Morgunblaðið - 22.05.2003, Qupperneq 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 41
MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing
stjórnar Sólheima vegna skýrslu Ríkisendur-
skoðunar frá apríl 2003:
„Í lok apríl sl. birti Ríkisendurskoðun skýrslu
um rekstur Sólheima vegna áranna 1996–1999.
Ríkisendurskoðun kaus að birta skýrsluna op-
inberlega án þess að gefa stjórn Sólheima áður
kost á að koma að athugasemdum, sem Rík-
isendurskoðun hafði þó gert við fyrri skýrslu
sína vegna áranna 2000 og 2001, sem birt var um
þetta leyti á síðasta ári. Með því braut Ríkisend-
urskoðun almennt viðurkenndan andmælarétt á
Sólheimum.
Vegna efnis skýrslunnar vill framkvæmda-
stjórn Sólheima koma eftirfarandi á framfæri:
Eldri samningur ekki í gildi – rangar
forsendur gefa ranga niðurstöðu
Í fyrirsögn fréttatilkynningar Ríkisendur-
skoðunar segir að „Sólheimar hafi sniðgengið
samning“. Þessi yfirlýsing stenst ekki, því eins
og áður hefur ítrekað komið fram var þjónustu-
samningi, sem gerður var við félagsmálaráðu-
neytið árið 1995, sagt upp fyrir sex árum eða
þegar á árinu 1997. Það er ekki hægt að snið-
ganga samning sem ekki er til. Fyrir liggur ít-
arleg og rökstudd álitsgerð Karls Axelssonar
hrl., sem staðfestir að umræddur samningur er
fallinn úr gildi.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar er niðurstaða
úttektar, sem grundvallast á löngu útrunnum
þjónustusamningi sem hvorki endurspeglar
hugmyndafræði né starf Sólheima. Niðurstöður
skýrslu Ríkisendurskoðunar sýna í raun af-
dráttarlaust að ekki var fært fyrir Sólheima að
styðjast við umræddan þjónustusamning og það
hafi því verið óhjákvæmilegt að segja honum
upp á sínum tíma. Þjónustusamningar af slíku
tagi við einstaka rekstraraðila í málefnum fatl-
aðra eru í raun löngu liðin tíð erlendis og þykja
alls ekki henta hagsmunum hinna fötluðu.
Í andsvörum Sólheima við fyrri úttekt Rík-
isendurskoðunar (frá árinu 2002) er rakið
hvernig starfsmenn hennar komast að röngum
niðurstöðum vegna þess að þeir gefa sér rangar
forsendur samningsins. Í úttektinni frá í ár gefa
úttektaraðilar sér sömu forsendurnar og kom-
ast eðlilega að sömu röngu niðurstöðunum.
Samningurinn frá 1995 byggði á reiknilíkani
sem notað var til að finna út sanngjarna heildar-
greiðslu fyrir þjónustu Sólheima. Ekki kom
fram í samningnum eða viðræðunum að breyta
ætti um eðli starfseminnar á Sólheimum, þvert á
móti lá fyrir undirritað samkomulag um að
starfsemi Sólheima yrði óbreytt. Ef stöðugildi
væru í samræmi við skýrslu Ríkisendurskoð-
unar hefðu fjárframlög hins opinbera þurft að
hækka til mikilla muna, því ella væri rekstur
Sólheima löngu kominn í þrot.
Öllum fjárveitingum ráðstafað til
þjónustu við íbúa Sólheima
Öllum opinberum fjárveitingum á fjárlögum
til Sólheima hefur verið ráðstafað til þjónustu
við íbúa Sólheima. Starfsemi Sólheima hefur
verið hagað í samræmi við markmiðsgrein laga
um málefni fatlaðra nr. 59 / 1992 og reglugerðir
þar að lútandi og lýtur starfsemin faglegs eft-
irlits í samræmi við ákvæði laga og reglugerða.
Sólheimar hafa staðið við allar skuldbindingar í
búsetu-, atvinnu-, tómstunda- og frístunda-
starfsemi og lagt til aðstöðu og húsnæði að Sól-
heimum sem stenst samanburð við hið besta
sem boðið er upp á hér á landi. Það er þó alls
ekki dýrari kostur fyrir hið opinbera vegna
þeirra fötluðu einstaklinga, sem Sólheimar veita
þjónustu.
Við gerð upphaflega reiknilíkansins var m.a.
ekki tekið tillit til öflugrar dagþjónustu og at-
vinnustarfsemi að Sólheimum þar sem öllum
býðst fjölbreytt atvinna og dagþjónusta í átta
klukkustundir á dag, en slíkt þekkist á fáum
stöðum annars staðar.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar sendir almenn-
ingi ósönn skilaboð um að Sólheimar verji op-
inberu fé af fjárlögum í nýjar byggingarfram-
kvæmdir. Hið rétta er að allar nýframkvæmdir
undanfarna áratugi hafa verið fjármagnaðar af
Styrktarsjóði Sólheima með eigin fjáröflun
hans, gjöfum og sérgreindum framlögum.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar staðfestir að
fjárveitingar til Sólheima hafa ekki hækkað um-
fram fjárveitingar til málaflokks fatlaðra.
Skýrslan staðfestir einnig að rekstur Sólheima
hafi verið í samræmi við fjárveitingar á fjár-
lögum allan þennan tíma. Slíkt hlýtur að vera
öllum fagnaðarefni og til fyrirmyndar.
Byggðahverfi þar sem fatlaðir og ófatlaðir
starfa og búa, eru nú á annað hundrað í yfir 30
þjóðlöndum. Slíkum stöðum hefur farið ört
fjölgandi hin síðari ár.
Þessir staðir njóta hvarvetna velvildar og öfl-
ugs stuðnings opinberra aðila, sem meta mikils
gildi og þýðingu þeirra fyrir samfélagið. Sér-
staða og sjálfstæði er metið og viðurkennt af
stjórnvöldum. Þau leggja áherslu á sjálfstæði
gagnvart opinberum aðilum. Ríkisvaldið getur
ekki sett þeim önnur skilyrði en að þeir verða
sem sjálfseignarstofnanir að hafa löggilta end-
urskoðendur og leita staðfestingar á skipulags-
skrá sinni. Þá verða þeir að sjálfsögðu að starfa
innan ramma þeirra laga, sem um málaflokkinn
gilda á hverjum tíma. Opinberir aðilar hafa ekki
afskipti af starfsemi þeirra eða hvernig þeir
verja fjármunum sínum. Öllum tekjum þ.e. op-
inberum framlögum, styrkjum og söfnunarfé
ráðstafar sjálfseignarstofnunin sjálf til reksturs
og uppbyggingar samfélagsins í heild. Á þessu
grundvallaratriði byggist tilvist þessara staða.
Afskipti ríkisendurskoðunar viðkomandi lands
af málefnum staðanna eru engin enda óþörf, þar
sem fyrirfram er búið að meta og verðleggja þá
þjónustu sem hið opinbera kaupir og þjónustu-
kerfið nýtur viðurkenningar eftir áratuga starf.
Má sem dæmi nefna að í Noregi voru settar
reglur til að tryggja sjálfstæði staða eins og Sól-
heima gegn skrifræði og forsjárhyggju hins op-
inbera.
Aðgát skal höfð …
Íbúar Sólheima, sem eru um eitt hundrað, þar
af 85 fullorðnir og 15 börn, eiga kröfu á að fjallað
sé um heimili þeirra af þekkingu og virðingu og
að friður skapist um hið viðkvæma starf sem
unnið er á Sólheimum.
Framkvæmdastjórn Sólheima elur því þá von
í brjósti að gott samstarf muni ríkja milli nýs fé-
lagsmálaráðherra og Sólheima og áfram verði
skilningur hjá öðrum ráðamönnum þjóðarinnar
á eðli og gildi starfsins á Sólheimum.“
Yfirlýsing stjórnar Sólheima vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar um reksturinn 1996–’99
Sólheimar hafa
staðið við allar
skuldbindingar
ÍSLENSKA liðið sem keppnir í
opna flokknum á Norðurlandamótinu
í Færeyjum hefur verið lengi í gang
en fyrri umferð mótsins er nú lokið.
Liðið byrjaði á að tapa fyrstu tveimur
leikjunum, 13:17 fyrir Finnum og
Færeyingum, gerði síðan jafntefli við
Norðmenn, 15:15, og tapaði loks fyrir
Dönum, 7:23. Útlitið var því ekki gott.
En í 5. umferð á þriðjudagskvöld,
þegar Ísland spilaði við Svíþjóð,
brosti stríðsgæfan skyndilega við Ís-
lendingum. Ef marka má fjölsveitaút-
reikning á heimasíðu mótsins hafa
Bjarni Einarsson og Þröstur Ingi-
marsson ekki náð sér á á strik og Guð-
mundur Páll Arnarson fyrirliði brá á
það ráð að spila sinn hvorn hálfleikinn
við þá Bjarna og Þröst. Þetta dugði og
Ísland vann stórsigur á Svíum, 25:4. Á
sama tíma unnu Færeyingar Norð-
menn, 17:13 en Færeyingar hafa
komið á óvart með góðri frammi-
stöðu. Þá lögðu Finnar einnig Dani
17:13 og þegar síðari umferðin hefst í
dag er allt í járnum.
Danir hafa forustu með 84 stig,
Norðmenn hafa 83 stig, Svíar 74, Ís-
lendingar 73, Færeyingar 65 og Finn-
ar 64. Nú er vonandi að Íslending-
arnir komi tvíefldir til leiks eftir
frídaginn en í dag spila þeir við Finna,
Færeyinga og Norðmenn.
Í kvennaflokki hefur íslenska liðinu
gengið illa. Liðið vann Færeyinga,
16:14, en tapaði fyrir Dönum, 12:18,
fyrir Finnum, 8:22, fyrir Norðmönn-
um, 4:25 og Svíum, 3:25. Liðið er í 6.
og neðsta sæti með 43 stig en efstir
eru Svíar með 98 stig, þá Finnar með
96 stig, Danir með 91, Norðmenn með
65 og Færeyingar eru með 49 stig.
Þvinguð slemma
Þótt íslenska liðinu hafi ekki gengið
sem best í fyrstu leikjunum sýndu
liðsmennirnir þó stundum gamal-
kunna takta. Í þessu spili, úr leiknum
við Norðmenn, vann Þorlákur Jóns-
son 6 spaða með skemmtilegri þving-
un.
Norður
♠ D743
♥ G1043
♦ K8
♣K85
Vestur Austur
♠ 9 ♠ 1086
♥ 9762 ♥ K5
♦ G1065 ♦ 97432
♣ÁD103 ♣942
Suður
♠ ÁKG52
♥ ÁD8
♦ ÁD
♣G76
Eftir að Þorlákur opnaði á 2 grönd-
um með suðurspilin varð hann sagn-
hafi í 6 spöðum sem litu ekki sérlega
vel út eftir að vestur spilaði út tíg-
ulgosa. Þorlákur tók heima með
drottningu og síðan þrisvar tromp og
endaði í borði. Þar hélt hann af stað
með hjartagosa. Austur lagði kónginn
á og Þorlákur drap með ás og spilaði
laufi á kóng sem hélt slag.
Nú tók Þorlákur hjartadrottn-
inguna og trompin sem eftir voru og
lokastaðan var þannig:
Norður
♠ --
♥ 104
♦ --
♣85
Vestur Austur
♠ -- ♠ --
♥ 97 ♥ --
♦ -- ♦ 97
♣ÁD ♣92
Suður
♠ --
♥ 8
♦ Á
♣G7
Þegar Þorlákur tók tígulás var
vestur þvingaður. Henti hann hjarta
biðu tveir hjartaslagir í borði. Vestur
henti því laufaás, enda vitað að hann
átti það spil, en Þorlákur las stöðuna
rétt. Hann henti hjartafjarkanum í
borði og spilaði laufasjöunni að heim-
an og fékk tvo síðustu slagina á
hjartatíu og laufagosa.
Sigur á Svíum bætti
stöðu Íslendinga á NM
Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson spila við Finna í Þórshöfn. Myndin er tekin úr mótsblaðinu.
Brids
Þórshöfn, Færeyjum
Norðurlandamótið í brids er haldið í Þórs-
höfn í Færeyjum dagana 19.-23. maí. Vef-
slóð mótsins er www.bridge.fo.
NORÐURLANDAMÓT
Guðm. Sv. Hermannsson
Aðalfundur Nýrrar dögunar
Ný dögun, samtök um sorg og sorg-
arviðbrögð, heldur aðalfund sinn í
Safnaðarheimili Háteigskirkju, 2.
hæð, í dag, fimmtudag 22. maí, kl.
20. Á dagskrá eru venjuleg aðal-
fundarstörf.
Bílskúrssala til styrktar viðhalds-
sjóði orgels Kristskirkju, Landa-
koti tekur við varningi í dag,
fimmtudaginn 22. maí, og á morgun,
föstudaginn 23. maí, kl. 17–19 að Há-
vallagötu 16. Bílskúrssalan verður
laugardaginn 24. og sunnudaginn 25.
maí kl. 12–17, báða daga að Hávalla-
götu 16. Ágóði af sölunni rennur í
viðhaldssjóð orgels Kristskirkju,
Landakoti.
Í DAG
Fyrirlestur í Líffræðistofnun Há-
skólans verður á morgun, föstudag-
inn 23. maí kl. 12.20 að Grensásvegi
12, í stofu G-6. James A. Coyer frá
Ríkisháskólanum í Groningen (RuG)
í Hollandi verður með fyrirlestur um
stofnerfðafræði og útbreiðslu sag-
þangs (Fucus serratus) eftir ísöld.
Fyrirlesturinn er á ensku.
Fundur Sænsk-íslenska versl-
unarráðsins fellur niður. Morg-
unverðarfundur Sænsk-íslenska
verslunarráðsins með Kai Hamm-
erich sem halda átti á morgun, 23.
maí, fellur niður af óviðráðanlegum
orsökum.
Á MORGUN
Astma- og ofnæmisfélagið held-
ur fjölskyldudag fyrir félagsmenn
sunnudaginn 25. maí kl. 13–16, á
Reykjalundi. Endurhæfing-
armiðstöð Reykjalundar býður upp
á aðstöðu í nýjum íþróttasal og inni-
sundlaug. Auk þess verður boðið
uppá borðtennis, hoppkastala og
ratleik. Allir félagsmenn og fjöl-
skyldur þeirra eru velkomin og er
aðgangur ókeypis. Æskilegt er að
skrá þátttöku fyrir föstudaginn 23.
maí í síma eða með tölvupósti
ao@ao.is
Oddastefna, ráðstefna Odda-
félagsins, verður haldin laugardag-
inn 24. maí kl. 14–18, í húsakynnum
fræverkunarstöðvar Landgræðslu
ríkisins í Gunnarsholti á Rang-
árvöllum. M.a. verður fjallað um
sókn og sigra í baráttunni gegn
sandfoki og gróðureyðingu, einkum
í Rangárþingi o.fl. Erindi halda:
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri, Jóhann Thorarensen, jarð-
fræðingur og Magnús H. Jóhanns-
son líffræðingur. Einnig verður
fræðsluferð upp á Gára skammt
norður af Gunnarsholti, leið-
sögumaður verður Sveinn Runólfs-
son landgræðslustjóri. Fundarstjóri
verður Friðjón Guðröðarson, fyrrv.
sýslumaður Rangárvallasýslu.
Fyrirlestrar um uppbygging-
arstefnuna í skólastarfi. Diane
Gossen kennslufræðingur frá Kan-
ada heldur námskeið og fyrirlestra
um „uppbyggingarstefnuna“ í skóla-
starfi sem svo hefur verið nefnd, en
hún er höfundur hennar. Uppbygg-
ing fjallar að mestu leyti um að ná
aftur jafnvægi og sjálfstrausti.
Námskeiðin verða um næstu mán-
aðamót á Álftanesi, í Garðabæ og
Grafarvogi og að auki verður eitt
opið námskeið í Endurmenntun Há-
skóla Íslands 30. maí kl. 13-17.
Námskeiðið heitir Uppeldi til
ábyrgðar.
Á NÆSTUNNI
Nafn féll niður
Vegna mistaka láðist að geta þess
að Sigurður Benediktsson tók mynd-
ina af flugvélinni TF-FTL, sem birtist
með frétt á bls. 2 í blaðinu sl. þriðju-
dag. Er Sigurður beðinn afsökunar.
Skilvinda, ekki mjaltavél
Rangt var farið með heiti vélar á
mynd Vigfúsar Sigurgeirssonar er
fylgdi grein Braga Ásgeirssonar í
gær. Vélin er skilvinda en ekki
mjaltavél eins og sagði í myndartexta.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Hvalfjarðarströnd
Bærinn Eystra-Miðfell er á Hval-
fjarðarströnd, en ekki Hvalfjarðar-
sveit, eins og sagt var í frétt blaðsins
um áfangaskýrslu rannsóknanefndar
flugslysa í gær. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.
Orkustofnun
Orkustofnun heitir aðeins Orku-
stofnun en ekki Orkustofnun Íslands
eins og sagt var í frétt blaðsins um
Kleifarvatn í gær. Skammstöfun
stofnunarinnar er því OS en ekki OÍ
eins og fram kom. Einnig var vatns-
borð Kleifarvatns það lægsta sem
mælst hefur í júlí árið 2002, en ekki
2001 eins og þar kom fram. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT