Morgunblaðið - 22.05.2003, Síða 18
AKUREYRI
18 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GLERÁRKIRKJA
Lögmannshlíðarsókn - Aðalfundur
Aðalfundur Lögmannshlíðarsóknar verður haldinn í
safnaðarsal Glerárkirkju á uppstigningardag, fimmtudaginn 29.
maí nk. kl. 13.00 að aflokinni guðþjónustu sem hefst kl. 11.00.
Í safnaðarsal verður boðið upp á kaffiveitingar að athöfn
lokinni og á meðan aðalfundi stendur.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Sóknarnefnd.
ÍSLENSKIR aðalverktakar og
samstarfsaðilar hlutu hæstu heildar-
einkunn þeirra fjögurra verktaka
sem buðu í byggingu rannsókna- og
nýsköpunarhúss við Háskólann á
Akureyri í endurteknu útboði. Í gær
voru lesnar upp hjá Ríkiskaupum
einkunnir fyrir lausnir og þjónustu,
auk þess sem verðtilboð voru opnuð.
Í heildareinkunn gilda lausnir 50%,
þjónusta 10% og verð 40%. Um er að
ræða einkaframkvæmd, verkefnið
snýr að byggingu hússins, rekstri og
leigu til ríkisins í 25 ár og í gær var
gerð opinber núvirt heildarfjárhæð
bjóðenda fyrir allan leigutímann.
Auk ÍAV og samstarfsaðila, sem
eru Landsafl hf. og ISS á Íslandi,
buðu Þ.G. verktakar ehf., Fasteigna-
félagið Klappir ehf. og Nýsir hf. í
verkið. ÍAV fékk næsthæstu ein-
kunn fyrir lausnir, hæstu einkunn
fyrir þjónustu og næsthæstu ein-
kunn fyrir verð en verðtilboð fyr-
irtækisins hljóðaði upp á tæplega 1,5
milljarða króna. Þ.G verktakar
hlutu næsthæstu heildareinkunnina,
fyrirtækið fékk lægstu einkunnir
fyrir bæði lausnir og þjónustu en
átti lægsta verðtilboðið, sem hljóð-
aði upp á tæplega 1,4 milljarða
króna og fékk fyrir það hæstu ein-
kunnina fyrir verð. Nýsir fékk
hæstu einkunn fyrir lausnir og
þriðju hæstu einkunn fyrir þjónustu
og verð en verðtilboð fyrirtækisins
hljóðaði upp á tæplega 1,7 milljarða
króna. Klappir, sem heimamenn á
Akureyri standa að, fékk þriðju
lægstu einkunn fyrir lausnir, næst-
hæstu einkunn fyrir þjónustu og
lægstu einkunn fyrir verð en verð-
tilboð félagsins hljóðaði upp á tæpa
tvo milljarða króna.
Páll Grétarsson hjá Ríkiskaupum
sagði það gleðilegt að fjórir bjóð-
endur skuli hafa tekið þátt. „Allt eru
þetta vandaðar tillögur hver á sinn-
hátt, þótt menn nálgist verkefnið frá
ýmsum hliðum.“ Páll sagði að menn
ættu eftir að setjast enn betur yfir
allar tölur og útreikninga til að fá
fram óyggjandi niðurstöðu í útboð-
inu.
Rannsókna- og nýsköpunarhús
við Háskólann á Akureyri
ÍAV með hæstu
heildareinkunnina
FJÖGUR tilboð bárust í 1. áfanga
Brekkuskóla og voru þau öll undir
kostnaðaráætlun.
SS Byggir átti lægsta tilboð en
það hljóðaði upp 39 milljónir
króna, eða 78,8% af kostnaðar-
áætlun hönnuða, sem hljóðaði upp
á 49,5 milljónir króna. Um er að
ræða jarðvinnu, sökkla, plötu og
lagnir í grunn.
Seinni áfangi verksins, sem er
mun stærri, verður boðinn út í lok
júní nk. og er jafnframt stærsta
verkið sem boðið verður út á veg-
um Fasteigna Akureyrarbæjar á
árinu. Ráðgert er að verkinu verði
lokið fyrir skólasetningu haustið
2005.
Áætlaður byggingarkostnaður
er um 530 milljónir króna og heild-
arkostnaður verksins um 700 millj-
ónir króna.
Fjórir aðilar skiluðu inn fullgild-
um tillögum í samkeppni um við-
byggingu og endurbætur Brekku-
skóla (áður Gagnfræðaskóli
Akureyrar) og ákvað dómnefnd að
tillaga Arkitektur.is yrði fyrir val-
inu. Nýbyggingin verður vestan
við núverandi skólahúsnæði.
Aðalinngangur verður úr vest-
urátt frá aðkomutorgi og bílastæð-
um og þessi inngangur verður
jafnframt hið nýja andlit skólans.
Næstlægsta tilboð í þennan 1.
áfanga átti Völvusteinn, tæpar 40
milljónir króna eða 80,6% af kostn-
aðaráætlun, ÞJ verktakar buðu um
41 milljón króna, eða 82,9% og
Fjölnir bauð um 45,3 milljónir
króna eða 91,4% af kostnaðaráætl-
un.
Framkvæmdum við 1. áfanga
skal lokið 1. september nk.
Tilboð opnuð í fyrsta áfanga Brekkuskóla
SS Byggir bauð lægst
ELDUR kom upp í heitavatnstanki
Norðurorku í landi Ytra-Lauga-
lands í Eyjafjarðarsveit um miðjan
dag í gær. Neisti úr suðutæki hljóp í
klæðningu þegar verið var að vinna
við festingar fyrir ventil á toppi
tanksins og var Slökkvilið Akureyr-
ar kallað á staðinn. Rjúfa þurfti
klæðninguna til að komast að eld-
inum en eftir það gekk slökkvistarf
greiðlega. Eldurinn logaði í timb-
ursperrum á milli klæðninga og
einangrun. Nokkurt tjón varð á
klæðningunni. Tankurinn stend-
urofan við dælustöðina á Lauga-
landi og er notaður til að skilja loft
frá vatninu áður en því er dælt til
Akureyrar.
Morgunblaðið/Kristján
Rjúfa þurfti klæðninguna á toppi vatnstanksins til að komast að eldinum.
Eldur í klæðningu í heitavatnstanki
persónuleg og góð þjónusta við-
skiptavina af starfsfólki með góða
þekkingu og reynslu. Þau segjast
leggja metnað í að hugsa um þarfir
viðskiptavina sinna, m.a. þeirra sem
þjást af sykursýki og glútenóþoli.
Þau sjá nánast alfarið um innflutn-
ing á þeim vörum sem seldar eru í
versluninni og kappkosta að bjóða
fjölbreytt vöruúrval. Þau leggja
einnig áherslu á að bjóða lífrænt
ræktað grænmeti í verslun sinni,
HEILSUHORNIÐ á Glerártorgi á
afmæli um þessar mundir, en 10 ár
eru frá því hjónin Hermann H. Huij-
bens matreiðslumeistari og Þóra G.
Ásgeirsdóttir nemi í hómópatíu tóku
við rekstri verslunarinnar. Þá eru
um 20 ár frá því rekstur verslunar-
innar hófst á Akureyri, en þau Her-
mann og Þóra keyptu verslunina á
10. rekstrarári hennar.
Hermann og Þóra segja að eitt af
aðalsmerkjum verslunarinnar sé
sem laust er við skaðleg aukaefni.
Yfir vetrarmánuðina flytja þau inn
ferskt lífrænt ræktað grænmeti og
ávexti en frá vori og fram á haust
segja þau nægilegt úrval fyrir hendi
frá framsýnum bændum hér á landi,
en auk grænmetis hafa þau einnig
boðið upp á lífrænt lambakjöt. Í til-
efni af þessum tímamótum verða
góð tilboð í versluninni og fólki gefst
kostur á að skrá sig í lukkupott þar
sem m.a. ferðavinningur er í boði.
Morgunblaðið/Kristján
Hermann Huijbens og Þóra G. Ásgeirsdóttir, eigendur Heilsuhornsins, ásamt Björgu Mörtu Gunnarsdóttur.
Hafa rekið Heilsuhornið í 10 ár
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur stað-
fest afgreiðslu náttúruverndarnefnd-
ar um friðlýsingu Krossanesborga.
Svæðið er hluti af jörðinni Ytra-
Krossanesi, sem ríkissjóður afsalaði
til Akureyrarbæjar árið 1990. Í afsali
segir m.a. að kaupandi skuldbindi sig
til að varðveita borgarsvæðið í landi
jarðarinnar, jafnframt því að nýta
verulegan hluta lands jarðarinnar til
útivistar fyrir almenning á Eyjafjarð-
arsvæðinu.
Svæðið er alsett klettaborgum eða
stuttum klappaásum, sem snúa norð-
ur-suður. Í borgunum er 5–10 millj-
óna ára basalt en úr því er berggrunn-
ur Akureyrar. Stærstu borgirnar í
Krossanesborgum hafa eigin nöfn og
einnig stærstu tjarnirnar, segir í upp-
lýsingum um svæðið. Mikill gróður er
í þessum tjörnum og þar vaxa margar
nykrutegundir, m.a. hin sjaldgæfa
langnykra. Gróðurfar í borgunum er
fjölbreytt og þar hafa fundist um 190
plöntutegundir, þar af 16 starateg-
undir. Þetta er um 40% allra íslenskra
blómaplatna og byrkinga.
Meginhluti mýranna í borgunum
hefur sloppið við framræslu, þar eru
einu mýrarnar í bæjarlandinu sem
eru óskemmdar og mýragróðurinn er
sérstaklega fjölbreyttur.
Fuglalíf var rannsakað sérstaklega
sumarið 1998 og í ljós kom að alls
urpu 27 tegundir fugla á svæðinu, eða
um 35% af öllum íslenskum fuglateg-
undum. Nokkrar fuglategundir sem
verpa á svæðinu eru á válista og fyrir
nokkrar aðrar fuglategundir er svæð-
ið mjög mikilvægt varpland. Svæðið
er á náttúruminjaskrá.
Fjölbreytt
gróðurfar
og fuglalíf
á svæðinu
SKÓLANEFND Akureyrar-
bæjar hefur samþykkt tillögu
um ráðningu Jóns Baldvins
Hannessonar í starf skólastjóra
Giljaskóla og tekur hann við
stöðunni af Halldóru Haralds-
dóttur.
Auk Jóns Baldvins voru um-
sækjendur um stöðuna þau
Ágúst Frímann Jakobsson,
Bjarni Guðmundsson, Ragn-
heiður Gunnbjörnsdóttir og
Sigfús Aðalsteinsson.
Giljaskóli
Jón Bald-
vin ráðinn
skólastjóri
Tero Mustonentero, kennari í um-
hverfisfræðum við Tampere Poly-
technic, flytur opinberan fyrirlestur
á vegum Félagsvísinda- og laga-
deildar Háskólans á Akureyri og
Stofnunar Vilhjáms Stefánssonar í
dag, fimmtudaginn 22. maí. Fyr-
irlestur Teros nefnist „Icescapes,
Landscapes, Seascapes“ og verður
fluttur á ensku. Hann hefst kl. 16. í
sal L101 og er öllum opinn.
Í DAG