Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DANSHÓPURINN Bassikolo Ísland heldur
tvær sýningar á vestur-afrískum dansi og
menningu næstkomandi föstudag í Austurbæ.
Fyrri sýningin er fyrir skólabörn og er hald-
in í samvinnu við kennsluráðgjafa nýbúa-
fræðslunnar á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur.
„Markmið sýningarinnar, sem nefnist Jar-
ama, er að kynna menningu Vestur-Afríku
nemendum nú þegar Ísland er að verða að
fjölþjóðasamfélag. Í öðrum Evrópulöndum
hafa kynþáttafordómar verið vaxandi vanda-
mál, sem örðugt hefur verið að leysa. Með
því að kynna þennan hluta af vestur-afrískri
menningu aukum við skilning barnanna á
öðrum menningarheimi og drögum úr kyn-
þáttafordómum,“ segir í tilkynningu frá
Fræðslumiðstöð.
Bassikolo Ísland samanstendur af sextán
dönsurum af ýmsum þjóðernum, tveimur
trommuleikurum frá Gíneu, þeim Lansana
(Sagatala) og Alseny (Alsylla) og Orville J.
Pennant, sem er stjórnandi hópsins auk þess
að dansa og tromma sjálfur.
„Mig langar að gera íbúum þessa lands
kleift að vera hluti af menningarlegri deiglu,“
segir Orville. Hann hefur mikinn áhuga á að
halda þessu starfi áfram í skólunum.
„Áhuginn er alltaf að aukast,“ segir Orville
og bendir á að hann viti um skóla, sem hafi
tileinkað Afríku einn dag eða þemaviku.
„Krakkarnir teikna gíraffa og ljón og slíkt,
en þekking þeirra er takmörkuð. Um leið og
við getum farið með danskennslu og fræðslu í
skólana eykst áhuginn og þar með tengslin,“
segir hann.
„Íslendingum finnst yfirleitt mjög gaman
að afrískri menningu. Það er ástæða þess að
afró hefur lifað hér svona lengi og verður
áfram til á Íslandi,“ segir Orville, sem er frá
Jamaíka en hefur búið á Íslandi í fjölmörg
ár.
Skólabörn eru ekki þau einu sem fá tæki-
færi til að sjá sýninguna því sérstök sýning
fyrir almenning verður haldin í Austurbæ kl.
20 á föstudagskvöld.
Þess má geta að sýningin hefst á tuttugu
mínútna langri hár- og tískusýningu. „Okkur
langaði að leyfa fólki að fá smjörþefinn af
vestur-afrískri menningu, að sýna hvernig
fólk klæðist, dansar, syngur og greiðir sér.
Þetta er menningarkvöld, íslensk túlkun á
vestur-afrískri menningu.“
Orville hvetur fólk sem hefur áhuga á afró
að mæta á sýninguna og segir hana hafa
bæði fræðslu- og skemmtigildi. Hann segir
búningana litríka auk þess sem tromm-
ararnir eru sérlega hæfir á sínu sviði.
Nafnið á sýningunni, Jarama, er kveðja,
komin frá Fulla-ættbálknum í Gíneu. Orville
segir þetta jákvæða kveðju, sem hægt sé að
nota bæði kvölds og morgna.
Jarama!
Trommararnir Alsylla og Sagatala frá Gíneu stjórna dansinum með taktfastri tónlist.
Dans- og menningarsýning í Austurbæ
Með kveðju frá Afríku
Afrósýning í Austurbæ föstudag kl. 20. Verð
1.500 kr. Miðasala í Exodus við Hverfisgötu og
Kramhúsinu.
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. 500 kr.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Miðasala opnar kl. 15.30
kl. 6 og 9.
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40. B.i. 12
Kvikmyndir.is
Þetta var hin
fullkomna
brúðkaupsferð...
þangað til hún
byrjaði!
Ertu nokkuð myrkfælinn?
Búðu þig undir að öskra.
Mögnuð hrollvekja sem fór
beint á toppinn í
Bandaríkjunum.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
HK DV
SV MBL Kvikmyndir.com
"Tvöfalt húrra"
Fréttablaðið
X-ið 977
500
kr
Sýnd kl. 8. B.i. 12
Kvikmyndir.com
HK DV
"Tvöfalt
húrra"
Frétta-
blaðið
SV MBL
Kvikmyndir.is
500
kr
Sýnd kl. 6. Ísl. texti.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 10.20.
N Ý J A R V Ö R U R
Kringlunni - Smáralind Smáralind
SUMARFÖTIN SEM KRAKKARNIR VILJA
NÝJAR VÖRUR VIKULEGA
BOLUR 1.790