Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 35 Það er alltaf svo erf- itt að kveðja þá sem við elskum. Þú sem barðist svo harðri bar- áttu og varst svo sterk. En greinilega er það ekki alltaf nóg og það er svo ósanngjarnt. Núna þegar ég sit hérna og er að skrifa þér þessi lokaorð er Þórður Tandri að horfa á mig og segja mér að vera ekki svona sorgmædd, en annað er ekki hægt, þú varst mér alltaf svo góð og tókst svo vel á móti mér þeg- ar ég kom inn í líf þitt. Ég man þegar við hittumst fyrst, fyrir um fjórum árum þú hringdir í mig og baðst mig að hitta þig á kaffihúsi, ég man hvað ég var stressuð en þegar ég kom þá hvarf það því þú varst svo yndisleg og svo gott að tala við þig. Ég á eftir að sakna þess svo mikið að geta ekki hringt í þig til að tala um daginn og veginn, þú gast alltaf látið mér líða vel þegar mér leið eitthvað illa. Maður heldur alltaf að maður hafi nægan tíma, það er svo margt sem ég hefði viljað segja við þig. mér þótti svo vænt um þig og þú varst svo stór partur í lífi mínu og Þórðar Tandra, við eigum eftir að sakna þín svo mikið. Elsku Bogga mín, takk fyrir allan stuðninginn og hlýjuna sem þú veittir okkur. Elsku Reynir, Stella, Sandra og Ágúst Ingi og aðrir nánir aðstand- endur, ég og Þórður Tandri sendum ykkur okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Eva Ösp. Elsku Bogga mín. Af hverju er lífið svona ósann- gjarnt? Af hverju þurftir þú að hverfa svo fljótt? Við sem áttum eft- ir að gera svo margt. Allt í einu hrynur framtíðin og við förum ekki fleiri utanlandsferðir saman eins og við ætluðum. Ég þakka þó fyrir að hafa haft þig hjá mér þessi góðu ár sem við áttum saman. Þær mörgu utanlandsferðir sem við fórum sam- an eru mér ógleymanlegar. Þó er brúðkaupsferðin okkar sem við fór- um 2. apríl 2000 mér minnisstæðust. Það lýsir þér svo vel hvernig þú tókst á móti honum Sigga mínum eins og hann væri þinn eiginn son- ur. Alltaf varstu tilbúin að gera allt fyrir aðra og eru börnin okkar þar engin undantekning. Þú áttir sérstakt og gott sam- band við þau öll og er þín sárt sakn- að. Það er stutt á milli lífs og dauða. Öll þín áform um að halda áfram að fegra og bæta heimilið eru horfin. Við munum varðveita öll þín verk, hvort sem er innandyra eða utan. Bogga mín, þú varst svo sterk og dugleg fram á seinasta dag, kvart- aðir aldrei, en baðst guð um styrk og aðeins lengri frest sem ekki fékkst. Ég lofa því elsku Bogga mín að gæta vel yndislegu barnanna okkar og ömmubarnanna þinna. Þau eiga alltaf heimili hér á Brekku og vonandi eigum við eftir að eiga góðar stundir saman. Hugur okkar verður alltaf hjá þér. Mig langar að þakka öllum sem studdu okkur í þessari erfiðu bar- áttu við þann skelfilega sjúkdóm sem krabbameinið er. Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki á lyf- lækningadeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri. Anna Dóra, Maggi, Heiðbjört og Palli, ykkar stuðningur er mér ómetanlegur, þið eruð sannir vinir. SIGURBORG INGI- MUNDARDÓTTIR ✝ Sigurborg Ingi-mundardóttir fæddist á Seyðisfirði 10. júlí 1953. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 26. apríl síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Grenjaðarstaðar- kirkju 6. maí. Bogga mín, eitt er víst að við komum saman 10. júlí og höld- um upp á daginn þinn. Himneskur faðir, gefðu okkur styrk, verndaðu börnin okk- ar, barnabörn, ætt- ingja og vini. Í Jesú nafni, amen. Elsku Bogga mín, þú verður alltaf í huga mér og hjarta um ókomna framtíð. Ástar- og saknaðar- kveðja, þinn Reynir. Elsku mamma. Þessa dagana finnst okkur lífið afar ósanngjarnt. Af hverju er mamma okkar, kona á besta aldri sem átti framtíðina fyrir sér, látin kveðja þennan heim? Sorgin og söknuðurinn er mikill og ekki hefð- um við trúað að við ættum eftir að finna svona til, svo vond er þessi til- finning. Við gerum samt okkar besta og reynum að njóta lífsins eins og við vitum að þú hefðir viljað að við gerðum. Við reynum að hug- hreysta hvert annað og trúum því að þér líði vel. Þegar við hugsum til baka og eru svo margar skemmtilegar stundir sem við áttum saman og munum við varðveita þær um alla eilífð. Allar útilegurnar þegar við vorum lítil og núna síðustu árin þær samveru- stundir sem við áttum í sveitinni. Það var alveg yndislegt að upplifa það með þér hversu hamingjusöm þú varst með Reyni og á Brekku. Við töluðum oft um það við systk- inin hversu gaman það væri að sjá þig svona hamingjusama, loksins eftir allt erfiðið sem á undan gekk. Þegar maður gengur um heimilið á Brekku, ertu allsstaðar. Á veggj- unum eru myndir eftir þig, málaðar, teiknaðar, saumaðar og leiraðar. Í hillunum eru leirmunir sem þú gerðir, úti er sólpallurinn sem þú smíðaðir. Það er sama hvert litið er, listaverk eftir þig eru allsstaðar og munum við varðveita þau eins og gull. Þú talaðir oft um það hversu rík og heppin þú værir að eiga þrjú heilbrigð börn og fjögur heilbrigð barnabörn. Það sem við áttuðum okkur kannski ekki alltaf á var hversu heppin við vorum að eiga þig fyrir mömmu. Sá sem sagði „enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ hefur svo sannarlega vitað um hvað hann var að tala. Að eiga þig fyrir mömmu voru ákveðin forréttindi út af fyrir sig og við verður þér ævinlega þakklát fyr- ir allan þann stuðning sem þú veitt- ir okkur, sama hvaða vitleysu við tókum upp á. Barnabörnin þín, þau Klara, Telma, Þórður Tandri og Kristinn, koma til með að sakna þín mikið og síðast í gær spurði Klara; „Hver á þá að prjóna handa mér peysur núna?“ Kristinn er yngstur og fékk minnstan tíma til að njóta þín, en þið fenguð þó að njóta hvort annars í fimm mánuði og þakkar maður guði fyrir þá. Við munum sjá til þess að þau kynnist þér betur og komi aldrei til með að gleyma þér. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Kahlil Gibran.) Við þökkum guði fyrir að hafa gefið okkur tækifæri til að kveðjast og heitum því að passa hvert annað og Reyni. Ástar- og saknaðarkveðjur Stella, Sandra og Ágúst Ingi. Elsku Bogga, þetta er okkar kveðja til þín. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Hvíldu í Guðs friði. Mamma og systkinin. AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disk- lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Ekki er tekið við hand- skrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmark- ast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur afmælis- og minningargreina Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ERNA KARLSDÓTTIR, Stekkjarhvammi 54, Hafnarfirði, sem lést á Landspítalanum Hringbraut fimmtu- daginn 15. maí, verður jarðsungin frá Grafar- vogskirkju föstudaginn 23. maí kl. 15.00. Bjarni Jónsson, Helgi Már Bjarnason, Klara Katrín Friðriksdóttir, Brynja Sif Bjarnadóttir, Arnar Freyr Helgason, Mikael Adam Hafþórsson. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ESTER HJÁLMARSDÓTTIR HANSEN, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vest- mannaeyjum, laugardaginn 24. maí kl. 14.00. Jógvan Hansen, Ingólfur Hansen, Sonja Hansen, Þórður Ólafsson, Sædís H. Raastad, Svein Raastad, Vigdís Hansen, Mattías Nóason, Ágústína Hansen, Jóhann Andrésson, Sigríður P. Hansen, Magnús Kristleifsson, Hans H. Hansen, Sigurborg Birgisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, JÓN KRISTINN BJÖRNSSON, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðviku- daginn 21. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Margrét Dannheim, Magnús Kristinn Jónsson, Hulda Björg Jónsdóttir, Björn Brynjar Jónsson, Erna Kristjánsdóttir, Sólveig Katrín Jónsdóttir, Patrekur Maron Magnússon, Þormar Leví Magnússon. Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma BÓEL KRISTJÁNSDÓTTIR fyrrum húsfreyja, Miðhjáleigu, Austur-Landeyjum, verður jarðsungin frá Voðmúlastaðakapellu laugardaginn 24. maí kl. 14.00. Þeir, sem vilja minnast hennar, láti kapelluna njóta þess. Erlingur Ólafsson, Helga Ísleifsdóttir, Kristján Ólafsson, María Hennley, Sigmar Ólafsson, Guðlaug Valdimarsdóttir, Þórir Ólafsson, Ásdís Kristinsdóttir, Svavar Ólafsson, Halldóra Ólafsdóttir, Trausti Ólafsson, Kristín Unnsteinsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir, Jónas Traustason, Indriði Th. Ólafsson, barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR, Skagfirðingabraut 43, Sauðárkróki, sem andaðist sunnudaginn 4. maí, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 24. maí kl. 14.00. Ásmundur Jónsson, Ragnheiður Kjærnested, Rannveig Jónsdóttir, Alois Raschhofer, ömmubörn og langömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.