Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 14
ERLENT 14 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ HIKMAT býr í Bagdad, hann er 67 ár gamall endurskoðandi á eft- irlaunum, blíðlegur, svolítið utan við sig, sköllóttur og með yfirbragð menntamanns. Hann þarf að gera upp hug sinn: Á hann að fá sér Kal- ashníkov-riffil eða Browning 9 mm skammbyssu? „Ég er eiginlega bú- inn að ákveða að fá mér Kalashn- íkov,“ segir Hikmat sem aldrei hefur átt byssu. „Skammbyssa dugar ekki alveg.“ Hikmat er einn fjölmargra íbúa í höfuðstað Íraks sem stendur ógn af ringulreiðinni og götuofbeldinu sem hefur tekið völdin í borginni eftir hrun einræðisstjórnar Saddams Husseins. Ræningjar ráðast á fólk um hábjartan daginn úti á götu, enn er hvarvetna verið að stela og nýj- asta fyrirbærið er að bílum er rænt af eigendunum með vopnavaldi. Borgararnir bregðast við með því að vopnast sjálfir og notfæra sér þá að hægt er að kaupa ólögleg skotvopn á svarta markaðinum. Aðspurður segist Hikmat, sem ekki vill gefa upp fullt nafn, ekki vera hrifinn af því að vera með vopn á heimilinu en honum finnst að hann verði að geta varið sig og fjölskyld- una fyrir þjófum og ræningjum sem verða æ ósvífnari. Nýju byssueig- endurnir sem rætt var við eru læknar, lögfræðingar, arkitektar og háskólaprófessorar. Hikmat sagðist finna til sektarkenndar yfir því að auka enn á lögleysuna með því að kaupa vopn sem áreiðanlega hefði verið stolið. En hann segist hvorki trúa því að lögregluliðið innlenda, sem er að taka til starfa, né banda- rískir hermenn geti komið á lögum og reglu. „Þegar það gerist ætla ég að fleygja Kalashníkov-rifflinum mínum. En ekki fyrr.“ Í sumum hverfum Bagdad er al- menningur harðánægður þegar bandarískir hermenn reyna að kveða niður ólöglegu skotvopnasöluna og handtaka sölumennina. Rafid Soud- ani, 34 ára gamall maður og þriggja barna faðir, fylgdist með því er Bandaríkjamenn handtóku mann sem hafði stundað sölumennsku sína við húsdyrnar. „Hvernig er hægt að ala hér upp börn?“ spurði Soudani. „Þetta var í gangi hvenær sem var á nóttinni, menn keyptu byssu og skutu síðan til að sjá hvort hún væri í lagi. Þetta er brjálæði, algert brjál- æði.“ En hermennirnir viðurkenna að þeir nái aðeins að stöðva brot af sölunni. Gömul byssuhefð í Írak Írakar eru ekki óvanir byssum, einkum á það við um fólk til sveita. Er Saddam var við völd var ekki erf- itt að eignast skotvopn, helsti þrösk- uldurinn var að borga þurfti sem svarar 150 dollurum eða um 11 þús- und kr. fyrir byssuleyfi. „Byssur hafa um langt skeið verið þáttur í menningu Íraka,“ segir Jo- han Solberg, starfsmaður alþjóða- nefndar Rauða krossins, en Solberg er ráðgjafi þeirra sem fjarlægja jarð- sprengjur á svæðinu. „Það urðu þær ekki þegar stríðið hófst og munu ekki hætta að vera það eftir að því lýkur.“ Það eru ekki eingöngu velefnaðir Írakar sem eru smeykir og kaupa sér vopn. Göturnar voru þó að minnsta kosti öruggar meðan Saddam var við völd, hræðslan við öryggislögreglu hans tryggði það og ræningjar létu fólk í friði. Nú reyna hins vegar allir, einnig herskáir smáflokkar, glæpa- hópar, Kúrdar og liðsmenn ættbálka úti á landsbyggðinni, að ná sér í vopn. Þetta veldur miklum áhyggj- um hjá bandaríska herliðinu sem er að reyna að koma á einhvers konar festu í Bagdad og annars staðar í landinu. Sölustaðirnir eru margir í höf- uðstaðnum. Sums staðar er um að ræða litla hópa sölumanna sem nota bílana sína sem söluvagna, annars staðar eru það raunverulegir mark- aðir sem oftast eru á sama staðnum. Þar hafa margir sölumenn rottað sig saman og skipuleggja sig eftir því hvaða gerðir vopna þeir hafa á boð- stólum. Hægt er að kaupa nánast hvað sem er, til dæmis riffla með sjónauka fyrir leyniskyttur en einnig handsprengjuvörpur. „Þegar við sjáum skriðdrekana og jeppana gerum við svona,“ segir einn vopnasalinn, Ali, hann lokar skott- lokinu á hrörlegum Datsun-bíl sínum í snatri vegna þess að hann sér bandaríska hermenn nálgast. Ali er snoðklipptur maður með sígarettu dinglandi milli varanna. „Maður verður að vera rólegur og ekki missa stjórn á sér. Ef maður hleypur ná þeir manni.“ Einn viðskiptavinurinn, Amer Janabi, sem er 27 ára, sagði banda- ríska hermenn nýlega hafa tekið af sér skammbyssu sem hann var með í beltinu. Gerir ekkert til,“ sagði hann og sýndi vöndul af 100 dollara seðl- um. „Ég ætla að kaupa mér aðra. Kannski tvær.“ Kalashníkov-riffill kostar nú á bilinu 50–100 dollara eftir ástandinu eða 3.650 til 7.300 krónur, eitt skot er hægt að fá á innan við krónu. „Ein herbækistöð“ Þjófar fóru ránshendi um vopna- búr í yfirgefnum herstöðvum Íraks- hers en einnig voru miklar birgðir alls kyns vopna í stöðvum Baath- flokks einræðisherrans. Þetta gerð- ist fyrstu dagana eftir að Banda- ríkjamenn réðust inn í borgina og varnir Saddams gufuðu að mestu upp þótt víða verðust enn litlir, harð- skeyttir flokkar. Ekki má gleyma að Baath-menn afhentu óbreyttum borgurum fjölmörg vopn fyrir stríðið og áttu þeir að taka þátt í að verja landið. „Landið var allt ein herbækistöð,“ segir David McKiernan, undirhers- höfðingi sem stjórnar liðsmönnum bandaríska landhersins í Írak. „Það voru vopn og skotfærageymslur alls staðar í Írak.“ „Skammbyssa dugar ekki alveg“ Vopnasalar á svarta markað- inum í Bagdad gera það gott í ringulreiðinni og lögleysunni TPN Ólöglegir vopnasalar í Bagdad. Vopnunum hefur flestum verið stolið úr geymslum Írakshers og Baath-flokksins. Bagdad. The Los Angeles Times. ’ Þegar það geristætla ég að fleygja Kalashníkov-riffl- inum mínum. En ekki fyrr. ‘ NATO aðstoðar Pólverja Brussel. AFP. AÐILDARRÍKI Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) samþykktu sam- hljóða í gær að kanna með hvaða hætti styðja mætti við bakið á Pól- verjum, sem falið hefur verið að halda uppi herstjórn í Írak ásamt Bretum og Bandaríkjamönnum. Stuðningur bandalagsins mun að- allega snúast um tæknilega aðstoð til handa Pólverjum, en ákvörðunin er engu að síður talin stuðla að bættum samskiptum aðildarríkjanna eftir deilur í tengslum við stríðið í Írak. Robertson lávarður, fram- kvæmdastjóri NATO, lagði á það áherslu að samþykktin þýddi ekki að bandalagið sem slíkt kæmi að málum í Írak. Pólverjar, Bretar og Bandaríkja- menn hafa skipt Írak í þrjú her- stjórnarsvæði meðan uppbygging stendur yfir í landinu. George Robertson sagði mikil- vægt að aðildarríkin væru einhuga í ákvörðun bandalagsins, en djúp- stæður ágreiningur var á milli Frakklands, Þýskalands og Belgíu annars vegar og Bandaríkjanna, Bretlands og Spánar hins vegar í tengslum við Íraksdeiluna. Frá því að stjórn Saddams Husseins var hrakin frá völdum í Írak hafa Frakk- ar og Þjóðverjar hins vegar gert til- raunir til þess að bæta samskipti sín við Bandaríkjamenn. Meðal annars hafa franskir embættismenn sagt að þeir hafi ekkert á móti því að banda- lagið veiti Pólverjum aðstoð í Írak. ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. w w w .d es ig n. is © 20 03 - IT M 90 52 V. Fellsmúla • S. 588 7332 Opi›: Mán. - föst. 9-18, Laugardaga 10-14 Furuinnréttingar og hreinlætistæki Sumar t i lbo› 2003 Allar innréttingar til afgrei›slu af lager sérsni›nar fyrir sumarhúsi› flitt. WC me› festingum og har›ri setu sem au›veldara er a› flrífa. Tvöföld skolun, hagkvæmt fyrir rotflrær. Stútur í vegg e›a gólf. Stálvaskur me› bor›i, 80x44 sm, og blöndunartæki Gegnumstr.hitari 5KW Kr. 13.430,- 15L undir vask Kr. 15.990,- 30L Ló›réttur Kr. 18.990,- 50L Ló›réttur Kr. 22.990,- 50L Láréttur Kr. 23.990,- 80L Ló›réttur Kr. 24.990,- 80L Láréttur Kr. 26.990,- 120L Ló›réttur Kr. 29.990,- 150 L Ló›réttur Kr. 35.990,- Thermex hitakútar 15-150 ltr. Heilir sturtuklefar í horn. Öryggisgler, segullæsing, sturtu-sett, hitast‡rt blöndunartæki, stálbotn og vatnslás. 70x70 cm. 80x80 cm. Handlaug á vegg stær› 45x34 sm Hreinlætistækjatilbo› Handlaug, blöndunartæki, sturtuklefi, eldhúsvaskur og salerni. A›eins kr. 89.900,- Blöndunartæki me› lyftitappasetti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.