Morgunblaðið - 22.05.2003, Síða 12

Morgunblaðið - 22.05.2003, Síða 12
ERLENT 12 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Námskeið að lesa í straumvötn Til stendur að halda námskeið núna um helgina 24.- 25. maí, í að kenna fólki að fara yfir og lesa úr straumþungum ám og sand- bleytum sem víða eru á hálendi Íslands. Námskeiðið byrjar á smá fyrirlestri og svo verður Hvítá riðin á Kópsvatnseyrum á laugardaginn og Þjórsá á sunnudaginn á Haga- vaði og til baka á Nautavaði. Kennarar eru Árni í Þjórsárholti, Hjalti í Fossnesi, Jón á Högnastöðum , Jói í Stapa o.fl. Allir velkomnir. Upplýsingar í síma 486 6079. GENGIÐ var frá tímamótasáttmála í baráttunni gegn reykingum á fundi Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar, WHO, í gær. Sáttmál- inn, sem var samþykktur einróma, miðar að því að fækka þeim 4,9 milljónum dauðsfalla sem árlega má rekja til reykinga með því að setja tóbaksauglýsingum, markaðs- setningu og sölu tóbaks ákveðnar hömlur. Þetta er fyrsti milliríkja- samningurinn sem gerir aðild- arríkjum WHO mögulegt að taka á tilteknum heilbrigðisvanda. „Í dag vinnum við að því að bjarga milljörðum mannslífa og vernda heilsu komandi kynslóða. Þetta er söguleg stund,“ sagði Gro Harlem Brundtland, yfirmaður stofnunarinnar, eftir undirritun sáttmálans. Baráttan gegn reyk- ingum er það mál sem hún hefur lagt einna mesta áherslu á í emb- ætti. Hún lætur brátt af störfum og var suður-kóreski læknirinn Jong Wook Lee kjörinn eftirmaður henn- ar í gær. Milliríkjasamningurinn var settur saman í kjölfar erfiðra viðræðna um málið sem staðið hafa í fjögur ár. Hann kveður á um tóbaks- auglýsingabann eða í það minnsta hömlur á slíkar auglýsingar til að mynda í löndum eins og Bandaríkj- unum þar sem algert bann myndi stangast á við ákvæði stjórnar- skrárinnar. Bandaríkin og Þýskaland ósátt við algert auglýsingabann Þá kemur fram í sáttmálanum að viðvaranir, á borð við myndir af sýktum lungum, skuli settar á allar tóbaksvörur. Ennfremur er lögð sérstök áhersla á að sporna gegn kynningum á tóbaki sem beint er að unglingum og að útrýma þeirri ímynd að tóbaksreykingar séu „flottar“ og sveipaðar ljóma. Enn- fremur er hvatt til átaks gegn tób- akssmygli og þess að skattar á tób- aksvörur verði hækkaðir. Samningurinn var samþykktur þrátt fyrir að Þýskaland og Banda- ríkin, lönd þar sem umsvif tóbaks- iðnaðar eru mikil, hafi áður lýst andstöðu sinni við bann við tóbaks- auglýsingum en öll 192 aðildarríki stofnunarinnar greiddu atkvæði með sáttmálanum á árlegum fundi þeirra í Genf sem nú stendur yfir. Þar með hafa þau skuldbundið sig til að taka ákvæði samningsins upp innan fimm ára. Sáttmálinn mun taka formlega gildi þegar 40 lönd hafa staðfest samþykkt hans og kom fram á máli fulltrúa allra aðildarríkja á fund- inum að staðfestingarferlinu yrði hraðað. Eina undantekningin frá þessu voru Bandaríkin en að sögn bandaríska heilbrigðismálaráðherr- ans, Tommy Thompson, fögnuðu Bandaríkin samningnum. Hann tók hins vegar skýrt fram að orðalag sáttmálans væri til „skoðunar“ inn- an bandarísku stjórnarinnar. Að því er fram kemur í sáttmál- anum er talið að dauðsföll sem rekja megi til reykinga muni tvö- faldast á næstu árum og að árið 2020 verði meira en 10 milljónir manna reykingum að bráð, þar af 70% í vanþróaðri löndum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin Tímamót í bar- áttunni gegn reykingum Genf. AFP. AP Gro Harlem Brundtland, fráfarandi forseti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, talar við embættis- arftaka sinn, suður-kóreska lækninn Jong Wook Lee, á aðalfundi stofnunarinnar í Genf í gær. FULLTRÚAR Bandaríkjanna og Bretlands lögðu í gær fram lokadrög að ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um afléttingu viðskipta- banns á Írak og sögðust vonast til að ályktunin hlyti einróma samþykki á fundi ráðsins í dag, fimmtudag. Í ályktunartillögunni er gert ráð fyrir að viðskiptabanninu, sem verið hefur í gildi síðan í árslok 1990, verði aflétt tafarlaust og tekjurnar af olíu- lindum Íraks renni í þróunarsjóð, sem hýstur verði hjá seðlabanka Íraks. Hernámsstjórnin stýri því svo hvern- ig útgjöldum úr sjóðnum verði varið. Utanríkisráðherrar Rússlands og Frakklands, sem höfðu ýmislegt að athuga við fyrstu drög ályktunartil- lögunnar, sögðu á sameiginlegum blaðamannafundi í Stokkhólmi í gær að margt hefði snúizt til betri vegar síðan. Sneru athugasemdirnar ekki sízt að því hve SÞ væri ætlað veigalít- ið hlutverk í fyrstu bandarísk-brezku ályktunardrögunum, en einnig að at- riðum eins og því hvað yrði um er- lendar skuldir hinnar föllnu ríkis- stjórnar Saddams Husseins. Landstjóri hernámsyfirvalda í Írak, Bandaríkjamaðurinn Paul Bremer, tilkynnti í gær að fundi sem halda átti með íröskum stjórnmála- leiðtogum um pólitíska framtíð lands- ins yrði frestað. Áætlað hafði verið að fundurinn færi fram í endaðan maí eða í júní en Bremer sagði í gær að ólíklegt væri að hann yrði haldinn fyrr en einhvern tímann í júlí. Bið á því að stjórnartaumarnir verði fengnir Írökum Bremer lagði áherslu á að hann væri enn í góðu sambandi við íraska stjórnmálaleiðtoga, en þeir hafa að undanförnu látið í ljós óánægju með urmul vísbendinga um að Bandaríkja- menn hyggist bíða mun lengur en þeir áður höfðu talað um með að af- henda heimamönnum stjórnartaum- ana í landinu. „Við höldum áfram gagnlegum viðræðum okkar við íraska leiðtoga, ég hitti þá á hverjum degi,“ sagði Bremer í gær. Bremer gaf hins vegar ekki mikið fyrir sjö manna leiðtogaráð fyrrver- andi útlaga sem sett var á laggirnar á meðan Jay Garner var enn landstjóri í Írak, en Bremer leysti Garner af hólmi í síðustu viku. „Sá hópur manna sem við hittum sl. föstudag talar ekki fyrir hönd írösku þjóðarinnar. Við ætlum að víkka út net okkar hvað varðar þá bandamenn sem við ræðum við,“ sagði Bremer. Athygli hefur vakið undanfarna daga að bandarískir embættismenn hafa virst vilja skapa fjarlægð milli sín og sjömenninganna, sem þó nutu áður stuðnings Bandaríkjamanna. Þá hafa bandarískir embættismenn undanfarið gert lítið úr væntanlegu hlutverki þeirrar bráðabirgðastjórn- ar sem þjóðþing Íraka, sem lofað hef- ur verið að verði haldið, myndi skipa. Segja Bandaríkjamenn nú að sú stjórn myndi aðeins fá það verkefni að búa til nýja stjórnarskrá fyrir Írak en tæki ekki við stjórn mála í landinu. Bandamenn vonast eftir einróma samþykki SÞ Frakkar og Rúss- ar jákvæðir eftir breytingar á ályktunartillögu Bagdad. AFP. AP Bandaríski landstjórinn í Írak, Paul Bremer, heilsar íröskum fulltrúum. BRESKIR og bandarískir embættis- menn í Bagdad hvöttu Íraka í gær til þess að gefa sig fram, ef þeir hefðu nokkrar upplýsingar um gereyðing- arvopnaáætlanir ríkisstjórnar Sadd- ams Husseins. Hétu þeir hverjum þeim manni „rausnarlegri umbun“ sem lagt gæti fram gagnlegar upplýs- ingar um það hvar gereyðingarvopn Saddam-stjórnarinnar væri að finna. Ákallinu til almennings í Írak var útvarpað í gærmorgun og var heitið á alla „heiðvirða Íraka“ að gefa sig fram, byggju þeir yfir gagnlegum upplýsingum. Fullyrti dagblaðið Al- Manar, sem nú er gefið út í Írak, að heitið væri allt að 200 þúsund Banda- ríkjadölum í verðlaun, eða tæplega fimmtán milljónum ísl. króna. Bandaríkin og Bretland héldu því fram á sínum tíma að enginn vafi léki á því að Írakar væru að þróa gereyð- ingarvopn og var árásin á Írak m.a. réttlætt á grundvelli þessa. Ekki mótfallinn því að eftirlits- menn IAEA haldi til Íraks Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, hefur lýst því yfir að hann hafi ekkert á móti því að sendinefnd frá Alþjóðakjarnorku- málastofnuninni (IAEA) haldi til Íraks. Hann gaf þó til kynna í fyrra- kvöld að ekki kæmi til þess að vopna- eftirlitsmenn færu aftur til Íraks fyrr en búið væri að samþykkja nýja ályktun í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um að Banda- ríkin og Bretland fari með völd í Írak þar til heimamenn eru reiðubúnir til að taka við stjórnartaumunum. Embættismenn IAEA kröfðust þess á mánudag að vopnaeftirlits- mönnum stofnunarinnar yrði gert kleift að snúa aftur til Íraks hið fyrsta. Vöruðu þeir við því að ræn- ingjar hefðu stundað gripdeildir á stöðum, þar sem vitað er að unnið hefur verið að þróun og framleiðslu kjarnorku, og sögðu að hætta væri á því að þetta hefði valdið geislun í um- hverfinu. Rumsfeld sagði á þriðjudag að Tommy Franks hershöfðingi, æðsti yfirmaður hersveita Bandaríkjanna í Írak, hefði ekkert á móti því að vopnaeftirlitsmenn IAEA sneru aftur til þess að tryggja öryggi á þeim stöð- um sem þeir höfðu áður eftirlit með og innsigluðu fyrir stríð. „Ástæða þess að ég tel það ekki slæma hug- mynd að þeir snúi aftur er sú að þeir búa sennilega yfir birgðaskrá og gætu því lagt mat á hvað var áður á staðnum,“ sagði ráðherrann við fréttamenn. Heita umbun fyrir upplýsingar um gereyðingarvopn Bagdad, Washington. AFP. ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í Flór- ída í Bandaríkjunum dæmdi í gær fimm tóbaksfyrirtækjum í vil og hnekkti dómi þar sem þeim var gert að greiða reykingamönnum í ríkinu samtals 145 milljarða dala, rúmlega 10.700 milljarða króna, vegna sjúk- dóma sem þeir fengu og rekja mátti til reykinga. Samkvæmt upphaflega dómnum, sem kviðdómur kvað upp árið 2000, áttu tóbaksfyrirtækin að greiða um hálfri milljón reykingamanna bætur fyrir að upplýsa þá ekki um þær hætt- ur sem stafa af reykingum. Voru þetta hæstu skaðabætur sem dæmd- ar höfðu verið í Bandaríkjunum á þessum tíma og tóbaksfyrirtækin höfðu sagt að þau kynnu að verða gjaldþrota yrði dómnum ekki hnekkt. Áfrýjunardómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að reykingamenn- irnir hefðu ekki rétt á sameiginlegri málshöfðun á hendur fyrirtækjunum. Þessi tíðindi urðu til þess að gengi hlutabréfa í fyrirtækjunum, meðal annars Philip Morris og RJ Reynolds, snarhækkaði. Úrskurðað tóbaksfyrir- tækjum í vil í Flórída

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.