Morgunblaðið - 23.04.2003, Blaðsíða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 10.10. B.i. 14. Sýnd kl. 8 og 10.20.Sýnd kl. 4 og 6. B.i. 12
Sýnd kl. 4 og 6. ísl. tal. 400 kr.
Sjónvarps-
framleiðandi
á daginn,
leigumorðingi
fyrir CIA á kvöldin
- ótrúleg sönn saga!
George Clooney og
Steven Soderbergh
(Traffic) kynna
svölustu mynd ársins
HL MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
X-97,7
kl. 4, 6.30 og 9.30.
Þetta var hin
fullkomna
brúðkaupsferð...
þangað til hún
byrjaði!
Frábær gamanmynd
sem fór á toppinn í
Bandaríkjunum.
Þrælfyndin og
skemmtileg mynd
með Ashton
Kutcher úr
Dude Where´s
My Car og
Brittany Murphy
úr 8 Mile.
Traust,
svik og
blekkingar.
Í heimi
leyniþjónust
unnar er
ekki allt
sem sýnist.
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
400
kr
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 14.
Sýnd kl. 5.30.
Sýnd kl. 6. Tilboð 400 kr.
400
kr
Þrælfyndin og
skemmtileg
mynd með
Ashton
Kutcher úr
Dude Where´s
My Car og
Brittany
Murphy
úr 8 Mile.
Traust, svik og blekkingar.
Í heimi leyniþjónustunnar er
ekki allt sem sýnist.
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 14.Sýnd kl. 8 og 10.
Frábær spennumynd sem fór beint á
toppinn í Bandaríkjunum.
Frábær gamanmynd sem
fór á toppinn í
Bandaríkjunum
Þetta var hin
fullkomna
brúðkaupsferð...
þangað til hún
byrjaði!
Sýnd kl. 5.50.
HAFIN er smíði á stærsta mannvirki á Ís-
landi rétt norðan við stærstu jökulbreiðu í Evr-
ópu á einu fáförulasta víðerni álfunnar. Það er
því ekki að undra, að upp skuli rísa hávær and-
staða við þá ráðagerð, um þremur áratugum
eftir að almenningur fór yfirhöfuð fyrst að
ígrunda og meta gildi verðmæta, sem felast í
sjálfri náttúrunni. Í umræðunni hefur verið
tekizt á um efnahags-, náttúrufræði- og tilfinn-
ingaleg rök, en í raun var pólitíkin ein látin
ráða að lokum, hversu skynsamlegt sem það
kann að reynast.
Enginn hefur verið ötulli en hinn víðkunni og
reyndi sjónvarpsmaður Ómar Ragnarsson við
að kynna fólki fyrirhugaða ráðagerð og áhrif
hennar á umhverfið. Hann hefur gert þetta í
mörgum fréttapistlum og nú síðast með mynd-
inni Á meðan land byggist, sem var sýnd í sjón-
varpi nú fyrir skömmu.
Meginstef myndarinnar er vatnsaflsvirkjan-
ir og þjóðgarðar eða hvort þetta tvennt sé sam-
rýmanlegt, svo að deiluaðilar geti báðir unað
glaðir við að lokum. Í upphafi er farið til
þriggja landa, Bandaríkjanna, Kanada og Nor-
egs, og veitt innsýn í, hvernig staðið hefur verið
að slíkum málum þar, bæði fyrrum og nú. Um
margt er þetta fróðleg frásögn og sýnir mikinn
undraheim, en þó er það harla fátt, sem er sam-
merkt með aðstæðum hér á Fróni nema einna
helzt í Noregi.
Þegar heim er komið er ferðast um áhrifa-
svæði Kárahnjúkavirkjunar bæði á láði og í
lofti. Segja má, að farið sé um allt svæðið, oft
frá ólíkum sjónarhólum, svo að allgóð mynd
fæst af því. Hætt er þó við, að ýmsir hafi ekki
náð að átta sig fyllilega á aðstæðum hverju
sinni, því að oft var farið hratt yfir. Sum mynd-
skeiðin eru mjög eftirminnileg, eins og þegar
vél flýgur niðri í gljúfrunum miklu og einnig
óviðjafnanlegt fossaval, svo að fátt eitt sé nefnt.
Höfuðdrættir í landslagi eru mikið sýndir, en
mjög góðum myndum er þó brugðið upp af ein-
stökum jarðmyndunum. Því miður verður líf-
ríkið eilítið útundan, en þó er minnzt á gæsir og
hreindýr og mikil hætta talin á, að hin síðar
nefndu verði fyrir verulegum skakkaföllum,
því að gildustu burðarsvæði þeirra fara undir
vatn. Í myndinni kemur fram, að engar athug-
anir hafi verið gerðar á því, hvernig þeim muni
reiða af og er það með ólíkindum. Það er leitun
á annarri þjóð, sem lætur það viðgangast að
hunza slíkar athuganir.
Á hinn bóginn verður að hafa það í huga, að
ósennilegt er, að höfundur hafi ætlað sér að
gera einhverja fræðslumynd af náttúrunni,
hvað þá að lýsa áhrifum framkvæmda á mann-
líf í þessum landshluta. Allt það er efni í aðra og
annars konar mynd. Mynd Ómars er miklu
heldur af fegurðinni, náttúrlegum dýrgripum,
og gerð af einlægri væntumþykju á landinu.
Hann nálgast viðfangsefnið sem leiðsögumað-
ur og lætur áhorfandanum eftir að dæma.
Þannig er myndin laus við allan áróður og
kannski hefur hún ekki breytt skoðunum fólks.
En það er síður en svo galli á góðri mynd.
Ómar hefur lagt á sig ómælt erfiði við að
taka myndina og staðið sjálfur undir öllum út-
gjöldum. Útlagður kostnaður verður ef til vill
seint endurgoldinn en víst má telja, að þetta
óeigingjarna framtak Ómars hefur aukið veru-
lega hróður hans sem þess manns, sem einna
mest og bezt hefur frætt þjóðina um hennar
eigið land. Tvímælalaust eykst gildi þessarar
myndar eftir því sem árin líða, hvernig svo sem
framkvæmdum reiðir af.
„Sum myndskeiðin eru mjög eftirminnileg,
eins og þegar vél flýgur niðri í gljúfrunum,“
segir í umsögn um mynd Ómars Ragnars-
sonar Á meðan land byggist.
Mannvirki á
miðhálendi
SJÓNVARP
Náttúrufræði
Á MEÐAN LAND BYGGIST
Höfundur: Ómar Ragnarsson. Myndataka: Ómar
Ragnarsson og Friðþjófur Helgason. Samsetning:
Ragnar Santos. Grafík: Bjarni Hinriksson. Þulir: Óm-
ar Ragnarsson og Ragnheiður Clausen. Söngur: Egill
Ólafsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir. Útsetningar og
hljóðfærasláttur: Þórir Úlfarsson og Gunnar Þórð-
arson. Aðstoð og akstur: Helga Jóhannsdóttir. Fram-
leiðandi: Hugmyndaflug ehf. 2003.
Ágúst H. Bjarnason
DJASSSÖNGKONAN Nina Simone lést á
mánudaginn á heimili sínu í Suður-
Frakklandi, sjötug að aldri. Simone – sem
varð þekkt fyrir djúpa, hrjúfa og kraftmikla
rödd – þótti einstakur listamaður innan
djassheimsins og var auk þess mikill bar-
áttumaður fyrir réttindum svartra.
Nina Simone (rétt nafn Eunice Kathleen
Waymon) fæddist árið 1933 inn í fátæka fjöl-
skyldu í Norður Karólínu og var sjötta í röð-
inni af sjö systkinum. Hún fluttist síðar til
New York þar sem hún lærði á píanó við
hinn virta Juilliard-skóla, eitthvað sem var
fátítt tækifæri fyrir blökkukonu á þessum
árum. Á píanóið hafði hún leikið síðan hún
var fjögurra ára gömul.
Námi lauk hún hins vegar ekki. Hún gaf
út fyrsta lag sitt árið 1959, útgáfu af hinu sí-
gilda lagi George Gershwins, „I Loves You,
Porgy“. Það sló þegar í gegn og stuttu síðar
kom út það lag sem efalaust flestir
þekkja með henni, „My Baby Just
Cares For Me“ (sem sló aftur í
gegn árið 1987). Á sjöunda ára-
tugnum fór pólitíkur að gæta í
lögum hennar og var „Mississippi
Goddam“ beint gegn ofsóknarað-
ilum svartra á meðan lagið
„Why? The King of Love is
Dead“ samdi hún eft-
ir að Martin Luther
King hafði verið
myrtur árið 1968.
Lagið „To Be
Young, Gifted and
Black“ varð þá vin-
sæll slagari hjá bar-
áttuhópum fyrir
rétti svartra.
Stjarna Simone
skein skærast á sjö-
unda og áttunda
áratugnum og
hljóðritaði hún þá
lög eftir fræga
popptónlist-
armenn eins og
Bob Dylan, Leon-
ard Cohen og
Bee Gees og
gerði þau að sín-
um. Flakkaði hún auðveldlega á milli stíla
og blandaði saman ólíkum stefnum eins og
þjóðlagatónlist, gospel, sígildri tónlist, blús
og sálartónlist.
Hún vildi hins vegar ekki kalla þetta
djass. „Djass er merkimiði hvítra á tónlist
svartra,“ lýsti hún yfir. „Tónlist mín er svört
sígild tónlist“.
Simone átti til að fara upp og niður í skapi
og lét áheyrendur umsvifalaust heyra það ef
henni mislíkaði eitthvað.
Á tónleikum – líkt og með hljóðritað efni –
var það annaðhvort í ökkla eða eyra og er
hún spilaði hér á landi árið 1992 var hún
ekki eins og hún átti að sér að vera, skv.
sjónar- og eyrnavottum. Hún varð erfiðari
að þessu leyti með aldrinum, til að mynda
skaut hún son nágranna síns og særði eftir
að hlátur hans truflaði einbeitinguna hjá
henni. Þá skaut hún að fulltrúa útgáfufyr-
irtækis eftir að hafa sakað hann um að hafa
af sér fé. Líf Simone var því síst einhver
dans á rósum.
Simone átti eftir að gifta sig tvisvar og
skildi í bæði skiptin. Hún eftirlætur eina
dóttur, Lisu. Síðustu tónleikar Simone voru
í Póllandi í júlí á síðasta ári.
Hún lýsti því yfir árið 1998 að kynþátta-
hyggja í Bandaríkjunum hefði neytt hana
til að flytja af landi brott, enda hefði hún
þurft að gjalda baráttu sinni fyrir
auknum réttindum blökkumanna
dýru verði. Hún var alflutt það-
an strax árið 1971 og átti
heima á ýmsum stöðum, m.a.
á Barbados, í Sviss, Líberíu,
Bretlandi og Frakklandi.
„Ég hef misst fjögur
fóstur um ævina og
það hefur verið
mikið um
óhamingju,“
sagði hún ein-
hverju sinni
en bætti við.
„En að sama
skapi hefur
hamingjan
verið mikil.“
Nina Simone 1933 – 2003
arnart@mbl.is
Djassdíva öll
Nina Simone lifði stormasömu lífi en enginn efaðist um
mikla hæfileika hennar sem tónlistarmaður.
AP