Morgunblaðið - 22.05.2003, Side 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 19
Aðstoð á árinu 2002
Fyrir þinn stuðning...
Þúsundir Íslendinga studdu starf
Rauða krossins á síðasta ári
... er lífið léttbærara fyrir alla þá sem nutu aðstoðar
Rauða kross Íslands á árinu 2002.
• 750 geðfatlaðir einstaklingar komu alls 12.000 sinnum í athvörf Rauða krossins fyrir
geðfatlaða, Vin í Reykjavík, Dvöl í Kópavogi og Laut á Akureyri
• 75 ungmenni í vanda dvöldu að meðaltali í sjö daga hvert í Rauðakrosshúsinu
• 1.334 sjúklingar gistu á sjúkrahóteli Rauða krossins í Reykjavík í alls 13.502 gistinætur
• Hjálparsími Rauða krossins (áður Trúnaðarsíminn) og Vinalínan tóku við 6.285 sím-
tölum frá fólki sem vildi ræða í trúnaði um sín mál
• 7.000 manns fengu útgefið skírteini frá Rauða krossinum eftir að fara á námskeið
í skyndihjálp
• 18.615 manns nutu þjónustu sjúkrabíla Rauða krossins um allt land
• 30 þúsund manns á hungursvæðum í sunnanverðri Afríku fengu mataraðstoð í tvo
mánuði þökk sé 2.300 sjálfboðaliðum og öllum þeim sem létu fé af hendi rakna í
landssöfnuninni Göngum til góðs
Alþjóðleg neyðaraðstoð náði til milljóna manna í 52 löndum sem áttu um sárt að binda vegna náttúruhamfara,
hungursneyða, stríðsátaka og veikinda á árinu 2002. Félagið sendi 16 sendifulltrúa til alþjóðlegra verkefna og
með þeirra stuðningi var hægt að:
• hjúkra stríðssærðum í Súdan
• hlúa að alnæmissjúkum í Suður-Afríku og Malaví
• veita fátækum aðgang að heilbrigðisþjónustu og hreinu vatni í Mósambík
• vernda stríðsfanga í Eritreu
• aðstoða við uppbyggingu Rauða hálfmánans í Aserbædjan
• hjálpa fórnarlömbum flóða í Kína
Rauði kross Íslands tekur virkan þátt í starfsemi Alþjóða Rauða krossins og vinnur að
framgangi hugsjóna hreyfingarinnar hér á landi og um allan heim. Á árinu 2002:
• nutu þúsundir skólabarna á Íslandi fræðslu um mannúðarmál og skyndihjálp
• fengu 448.063 stríðsfangar heimsókn frá sendifulltrúum Rauða krossins
• voru endurreistir skólar í Afganistan undir stjórn Ríkarðs Péturssonar sendifulltrúa fyrir
2.380 drengi og stúlkur, en skólarnir hrundu í jarðskjálfta
• aðstoðuðu 1.300 fastir sjálfboðaliðar einstaklinga í margvíslegum þrengingum, skipu-
lögðu neyðarvarnir, fræddu um skyndihjálp, heimsóttu aldraða og sjúka, söfnuðu fötum
og tóku þátt í alþjóðlegu samstarfi á vegum Rauða kross Íslands.
• störfuðu tólf þúsund manns við aðstoð á 43 átaka- og spennusvæðum víða um heim,
hjúkruðu 14.400 stríðssærðum og útveguðu þrjátíu þúsund manns gervilimi og nauð-
synlega endurhæfingu
• unnu um 100 virkir sjálfboðaliðar Ungmennahreyfingar Rauða kross Íslands um 10.000
vinnustundir í þágu fatlaðra, við námsaðstoð við nýbúa, við skyndihjálparfræðslu, við
fataflokkun- og sölu og við átak gegn ofbeldi og fordómum í samfélaginu
• fengu 117 hælisleitendur húsaskjól og aðstoð hjá Rauða krossi Íslands
Starf Rauða kross Íslands er fjármagnað með hlutdeild félagsins í Íslenskum söfnunar-
kössum og rausnarlegum stuðningi almennings, fyrirtækja og stjórnvalda við verkefni
Rauða krossins.
Allir geta fengið hlutverk hjá Rauða krossinum. Hafðu samband ef þú vilt gerast félagi
eða sjálfboðaliði eða styðja á annan hátt fjölmennustu mannúðarhreyfingu heims.
Aðalfundur Rauða kross Íslands er á morgun, föstudag.
Ársskýrsla félagsins er á www.redcross.is/2002
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Hringið í 570 4000 til að fá
prentaða ársskýrslu í pósti.
EINKENNILEG göt eru á hraunklettum norðan við
Skolahrauni á Reykjanesi. Er eins og fimm göt hafi
verið boruð í klettinn en engin ummerki sjáanleg.
Kletturinn er á einu fáfarnasta svæði landsins
þrátt fyrir að hann sé í nábýli við fjölmennustu
byggð þess. Í tenglum við ferðir hjá Ferlir, göngu-
klúbbi rannsóknardeildar Lögreglunnar í Reykjavík,
var verið að leita hluta gamallar þjóðleiðar, svo-
nefndar Hálsagötu. Yfir Skolahraun liggja nokkrar
götur og er ein þeirra austan við staðinn sem klett-
urinn með dularfullu holunum stendur á, vestan
Selsvalla, og er gatan klöppuð ofan í bergið á kafla.
Sesselja Guðmundsdóttir tók eftir klettinum og tók
af honum myndir.
Það er eins og boraðar hafi verið fimm holur í
klettinn en engin hjólför eða önnur ummerki eftir
tæki sjáanleg.
Ómar Smári Ármannsson úr Ferli segir fróðlegt
að vita hvaða verur þarna hafi verið að verki og í
hvaða tilgangi eða hvers konar jarðfræðifyrirbrigði
þetta sé. Hæpið sé að þetta geti verið æfingasvæði
fyrir bormenn og hvers vegna ætti einhver að taka
borkjarna úr þessum steini en ekki einhverjum nær-
tækari, spyr hann. Ómar Smári segir að steinninn
virðist vera úr öðru bergi en umhverfið. Ekki sé
óhugsandi að hann hafi orðið til þarna eftir sprengi-
gos en sprengigígar séu raunar allfjarri.
Dularfull göt á kletti
Skolahraun
Ljósmynd/Sesselja Guðmundsdóttir
Tvær holurnar sjást hlið við hlið á vinstri hluta kletts-
ins. Þrjú slík göt til viðbótar eru á klettinum.
BÆJARSJÓÐUR Reykjanesbæjar
var rekinn með 168 milljóna króna
halla á síðasta ári og heildartap á
rekstri bæjarins, þegar rekstri sjálf-
stætt starfandi stofnana bæjarins
hefur verið bætt við, var 306 millj-
ónir tæpar. Reikningar ársins 2002
voru samþykktir samhljóða á fundi
bæjarstjórnar í fyrradag en fulltrúar
meirihluta og minnihluta létu bóka
mismunandi sjónarmið.
Við uppgjör ársreikninganna var
beitt nýjum reikningsskilaaðferðum,
samkvæmt fyrirmælum í sveitar-
stjórnalögum, og er samanburður við
fyrri ár því erfiður. Reikningunum er
skipt þannig að bæjarsjóður er gerð-
ur upp sér en einnig samstæða
Reykjanesbæjar þar sem bætt hefur
verið við niðurstöðum rekstrar stofn-
ana bæjarins sem starfa sjálfstætt,
svo sem Fráveitu, Vatnsveitu, Fram-
kvæmdasjóðs aldraðra, Húsnæðis-
nefndar, Reykjaneshafnar og Fast-
eigna Reykjanesbæjar.
Ekki fjölgaði í bænum
Skatttekjur bæjarsjóðs voru rúm-
ar 2.284 milljónir kr. á síðasta ári
sem er 1,7% lægri fjárhæð en gert
hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætl-
un. Fram kemur í bókun fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, sem fara með
meirihluta í bæjarstjórn, að ástæðan
sé að gert hafi verið ráð fyrir 1,5%
fjölgun gjaldenda sem ekki hafi
gengið eftir og að samsetning gjald-
enda hafa reynst óhagstæðari en
áætlað var. Heildartekjur bæjar-
sjóðs voru 3.025 milljónir og heildar-
tekjur samstæðunnar 3.355 milljónir
kr.
Útgjöld bæjarsjóðs námu 3.719
milljónum kr. sem er 389 milljónum
kr. meira en gert var ráð í fjárhags-
áætlun. Rekstrarútgjöld samstæð-
unnar voru 4.079 milljónir kr. Sjálf-
stæðismenn benda á að stærsti
óvænti útgjaldaliðurinn sé hækkun
lífeyrisskuldbindinga vegna endur-
mats. Um er að ræða 393 milljónir
hjá bæjarsjóði og 403 milljónir hjá
samstæðunni í heild. Vekja sjálf-
stæðismenn einnig athygli á að þeg-
ar litið er til einstaka málaflokka sé
rekstrarútkoman 1,5% yfir fjárheim-
ildum. Sá munur skýrist á útgjöldum
til fræðslumála vegna uppgjörs á
launaliðum. Aðrir málaflokkar reyn-
ist vera samtals 99,9% af fjárheim-
ildum.
Varað við rekstrartapi
693 milljóna króna tap varð af bæj-
arsjóði og 724 milljóna króna tap af
samstæðunni þegar einungis er litið
til rekstrartekna og rekstrargjalda.
Þegar bætt hefur verið við 204 millj-
óna króna söluhagnaði fasteigna,
tekjum af hlutdeildarfélögum og
fjármunatekjum kemur út 168 millj-
óna króna tap af rekstri bæjarstjóðs
og 306 milljóna króna tap af sam-
stæðunni.
Í sameiginlegri bókun minnihlut-
ans, fulltrúa Samfylkingar og Fram-
sóknarflokks, er lýst áhyggjum af
rekstrartapi bæjarsjóðs. Vakin er at-
hygli á því að tapið sé 168 milljónir
þrátt fyrir 350 milljóna króna fjár-
munatekjur sem einkum stafi af
gengishagnaði. „Það er fátt mikil-
vægara en að þessu sé snúið við því
bæjarsjóður verður að eiga afgang til
að mæta afborgunum af lánum,“ seg-
ir í bókuninni.
Vanmetnar eignir
Heildareignir bæjarsjóðs Reykja-
nesbæjar námu um áramót 9,4 millj-
örðum kr. og samstæðan átti 11,4
milljarða. Sjálfstæðismenn vekja
máls á því að eignir bæjarsjóðs hafi
aukist á árinu um rúman 1,1 milljarð
og eignir samstæðunnar um 592
milljónir. Jafnframt er vakin athygli
á því að eignarhlutur bæjarins í Hita-
veitu Suðurnesja sé vanmetinn um
2–3 milljarða króna.
Heildarskuldir bæjarsjóðs voru
5,6 milljarðar um áramót og skuldir
samstæðunnar 8,4 milljarðar. Eigið
fé sveitarsjóðs var 3,8 milljarðar og
samstæðunnar um 3,1 milljarður.
Minnihlutinn vekur í sinni bókun
máls á skuldum bæjarins og breyt-
inga sem á þessu ári eru gerðar á
eignarhaldi og umsýslu fasteigna
bæjarins, meðal annars með því að
leggja þær inn í fasteignafélög. „Þá
má búast við að rekstrarliðir aukist á
sama tíma og fjármagnskostnaður á
að lækka. Jafnframt munu eignir
bæjarins minnka. Við minnum því á
mikilvægi þess að skuldir minnki að
sama skapi því eftir þær breytingar
verður skuldaþol bæjarins jafnvel
enn minna en nú er,“ segja þeir.
Tap af rekstri bæjarsjóðs í fyrra
Skatttekjur juk-
ust ekki í takt
við áætlanir
Reykjanesbær
HITAVEITA Suðurnesja mun
annast framleiðslu rafmagns úr
gufu frá gufukatli brennslulínu í
nýrri sorpbrennslustöð Sorpeyð-
ingarstöðvar Suðurnesja, Kölku,
sem verið er að koma upp í Helgu-
vík.
Sú orka sem ekki nýtist við
rekstur stöðvarinnar sjálfrar fer
inn á dreifikerfi Hitaveitunnar.
Stjórnendur Hitaveitunnar og
Sorpbrennslustöðvarinnar hafa
undirritað samning þess efnis.
Framleidd verða um 440 kílóvött
af raforku með gufutúrbínu sem
fyrirtækið Varmaverk mun annast
uppsetningu á. Af því notar stöðin
mest um 300 kW til eigin þarfa, en
umframorkan fer út á almenna raf-
orkunetið. Auk þess nýtir stöðin
varmaorku frá brennslunni til upp-
hitunar á húsi og lóð. Kalka verður
því sjálfbær bæði hvað varðar raf-
orku og varma. Brennsla til orku-
nýtingar er talin til endurvinnslu
og hækkar endurvinnsluhlutfall
stöðvarinnar verulega við þetta.
Samningurinn felur í sér að
Hitaveita Suðurnesja (HS) leggur
til og rekur allan búnað til raf-
orkuframleiðslunnar, ásamt búnaði
til að losna við afgangsvarma.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja (SS)
leggur til gufu til rekstursins og
húsnæði fyrir búnaðinn. SS kaupir
svo raforku af HS, sem tryggir
orku til rekstursins annaðhvort frá
rafstöðinni eða beint af Netinu,
sem eykur rekstraröryggið til
muna, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu. Samningurinn
verður endurskoðaður að tveimur
árum liðnum eftir að reynsla hefur
fengist af rekstrinum.
Afgangsorka
Kölku fer inn á
raforkukerfið
Helguvík