Morgunblaðið - 22.05.2003, Síða 24
LISTIR
24 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Framnesvegur
Vorum að fá til sölu þetta fallega bárujárnskl.
timbureinb. við Framnesveg. Eitt af þessum
eftirsóttu húsum „með sál“ á Bráræðisholt-
inu. Húsið er hæð og ris samt. að gólffleti
121 fm. Á neðri hæð eru saml. stofur, sól-
stofa, 1 herb., eldhús og gesta w.c. með
þvaðstöðu og uppi eru 2 herb., sjónvherb.
og baðherb. Húsið var allt endurb. árið 1982
og er í góðu ásigkomulagi og allt hið vistlegasta. Timburgólf. Stór timburverönd
með skjólveggjum. Ræktuð lóð. Allar nánari uppl. veittar á skrifst.
EINN af reglulegum vorboðum í
menningarlífi höfuðborgarinnar ár
hvert er útskriftarsýning nemenda
Listaháskóla Íslands, enda er jafnan
forvitnilegt að kynna sér þá fjöl-
breytilegu listsköpun sem fram fer
innan veggja skólans. Útskriftarsýn-
ing nemenda 2003 er engin undan-
tekning frá þessari reglu, en alls eru
það 56 nemendur sem útskrifast af
myndlistar- og hönnunarbrautum
skólans þetta vor.
Í ár hefur þó verið breytt út frá
þeirri venju að setja sýninguna upp í
húsnæði skólans sjálfs í Laugarnesi
og þess í stað verið leitað á náðir
Listasafns Reykjavíkur sem lánað
hefur Hafnarhúsið undir sýninguna.
Þessi nýbreytni hlýtur að teljast kær-
komin jafnt fyrir nemendur sjálfa
sem og sýningargesti enda veitir hún
útskriftarsýningunni fágaðari blæ en
hægt var að ná fram innan veggja
skólahússins. Að sögn rektors skól-
ans, Hjálmars R. Ragnarssonar, vilja
skólayfirvöld líka með þessu setja
aukna ábyrgð á herðar nemenda sem
verði fyrir vikið „að sýna ábyrgð í
framsetningu verka sinna“. Ekki er
heldur annað að sjá en að nemendur
taki þá ábyrgð alvarlega og leggi sig í
líma við að vinna vel með rýminu.
Máttur ímyndarinnar
Á því breiða sviði sem hönnunar-
deildin nær yfir virðast margir nem-
enda ekki hafa lagt minna upp úr
ímyndarsköpun en hönnuninni sjálfri.
Þetta á ekki hvað síst við um nem-
endur í fatahönnun og textíldeild, en
þetta er fyrsti útskriftarárgangur
fatahönnuða frá skólanum, sem virð-
ast sér vel meðvitandi um mátt
ímyndarinnar. Þannig er töluverð
vinna lögð í umgjörð og útlit kvenna-
hljómsveitarinnar Barböru sem
Helga Rós Vilhjálmsdóttir Hannam
býður gestum upp á og eins virðist
tískuljósmyndun skipa veglegan sess
í frumlegri sýn Guðrúnar Rögnu Sig-
urjónsdóttur á sokkabuxur. Þó að
minna fari fyrir fatnaðinum sjálfum á
fastasýningunni, en nemendur deild-
arinnar buðu upp á tískusýningu sl.
helgi, hefur hann þó ekki verið gerður
alveg útlægur og má nefna aðsniðnar
línur og ýkt stærðarhlutföll í hönnun
Eidísar Önnu Björnsdóttur sem
skemmtilegt dæmi.
Sá stóri þáttur sem hönnun leikur í
daglegu lífi okkar kemur líka vel fram
í starfi hönnunardeildarinnar og virð-
ast nemendur meðvitaðir um þann
þátt. Þannig sýnir Sigurður Ingi
Ljótsson sjálfvirkan fóðurskammtara
fyrir íslenska hestinn, á meðan Linda
Loeskow hefur hannað kennslu-
myndband fyrir börn með einhverfu.
Nemar í auglýsingahönnun ná þá
sumir að nýta sér mátt ímyndarinnar
til að kalla fram sterk viðbrögð áhorf-
enda og sýnir Valgerður Einarsdóttir
til að mynda herferð gegn kynferðis-
ofbeldi fyrir Stígamót. Herferðin er
byggð upp í kringum nærmynd af
kynfærum karlmanns, íklæddum
hvítum nærbuxum sem á hefur verið
ritað að hann eigi í kynferðislegu
sambandi við fimm ára dreng. Aug-
lýsingin minnir um margt á auglýs-
ingu breskrar ferðaskrifstofu á síð-
asta áratug, er höfða átti til ungra
einhleypra kvenna, og nær auglýsing
Valgerðar efalítið að kalla fram ekki
síðri viðbrögð hjá áhorfendum. Íron-
ískar táknmyndir Guðjóns Braga
Stefánssonar í verkinu Áfram Ísland
eru þá ekki síður áhrifamiklar, en
þær byggir hann á þekktum slagorð-
um íslenskra fyrirtækja til að gagn-
rýna á skemmtilegan hátt neyslu-
þjóðfélag nútímans og afleiðingar
þess á borð við aukið sjónvarpsgláp
og offitu.
Örverur og útilega
Þó að aukið rými fyrir hvert verk
skili sér vel í sýningu á verkum hönn-
unarnema verður sá munaður sem í
rýmisaukningunni felst enn meira
áberandi þegar verk myndlistarnem-
anna eru skoðuð og má nefna sem
dæmi að verk Halldóru Ingimars-
dóttur Good things happen to good
people hefði engan veginn náð að
njóta sín jafnvel í Laugarnesinu og
það gerir í spartönsku umhverfi
safnsins.
Það er þá ekki síðri hugmyndagleði
sem einkennir verk nemenda mynd-
listardeildarinnar. Þannig býður
Hildigunnur Birgisdóttir til að mynda
sýningargestum að gerast „fluga á
vegg“ í anda veruleikasjónvarps og
fylgjast með lífi íbúa í smágerðu húsi,
Kambsvegi 21, sem hún hefur reist í
einum sýningarsalanna og þá býður
Berglind Ásgeirsdóttir gestum í úti-
legu innandyra í hinu réttilega nefnda
Tjöld, myndbönd og tónlist. Verk
Tómasar Lemarquis National Ill-
usion, sem flestir tengja eflaust frek-
ar hlutverki hans í Nóa albínóa en
myndlist, er þá stórskemmtileg krítík
á fjölbreyti- og fáránleika lífsins. Mál-
verk Kolbrár Þ. Bragadóttur eru
einnig sterk ásýndar, en Kolbrá sýnir
stór, ljósleit málverk sem minna mest
á örveruveröld þá sem mögnuð er
upp undir glerjum smásjárinnar.
Útskriftarsýningar Listaháskólans
eru jafnan fjölsóttar og veita yfirleitt
betri þverskurð af þjóðfélaginu en
finna má myndlistarsýningum al-
mennt, enda alltaf gaman að kynna
sér það líflega og fjölbreytilega starf
sem fram fer í skólanum. Þó að verkin
séu vissulega misáhrifamikil eins og
við er að búast á svo fjölmennri sýn-
ingu, og hefðu í tilfelli hönnunarnema
sum hver þurft nánari skýringa við,
verður engu að síður gaman að fylg-
ast með þessari nýju kynslóð lista-
manna og hönnuða á komandi árum.
Íslensk náttúra
Gullsmíði og skartgripagerð hafa
ekki enn ratað inn í Listaháskóla Ís-
lands þó að óneitanlega sé hægt að
færa sterk rök fyrir því að hinn hönn-
unarlegi þáttur námsins eigi vel
heima meðal námsgreina skólans. Á
þetta ekki hvað síst við í ljósi þeirrar
uppreisnar og sköpunargleði sem ein-
kennir skartgripahönnun nú um
stundir. Eðalmálmar og dýrir steinar
eru langt í frá að vera eini gjaldgengi
miðillinn við hönnun skartgripa, og
setja íslenskt grjót, kuðungar, plast-
efni, gler og jafnvel sælgæti ekki síð-
ur sinn svip á hönnun íslenskra gull-
smiða.
Sýningin 101 Gulll sem nú stendur
yfir í Hönnunarsafninu í Garðabæ
byggist á verkum 11 gullsmiða sem
allir eiga það sameiginlegt að starfa
við Laugaveg. Sýningin hæfir einkar
vel smágerðum húsakynnum safnsins
og er gaman að virða fyrir sér fjöl-
breytnina og gróskuna sem virðist
einkenna hönnun þessara gullsmiða.
Lengi vel hefur íslenskt grjót verið
ofarlega á lista þeirra gullsmiða sem
leitað hafa fanga í íslenskri náttúru
við hönnun sína og hefur notkun þess
vissulega átt stóran þátt í mótun gróf-
gerðra óreglulegra gripa sem hafa
verið fjarri heimi fínlegrar fjölda-
framleiðslu, líkt og sjá má dæmi um í
verkum þeirra Guðbrands J. Jezorski
og Hansínu Jensdóttur. Hin síðari ár
hefur hins vegar komið upp kynslóð
ungra skartgripahönnuða sem ekki
leita síður áhugaverðra leiða við að
takast á við skartgripahönnunina og
þó að sumir þeirra leiti enn innblást-
urs úti í náttúrunni skipar grjótið nú
ekki jafnveglegan sess og áður. Guð-
björg Kr. Ingvarsdóttir er einn þess-
ara hönnuða, en henni hefur tekist
einkar vel að skapa sinn eigin stíl, fín-
lega blómumlíka skartgripi sem eru
ólíkir flestu öðru. Ása Gunnlaugsdótt-
ir leitar á nokkuð svipaðar slóðir í
hönnun sinni og eins notar Kjartan
Örn Kjartansson form í ætt gróðurs
og steina við hönnun sína, sem gjarn-
an er prýdd litríkum glitsteinum þó
að hann sýni einnig á sér nýja hlið
með húmorískum sápuhringjum.
Sú skemmtilega samtvinnun al-
þjóðlegrar og séríslenskrar hönnunar
sem fram kemur á 101 Gull lofar
óneitanlega góðu um framtíð ís-
lenskrar skartgripagerðar.
Ímyndarsköpun
og sköpunargleði
Morgunblaðið/Jim Smart
Áfram Ísland eftir Guðjón B. Stefánsson.
Kambsvegur 21 eftir Hildigunni Birgisdóttur.Sápuhringir Kjartans Arnars Kjartanssonar.
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur
Hafnarhúsi
Sýningin er opin alla daga frá kl. 10–17.
Sýningin stendur til 29. maí.
ÚTSKRIFTARSÝNING LISTAHÁSKÓLA
ÍSLANDS 2003
Anna Sigríður Einarsdóttir
Hönnunarsafn Íslands
Sýning er opin alla daga nema mánudaga
frá kl. 14–18. Henni lýkur 25. maí.
101 GULL
Í TILEFNI þess að 190 ár eru liðin
frá fæðingu Richards Wagners er
dagskrá Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands í kvöld helguð tónskáldinu.
Wagner fæddist hinn 22. maí árið
1813 í Leipzig, sama ár og annað
ástsælt tónskáld óperubók-
menntanna, Giuseppi Verdi. Fá tón-
skáld eru talin hafa haft meiri áhrif
á tónlistarsöguna en Wagner og var
hann umdeildur meðal tónlistarunn-
enda meðan hann lifði, sumir dýrk-
uðu hann á meðan aðrir lögðu fæð á
tónlist hans. Enn heillast margir af
tónsmíðum hans, hérlendis sem er-
lendis, og hér á landi er meðal ann-
ars starfrækt öflugt félag sem ein-
beitir sér að kynningu á tónlist hans.
Helstu óperur Wagners eru Hollend-
ingurinn fljúgandi, Tannhäuser, Lo-
hengrin, Niflungahringurinn, Trist-
an og Isolde, Meistarasöngvararnir í
Nürnberg og Parsifal.
Á tónleikum kvöldsins í kvöld
syngur sópransöngkonan Magnea
Tómasdóttir með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands, en hljómsveitarstjóri
er Gregor Bühl. Bæði eru þau ís-
lenskum Wagner-unnendum að
góðu kunn síðan óperan Hollending-
urinn fljúgandi var færð upp á
Listahátíð í Reykjavík í fyrra, en þá
annaðist Bühl hljómsveitarstjórn og
Magnea fór með hlutverk skipstjór-
adótturinnar Sentu, eitt burð-
arhlutverka óperunnar. „Það er
mjög ánægjulegt að vera komin til
starfa með Bühl aftur,“ segir Magn-
ea í samtali við Morgunblaðið. Að-
spurð segist hún ekki vera Wagner-
söngkona eingöngu, þrátt fyrir að
hafa farið tvisvar sinnum með hlut-
verk Sentu í fyrra, á Listahátíð og á
tónlistarhátíðinni í Bad Herffeld í
Þýskalandi, og sungið hlutverk
Geirhildar í Valkyrjum Wagners í
óperuhúsinu í Köln, einnig í fyrra.
„Þetta hefur nú bara þróast svona
undanfarið og ég hef ekki viljað
stimpla mig sérstaklega sem slíka.
En það er alltaf gaman að syngja
Wagner.“
Í kvöld spreytir Magnea sig á arí-
um þriggja söguhetja úr þremur
öðrum óperum Wagners, aríu Elsu
úr Lohengrin, aríu Elísabetar úr
Tannhäuser og Liebestod Ísoldar úr
Tristan og Isolde. „Ég hef ekki
sungið hlutverk Elsu og Elísabetar í
heild, en hef sungið þessar aríur áð-
ur. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn
sem ég tekst á við Ísold yfirhöfuð og
ég hugsa að ég muni nú bara syngja
Liebestod í nokkur ár áður en ég fer
að læra hlutverkið,“ segir Magnea
og hlær við. „Ísold er auðvitað eitt af
alstærstu hlutverkum fyrir sópran
sem til er.“
Efnisskrá tónleikanna í kvöld
hefst á Wesendonck Lieder, fimm
sönglögum Wagners við texta Mat-
hilde Wesendonck. „Þessi ljóð eru
vel þekkt og oft flutt með píanói í
stað hljómsveitar. Ég flutti þau í
þeim búningi á tónleikum í Salnum í
fyrra,“ segir Magnea. Hún segir
þriðja og fimmta ljóðið í flokknum,
Im Treibhaus og Traümem, vera
samin um svipað leyti og óperan
Tristan og Isolde. „Wagner notaði
þessa þætti sem einskonar forstúdíu
fyrir óperuna.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Magnea
kemur fram á tónleikum í Há-
skólabíói með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Hún lætur vel af samstarfinu.
„Þetta bíó er auðvitað það sem við
höfum núna. En ég vona að þessi
hljómsveit fái sem fyrst hús sem er
henni samboðið.“
Morgunblaðið/Kristinn
Sópransöngkonan Magnea Tómasdóttir kemur fram með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands á tónleikum í Háskólabíói í kvöld, sem helgaðir eru flutningi
verka Richards Wagner. Hljómsveitarstjóri er Gregor Bühl.
Wagner í 190 ár
Ýmir við Skógarhlíð kl. 20.30
Snæfellingakórinn í Reykjavík syng-
ur m.a. íslensk þjóðlög, norræn
sönglög og madrigala. Undirleikari
er Lenka Máteová og stjórnandi er
Friðrik S. Kristinsson. Á þessu ári
fagnar kórinn 25. starfsárinu og eru
kórfélagar nú 33 og hafa sumir verið
meðlimir frá upphafi.
Borgarbókasafn, Grófarhúsi kl.
17 Sýningin Reykjavík er samsýn-
ing átta unglinga sem hafa lært
svarthvíta ljósmyndun í Myndlista-
skóla Reykjavíkur á vormisseri.
Námskeiðið var haldið í samvinnu
við Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Kennari var Kristín Hauksdóttir.
Sýningin Reykjavík er sýn ungling-
anna á Reykjavík. Þar má sjá líf og
leik unglinga, málefni líðandi dags,
listrænar hugleiðingar, umhverfi
sem er að hverfa og margt fleira.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Vorhátíð LHÍ haldin í Listasafni
Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Kl.
kl. 12–12.30 Fókusinn – verk nem-
enda skoðuð.
Nemendaleikhúsið, Sölvhólsgötu
13, kl. 20 leikritið Tvö hús.
Á MORGUN