Morgunblaðið - 22.05.2003, Page 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 23
Fjarnám allt árið
Viltu stytta þér leið?
Þitt nám þegar þér hentar! Allar upplýsingar á www.fa.is
Skólameistari
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000
Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
3. júní - 17. júní
á mann m.v. 2 fullor›na og 2 börn í íbú› m/1 svefnherbergi og stofu
í viku á Paraiso og viku á Ondamar.
58.317kr.*
Sta›grei›sluver›
á mann m.v. 2 fullor›na í íbú› m/1 svefnh. og stofu
í viku á Paraiso og viku á Ondamar.
76.455 kr.*
Sta›grei›sluver›
* Innifali›: Flug, flugvallaskattar, gisting í 2 vikur,
akstur og íslensk fararstjórn.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
12
38
05
/2
00
3Fyrri vikan á Paraiso og seinni vikan á Ondamar.
fiökkum frábærar
vi›tökur!
Örfáar vi›bótaríbú
›ir!
unni frelsi til að halda sköpuninni
áfram. Höfundurinn leggur bara
texta í púkkið, verkið er samvinna.
Og hópurinn vann þetta frábærlega,“
segir Sigtryggur. Stefán Jónsson
leikstjóri bætir við að svona sé áhorf-
andinn líka frjálsari að sinni upplifun,
„þú veist ekki hvort verkið gerist
beinlínis á undan eða eftir atburðun-
um sem um ræðir, í rauninni eða í sál-
arlífi Herjólfs. Það ýtir undir ímynd-
unarafl áhorfandans sem þarf sjálfur
að finna út úr því hvert verkið er að
fara, hvað það er að segja. Og myrkr-
ið ... mér líður voða vel í myrkrinu.“
Eins og seiður
Sigtryggur bar verkið á borð Stef-
áns Jónssonar leikstjóra, áður en
hann lagði það til við Stefán Bald-
ursson þjóðleikhússtjóra. „Fyrstu
viðbrögð mín, þegar ég sá verkið,“
segir Stefán Jónsson, „voru einfald-
lega: Vá, gott verk! Það hafði djúp-
stæð áhrif á mig, fallegt, satt og heið-
arlegt. Það verkaði á mig eins og
seiður, þessar endurtekningar og
minni, eiginlega eins og tónlist.“
Tónlist Kristínar Bjarkar Krist-
jánsdóttur eða Kiri Kiri skipar ein-
mitt veigamikinn sess í sýningunni,
„já, ég var viss um að ég þyrfti að
beita öllum brögðum til að laða fram
rétta hljóðið, þessa tónlist sem ég
heyrði.“
Verkið er frumsýnt í kvöld kl. 20, í
Leiksmiðjunni í gamla Landsíma-
húsinu við Lindargötu 7.
LEIKSMIÐJA Þjóðleikhússins er,
samkvæmt erindi sem Melkorka
Tekla Ólafsdóttir leiklistarráðunaut-
ur flutti í lok apríl, tilraun til starf-
semi miðja vegu milli leiklestra og
hefðbundinna sýninga. Þar verða
frumflutt stutt og óvenjuleg íslensk
verk, í hrárri leikmynd og á styttri
æfingatíma en venjulega.
Fyrsta verk Leiksmiðjunnar er
eftir Sigtrygg Magnason, klukku-
stundarlangt verk sem heitir „Herj-
ólfur er hættur að elska“ og Stefán
Jónsson leikari leikstýrir.
Þessi litli harmleikur
Sigtryggur er íslenskufræðingur,
hefur starfað sem blaðamaður á DV,
dagskrárgerðarmaður í útvarpi og
gefið út ljóð en „besti skólinn sem ég
fór í gegnum fyrir þetta var að vinna
sem sviðsmaður hjá Þjóðleikhúsinu í
tvö ár“.
Hvernig er verkið upprunnið?
„Hinn 5. júlí 2001 bjó ég til tölvu-
skjal með þessu heiti, Herjólfur er
hættur að elska, og það bara kallaði á
verk,“ segir Sigtryggur. Verkið var
raunar ljóðabók, gefin út í fyrra, og
er leikritið byggt á henni.
Leikritið fjallar um Herjólf sem
virðist jafn sambandslaus við lífið hið
innra og hið ytra og „hættur að elska.
20% Íslendinga eru á geðdeyfðarlyfj-
um. Þessi litli harmleikur, ástin,
skiptir svo marga svo ótrúlega miklu
máli.“
Stefán Jónsson leikstjóri segir
verkið fjalla um „það sem upp á vant-
ar hjá aðalpersónunni og okkur öllum
og hvernig við lendum í ógöngum við
að ná okkur í það. Margir stytta sér
leið. Þetta verk er um niðurstöðu
Herjólfs og hvernig hún kemur til af
uppeldi, ástleysi og föðurmissi.“
Merkingin skilin eftir
Leikritið er, eins og kannski vænta
má af verki sem er unnið úr íslenskri
ljóðabók, óstaðbundið og jafnvel
tímalaust, þó höfundur vinni með við-
fangsefni úr samtímanum. Hvers
vegna?
„Ég sá þetta aldrei fyrir mér á
sviði þó ég hafi skrifað það fyrir svið.
Mig langaði að skilja það eftir, gefa
hinu fólkinu sem vinnur að sýning-
Margir stytta
sér leið
Leiksmiðjan frumsýnir
Herjólfur er hættur að elska
Úr leikritinu „Herjólfur er hættur að elska“.
Skólavörðustíg 21,
sími 551 4050
Bómullar- og silkidamask
til brúðargjafa
Úrval af
fallegum
rúmfatnaði
GESTUM Útvarpsleikhússins
gefst nú kostur til að hlýða á þriðja út-
varpsleikrit Braga Ólafssonar. Skáld-
saga hans Við hinir einkennisklæddu
kom út í vor og nýtt leikrit hans verð-
ur sýnt í Borgarleikhúsinu í haust.
Eins og í fyrri leikritum Braga
skarast hér ímyndun og raunveruleiki
og í óvissunni sem skapast býr ógn.
Galdurinn við nálgun Braga er að
hann kemur
alltaf að við-
fangsefninu úr
nýrri átt. Per-
sónurnar í Sum-
ardeginum
fyrsta (1996)
bjuggu í órök-
rænni fullvissu
sem einkennd-
ist af ranghug-
myndum og ár-
áttuhegðun. Í Augnrannsókninni
(2001) réð martröðin ríkjum og per-
sónurnar bjuggu í ringulreið algjörr-
ar óvissu, enda reyndist ekkert eins
og við mátti búast við nánari athugun.
Í Grónu hverfi er hversdagsleiki
nútímans ráðandi afl, en að honum
sækja dularfull öfl úr fortíðinni. Þess-
ir tveir heimar skarast í gömlu húsi í
Þingholtunum þar sem íbúarnir
reyna að henda reiður á því sem fram
fer. Á yfirborðinu er sagan rakin skil-
merkilega með hjálp sögumanns en
undir niðri kraumar óreiðan sem
Braga finnst svo gaman að fjalla um.
Þeim upplýsingum sem áheyrandinn
viðar að sér úr samtölum persónanna
ber ekki að öllu leyti saman – að vísu
nóg til að heimur verksins hangi sam-
an en áhorfandinn verður jafn forviða
og persónurnar þegar ómögulegt
reynist að skipa hinum dularfullu at-
burðum í rökrænt samhengi.
Óskar Jónasson leikstjóri nálgast
efniviðinn af varfærni og forðast að
ýkja um of viðbrögð persónanna.
Leikurunum tekst því að koma vel til
skila ógninni sem fylgir í kjölfar óviss-
unnar sem ríkir, auk lágt stemmds
spaugsins sem felst í skringilegum til-
svörum. Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir
lék hina skapmiklu aðalpersónu frá-
bærlega; Margrét Vilhjálmsdóttir og
Kjartan Guðjónsson drógu upp
snaggaralegar myndir af vinkonunni
og eiginmanninum; Ingvar E. Sig-
urðsson skilar afar hófstilltum leik í
lykilhlutverki, þar sem ekkert má
vera of eða van; Steindór Hjörleifsson
og Margrét Ólafsdóttir nostruðu við
gömlu hjónin og Karl Guðmundsson
leiddi áhorfendur kíminn í bragði í
þessa ferð um hugarheim Braga
Ólafssonar, sem olli ekki vonbrigðum
nú frekar en endranær.
LEIKLIST
Útvarpsleikhúsið
Höfundur: Bragi Ólafsson. Leikstjóri:
Óskar Jónasson. Hljóðvinnsla: Hjörtur
Svavarsson. Leikarar: Guðlaug Elísabet
Ólafsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Karl
Guðmundsson, Kjartan Guðjónsson, Mar-
grét Ólafsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir
og Steindór Hjörleifsson. Frumflutt
sunnudag 18. maí; endurtekið fimmtu-
dagskvöld 22. maí.
GRÓIÐ HVERFI
Sveinn Haraldsson
Bragi Ólafsson
Ekki allt
með felldu