Morgunblaðið - 22.05.2003, Síða 42

Morgunblaðið - 22.05.2003, Síða 42
DAGBÓK 42 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Akraberg kemur í dag. Dettifoss, Freri og Helgafell fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ozherlye og Haukur koma í dag. Silver Pearl og Gerda Maria fara í dag. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og opin handa- vinnustofa, kl. 9–12.30 bókband og öskjugerð, kl. 9.45–10 helgistund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13–16.30 op- in smíða og handa- vinnustofa. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 16 handavinna, kl. 9– 17 fótaaðgerð, kl. 14– 15 dans. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–12 íkonagerð, kl. 10– 13, verslunin opin, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað og opin handa- vinnustofa, kl. 14 söng- stund. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–12 bað, kl. 9 glerskurður, kl. 10 leikfimi, kl. 13.30 söngtími, kl. 9–14 hár- greiðsla. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hár- greiðsla, kl. 13 föndur og handavinna. Kl. 15 bingó Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Hand- verkssýning 24.–26. maí opin laugardag, sunnudag og mánudag frá kl. 13–17. Veit- ingasala – kaffi og vöfflur m/rjóma. Sýn- ingarfólk, sýning- armunir þurfa að ber- ast í dag. Rúta frá Hraunseli í dag kl.13.15 í Alþingishúsið og Gerðasafn. Gerðuberg, fé- lagsstarf, kl. 10.30 helgistund, frá hádegi vinnustofur og spila- salur opinn. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, kl. 9.05 og 9.50 leik- fimi, kl. 10.50 leikfimi, kl. 9.30, klippimyndir, kl. 13 gler- og postu- línsmálun, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línu- dans. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið frá kl. 9–17, handavinnustofan opin frá kl. 13–16. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna og perlu- saumur, og hjúkr- unarfræðingur á staðnum, kl. 9.05 leik- fimi, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé- lagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 bútasaumur, kl. 10 boccia, 13.30 félagsvist. Fótaaðgerðir, hár- greiðsla. Korpúlfar, Graf- arvogi, samtök eldri borgara, félagar hitt- ast á fimmtudögum kl. 10, aðra hverja viku er púttað á Korpúlfs- stöðum en hina vikuna er keila í Keilu í Mjódd. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 13– 16.45 leir, kl. 10–11 ganga. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 bað, kl. 9.15–15.30, handavinna, kl. 10–11 boccia, kl. 10.15–11.45 enska, kl. 13–14 leik- fimi, kl. 13–16 kóræf- ing og mósaik. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 gler- skurður og morg- unstund, kl. 10 fótaaðgerð og boccia- æfing, kl. 13 hand- mennt og spilað. Félag eldri borgara, Selfossi. Ráðgert er að fara í ferð á Snæfells- nes 11. til 12. júní, far- arstjóri og leið- sögumaður Óskar Ólafsson. Skoðaðir verða helstu sögu- staðir Eyrbyggju og Bárðar sögu Snæfells- áss. Fyrirhuguð er kvöldsigling frá Stykk- ishólmi með veislu- borði. Gist verður í Ólafsvík. Pantanir í síma 482-4117 eða 482- 2938. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13. Skrán- ing kl. 12.45 spil hefst kl. 13. Skaftfellingafélagið í Reykjavík. Aðalfund- urinn verður í Skaft- fellingabúð, Laugavegi 178, í kvöld, klukkan 20.30. Hefðbundin að- alfundarstörf. Orlofsnefnd hús- mæðra í Kópavogi Vegna forfalla eru örfá sæti laus í hringferð um landið 11. til 16. júní. Upplýsingar í s. 554 0388, Ólöf, eða s. 554 2199/847 7061, Birna. Minningarkort Minningarkort Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar (KH), er hægt að fá í Bóka- búð Böðvars, Reykja- víkurvegi 64, 220 Hafnarfirði, s. 565- 1630, og á skrifstofu KH, Suðurgötu 44, II. hæð, sími á skrifstofu 544-5959. Í dag er fimmtudagur 22. maí, 142. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Augað er lampi lík- amans. Sé auga þitt heilt, mun all- ur líkami þinn bjartur. (Matt. 6, 22.)     Á pólitísku vefritunumer sem betur fer oft- sinnis fjallað um grund- vallaratriði stjórnmála og kafað niður fyrir oft og tíðum yfirborðskennda umræðu og notkun hug- taka.     Á frelsi.is birtist í gærpistill um þjóðern- issósíalisma, öðru nafni nasisma, og því mótmælt, að hann eigi nokkuð skylt við hugmyndafræði ís- lenskra hægrimanna, þótt báðar stefnur séu oft kallaðar „öfga-hægri- stefna“.     Skiljanlegt er að ungirhægrimenn á Íslandi vilji ekki sitja undir slík- um málflutningi.     Höfundur segir:„Reykjavík var ein af menningarborgum Evr- ópu árið 2000 og í tilefni af því opnaði forseti Ís- lands vísindavefinn í byrj- un þess árs. Á Vís- indavefnum er fjallað um flestöll viðurkennd vís- indi, svo sem stjarnvís- indi, félagsvísindi, hag- fræði, heimspeki, tölvunarfræði og fleira.     Lesendur geta fræðstum svör við spurn- ingum sem þegar hafa komið fram og einnig lagt fram nýjar spurn- ingar um hvaðeina sem gert er ráð fyrir að fræði- menn við háskólann og aðrir aðstandendur vefs- ins geti svarað.     Ein spurning sem borinvar undir aðstand- endur vefsins fyrir nokkru beindist að þekktri stjórnmálastefnu. Spurt var: ‚‚Hver er mun- urinn á þjóðernissósíal- isma og nasisma?‘‘     Svarið er ákaflegaskýrt. Á vísinda- vefnum segir ‚‚Þessi mun- ur er nákvæmlega enginn eftir því sem við vitum best. Þetta eru tvö orð um sama hlutinn og ann- að raunar upphaflega til komið sem stytting á hinu. Þjóðernissósíalismi heitir Nationalsozial- ismus á þýsku og íslenska orðið er bein þýðing á því orði. Upphaf þess er bor- ið fram með skýru ts- hljóði („nats-“). Bókstaf- urinn „z“ er einnig bor- inn þannig fram í þýsku, svo að framburður orðs- ins er eins og það hefði verið skrifað „Naz-“. Þannig varð til styttingin Nazismus og einnig til dæmis nafnorðið Nazi, nasisti.‘‘     Íslendingar hafa oft kall-að þjóðernissósíal- ismann öfga-hægristefnu. Slík hugtakanotkun byggist í raun á miklum misskilningi. Hægri- stefna byggist á dreifingu valds og virðingu fyrir sérhverjum einstaklingi. Sósíalisminn, hvert sem formerki hans er, byggist á gagnstæðri hugmynd,“ segir á frelsi.is. STAKSTEINAR Hvað er öfga-hægri- stefna? Víkverji skrifar... EKKI er langt síðan aðákveðið var að lengja skólaár grunnskólanna og í stað þess að nemendur skoppi glaðir út í sumarið um miðjan maí lýkur próf- um ekki fyrr en í byrjun júní. Og í þokkabót byrjar skólinn fyrr á haustin en áð- ur. Víkverja, sem hefur bæði verið nemandi og kennari í grunnskóla, hefur aldrei fundist þessi lenging sérlega sniðug. Hann er þó tilbúinn að fallast á að þetta hafi að einhverju leyti verið til bóta fyrir nemendur á aldrinum 6-12 ára (svona um það bil). Það væri þó lík- lega réttara að segja að breytingin hafi verið til bóta fyrir foreldra þeirra. Einhver þarf þó að gæta barnanna á sumrin en sumarfrí full- orðna fólksins eru sjaldnast jafn löng og barnanna og með því að bæta ein- hverjum vikum við skólaárið var um leið tryggt að þau yrðu lengur í pöss- un. Breytingin kom því foreldrum til góða en Víkverji er alls ekki viss um að börnin hafi grætt mikið á þessu. Það má á hinn bóginn halda því fram að breytingin hafi verið nauðsynleg í ljósi breyttra aðstæðna í samfélaginu og allt það. Víkverja finnst hins veg- ar fráleitt að halda unglingum inni í skólastofunum fram í júní. Hann veit af eigin reynslu að oft verður lítið úr kennslu þegar sólin skín og hár bær- ist vart á höfði utan dyra. Nemend- urnir vilja miklu frekar sparka í fót- bolta, leika sér í snú-snú eða bara gera eitthvað annað en að spá í náms- efni sem þau hafa „stúderað“ allan veturinn. Víkverji er sannfærður um að afar lítið bókvit bætist við í kollinn á nemendum þessa síðustu daga skólaársins og því sé til lítils að halda þeim inni í skólunum jafn lengi og raun ber vitni. Stórhætta er einnig á að þetta stuðli að skólaleiða sem hrjáir marga nemendur, a.m.k. ef marka má brottfall úr mennta- skólum. Að mati Víkverja væri mun skynsamlegra að finna eitthvað handa unglingunum að gera utandyra. Unglingavinnuna mætti t.d. efla enn frekar og bæta þar við verkefnum og auka fræðslu. Það mætti t.d. hugsa sér að unglinga- vinnan byði upp á nám í smíði og málaraiðn. Land- græðsluverkefni eða girð- ingarvinna væru einnig til- valin. Víkverji er viss um að nemendur myndu taka slík- um verkefnum fegins hendi ef þeir fengju að sleppa við skólann í staðinn. Styttum skólárið! x x x ÚR því að sumarið er örugglegakomið finnst Víkverja tilvalið að minnast á gamalt baráttumál sitt; göngustíga milli sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu. Það er með ólík- indum að ekki skuli vera hægt að ganga eða hjóla eftir stígum milli Reykjavíkur og Kópavogs og þaðan yfir til Garðabæjar, Hafnarfjarðar og út á Álftanes, nema með því að fara verulegar krókaleiðir. Með því að leggja stíg yfir Kópavogshálsinn og Arnarneshæðina væri komin mjög góð tenging milli sveitarfélaganna. Eftir hverju eru Kópavogsbúar og Garðbæingar að bíða? Skóladagarnir geta liðið hægt á sumrin. Morgunblaðið/Jim Smart Grjóthrun og holóttir malarvegir í Bryggjuhverfi LIÐIÐ er rösklega ár síðan ég flutti í Bryggjuhverfið við Grafarvog og uni mér ágætlega þar, enda hverfið ágætlega snoturt og ná- grannarnir flestir viðkunn- anlegir. Hitt gremst mér hve vegirnir inn í og út úr hverfinu eru slæmir. Tvær leiðir eru út úr hverfinu: annars vegar eftir Sævar- höfðanum þar sem reglu- lega fellur grjót úr berg- hamrinum sem slútir yfir veginn og aðeins tímaspurs- mál hvenær þar verður kostnaðarsamt eða jafnvel mannskætt slys. (Þess má geta í því sambandi að oft- ast eru skemmdir á undir- vagni bíla vegna grjóts ekki tryggðar skv. skilmálum.) Hin leiðin út úr hverfinu er upp malarveg í skötulíki sem liggur milli Sævar- höfða og Stórhöfða og er bæði holóttur og þröngur og ekkert vegrið til að varna bílum aka út af veginum og velta niður eftir hlíðinni sem gnæfir yfir hverfinu. Þessi vegur er einnig slysa- gildra, enda tímaspursmál hvenær bíll skrikar í regni eða snjó og steypist fram af. Í ofanálag aka þarna um malarflutningabílar sem margir eru ofhlaðnir svo að malartaumarnir liggja aftur úr þeim og þekja vegina á svæðinu með möl og grjóti sem skapa hættu á grjót- kasti. Til að bæta gráu ofan á svart virðast líka iðulega falla trjágreinar og ýmis- legt rusl af kerrum gesta Sorpustöðvarinnar við Sæv- arhöfða. Þó að vissulega felist í því skemmtileg áskorun að fást við þessa hindrunarbraut í hvert skipti sem ég kem og fer heiman frá mér er ég orðinn á þessu þreyttur. Ég geri því þá kröfu til þeirra sem hafa með gatnagerð að segja að girt eða múrað verði fyrir hamarinn sem eys grjótinu yfir Sævar- höfðann og að vegtroðning- urinn upp á Stórhöfðann verði bæði malbikaður og sett á hann vegrið. Loks þurfa malarbílstjórarnir að fylla bíla sína skynsamlegar svo ekki rigni grjóti aftan úr þeim og hreinsunardeildir að vera iðnar að sópa möl af Sævarhöfðanum og tína burt rusl sem fellur af kerr- um Sorpugesta. Bryggjubúi. Siðblinda í Soprano Í FYRRGREINDUM þætti sjónvarpsins mánu- dagskvöldið 28. apríl sl. var sýndur þvílíkur sori að undrun sætir. Í þættinum myrti Tony, aðalpersóna þáttarins, mann. Í kjölfarið fór annað varmenni illa með líkið. Þátturinn hélt síðan áfram eins og ekkert hefði í skorist, glæpamennirnir hlutu enga refsingu. Þvílík- ur skepnuskapur var látinn óátalinn. Þess var getið í Morgun- blaðinu 6. maí hversu vel skrifað sjónvarpsefni væri hér á ferðinni. Þvílík firra. Páll Hannesson. Tapað/fundið Skinnennis- band fannst FYRIR u.þ.b. mánuði fannst skinnennisband við Suðurströndina á Seltjarn- arnesi. Sakni einhver enn- isbandsins er ráð að hafa samband í síma 552 5259. Hálsmen tapaðist HÁLSMEN í stórri svartri öskju tapaðist eftir hádegi sl. mánudag á bílastæðinu fyrir utan Suðurver. Háls- menið er gróft silfurháls- men með bláum steinum. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að skila háls- meninu á Gullsmíðaverk- stæði Jens í Suðurveri eða til lögreglunnar í Reykja- vík. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Ljósmynd/Guðlaugur Wium LÁRÉTT 1 heyhrúga, 4 rassa, 7 miskunnarlaus, 8 tákn, 9 ílát, 11 slá kaldan, 13 kostar lítið, 14 froða, 15 sæti, 17 þurrka út, 20 áburður, 22 hagnast, 23 magran, 24 magurt dýr, 25 reiði. LÓÐRÉTT 1 hjálpar, 2 sitt á hvað, 3 anga, 4 á rúmstokki, 5 nákomin, 6 verur, 10 smjördamla, 12 máttur, 13 tryllta, 15 næðingur, 16 ekki fætt, 18 heimsk, 19 óskar, 20 fæða, 21 varningur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 munnræpan, 8 lærum, 9 taldi, 10 una, 11 set- ur, 13 rindi, 15 brags, 18 ílepp, 21 tóg, 22 lokka, 23 urg- ur, 24 krippling. Lóðrétt: 2 umrót, 3 nemur, 4 æstar, 5 allan, 6 flas, 7 hiti, 12 ugg, 14 ill, 15 boli, 16 askur, 17 stamp, 18 ígull, 19 eggin, 20 part. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.