Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í TILEFNI af fimmtán ára afmæli
Menningarsjóðs Íslandsbanka var
Barnaspítala Hringsins færð 35
listaverk að gjöf úr safni bankans.
Jafnframt veitti sjóðurinn Barna-
spítalanum peningastyrk að fjárhæð
tvær milljónir króna sem verður
stofnfé í nýjum Menningarsjóði
Barnaspítalans. Er sjóðnum m.a.
ætlað að skapa aðstöðu til ýmiss
konar menningarstarfs innan
sjúkrahússins svo börnin og að-
standendur þeirra geti notið menn-
ingar og lista meðan á dvöl þeirra á
spítalanum stendur.
Við afmælishátíð í Gerðarsafni í
Kópavogi í gær var Klúbbnum
Geysi, sem vinnur að því að hjálpa
geðsjúku fólki út í samfélagið á ný,
einnig veittur styrkur til verkefnis
sem miðar að því að efla möguleika
geðsjúkra á að ná fótfestu á almenn-
um vinnumarkaði. Fær klúbburinn
fjögurra milljóna króna styrk, tvær
milljónir í ár og tvær á því næsta.
Geysir vinnur eftir alþjóðlegri hug-
myndafræði sem hefur skilað góðum
árangri víða um heim.
Loks var tilkynnt að Menning-
arsjóður Íslandsbanka myndi á
næstu árum veita árlega allt að fjór-
um ungum tónlistarmönnum 500
þúsund króna styrk í þeim tilgangi
að auðvelda þeim að hasla sér völl í
tónlistarheiminum. Það eru nýmæli
að sjóðurinn veiti á þennan hátt efni-
legu tónlistarfólki viðurkenningu
fyrir eftirtektarverðan árangur.
„Menningarsjóðurinn hefur frá
stofnun verið mikið stolt bæði starfs-
manna og hluthafa,“ sagði Kristján
Ragnarsson bankaráðsformaður á
afmælishátíðinni í gær.
„Hann hefur um árabil verið í far-
arbroddi sem einn elsti og stærsti
menningar- og styrktarsjóður einka-
fyrirtækis hér á landi.“
Úthlutað verður 35 milljónum
á þessu ári úr sjóðnum
Á aðalfundi Íslandsbanka í mars
var samþykkt að setja 35 milljónir í
sjóðinn á þessu ári.
Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís-
landsbanka, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að viss stefnu-
breyting hafi orðið á úthlutunum
sjóðsins með auknum framlögum í
hann. Nú sé auk lista- og menningar-
mála einnig hlúð að vísindum og
menntamálum og mannúðar- og for-
varnarmálum.
Segir Bjarni styrkveitingar í gær
endurspegla breytta stefnu og sýna
ákveðna samtvinnun. „Við styðjum
við bakið á Barnaspítala Hringsins,
sem er mannúðar- og líknarmál,
með því að gefa listaverk og framlag
í Menningarsjóð spítalans. Það er
okkar trú að með því að styrkja
sköpun í samfélaginu, af hvaða toga
sem hún er, stuðli það að velsæld
allra.“
Undanfarin 15 ár hefur sjóðurinn
styrkt tæplega 400 aðila með um 160
milljóna króna framlögum.
Styrkir úr Menningarsjóði Íslandsbanka afhentir í Gerðarsafni í gær
Morgunblaðið/Arnaldur
Jóhanna María Eyjólfsdóttir, formaður Klúbbsins Geysis, og Jónína Ólafs-
dóttir, félagi í klúbbnum, taka við styrk úr hendi Bjarna Ármannssonar.
Bjarni Ármannsson forstjóri afhenti Magnúsi Ólafssyni, sviðsstjóra hjúkr-
unarsviðs barnaspítalans, og Ásgeiri Haraldssyni, prófessor og forstöðu-
manni fræðasviðs, fyrsta málverkið, Plóg eftir Hring Jóhannesson.
Barnaspítali Hrings-
ins fékk 35 listaverk
úr safni bankans
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ hefur
heimilað Nýsköpunarsjóði atvinnu-
lífsins að ganga til samninga við
hlutafélagið Promeks um hlutafjár-
þátttöku fyrir allt að 200 milljónir
króna vegna hugsanlegrar kísilduft-
verksmiðju í Mývatnssveit.
Promeks, sem er að meira en
50% í eigu Íslendinga, vinnur að
öflun hlutafjár til að reisa kísilduft-
verksmiðju í Mývatnssveit, en þar
er áætlað að um 40 manns muni
starfa. Hákon Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Allied EFA, sem á
meirihluta í Promeks, segir að við-
ræður við ýmsa aðila séu í gangi en
ómögulegt sé að segja hvað fjár-
mögnunin taki langan tíma. Hins
vegar megi gera ráð fyrir að að
minnsta kosti sex mánuðir líði frá
því að fjármögnun ljúki og þar til
framkvæmdir hefjist en þær taki
síðan rúmt ár.
Gunnar Örn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs,
segir að iðnaðarráðuneytið hafi falið
Nýsköpunarsjóði að athuga hvort
það væri álitlegur fjárfestingarkost-
ur að setja 200 milljónir króna í
þetta nýsköpunarverkefni, en rík-
isstjórnin hafi ákveðið að leggja um
700 milljónir króna í nýsköpun. Þar
af hafi um 200 milljónir verið eyrn-
armerktar í gegnum Nýsköpunar-
sjóð. Mikil vinna hafi verið lögð í að
skoða viðskiptahugmyndina, fram-
tíðarhorfur, staðsetningu og fleira
og niðurstaðan sé að um álitlegan
kost sé að ræða. Í kjölfarið hafi
borist bréf frá ráðuneytinu þar sem
heimilað hafi verið að ganga til
samninga við Promeks um allt að
200 milljóna króna hlutafjárþátt-
töku af hálfu Nýsköpunarsjóðs.
Að sögn Gunnars Arnar er um
óhefðbundið verkefni Nýsköpunar-
sjóðs að ræða, þar sem hann leggi
yfirleitt ekki svona mikið fram.
Segir verkefnið merkilegt
Hins vegar sé um merkilegt
verkefni að ræða og gengið hafi
verið í gegnum öll forstig fyrirtæk-
is. Hugmynd hafi vaknað, hún hafi
farið í gegnum rannsóknarstofu-
ferli, aðferðir til að búa til kísilduft
á hagkvæmari og fljótvirkari hátt
en áður hafi þekkst hafi verið
fundnar og tilraunaverksmiðja hafi
verið í gangi í Noregi í tvö ár, en
hún hafi kostað um 500 milljónir kr.
fyrir utan reksturinn. Niðurstaðan
lofi mjög góðu, efnið sé gott, að-
ferðin hafi sannað sig og markaður-
inn sé til staðar. „Þetta er mjög
áhugavert verkefni og ég vona svo
sannarlega að það takist að landa
þessari verksmiðju hér á landi,“
segir Gunnar Örn.
Hugsanleg kísilduftverksmiðja í Mývatnssveit
Nýsköpunarsjóði heimil-
að að ganga til samninga
GERT er ráð fyrir því að
Baugur Group hf. muni áfram
vinna eftir þeirri meginstefnu
að einbeita sér að verslunar-
rekstri á Íslandi, Norðurlönd-
um og í Bandaríkjum Norður-
Ameríku. Þetta kemur fram í
yfirtökutilboði sem Mundur
ehf. hefur lagt fram í útistand-
andi hlutabréf í Baugi Group
og birt var í Kauphöll Íslands
í gær.
Einnig segir í tilboðinu að
félagið muni fjárfesta í hluta-
bréfum og öðrum verðbréfum,
sinna eignaumsýslu og annast
um fjárfestingar sínar, hér á
landi sem og erlendis. Ekki
séu áform um að draga úr
kjarnastarfsemi félagsins eða
nýta fjármunalegar eignir í
öðrum tilgangi en fram kemur
í núgildandi samþykktum fé-
lagsins.
Mundur á 67,05% af heildar-
hlutafé Baugs Group en
Mundur er m.a. í eigu Jóhann-
esar Jónssonar, stjórnar-
manns í Baugi Group, Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, for-
stjóra félagsins, Kristínar Jó-
hannesdóttur, stjórnarmanns
og Hreins Loftssonar, stjórn-
arformanns félagsins.
Í yfirtökutilboðinu, sem
gildir til 19. júní, miðast verð
hlutabréfanna við gengið
10,85.
Kjarna-
starfsemi
Baugs
Group verð-
ur óbreytt
BORGARRÁÐ samþykkti í fyrra-
dag erindi frá fræðslustjóra, Gerði
G. Óskarsdóttur, um stofnun ráð-
gjafarskóla fyrir nemendur með fé-
lagslegan og geðrænan vanda þar
sem gert er ráð fyrir að sameina þá
þjónustu sem þessum nemendum
hefur verið veitt undir eina stjórn.
Breytingin þjónar því markmiði að
bæta og auðvelda þjónustu við þessa
nemendur og auka hagræðingu.
Fræðsluráð leggur til að tveir sér-
skólar, Einholtsskóli og Hlíðarhúsa-
skóli, verði sameinaðir þegar á þessu
ári og stefnt að því að starfsemi Dal-
brautarskóla og nýrrar ráðgjafar-
deildar verði hluti skólans á næsta
ári. Í erindinu kemur fram að ekki sé
um kostnaðarauka að ræða fyrir
borgarsjóð þar sem rekstur skólans
rúmist innan fjárhagsramma
fræðslumála.
Stofnun ráðgjafarskóla
samþykkt í borgarráði
HAFÖRNINN sem fannst illa á sig kominn í Hval-
firði á mánudag og var komið í endurhæfingu hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands, drapst í fyrrinótt.
Hann var nýkominn úr skoðun á Dýraspítalanum í
Víðidal en lifði ekki af fyrstu nóttina hjá Nátt-
úrufræðistofnun.
Að sögn Kristins Skarphéðinssonar líffræðings
er orsök ókunn, en vitað var að örninn var orðinn
mjög langt leiddur af langvarandi vannæringu.
Hann ældi ætinu sem sett var fyrir hann og tókst
ekki að hressa sig við. Örninn verður krufinn og
hræið af honum nýtt í rannsóknaskyni hjá Nátt-
úrufræðistofnun.
Örninn var fjögurra ára og „ættaður“ úr Borg-
arfirði. Sérfræðingar merktu hann í hreiðri á sín-
um tíma, en hann virðist hafa særst á öxl snemma
á ævinni og axlarmeinið skert flughæfni hans þótt ekki
sé það beinlínis talið hafa dregið hann til dauða.
Mynd birtist af Þorvaldi Björnssyni hamskera með
erninum í frétt blaðsins í gær, en ekki Kristni Skarp-
héðinssyni líffræðingi. Eru þeir beðnir afsökunar á
mistökunum.
Morgunblaðið/Kristinn
Örninn reyndist of máttfarinn