Morgunblaðið - 22.05.2003, Page 40

Morgunblaðið - 22.05.2003, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. BRÉFRITARI heyrir ekki lengur sönglið í þeirri tónlist og aríu sem kosningarnar voru í raun. En hver sigraði? Gerðu menn allt rétt eða sungu stundum falskan tón? Fóru út af laginu eins og það er kallað? Það einkenndi þessar kosningar meira en allt ann- að að ein dugnað- arkona steig fram á sviðið og söng pólitískan einkasöng. Hún sagðist mey-kóngur vilja verða. Þetta bar hana hálfa leið í stól forsætisráðherra en það vant- aði örlítið upp á. Lítum á það. Samfylkingin komst langt en bar of mikinn keim af Kvennalistanum gamla. Einsöngur meykóngsins var of einhæfur og mikill. Í Kvennalist- anum gamla vildu allir meykóngarn- ir syngja einsöng í einu sjálfar. Það endaði með því að engin þeirra söng. Þoldu ekki hver aðra. Vildu allar vera eina prímadonnan á leiksvið- inu. Núverandi meykóngur Samfylk- ingar bjargaði sér frá Kvennalist- anum og áfram í pólitíkinni með því að leiða R-listann. Þar réðu karl- menn sem gátu unnt henni framans. Lofuðu henni að syngja einsöng og vera prímadonna sem borgarstjóri. Samfylkingin hefði fengið meira og staðið sterkari ef hún hefði feng- ið Frjálslynda flokkinn í kosninga- blokk með sér og lánað honum bók- stafina SS ef þeir hefðu viljað samþykkja slíkt. Þá hefðu atkvæði þessara tveggja flokka verið talin saman og verið stærri kosninga- blokk en Sjálfstæðisflokkurinn. Orð- ið stærsta og fjölmennasta aflið. Formaður Frjálslynda flokksins hefði í kosningablokk með Samfylk- ingunni þvegið af henni mesta Kvennalistasvipinn sem var of mik- ill. Bréfritari vill bæta hlut allra kvenna bæði meykónga og svo þvottakonunnar sem er ein með barn sitt. Einnig hlut allra kvenna þar á milli. Verður samt að fara saman með öðrum umbótum. Jafnvægi verður að vera í öllum hlutum svo og siðferði og sanngirni. Það er ekki hægt að sópa ómaklega burtu karlmönnum eins og t.d. nú- verandi formanni Samfylkingar þótt meykóngur syngi fallegan einsöng í einni óperuaríu á leiksviði einna kosninga. Bréfritari veit ekki á þessari stundu hvert framhaldið verður með nýja ríkisstjórn. Það kemur í ljós eða er komið í ljós þegar þetta bréf birtist. Hver sem stjórnar Íslandi þá er mest áríðandi í dag að friða þorsk- stofninn meira og auka þannig arð af honum til lengri tíma. Einnig verður að finna leið til að lækka næstu árin útgerðarskuldina stóru og stækkandi upp á 200 milljarða þar sem hún er hættuleg fjárhags- legu sjálfstæði landsins. Vextir af þessari miklu skuld taka í dag til sín mestallan arð fiskveiðanna. LÚÐVÍK GIZURARSON, Grenimel 20, 107 Reykjavík. Að lokinni óperuaríu Frá Lúðvík Gizurarsyni hæstaréttarlögmanni: Lúðvík Gizurarson UNGUR maður, Eyjólfur Ingi Bjarnason, skrifar grein í Morg- unblaðið 8. maí til að svara grein minni í sama blaði 13. apríl undir fyrirsögn- inni „Nærri hundrað ára bar- átta fyrir daufum eyrum“. Af því tilefni sé ég ástæðu til að undirstrika að allan þann tíma sem gróðureyð- ingin hefur stað- ið yfir hafa okkar vitrustu menn varað við skelfilegri meðferð okkar á landinu sem hefur gert það að skemmdasta landi í Evrópu vegna búsetu. Ég bendi á að við getum ekki verið þekkt fyrir það lengur að rányrkja landið til skaða. Við verðum að stunda ræktunarbúskap og hafa búfé í girðingum. Ekki fyrr en þá getum við farið að rækta upp landið af viti. Þetta sannast með því að rándýr landgræðslan hefur ekki undan uppeyðingu á náttúru- lega gróðrinum. Hvar endar það? Ungi maðurinn segir að ég tali nið- ur til bænda og sauðkindarinnar með því að halda því fram að búféð á lausagöngu um landið frá fjöru til fjalla eigi sökina. Það er þó stað- reynd sem við verðum að horfast í augu við. Ekki viljum við að afkom- endur okkar taki við nærri örfoka landi vegna stundarhagsmuna og skammsýni. Við getum snúið vörn í sókn öllum til sóma með sameig- inlegu átaki. Offramleiðsla á kindakjöti er skaði bæði fyrir gróðurinn og rík- issjóð. Það þarf að minnka fram- leiðsluna um helming og skipu- leggja síðan valin afgirt beitarsvæði eins og hjá öðrum þró- uðum þjóðum. Fyrir 50 árum sáu Nýsjálendingar að það hafði orðið mikil gróðureyðing á landinu þeirra vegna ofbeitar allt of margra skepna á lausagangi um landið. Þeir gerðu nákvæmlega þessar ráðstafanir, fækkuðu skepnum um helming og settu afganginn á valin beitarsvæði og græddu síðan sárin. Þetta er það sem þarf að gera hér og semja síðan áætlun um það hvernig við ætlum að rækta upp þetta land sem oft er vitnað í á náttúruverndarráðstefnum utan- lands sem dæmi um mjög illa skemmt land vegna búsetu. Rekum af okkur slyðruorðið og skömmina og sýnum að við séum menn til þess að taka á vandanum og bæta skaðann. Ég vona að þú verðir einn af þeim, Eyjólfur, ásamt öðrum ungum vakandi mönnum, sem horfa fram á veginn. Þá munu viðir vaxa og blóm í haga sem horfín eru úr beitarlandinu. HERDÍS ÞORVALDSDÓTTIR, leikari. Unga manninum svarað Frá Herdísi Þorvaldsdóttur: Herdís Þorvaldsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.