann gerði No Way
Out, fyrir einum fimmtán árum.
Minkur í hænsnabúinu
„Pacino heldur áhorfandanum við efnið“ í Nýliðanum og „fær nokkurn
stuðning frá nýstirninu Farrell“.
KVIKMYNDIR
Regnboginn, Smárabíó,
Borgarbíó Akureyri
NÝLIÐINN (THE RECRUIT) Leikstjóri: Roger Donaldson. Handrit:
Roger Towne, Kurt Wimmer og Mitch
Glazer. Kvikmyndatökustjóri: Stuart
Dryburgh. Tónlist: Klaus Badelt. Aðalleik-
endur: Al Pacino, Colin Farrell, Bridget
Moynaha1, Gabriel Macht, Mike Realba,
Dom Fiore. 115 mín. Touchstone Pict-
ures/Spyglass Entertainment. Bandarík-
in 2003.
Sæbjörn Valdimarsson
Heimshornaflakkarinn
(The World Traveler)
Drama
Bandaríkin 2002. Myndform VHS. Bönn-
uð innan 16 ára. (103 mín.) Leikstjórn og
handrit Bart Freundlich. Aðalhlutverk
Billy Crudup, Julianne Moore.
HVAÐ sem öðru líður þá er eitt
sem vakti sérstakan áhuga minn á
þessari mynd, aðalleikarinn Billy
Crudup, 35 ára gamall New York-búi
sem sýnt hefur í myndum á borð við
Jesus’s Son, Waking The Dead og Al-
most Famous að
hann er einhver
allra athyglisverð-
asti leikari sinnar
kynslóðar. Ekki
nóg með það heldur
er þetta klárlega
náungi sem ætlar
ekki að láta sig
fljóta með meðal-
straumnum heldur hefur meiri áhuga
að að kanna aðrar illfærari leiðir og
kannski um leið meira gefandi fyrir
vikið. En það er nú einu sinni þannig
að þegar teknar eru áhættur þá eru
meiri líkur á en ekki að dæmið gangi
ekki upp. Því miður er Heimshorna-
flakkarinn ein af þessum svaðilförum
Crudups sem ekki verður hátt skrifuð
í ferðasögu hans, þrátt fyrir góðar, af-
ar góðar meiningar sem að baki henni
standa. Höfundurinn er Bart Freund-
lich, sem er enn sem komið er kunn-
astur fyrir að vera unnusti og barns-
faðir mótleikkonu Crudups í mynd-
inni, hinni ávallt frábæru Julianne
Moore. Bæði skila þau sínu með
glans, Crudup og Moore, en það er
saga Freundlich og leikstjórn sem er
meinið. Þetta á að vera vegamynd,
mynd um fjölskyldumann sem allt í
einu áttar sig á að hann lifir ófull-
nægjandi lífi. Hann leggur því upp í
leiðangur, í þeirri veiku von um að
finna sig. Gallinn er að maður hefur
enga samúð með kauða, finnst hann
eigingjörn og vanþakklát væluskjóða.
En Crudup er góður. Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Leitað án
árangurs
Stóra svið
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Forsýning fi 24/4 kl 20 - Kr. 1.000
FRUMSÝNING su 27/4 - UPPSELT
Mi 30/4 kl 20 - UPPSELT
Fi 1/5 kl 20 - 1.maí tilboð kr. 1.800
Fö 2/5 kL 20, Lau 10/5 kl 20
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Lau 26/4 kl 20, Su 4/5 kl 20, Su 11/5 kl 20
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fö 25/4 kl 20, Lau 3/5 kl 20, Fö 9/5 kl 20
ATH: Sýningum lýkur í vor
DÚNDURFRÉTTIR - TÓNLEIKAR
Dark side of the Moon
Í kvöld kl 20,
Í kvöld kl 22:30
Nýja svið
Þriðja hæðin
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Lau 3/5 kl 20
Su 11/5 kl 20
Takmarkaður sýningarfjöldi
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Fö 25/4 kl 20, Lau 27/4 kl 20,
Fö 2/5 kl 11 - UPPSELT, Fö 2/5 kl 20
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Lau 26/4 kl 14, Lau 3/5 kl14, Lau 10/5 kl. 14
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Fi 24/4 kl 20, Lau 3/5 kl 20
ATH: Síðustu sýningar
15:15 TÓNLEIKAR - BERGMÁL FINNLANDS
Ferðalög - Poulenc-hópurinn, Lau 31/5 kl 15:15
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Su 11/5 kl 20
Su 18/5 kl 20
Örfáar sýningar vegna fjölda áskorana
SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og
leikhópinn
Í kvöld kl 20, Lau 26/4 kl 20, Su 27/4 kl 20
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS
VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fö 25/4 kl 20, Fi 1/5 kl 20
„Salurinn lá í hlátri allan tímann enda textinn
stórsnjall og drepfyndinn.“
Kolbrún Bergþórsdóttir DV
föst 25/4 Örfá sæti
lau 26/4 Örfá sæti
mið 30/4 Sellófon 1. árs Örfá sæti
föst 2/5 Nokkur sæti
lau 3/5 Nokkur sæti
föst 9/5
Þrjár systur mið 23/4 2. sýn
nýr vefur www.sellofon.is opnar um helgina
Laugard. 26. apríl kl. 14 Örfá sæti
Sunnud. 27. apríl kl. 14 Örfá sæti
Laugard. 3. maí kl. 14 Örfá sæti
Sunnud. 4. maí kl. 14
Fimmtud. 24. apríl kl. 17
Síðasta sýning
Miðasala allan sólarhringinn
í síma 566 7788
Bæjarleikhúsið
Mosfellsbæ
Eftir J.R.R. Tolkien