Morgunblaðið - 22.05.2003, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6.
Frábær
rómantísk
gamanmynd
sem hefur
allstaðar
slegið
í gegn.
Sýnd kl. 8. B.i.14. Sýnd kl. 10. B.i.12 ára.
Sýnd kl. 6, 8, 9 og 10.15. B. i. 12 ára.
Sýnd kl. 6 .
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is
SV MBLHK DV
SG Rás 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20. / Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20. / Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 4 og 6. / Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI / AKUREYRI
Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6. Íslenskt tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8.
KEFLAVÍK
KVIKMYNDIR.COM
Í KVÖLD Í AUSTURBÆ VIÐ SNORRABRAUT KL. 21
Forsala í Japis, Laugavegi 13
í dag og í Austurbæ frá kl. 19
skiljanlega því frammistaða allra var
til sóma. Leikstjórn Sólveigar styrk,
næm og óvenju blátt áfram miðað við
hátíðarmyndir almennt. Hún virðist
og hafa einkar næmt auga fyrir leik-
aravali því öll eru þau sem sniðin í
hlutverk sín Bouchez, Didda, Baltas-
ar og Ingvar. Líkt og til var ætlast
eru þær Bouchez og Didda svart og
hvítt og ná saman eins og hinar full-
komnu aðstæður einungis geta. Balt-
asar leikur vel lækninn sem liðsinnir
Coru í Eyjum; einhleypur, skilnings-
ríkur og staðfastur á að sjúklingur
sinn þurfi enga utanaðkomandi að-
stoð. Ingvar gefur honum lítið eftir í
viðlíka burðarhlutverki, sem ekki
verður nánar farið út í hér, til að gefa
ekkert upp um afdrif sjúklingsins í
Eyjum. Bouchez þykir ein efnileg-
asta leikkona Frakklands um þessar
mundir og sýnir í myndinni hvers
vegna, veldur vel hlutverki sem hún í
fyrstu virðist heldur of ung fyrir. Af
öðrum ólöstuðum er það þó Didda
sem stelur senunni, fer ótrúlega vel
með að virðist afar vandasamt hlut-
verk sjúklingsins, túlkar hann af
stakri virðingu, miklum skilningi og
þvílíkum krafti að maður getur vart
ímyndað sér að faglærður leikari,
sama hversu frægur, hefði getað
gert betur.
Fyrstu viðbrögð gagnrýnenda eru
samhljóma blaðamanni því í umsögn
kvikmyndaritsins Screen Internatio-
nal er framlags Diddu til myndarinn-
ar sérstaklega getið, að hún hafi náð
með þögnina að vopni og einstaka
bræðisköstum að skapa trúverðuga
persónu. Framlags Baltasars og
Ingvars er einnig getið í dómnum og
sagt að Sólveig Anspach hafi tekist
að gera öðruvísi mynd um erfiðleika
geðsýkinnar, draga upp trúverðuga
mynd af sambandi geðlæknis og
sjúklings þar sem gefið er í skyn að
lausnin liggi ekki alltaf í vísindunum
heldur geti náttúran spilað þar einn-
ig stóra rullu. Screen International
spáir því að Stormviðrið eigi eftir að
ganga vel á kvikmyndahátíðum og
verði vel tekið þegar hún birtist á
sjónvarpsskjánum.
Þekkti Diddu ekkert
„Það er auvitað mikill heiður að fá
mynd sína sýnda á opinberri dag-
skrá í Cannes,“ sagði Sólveig í sam-
tali við blaðamann, daginn eftir
frumsýninguna. „Viðtökurnar sem
við fengum í gær (fyrradag) voru
vonum framar og ég er eiginlega
ekki enn farin að átta mig á þessu
ÞAÐ leyndi sér ekki á lófatakinu að
lokinni frumsýningu á íslensk-
frönsk-belgísku myndinni Storm-
viðri (Stormy Weather) á þriðju-
dagskvöldið að myndin féll vel í
kramið hjá áhorfendum. En aldrei
þessu vant voru það þó ekki fagn-
aðarlæti að lokinni sýningu sem best
gáfu velþóknunina til kynna heldur
sú staðreynd að mjög fáir yfirgáfu
salinn á meðan sýningu myndarinn-
ar stóð. Nokkuð sem þykir með
sanni gæðastimpill á mynd sem sýnd
er á hátíð þar sem samtímis er sýnd-
ur fjöldinn allur af vönduðum nýjum
kvikmyndum þannig að hátíðargest-
ir eiga jafnan í stökustu vandræðum
með að velja og hafna.
Áður en sýning myndarinnar hófst
kallaði framkvæmdastjóri Cannes
kvikmyndahátíðarinnar, Thierry
Frémaux, helstu aðstandendur á
svið, þar á meðal Sólveigu Anspach
leikstjóra, Baltasar Kormák leikara
og einn framleiðenda, Diddu og
Ingvar E. Sigurðsson. Sýning á
Stormviðri var liður í svokallaðri Un
Certain Régard-dagskrá, þeim hluta
Cannes-hátíðarinnar sem næst-
mesta athygli hlýtur jafnan á eftir
aðalkeppninni sjálfri. Þess má líka
geta að Sigríður Snævarr, sendi-
herra Íslands í Frakklandi, og
starfsmenn kvikmyndamiðstöðvar-
innar voru á staðnum einnig.
Næm og styrk
Stormviðri er mynd um vináttu
milli Coru, fransks geðlæknis, leik-
inn af Elodie Bouchez, og sjúklings
hennar, sem skáldkonan Didda leik-
ur. Sjúklingurinn, sem nýverið var
lagður inn, neitar að tjá sig og ekki
er vitað um uppruna hennar. Geð-
læknirinn ungi og metnaðarfulli ein-
setur sér að hjálpa sjúklingi sínum
að ná aftur fótfestu í lífi sínu en rétt
um það bil og þær eru að ná saman
komast sjúkrahúsyfirvöld að því að
sjúklingurinn er íslensk kona sem
hvarf frá heimili sínu í Vestmanna-
eyjum nokkrum vikum áður. Án vit-
undar Coru er sjúklingurinn sendur
til síns heima og í geðshræringu
vegna þessara tíðinda heldur Cora til
Vestmannaeyja til að hafa uppi á
hinum dularfulla sjúklingi. Veður-
teppt í Eyjum sökum stormviðris
kemst geðlæknirinn franski að
mörgu óvæntu, mörgu sem hún er
alls ekki tilbúin til að sætta sig við.
Sólveigu og leikurum hennar var
fagnað mjög er þau risu úr sætum
sínum að lokinni frumsýningunni og
Kvikmyndahátíðin í Cannes
Hlýr Stormur
Kvikmyndin Stormviðri eftir Sólveigu Anspach fær
mjög góðar viðtökur í Cannes. Skarphéðinn Guð-
mundsson fylgdist með viðbrögðum og tók hina
farsælu kvikmyndagerðarkonu tali.
LOGI Bergmann og Gísli Mar-
teinn dvelja í Ríga þessa dagana í
aðdraganda Evróvisjón. Logi hef-
ur stofnað sér blogg-skjóðu á
riga2003.blogspot.com og er ólat-
ur að segja frá því sem fyrir augu
ber. Meðal þess nýjasta í skjóð-
unni er alls konar skemmtilegt
slúður og hneykslissögur.
Meðal annars segir Logi að sög-
ur séu á kreiki um að æfingar
Tatú-píanna gangi furðulega fyr-
ir sig og sú dökkhærða, Julia, ráði
ekki við háu nóturnar svo bak-
raddasöngkona muni „döbba“
fyrir hana. Einnig lýsir Logi
furðu sinni á austurríska kepp-
andanum sem leiddi blaðamenn út
í port þar sem hann hljóp á eggj-
um, setti á sig hænsnagrímu og
gaggaði. Þess utan er hann alltaf í
sömu fötunum og verður með
mömmu sína á sviðinu þegar hann
keppir.
Bloggað frá Ríga
Logi Bergmann