Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 53
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 10.
Sýnd kl. 4, 5, 6, 8 og 10. B.i. 12. / Powersýningar kl. 6, 8 og 10. B.i. 12. / Sýnd kl. 5, 8 og 10. B.i.12. / Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 12.
KVIKMYNDIR.COMKVIKMYNDIR.IS
SLÆMUR strákur Charlie?
Varla, heldur hinn viðkunnanleg-
asti náungi sem sker sig ekki úr
hópnum utan þess að hann hefur
haft atvinnu af því að reyta af sér
spjarnir. Einkum frammi fyrir
hungraðri og spenntri kvenþjóð
okkar lands sem tekur þessari
óvenjulegu og æsilegu skemmtun
með jákvæðu hugarfari. Svo er
hann prýðilega á sig kominn, pump-
ar af krafti, stundar ljósabekki og
er vel vaxinn bæði upp – og niður.
Sjálfsagt hefði Grettir kempan Ás-
mundarson lagst í þunglyndi ef þeir
hefðu gengið saman til laugar.
Á þeim tímapunkti sem Bad Boy
Charlie er tekin (fyrir 3 árum), er
þessi hasarkroppur þó tekinn að
lýjast í starfi. Orðinn 33ja ára og
stríðið tekið að harðna við aukakíló-
in. Haukur kvikmyndagerðarmaður
fylgir honum eftir til Eyja þar sem
hann á að strippa í tvígang um
kvöldið á „Lundanum“. Mestur
hluti myndarinnar fer í viðtöl við
Charlie sem lætur dæluna ganga á
meðan hann er að undirbúa sig fyr-
ir innkomurnar. Fatafellirinn á í
dálitlum erfiðleikum með útlitið á
þeim líkamshluta sem mest verður
mænt á, það slaknar dulítið á hon-
um þrátt fyrir gúmmíhring og gæl-
ur. En upp rís hann eins og fuglinn
Fönix því atvinnumaðurinn hættir
ekki fyrr en hann er sáttur við ár-
angurinn og segir: „Nú er hann
góður, maður!“
Eyjakonur eru hrifnar og láta
velþóknun sína óspart í ljós og
Charlie leggst nokkuð til af skot-
silfri og sitthvað fleiru áður en nótt-
in er úti og dagur rís í Vestmanna-
eyjabæ.
Reyndar álítur Charlie sig van-
metinn af þeim sem fyllt hafa flokk
tengdaforeldra hans en annars er
hann harla ánægður með lífið og til-
veruna og hefur haft gaman af
starfi sínu sem hefur fleytt honum
áfram vítt um heiminn.
Viðfangsefnið er djarft og
skemmtilega óvenjulegt, bæði mað-
urinn og starfið. Sjálfsagt þykir
einhverjum myndin klúr enda kyn-
lífið ofarlega í huga Charlies og
hann óspar á að ræða það og veifa
sperrilegum tólum sínum framan í
tökuvélina. Charlie er glaðbeittur,
stundum fyndinn og enginn getur
ásakað manninn fyrir að koma ekki
til dyranna eins og hann er klædd-
ur!
Bad Boy Charlie er tekin líkt og
flestar heimildarmyndir samtím-
ans, með stafrænni tækni, sem er
undirstaða gróskunnar í þessum
geira að undanförnu. Slík verk
kosta ekki nema brot af verði hefð-
bundinna mynda og gæðin ásætt-
anleg þó greinilega hafi ekki verið
mulið undir myndina um Charlie.
Hún er engu að síður snaggaraleg
og hress tilbreyting frá hefðbundn-
ari viðfangsefnum og útkoman
merkilega einlæg, miðað við efni og
aðstæður.
Nú er Hann góður maður!
KVIKMYNDIR
Regnboginn
Haukur F og Lortur í samvinnu við
101Kvikmyndafélag. Leikstjórn, handrit,
taka: Haukur F. Karlsson. Klipping: Hauk-
ur F. og Kristján Leifur Pálsson. 50 mín-
útur. Heimildarmynd. Ísland. 2003.
Bad Boy Charlie Sæbjörn Valdimarsson
öllu saman því það er svo stutt síðan
ég lagði lokahönd á myndina.“
Sólveig segir að Gilles Jacob, hinn
sérlundaði en virti forseti Cannes-
hátíðarinnar, hafi sérstaklega beðið
um að fá að sjá myndina. Hún sendi
honum óklárað eintak og það virðist
hafa nægt til að myndin kæmist inn.
„Þótt heiðurinn sé mikill – og viðhorf
til mín sem kvikmyndagerðarmanns
eigi örugglega eftir að breytast til
hins betra við það að hafa átt mynd á
Cannes-dagskránni – þá verður ekk-
ert auðveldara fyrir mig að gera
myndir. Það er alltaf háð handritinu
hverju sinni, hversu söluvænlegt það
er. Svo breytir litlu fyrir mig ef at-
vinnutilboðum fjölgar því ég get ekki
gert myndir eftir pöntun,“ segir Sól-
veig og viðurkennir að hún sé ekkert
sérlega hrifin af þeirri hlið kvik-
myndabransans að fjármagna mynd-
ir sínar.
„En ég er auðvitað afar stolt af því
hversu vel hefur til tekist, og þakklát
öllum þeim sem lögðu hönd á plóg-
inn, leikurum í myndinni, tökuliðinu
og ekki síst fólkinu í Vestmannaeyj-
um, sem tók okkur alveg einstaklega
vel.“
Spurð um hvernig hafi komið til að
hún hafi valið Diddu í hlutverk sjúk-
lingsins segist Sólveig hafa fundið
hana fyrir tilviljun: „Ég var búin að
prófa margar íslenskar leikkonur
þegar ég fann Diddu. Það var á kaffi-
húsinu Prikinu sem ég sá þessa konu
koma inn. Ég þekkti hana ekkert en
sá strax að hún væri sú sem ég vildi.
Ég vatt mér upp að henni og spurði
hver hún væri og hvað hún gerði og
hún sagði. „Ég heiti Didda og ég er
skáld.“ Mér fannst það frábært svar
og bað hana að koma í prufu.“
Sólveigu hafði lengið dreymt um
að gera mynd í Vestmannaeyjum því
þótt hún hafi búið alla sína tíð í
Frakklandi þá fæddist hún í Vest-
mannaeyjum og dvaldi þar á sumrin
er hún var ung.
Sólveig gerir ráð fyrir að Storm-
viðri verði frumsýnd á Íslandi í sept-
ember komandi.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Viðtökurnar voru eins og best gerist. Baltasar, Didda og Ingvar.
skarpi@mbl.is