Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 16
ERLENT 16 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MAHMUD Abbas hefur ekki gegnt embætti sem forsætisráðherra Pal- estínumanna nema nokkrar vikur en þegar er farið að fullyrða að senn muni hann gefast upp. Aðrir segja að ofstæk- ismenn muni myrða hann til að tryggja að ekkert verði úr frið- arviðleitninni sem George W. Bush Bandaríkjaforseti reynir nú að koma af stað í samvinnu við Evrópuríkin og Sam- einuðu þjóðirnar. Ekk- ert virðist þokast í deil- um Palestínumanna og Ísraela um frið- aráætlun stórveldanna, Vegvísinn svonefnda, hryðjuverk halda áfram. Ljóst þykir einnig að Yasser Arafat, forseti Pal- estínumanna, ætli ekki að gefast upp og láta Abbas þoka sér til hliðar. Margir Palestínumenn eru tor- tryggnir í garð Abbas og segja að ný stjórn hans hafi verið sett á laggirnar að undirlagi Bandaríkjamanna og Ísraela. Ekki var reynt að leyna því að markmiðið með því að efla Abbas var að gera Arafat, kjörinn forseta þjóðarinnar, áhrifalausan. Í augum Palestínumanna var þetta enn eitt dæmið um þá auðmýkingu sem hefur verið hlutskipti þeirra síðustu áratugina. Talsmaður Hamas- samtakanna, Abdulaziz Rantisi, lýsti vel á þriðjudag sjónarmiðum harðlínumanna og ann- arra sem tortryggja vesturveldin er hann gerði lítið úr hrósyrðum sem Bush lét falla um Abbas í símaviðtali við nýja forsætisráð- herrann. „Bandaríkja- menn stefna að því að tryggja öryggi zíonista- óvinarins [Ísraels] en í staðinn gefa þeir Pal- estínumönnum inn- antóm loforð um sjálfstætt ríki.“ Sjálfhelda á fyrsta fundi Abbas og Ariel Sharon, forsætis- ráðherra Ísraels, áttu sinn fyrsta op- inbera fund á laugardag og segja heimildarmenn að vel hafi farið á með þeim. En Palestínumanninum tókst ekki að fá Sharon til að sam- þykkja grundvallaratriði Vegvísisins. Það hefur Abbas þegar gert skilyrð- islaust en Ísraelar segja sem fyrr að gera þurfi breytingar á áætluninni. Hún var samin af kvartettinum svo- nefnda, Bandaríkjunum, Evrópu- sambandinu, Rússlandi og Samein- uðu þjóðunum. Embættismenn í Ísrael fullyrða að Sharon hafi boðið Abbas að herinn yrði þegar í stað kallaður frá kjarna helstu borga á Vesturbakkanum og norðurhluta Gazaspildunnar. Í stað- inn myndu Palestínumenn binda enda á sjálfsmorðsárásir og önnur hryðjuverk á umræddum svæðum, segir í grein James Bennet í Int- ernational Herald Tribune. En Abb- as reyndi á hinn bóginn að sannfæra Sharon um að Palestínustjórn gæti ekki unnið trúnað almennings á her- numdu svæðunum nema Ísraelar kæmu áþreifanlega til móts við nýju stjórnina og samþykktu formlega Vegvísinn. Ekki væri nóg að Sharon segðist í grundvallaratriðum vera samþykkur áætluninni. Þar við sat, hvorugum varð þokað. Báðir krefjast í raun að gagnaðilinn sýni fyrst viðleitni. Og báðir við- urkenndu að sögn heimildarmanna að svigrúmið væri mjög takmarkað vegna harðlínuafla sem vildu láta sverfa til stáls. Skoðanakannanir sýna yfirleitt mjög öflugan meirihluta meðal Pal- estínumanna við að saminn verði friður og árásum á Ísraela verði hætt. Kannanir sýna einnig vilja meirihluta Ísraela til að land- tökubyggðirnar á hernumdu svæð- unum verði rifnar og herinn kallaður burt til að koma á friði. En þar með er ekki sagt að málið sé einfalt fyrir leiðtogana tvo. The Los Angeles Times hefur eftir einum af ráðherrum Abbas, Ghassan Khatib, á þriðjudag að forsætisráð- herrann sé orðinn næsta vonlaus um að hann geti náð árangri í deilunni endalausu. „Hann er mjög svartsýnn núna. Allir gerðu ráð fyrir að hann fengi tækifæri ... hann var sann- færður um að Ísraelar myndu gefa honum tækifæri til að koma Vegvís- inum í gagnið.“ Khattib segir að Ísr- aelar hafi ekki skilið að með aug- ljósum og ákveðnum stuðningi sínum við Abbas hafi þeir í reynd grafið undan áliti forsætisráðherrans meðal Palestínumanna. Ljóst er að geti Abbas ekki sýnt þjóð sinni að friðsamlegar leiðir færi einhvern ávinning, til dæmis að aflétt verði takmörkunum á ferðafrelsi, er staða hans vonlítil. Fréttaskýrendur ganga sumir svo langt að segja að vandi Abbas sé í reynd óleysanlegur, vilji til nauðsynlegra tilslakana sé einfaldlega ekki enn fyrir hendi hjá deiluaðilum, tortryggnin sé víða svo rótgróin. Ef hann komi til móts við kröfur Ísraela og Bandaríkjamanna munu Arafat og aðrir keppinautar/ andstæðingar útmála hann sem leiguþý óvinanna og svikara. En láti hann athöfn fylgja orðum og afvopni herskáa hópa á borð við Hamas gæti allt farið í bál og brand í innbyrðis deilum Palestínumanna. „Það versta sem gæti gerst væri að menn lentu í vopnuðum átökum við Hamas vegna þess að afleiðing- arnar yrðu skelfilegar,“ segir Hanan Ashrawi, sem er einn af þekktustu þingmönnum Palestínumanna og hefur stutt málstað hófsemdar í deil- unum, eins og Abbas. „Þetta vilja Ísraelar að hann geri vegna þess að þeir vita að það væri algert sjálfs- morð,“ bætir hún við. Ef Abbas á hinn bóginn reynir að eyða tortryggni harðlínumanna í eig- in röðum og stendur fast á kröfum sínum um Vegvísinn gagnvart Shar- on munu Ísraelar efast um að hann sé samningsfúsari en Arafat. Og haldi sjálfsmorðsárásirnar áfram eins og gerst hefur undanfarna daga segja Ísraelar auk þess að hann hafi ekki nægilegan stuðning við frið- arsjónarmið sín meðal Palest- ínumanna til að kveða niður hryðju- verkahópana, hann skorti myndugleik. Ísraelar gætu þá ákveð- ið að afskrifa Abbas með þeim rökum að enn sé ekki kominn fram palest- ínskur leiðtogi sem vilji eða þori að grípa til þeirra harkalegu ráðstafana sem óhjákvæmilegar séu til að stöðva ofbeldið. Málin væru þá komin í sömu sjálfhelduna og fyrir valdatíma Abbas. Friðarsinni með fortíð skæruliðans Mahmud Abbas er maður af ann- arri gerð en Arafat, hann hefur á síð- ari árum beitt sér gegn því að Palest- ínumenn reyni að þvinga Ísraela til uppgjafar með hryðjuverkum. Þetta er ástæðan fyrir því að Ísraelar og Bandaríkjamenn ákváðu, þegar þeir voru orðnir þess fullvissir að þýðing- arlaust væri að gera friðarsamninga við Arafat, að veðja á Abbas. Hann er lögfræðingur og auk þess með doktorspróf í sagnfræði, verald- arvanur og á auðveldara með að ræða við vestræna diplómata en Ara- fat. Hann mun hafa sagt umbúða- laust að Palestínumenn geti ekki lengur staðið fast á kröfunni um að allir palestínskir flóttamenn frá svæðum sem nú eru hluti Ísraels og afkomendur þeirra síðustu hálfa öld- ina fái að snúa heim. Krafan er mikill þyrnir í augum Ísraela sem benda á að þá verði stutt í að ríkið hætti að vera ríki gyðinga vegna þess að arab- ar yrðu fljótt meirihluti íbúanna. Abbas hefur það til síns ágætis að vera einn af stofnendum Fatah- skæruliðahreyfingarinnar sem Ara- fat hefur farið fyrir síðustu áratugina og því töldu menn ekki líklegt að hægt væri að grafa undan stöðu hans með ásökunum um undirlægjuhátt. Eins og fleiri arabískir skæruliðar tók Abbas á sínum tíma upp svonefnt stríðsnafn (nom de guerre), kallaði sig Abu Mazen, Arafat kallaði sig hins vegar Abu Bakr í höfuðið á ein- um kalífanna. En hve öflugur er Abbas og er lík- legt að Arafat standi uppi sem sig- urvegari í glímu fóstbræðranna gömlu um forystuhlutverkið? Er Ab- bas nægilega mikill klækjarefur? Sérfræðingar í málefnum Palest- ínumanna benda á að þrautseigja Arafats sé með ólíkindum. Þótt hann sé kominn hátt á áttræðisaldur og sé haldið í hálfgerðri einangrun í stöðv- um sínum í Ramallah hafi hann enn mikil áhrif. Ísraelar fullyrða að Ara- fat veiti þögult samþykki sitt við hryðjuverkunum síðustu vikurnar, hann telji að þau muni veikja stöðu Abbas. „Við vitum að Arafat stöðvar sér- hverja tilraun Palestínustjórnar til að koma á friði,“ segir Ranaan Giss- in, einn af ráðgjöfum Sharons. Gissin segir að á bak við tjöldin geri Arafat nú allt sem hann geti til að tryggja að ekki komist á ró og friður á her- numdu svæðunum. Tekur Abu Mazen pokann sinn? Abbas er sagður hlédrægur maður sem hafi ef til vill ekki nægilegt vilja- þrek til að takast á við þá erfiðu fjendur sem hann sé að kljást við. Hann mun einnig þjást af krabba- meini í blöðruhálskirtli. Heimild- armenn segja að aðstæður hafi þröngvað Abbas fram í sviðsljósið sem hann kunni ekki við. Hann sé hinn fæddi aðstoðarmaður, maðurinn númer tvö sem hafi neyðst til að taka forystuna. „Það getur hvenær sem er gerst að hann taki pokann sinn og hætti, eðl- isfar hans er þannig,“ segir Yossi Alpher, fyrrverandi leyniþjón- ustumaður í Ísrael, sem áður var boðberi í óbeinum friðarviðræðum Ísraela og Palestínumanna og kynnt- ist þá Abbas. „Þegar ferill hans er kannaður kemur í ljós að í hvert sinn sem hann lenti í deilum við Arafat hætti hann [Abbas].“ Nokkrum stundum eftir að Abbas tók við embætti létu sjálfsmorðs- sprengjumenn til sín taka í Tel Aviv, auk þeirra féllu þrír Ísraelar. Þótt herská samtök segðu að hryðjuverk- ið tengdist ekki embættistöku Abbas fór vart milli mála að verið var að senda honum skilaboð. Nú spyrja menn hvort forsætisráðherrann eigi nokkur sannfærandi svör við skila- boðunum. Abbas milli steins og sleggju Reuters Yasser Arafat (t.v.) og Mahmud Abbas á fundi palestínskra þingmanna. Arafat er sagður staðráðinn í að láta Abbas ekki þoka sér til hliðar. ’ En láti hann athöfn fylgja orðum og afvopni herskáa hópa á borð við Hamas gæti allt farið í bál og brand í innbyrðis deilum Palestínumanna. ‘ Ariel Sharon kjon@mbl.is Nýr forsætisráðherra Palestínumanna virðist ófær um að þoka friðarumleitunum áleiðis, segir í grein Kristjáns Jónssonar. Ísraelar gera Abbas starfið enn torveldara en ella með því að neita að samþykkja friðaráætlun stórveldanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.