Morgunblaðið - 08.06.2003, Page 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 2003 35
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur hlýhug, vináttu og samúð vegna andláts
og útfarar ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR HELGADÓTTUR,
Árskógum 2,
áður Goðheimum 21.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkr-
unarheimilinu Skógarbæ fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Gunnar Alexandersson, Katrín Óskarsdóttir,
Hafdís Alexandersdóttir, Gísli J. Friðjónsson,
Guðrún Sandra Gunnarsdóttir, Kristinn Albertsson,
Sigursteinn Gunnarsson, Ellen Ásdís Erlingsdóttir,
Guðrún Gísladóttir, Þórður Ágústsson,
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Kolbrún Edda Gísladóttir
og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
móður minnar, tengdamóður, ömmu, lang-
ömmu og vinkonu,
GUÐMUNDU H. H. GUÐMUNDSDÓTTUR,
Sólvallagötu 11,
Keflavík.
Sigrún Guðmundsdóttir, Eiríkur Hjartarson,
Helga Þ. Eiríksdóttir,
Ingibjörg Eiríksdóttir,
Guðmundur Hreinn Eiríksson,
Hlynur Gunnarsson,
Gunnar Valdimarsson.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FRIÐRIK FRIÐRIKSSON,
Fossgötu 2,
Eskifirði,
áður til heimilis á Landagötu 23,
Vestmannaeyjum,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu, Neskaupstað,
föstudaginn 23. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum hlýhug og vináttu við andlát og útför.
Guðrún Valgerður Friðriksdóttir, Ásbjörn Guðjónsson,
Sveinn Friðriksson, Kolbrún Sigurðardóttir,
barnabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vináttu við andlát og útför ok-
kar elskulegu móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
RÓSHILDAR SVEINSDÓTTUR.
Brynja Benediktsdóttir,
Jóhanna Benediktsdóttir,
Ingunn Benediktsdóttir,
Auður Jónsdóttir,
Erlingur Gíslason,
Högni Óskarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu við andlát og útför elskulegrar
dóttur okkar, barnabarns, barnabarnabarns og
frænku,
HRAFNHILDAR LÍFAR BALDURSDÓTTUR,
Hátúni 6,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við læknum og
hjúkrunarfólki á gjörgæsludeild Landspítalans,
Fossvogi.
Baldur Stefán Svavarsson, Sóley Sævarsdóttir,
Svavar Baldursson, Hrafnhildur Magnúsdóttir,
Sævar Hallgrímsson, Elísabet Guðfinna Jónsdóttir.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför bróður
okkar,
HALLDÓRS GUNNARS STEINSSONAR,
Austurbrún 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki öldr-
unardeildar B-4 Landspítala Fossvogi.
Herdís Steinsdóttir,
Fjóla Steinsdóttir Mileris.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
BJÖRNS PÁLSSONAR
fyrrverandi aðalbókara,
Aðallandi 1,
Reykjavík.
Helga Þórðardóttir,
Bolli Björnsson, Constanze Björnsson,
Björn Vignir Björnsson, Guðrún Nikulásdóttir,
Þóra Ragnheiður Björnsdóttir,
Ágúst Kr. Björnsson, Hildigunnur Guðmundsdóttir,
Þórunn Gyða Björnsdóttir, Stefán S. Stefánsson,
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför föður okkar, tengda-
föður, afa og bróður,
BJARNA DAGSSONAR,
Grænumörk 5,
Selfossi.
Guðmundur Bjarnason,
Þórlaug Bjarnadóttir, Karl Þórir Jónasson,
Bjarni Dagur og Valgerður Ósk,
Dagur Dagsson.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýjan hug við andlát
móður okkar og tengdamóður,
GUÐRÚNAR JAKOBSDÓTTUR
frá Holti,
áður húsfreyju á Víkingavatni.
Ragna S. Sveinsdóttir,
Sólveig A. Sveinsdóttir, Ágúst H. Bjarnason,
Benedikt Ó. Sveinsson, Gerður Ebbadóttir,
Jakob L. Sveinsson.
Guðrún Pedersen giftist 1943
Gerhart Sundet sjóliða í Den
Norske Marinen. Þegar stríðinu
var lokið héldu þau til Noregs og
settust að á fæðingarstað Ger-
harts, sem er lítil eyja í Stokksund
fyrir utan Þrándheim. Þar settu
þau bú, byggðu hús og Gerhart
stundaði fiskveiðar. Þau eignuðust
með tímanum sjö börn sem öll eru
fullorðin, vel gift og myndarleg,
barnabörn eru orðin 17 og lang-
ömmubörnin eru sex. Gerhart dó
1988.
Guðrún bjó um tíma ein í stóra
húsinu þeirra en flutti svo fyrir
tveimur árum inn í eigin íbúð fyrir
aldraða og kunni vel við sig á allan
hátt og ekki langt frá sínu gamla
húsi sem sonur hennar hafði tekið
við. Þar var garðurinn með blóm-
um og mikið af allskonar jurtum,
allt sem hún hafði plantað og séð
um í öll þessi ár.
GUÐRÚN
PEDERSEN SUNDET
✝ Guðrún Peder-sen Sundet fædd-
ist í Danmörku 20.
ágúst 1923. Hún lést
á heimili sínu í Nor-
egi 24. mars síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Salvör
Jónsdóttir og Niels
Pedersen.
Guðrún giftist
1943 Gerhart Sundet
sjóliða í Den Norske
Marinen, d. 1988.
Þau eignuðust sjö
börn, barnabörn eru
17 og langömmu-
börnin eru sex. Þau Gerhart
bjuggu á lítilli eyju í Stokksund
fyrir utan Þrándheim.
Útför Guðrúnar var gerð í
Stokköy.
Blóm og jurtir, það
voru áhugamál Guð-
rúnar og um þau vissi
hún allt. Það var gam-
an að ganga með
henni úti í náttúrunni,
um skóginn eða
móana, hún vissi allt
um gróðurinn. Hún
var dul og fámál í
daglega lífinu en það
sem hún hafði áhuga á
það vissi hún mikið
um.
Guðrún söng aldrei
og dansaði sjaldan en
átti margar óperur á
diskum og kunni mest af þeim. Yf-
irleitt alla klassíska músík vissi
hún mikið um og hlustaði á þegar
hún var ein.
Ef ég reyndi að skrifa um öll
áhugamál Guðrúnar og allt sem
hún vissi og kunni þá yrði þessi
grein löng – hún var það sem við í
Noregi köllum „tusen kunster“. Í
vöggugjöf var henni gefið mikið,
en allt í lífinu girti hana inni. Hún
giftist ung, eignaðist mörg börn og
bjó á lítilli eyju langt úti á sjó. Hún
átti góðan mann og myndarleg
börn, hún vissi það og kunni að
meta það. En hún hafði mikið hug-
myndaflug og það var svo margt
sem hana langaði að læra og margt
úti í heimi sem hana langaði að sjá.
Hún var mjög sérstök. Ég er syst-
ir hennar og árinu eldri og þekkti
hana mjög vel, við bjuggum langt
frá hvor annarri en töluðum mikið
saman í síma.
Guðrún, kæra systir, það verður
tómlegt eftir að þú ert farin. Þú
fórst hljóðlega og hógværlega
gegnum lífið og þú fórst jafnkyrr-
látlega út úr því, háttaðir og sofn-
aðir og vaknaðir aldrei meir. Við
munum alltaf muna þig, það var
mjög óvænt en „enginn veit sína
ævi fyrr en öll er“.
Fyrir hönd allra systkinanna og
fjölskyldu á Íslandi.
Anna Ingebretsen,
Stavern, Noregi.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Formáli
minning-
argreina