Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Við syrgjum þig sárt, því við elsk- uðum þig mikið. Þú gafst úr sjóði hjarta þíns, því þú varst góður drengur. Þær gjafir standast tímans tönn. Ef við hittumst í öðrum draumi skulum við haldast fastar í hendur. Pabbi, mamma, Ólafur og Eva. Elsku Viktor minn. Minningar um ljúfan dreng koma fram í hugann þegar ég sest niður til þess að kveðja þig með fáum orðum. Ég sá þig fyrst á Patró þar sem þú fæddist og lifðir fyrstu ár ævinnar, lítill spurull strák- ur með falleg augu en oft svo alvar- legur á svipinn að undrun sætti en þegar þú brostir var það svo fallegt. Þegar fjölskyldan flutti til Danmerk- ur og pabbi þinn fór í nám var ykkar sárt saknað. Þá var ekki annað að gera en að heimsækja ykkur og það gerðum við Ragnar og amma Indí en þú varst alltaf augasteinninn hennar. Mikið skemmtum við okkur vel þegar við fórum öll í Lególand og amma þín hló svo mikið að þú stóðst bara og horfðir á hana, þú hafðir sennilega aldrei séð hana svona káta. Hún naut þess svo að vera með ykkur. Þegar þið fluttuð heim aftur og á Blönduós hófst enn skemmtilegri þáttur hjá okkur. Við Ragnar og Ragnar Trausti og fjölskyldan á Blönduósi fórum oft á sumrin saman í veiði, sumarbústað eða í gönguferðir eftir því sem okkur datt í hug. Stund- um komstu með, stundum ekki, en það var gaman að sjá hvað ykkur Óla kom vel saman og höfðuð gaman af útiverunni, veiðiáhuginn var svo mik- ill. Ég man hvað ég varð glöð þegar þú komst til mín einn daginn, þá orð- inn hálffullorðinn maður og spurðir mig hvort ég ætti ekki eitthvert dót í herbergi því þú ætlaðir að leigja her- bergi í Grindavík og þig vantaði ým- islegt. Það stóð ekki á því og saman tíndum við ýmislegt í bílinn og mikil var gleði þín þegar ég dró fram borð sem pabbi hafði smíðað og sagði þér að þú mættir eiga það, þú varst líka strákurinn hans afa Óla! Það leið orðið langt á milli þess að ég sæi þig eins og gerist með ungt fólk, alltaf nóg að gera. Einu sinni komstu með sparifötin í fanginu og baðst mig um að leyfa þér að skipta um föt. Þú varst á svo mikilli hraðferð að ég rétt gat smellt kossi á kinn, svo varstu rokinn. Mikið var ég glöð í fyrra þegar ég átti afmæli og þið systkinin komuð saman til að sam- fagna mér, öll fín og þú í jakkafötum með slifsi og orðinn svo myndarlegur VIKTOR GUÐBJARTSSON ✝ Viktor Guð-bjartsson fæddist á Patreksfirði 21. október 1978. Hann lést laugardaginn 10. maí síðastliðinn. Hann átti heimili á Blönduósi frá 1985. Foreldrar hans eru Guðbjartur Á. Ólafs- son, tæknifræðingur, f. 12. desember 1948, og Jóna Elín Krist- insdóttir, f. 19. des- ember 1954. Systkini Viktors eru Ólafur Tómas Guðbjartsson, f. á Patreksfirði 22. janúar 1981, og Guðbjörg Eva Guðbjartsdóttir, f. á Blönduósi 8. september 1986. Útför Viktors verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. ungur maður. Ég er þakklát fyrir að fá að kynnast þér og geymi minninguna um þig í hjarta mér. Við Ragnar þökkum allar samverustundirn- ar og biðjum góðan guð að geyma þig. Við vit- um að það eru margir opnir faðmar sem taka á móti þér. Saknaðarkveðja, Hansína frænka og Ragnar. Í dag er til moldar borinn ástkær bróðursonur minn Viktor Guðbjarts- son. 24 ára var hann héðan burt kall- aður og eftir stöndum við ættingjar og vinir og skiljum ekki hver tilgang- urinn er. Viktor var frumburður foreldra sinna og það ríkti sannarlega mikil hamingja og gleði þegar hann leit dagsins ljós, enda var hann vel skap- aður og fallegur drengur. Rúmlega tveggja ára varð hann svo stóri bróð- ir þegar Ólafur Tómas fæddist og milli þeirra bræðra var ávallt gagn- kvæm ást og vinátta og þegar Guð- björg Eva kom í heiminn voru þeir stoltir bræðurnir af henni litlu systur sinni. Árin liðu og systkinin á Blöndu- ósi uxu og döfnuðu umvafin ást og umhyggju foreldra sinna og þótt fjar- lægðin ylli því að ekki væri daglegt samneyti við þau þá fylgdumst við fjölskyldan með þeim úr fjarlægð og þegar færi gafst hittumst við og gerð- um okkur glaðan dag og alltaf var Viktor sami ljúfi drengurinn, en skjótt skipast veður í lofti og nú er hann horfinn okkur og eftir er minn- ingin ein. Er sárasta sorg okkar mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.I.H.) Elsku Ella, Guðbjartur, Ólafur Tómas og Eva, þau eru þung sporin sem þið stígið í dag. Ég bið algóðan Guð að leiða ykkur og styrkja. Megi minningin um góðan son og bróður verða ykkur ljós í myrkrinu. Viktori frænda mínum bið ég Guðs blessunar og ég veit að hann hefur átt góða heimkomu í himnaríki þar sem amma og afi í Breiðagerði hafa um- vafið drenginn sinn, sem var þeim svo kær. Elsku Viktor, þar til við hittumst á ný, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín frænka Anna. Hljóð falla tregatárin. Titrar hver strengur af ekka. Drengur til dáða fæddur dáinn í æskunnar blóma. Hvað olli að einmitt slíkur er á burtu kvaddur? Guð, sem að gefur og tekur, getur einn veitt okkur svörin. Skarð er nú fyrir skildi. En sköpum verður að hlíta ungur jafnt sem aldinn, þá örlaganornirnar kalla. Minningin ljúfsár lifir lengi um prúða drenginn, sem hvarf yfir móðuna miklu að morgni á lífsins degi. (Eiríkur Pálsson.) Þessar ljóðlínur voru ortar fyrir tæpum fjörutíu árum, við ótímabært fráfall ungs frænda míns og koma mér í huga nú við sviplegt fráfall Viktors bróðursonar míns. Elskuleg- ur og góður drengur er fallinn frá, að- eins 23 ára. Hugur okkar Donna er hjá ykkur, elsku Ella, Guðbjartur, Óli Tómas og Eva, og öllum ættingjum og vinum. Guð blessi ykkur og styrki í sorg ykk- ar. Elsku Viktor minn, ég veit að al- góður Guð tekur á móti þér með út- breiddan faðm sinn. Blessuð sé minn- ing þín. Þín frænka, Þórdís T. Ólafsdóttir. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Elsku Viktor, við vitum að amma og afi í Breiðó hafa tekið vel á móti þér og við vitum að ykkur líður vel saman. Frændsystkinahópurinn hefur misst mikið, en minningarnar um þig munu lifa í hjarta okkar allra um ókomna tíð. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran.) Elsku Guðbjartur frændi, Ella, Óli og Eva, missir ykkar er mikill. Megi Guð vera með ykkur og veita ykkur styrk og huggun í þessari miklu sorg. Esther og Magnea. Drottinn vakir, Drottinn vakir dagá og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, – Drottinn vakir dagá og nætur yfir þér. (S. Kr. Pétursson.) Elsku frændi, þakka þér fyrir allan þann tíma sem við áttum saman. Ég fékk ekki að kynnast þér mjög vel því þú áttir heima á Blönduósi og maður sá þig ekki mjög oft. En stundum á sumrin kom ég með mömmu og pabba norður á Blönduós í veiði. Við fórum með þér, Ólafi Tómasi, Evu, Guðbjarti og Ellu. Ég veit að þú veiddir þá nokkra stóra. Við eigum öll eftir að sakna þín. Guð geymi þig. Þinn frændi Ragnar Trausti. Elsku Viktor minn. Nú hefur þú verið tekinn frá okkur og ert kominn á friðsælan stað þar sem Bubbi bróð- ir minn hefur án efa tekið á móti þér. Þú varst besti vinur Bubba og Bjögga stóru bræðra minna og ég er búin að þekkja þig frá því að ég var lítil stelpa. Svo þegar ég varð eldri fékk ég að vera aðeins meira með ykkur strákunum, bræðrum mínum og vin- um þeirra, og kynntist ég þér þá enn betur. Er ég afar sæl og glöð með að hafa fengið að þekkja þig, þótt alltof stutt hafi verið. Þeir deyja ungir sem guðirnir elska og eru þið Bubbi í þeim hópi, þó að afar sárt sé fyrir okkur hin sem eftir sitjum, en við hittumst þó öll að lokum. Ég er viss um að þið Bubbi munið rokka saman í himna- ríki og passa upp á okkur hin. Elsku Óli Tómas, Eva og fjöl- skylda, Guð gefi ykkur styrk á þess- um erfiðu tímum. Mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Arndís. Elsku frændi, við vitum að amma og afi taka vel á móti þér. Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum föðurörmum þínum og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu föðurhjarta. (M. Joch.) Elsku Guðbjartur, Ella, Óli Tómas og Guðbjörg Eva, Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Eiríkur, Guðrún, Hulda og Sigríður. Nú sitjum við hér saman og kveðj- um Viktor vin okkar. Það er mikill söknuður og erfitt að hugsa til þess að við eigum ekki eftir að sjá þig aft- ur. Öll eigum við góðar minningar um þig frá Blönduósi. Hlédrægur varstu, yfirleitt brosandi, snillingur og ávallt með frasana. Við trúum því að þú sért á góðum stað, hjá honum Bubba okk- ar og að þér líði vel. Við elskum þig sem vin því þú varst besti vinur sem hugsast gat. Innilegar samúðarkveðjur til Guð- bjarts, Elínar, Óla og Evu. Björgvin, Jón Ingi, Sunna Apríl, Erla Guðrún, Þorbjörn og Rögnvaldur. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nán- ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát- inn einstakling birtist formáli og ein aðal- grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, BRYNJA HERMANNSDÓTTIR, Klapparstíg 1, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri föstu- daginn 16. maí. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 23. maí kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hennar, láti Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri njóta þess. Haraldur Ólafsson, Hermann Haraldsson, Elín Guðmundsdóttir, Ólafur Örn Haraldsson, Sigríður Björnsdóttir, Guðrún María Haraldsdóttir, Ólafur Sigurðsson og ömmubörn. Okkar ástkæri ÓLAFUR JÓNSSON, Hrafnistu Reykjavík, áður Bræðraborgarstíg 13, sem lést á Hrafnistu miðvikudaginn 14. maí, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja- vík föstudaginn 23. maí kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda og vina, Baldur Ólafsson, Ingibjörg Jónasdóttir, Sigurður Sigurðsson, Arna Guðmundsdóttir. Bróðir minn og móðurbróðir okkar, KRISTINN G. MAGNÚSSON stálhúsgagnasmiður, Austurbrún 4, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala Landakoti fimmtu- daginn 15. maí. Útför hans verður gerð frá Fossvogskapellu mánudaginn 26. maí kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Karítas hjúkrunarþjónustu. Anna Júlía Magnúsdóttir og börn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, MARGRETHE GÍSLASON, Víðivangi 10, Hafnarfirði, áður Skólavörðustíg 5, Reykjavík, lést á Sólvangi í Hafnarfirði þriðjudaginn 13. maí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeir, sem vilja minnast hennar, láti Barnaspítala Hringsins njóta þess. Edda Óskarsdóttir, Hjalti Kristgeirsson, Margét Þóra Gunnarsdóttir, Örnólfur Thorsson, Anna Vilborg Gunnarsdóttir, Halldór Guðmundsson og börnin. BJÖRN TÓMAS KJARAN skipstjóri, lést á heimili sínu þriðjudaginn 20. maí eftir langvarandi veikindi. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á heimaaðhlynningu Krabbameinsfélagsins. Sigríður S. Kjaran, börn, barnabörn og tengdasonur. Systir mín, stjúpsystir, mágkona og frænka, GUÐRÚN ELÍASDÓTTIR, Sunnubraut 50, Keflavík, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut þriðjudaginn 20. maí. Ingibjörg Elíasdóttir, Jóhann Pétursson, Þórarinn Haraldsson, Ólöf Magnúsdóttir og frændsystkini.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.