Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 11
<%//%
/ =
7,%
#1
- # ;. %# .
+
7::> #/
7;,& ,?&
;%#1#7%
74-7&
7.%
&,%/# #)*4/@%&7
A%9 7
! "
<%//%
&#,%
7::7.?
&,%/7
!!! .#=%
%& ,+
!!
VEGAGERÐIN hefur sent frá sér
kort yfir hvaða hálendis- og fjallvegir
eru enn lokaðir allri umferð. Nokkrir
fjallvegir hafa þó þegar verið opnaðir
umferð nokkru fyrr en verið hefur á
undanförnum árum enda er ástand
fjallvega í umsjón Vegagerðarinnar
yfirleitt nokkuð gott, skv. upplýsing-
um Björns Svavarssonar, eftirlits-
manns hjá Vegagerðinni.
Meðal fjallvega sem hafa verið opn-
aðir frá og með deginum í dag er
Þorskafjarðarheiði og hluti af Kjal-
vegi eða leiðin að sunnan að Bláfells-
hálsi og að norðanverðu í Hveravelli
en algengt er að þessar leiðir séu
ófærar fram undir lok maí. Einnig er
gert er ráð fyrir að Sprengisands-
leiðirnar opnist fyrr en en venja er.
Þorska-
fjarðarheiði
opnuð í dag
FULLYRÐINGAR Landsvirkjunar í
umhverfismati vegna virkjana í neðri
hluta Þjórsár þess efnis að ekki sé bú-
ist við að virkjunin muni hafa áhrif á
þróun ferðaþjónustu eru út í hött að
mati Valdmars Össurarsonar, ferða-
málafulltrúa Villingaholtshrepps.
Hann segir vart hægt að ímynda
sér meiri fjarstæðu þar sem stefnt sé
að því að eyðileggja vatnsmesta foss
landsins og eitt mesta aðdráttarafl
ferðamanna á þessum slóðum.
Mikils vænst af ferðaþjónustu
Valdimar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að í byrjun þessa árs hefði
verið skipuð ferðamálanefnd Austur-
Flóa sem væri samstarfsgrundvöllur
sveitarfélaganna á þessu sviði og ynni
að mótun sameiginlegrar ferðamála-
stefnu. Mikils væri vænst af ferða-
þjónustu á svæðinu og því gætu menn
ekki látið óátalið að eitt helsta að-
dráttarafl ferðamanna yrði eyðilagt.
Valdimar, sem í mörg ár hefur ver-
ið umsjónarmaður Félagsheimilisins
Þjórárvers, sem er helsti ferðaþjón-
ustuaðilinn í Villingaholtshreppi, seg-
ir að þegar drög Landsvirkjunar að
umhverfismati vegna Urriðafoss-
virkjunar hafi legið fyrir hafi Þjórs-
árver þegar lagt fram athugasemdir,
fyrirvara og ábendingar. „Lands-
virkjun hefur nú ákveðið að hundsa
þessar athugasemdir algjörlega og í
niðurstöðu umhverfismats nú er
óbreytt hin stóra lygi úr áðurnefnd-
um drögum: „Ekki er búist við að
virkjunin muni hafa áhrif á þróun
ferðaþjónustu,“ segir Valdimar.
Hann bendir á að menn hafi í aukn-
um mæli horft til ferðaþjónustu sem
stuðningsgreinar við landbúnað í
austanverðum Flóanum en að menn
hafi viljað fara skynsamlega leið í
uppbyggingu greinarinnar og klára
skipulagsvinnu og grunnþjónustu
fremur en að hvetja til offjárfestinga
eins og víða hafi brunnið við. Valdi-
mar segir deginum ljósara að ferða-
þjónusta á svæðinu muni stórskaðast
ef af framkvæmdum verði.
Segir Lands-
virkjun hundsa
athugasemdir
Matsskýrsla vegna fyrirhugaðrar
virkjunar við Urriðafoss gagnrýnd
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 11
svo eru aftur margir Íslendingar
sem finnst þetta ferlega ljótt.“
Í eynni eru kindur og hestar sem
Ragnar segir að veki mikla athygli
þar sem þeir eru nokkuð sérstakir
útlits. „Við erum að gera tilraunir
listaverkið Áfanga eftir ameríska
listamanninn Richard Serra en það
samanstendur af 9 pörum steinsúlna
hringinn í kringum vesturhluta eyj-
arinnar. „Margir útlendingar koma
hingað eingöngu til að skoða þau en
FERÐAMENN vorsins eru þegar
farnir að láta sjá sig í auknum mæli í
Viðey en ferðir samkvæmt sum-
aráætlun Viðeyjarferjunnar hefjast
um mánaðamótin. Á vorin lifnar
einnig yfir fuglalífinu en 25 teg-
undir fugla verpa í eynni, að sögn
Ragnars Sigurjónssonar, annars
ráðsmanna í Viðey.
„Varpið er óvenju seint á ferðinni
í ár og enginn veit af hverju. Sumir
fuglar eru farnir að liggja á en aðrir
eru enn að leita sér að stað,“ segir
Ragnar en hann býr þar ásamt eig-
inkonu sinni sem einnig er ráðs-
maður. Þau tvö eru einu íbúarnir
eyjarinnar en þetta fimmta árið
þeirra þar. Þeim líkar afar vel að
búa í Viðey. „Eyjan er perla sem
Reykvíkingar eiga og ættu að nota
meira. Sama gildir um aðrar eyjar
hér á sundinu og ef til vill mætti
auka ferðir til þeirra.“
Koma eingöngu til
að skoða súlurnar
Þau hjónin hafa það hlutverk að
gæta hagsmuna borgarinnar í
eynni, sjá um létt viðhald eins og
þrif og slátt, auk þess að gæta nátt-
úrunnar. Ragnar var blaðaljómynd-
ari áður en segir að þetta sé miklu
betra.
Talið er að um 20.000 manns komi
til Viðeyjar ár hvert og segir Ragn-
ar að gestir séu jafnt innlendir sem
erlendir. Margir hinna erlendu séu
gjarnan spenntir fyrir að skoða úti-
með ræktun svokallaðra hjálm-
skjóttra hesta, en þeir eru ljósblá-
eygðir og með hvít andlit og augna-
hár. Útlendingar verða oft agndofa
þegar þeir sjá þá,“ segir Ragnar að
lokum.
Bláeygðir hestar og steinsúlur
Morgunblaðið/Kristinn
Ragnar Sigurjónsson, ráðsmaður í Viðey, með hjálmskjótta hestinn Skrám sem er frá Hurðarbaki í Borgarfirði.
EINS og við mátti búast sást til
fyrsta laxins í Norðurá um síðustu
helgi, en áin verður opnuð hinn 1.
júní næstkomandi. Þetta kemur
ekki á óvart, vorað hefur vel þrátt
fyrir kuldakast um mánaðamótin
og í gamla daga hófst netaveiði í
Hvítá í Borgarfirði ávallt 20. maí
og veiddist alltaf eitthvað, stund-
um slatti, stundum lítið, en alltaf
eitthvað.
Það var Jón G. Baldvinsson, full-
trúanefndarmaður hjá SVFR, sem
sá laxinn í svokölluðum Kaupa-
mannapolli, sem er lítill hylur að
sunnanverðu nokkru fyrir neðan
Laxfoss. Ekki var litið eftir laxi í
ánni sem skyldi um helgina, því
allir voru uppteknir þar eð verið
er að vinna mikið við endurbætur
á veiðihúsinu á Rjúpnahæð. Lík-
legt er, að hefðu menn kíkt á
Stokkhylsbrot og Brotið hefði
blámað þar fyrir löxum.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
hefur framlengt leigusamningi
sinn um Tungufljót um fimm ár.
Áin er ein þekktasta sjóbirtingsá
landsins og afar eftirsótt. Næstu
tvö árin verður veiðihúsinu breytt
í „topp veiðihús,“ eins og Bergur
Steingrímsson, framkvæmdastjóri
SVFR, komst að orði.
Mjög sérstök auglýsing var í
Morgunblaðinu í gær, þar sem
samkeppnisaðilar, verslanirnar
Útivist og veiði í Síðumúla 11 og
Veiðihornið í Síðumúla 8, auglýsa
sameiginlega fluguhátíð sem hald-
in verður í kvöld kl. 20 í báðum
búðunum. Kynnt verða úrslit í
fluguhnýtingakeppni Landssam-
bands veiðifélaga og verðlauna-
flugurnar verða til sýnis. Kunnir
hnýtarar verða við „væsana“, m.a.
verða nýstárlegar silungaflugur
hnýttar og sýndar svokallaðar
raunveruleikaflugur, flugur sem
fara nær lifandi flugum í útliti en
þekkst hefur hingað til.
Laxinn mættur í Norðurá
Veiðimaður slakar á eftir góða törn í Elliðavatni.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hef-
ur sent frá sér fréttatilkynningu í til-
efni af umfjöllun fréttastofu Ríkisút-
varpsins um fjárhagsstöðu frjálsra
félagasamtaka á sviði umhverfis-
mála í vikunni.
Segir þar að framlög til félaga-
samtaka á sviði umhverfismála hafi
stóraukist að undanförnu, árið 2000
og 2001 hafi ráðuneytið veitt tvær
milljónir á ári til umhverfisverndar-
samtaka en 8 milljónir 2002 og 2003.
„Frá árinu 2001 hafa heildarfram-
lög til Náttúruverndarsamtaka Ís-
lands nærri fjórfaldast, úr 500 í
1.800.000, og heildarframlög til
Landverndar tæplega áttfaldast, úr
500.000 í 3.950.000. Ráðuneytið
bendir á að ekki geti talist eðlilegt að
stuðningur hins opinbera standi
undir öllum rekstri frjálsra umhverf-
isverndarsamtaka, enda segir í sam-
starfsyfirlýsingu ráðuneytisins og
frjálsra félagasamtaka að eigin fjár-
öflun skuli standa undir meginhluta
almennrar starfsemi þeirra.
[ …] Ráðuneytinu þykir það miður
ef einstök umhverfisverndarsamtök
eiga við fjárhagserfiðleika að
etja[ …] má þó ljóst vera að órétt-
mætt er að draga umhverfisráðu-
neytið til ábyrgðar á þeim fjárhags-
vanda sem þau kunna að hafa ratað
í,“ segir m.a. í tilkynningunni.
Óréttmætt að draga
ráðuneytið til ábyrgðar
SAUTJÁN ára piltur var flutt-
ur á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri í gær með beinbrot
eftir árekstur bifhjóls sem
hann ók við jeppa á Skaga-
strönd um kl. 17 í gærdag. Að
sögn lögreglunnar á Blönduósi
var pilturinn á óskráðu tor-
færuhjóli en tildrög slyssins
eru enn óljós.
Á sjúkrahús eft-
ir bifhjólaslys
SEX ÁRA drengur hjólaði í veg
fyrir bíl á Dælustöðvarvegi í
Mosfellsbæ á sjötta tímanum í
gær. Drengurinn var ekki með
hjálm á höfði, að sögn lögregl-
unnar í Reykjavík. Hann var
fluttur með sjúkrabíl á slysa-
deild Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss en að sögn læknis
virtust meiðsl hans ekki alvar-
leg.
Sjö ára stúlka varð fyrir bíl á
mótum Borgarbrautar og
Bugðusíðu á Akureyri um kl.
18.15 í gær. Stúlkan var færð til
skoðunar á sjúkrahús en hún
var talin minni háttar meidd.
Ekki er ljóst með hvaða hætti
slysið varð. Gangbraut er á
mótum Borgarbrautar og
Bugðusíðu.
Tvö börn
í bílslysum