Morgunblaðið - 20.06.2003, Síða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞESSA heiðagæsarunga sem eru
nýskriðnir úr eggjunum myndaði
Friðþjófur Helgason ljósmyndari
á dögunum. Myndirnar eru tekn-
ar skammt frá nýju brúnni yfir
Jökulsá á Dal, sunnan við syðri
Kárahnjúkinn. Myndatakan er
hluti af upptökum á heimilda-
mynd um hálendi Íslands sem
Friðþjófur stendur að ásamt
Magnúsi Magnússyni.
Friðþjófur átti að vera í dóms-
sal daginn sem myndin var tekin
sem vitni í Héraðsdómi Vest-
fjarða vegna kæru gegn skip-
stjóranum á Bjarma BA út af
brottkasti. Í kjölfar þess að Frið-
þjófur kom ekki var gefin út
handtökuskipan á hendur honum
til að tryggja nærveru hans við
næstu réttarhöld sem verða 27.
júní nk. Friðþjófur sagði í samtali
við blaðið að hann myndi að sjálf-
sögðu mæta þá.
Ljósmynd/Friðþjófur Helgason
Nýskriðnir úr eggjunum við Kárahnjúk
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
karlmann á sjötugsaldri í eins mán-
aðar skilorðsbundið fangelsi og eins
árs ökuleyfissviptingu fyrir mann-
dráp, líkamstjón af gáleysi og um-
ferðarlagabrot í janúar 2002. Sam-
kvæmt ákæruskjali ók ákærði þá
fólksbifreið austur Suðurlandsveg á
röngum vegarhelmingi á þeim veg-
arkafla þar sem vegurinn liggur í all-
krappri beygju ofarlega í Kömbum,
án nægilegrar aðgæslu miðað við
akstursskilyrði, með þeim afleiðing-
um af bifreið hans skall framan á
jeppa sem ekið var í vestur.
Við árekstur bifreiðanna hlaut far-
þegi í framsæti bifreiðar ákærða svo
mikla áverka að hann lést nær sam-
stundis auk þess sem farþegar í báð-
um bifreiðum urðu fyrir líkamstjóni.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Guðrún Erlendsdóttir, Hrafn
Bragason, Ingibjörg Benediktsdótt-
ir, Markús Sigurbjörnsson og Pétur
Kr. Hafstein. Verjandi ákærða var
Friðjón Örn Friðjónsson hrl. Málið
sótti Sigríður J. Friðjónsdóttir, sak-
sóknari hjá ríkissaksóknara.
Fangelsi
fyrir mann-
dráp og
líkamstjón
VIÐ litla ánægju eigendanna hefur
tollgæslan á Keflavíkurflugvelli lagt
hald á 30 rafknúin hlaupahjól á síð-
ustu tveimur vikum eða svo. Eig-
endurnir eru yfirleitt ungir að árum
og eru á leiðinni heim með foreldr-
um sínum úr sólarlandaferð á Spáni.
„Það eina sem við getum gert er
að benda fólki á að kaupa hjólin
ekki á Spáni og að taka hjólin ekki
með sér. Því okkur er uppálagt að
halda þeim eftir þar til hjólin hafa
fengið skráningu hjá Skráningar-
stofunni,“ segir Kári Gunnlaugsson,
aðaldeildarstjóri tollgæslunnar.
Hjólin eru af ýmsum stærðum og
gerðum en flest eru þó aðeins með
kraftlítinn hjálparmótor sem dugar
ekki til að knýja hjólin einn og sér.
Engu að síður falla rafmagns-
hlaupahjólin í flokk með léttum bif-
hjólum og þurfa sem slík að fá sam-
þykki hjá Skráningarstofu. Kári
segir að hjólin kosti um 12.000 krón-
ur á Spáni.
Lárus Sveinsson, fulltrúi hjá
Skráningarstofunni, segir að á síð-
asta ári hafi dómsmálaráðherra úr-
skurðað að rafknúin hlaupahjól telj-
ist til léttra bifhjóla og því þurfi að
skrá þau eins og önnur vélknúin
ökutæki sem flutt eru til landsins.
Til að það megi gerast þurfa hjólin
að uppfylla sömu kröfur og gerðar
eru til léttra bifhjóla, þ.e. að á þeim
séu lág ökuljós, bremsu- og aftur-
ljós. Án slíks búnaðar eru hjólin
ólögleg hér á landi. Að auki verða
„ökumenn“ þeirra að hafa próf á
létt bifhjól en til þess þurfa þeir að
hafa náð 15 ára aldri.
Hjólin sem hrannast upp í
geymslum tollgæslunnar á Keflavík-
urflugvelli uppfylla ekki þessi skil-
yrði.
Ólögleg hlaupahjól hrann-
ast upp hjá tollgæslunni
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Tollgæslan hefur þegar lagt hald á 30 rafknúin, ólögleg hlaupahjól.
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær erfingja Einars
Sigurðssonar, fyrrverandi útgerðarmanns í Vest-
mannaeyjum, til að greiða Samtökum um kvenna-
athvarf 4,5 milljónir króna með dráttarvöxtum
vegna kaupa á húseigninni við Bárugötu 2 í
Reykjavík. Málsatvik voru þau að klausturreglan
St. Jósefssystur seldi samtökunum húsið undir
markaðsvirði eða á 39 milljónir króna til að styðja
mannúðarstarfsemi samtakanna.
Á veðbókarvottorði sem gefið var út við kaupin
kom ekki fram að erfingjarnir ættu forkaupsrétt.
Sá réttur var staðfestur með hæstaréttardómi og
voru sömu kjör og skilmálar úrskurðaðir líkt og
voru við viðskipti klausturreglunnar og samtak-
anna.
Þá höfðuðu samtökin mál á hendur erfingjunum
og kröfðust greiðslu á þeim mismun sem væri á
kaupverðinu og markaðsvirði eignarinnar sem
væri staðfest með mati dómkvaddra manna.
Hæstiréttur komst gær að þeirri niðurstöðu að
vegna þeirrar ákvörðunar erfingjanna að ganga
inn í kaupin á Bárugötu 2 hafi Samtök um kvenna-
athvarf beðið tjón sem næmi verðmismuninum
eða 4,5 milljónum króna. Í dómnum segir að sú
auðgun hafi verið óréttmæt þar sem eigandinn
hafi ekki tekið ákvörðun um að styrkja erfingjana
fjárhagslega. Með dómi sínum hnekkti Hæstirétt-
ur dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 29. október
2002 sem sýknaði stefndu af kröfum Samtaka um
kvennaathvarf. Málið dæmdu hæstaréttar-
dómararnir Gunnlaugur Claessen, Ingibjörg
Benediktsdóttir og Arnljótur Björnsson, fyrrver-
andi hæstaréttardómari. Lögmaður Samtaka um
kvennaathvarf var Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.
og lögmaður stefndu Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
hrl.
Gert að greiða Samtökum um
kvennaathvarf 4,5 milljónir
Í VEFRITI fjármálaráðuneytisins
er fjallað um greiðsluafkomu ríkis-
sjóðs fyrstu fimm mánuði ársins.
Áhrif af sölu ríkisfyrirtækja eru mik-
il á rekstur ríkisins þessa mánuði en
heildartekjur ríkissjóðs námu 108,7
milljörðum fyrstu fimm mánuði árs-
ins sem er 17 milljörðum meira en á
sama tíma í fyrra. Skatttekjur hafa
aukist um 2,2% að raungildi. Hreinn
lánsfjárafgangur er 7,4 milljarðar en
á sama tíma í fyrra var hann nei-
kvæður um 8,2 milljarða.
Töluverð hækkun er á inn-
heimtum veltusköttum, sem bendir
til þess að umsvif í efnahagslífinu séu
að aukast. Áberandi er aukning í inn-
flutningi nýrra bifreiða en tekjur af
nýjum bílum eru 45,8% hærri nú en á
sama tímabili í fyrra.
Ríkisútgjöld hafa hækkað um 5,5
milljarða frá því í fyrra og munar
mestu um 2,9 milljarða aukin útgjöld
til sjúkrahúsa, sjúkratrygginga og
heilsugæslu. Þá hafa greiðslur í At-
vinnuleysistryggingasjóð hækkað
um 800 milljónir og aðrir þættir al-
mannatrygginga hafa hækkað um
1,5 milljarða.
Vaxtagreiðslur ríkissjóða hafa
lækkað um 2,3 milljarða frá á sama
tíma í fyrra, fyrst m.a. vegna þess að
stór flokkur spariskírteina var á
gjalddaga í apríl 2002.
Greiðsluafkoma ríkis-
sjóðs janúar til maí 2003
Lánsfjár-
jöfnuður já-
kvæður um
7,4 millj-
arða króna
♦ ♦ ♦
HÆSTIRÉTTUR þyngdi í gær
refsingu pilts fyrir að nauðga stúlku
sumarið 2000 og dæmdi hann í 12
mánaða fangelsi þar af 9 mánuði skil-
orðsbundið. Í héraði fékk ákærði alla
refsinguna skilorðbundna. Hæsti-
réttur taldi sannað að ákærði hefði
haft samræði við stúlkuna á meðan
hún gat ekki spornað við verknaðin-
um sökum ölvunar og svefndrunga.
Ákærði játaði sakargiftir þegar nið-
urstaða DNA-rannsóknar lá fyrir en
sagði samræðið hafa verið með vilja
stúlkunnar. Framburður hennar fyr-
ir dómi var talinn trúverðugur en
framburður ákærða tók breytingum
og var ekki talinn trúverðugur.
Ákærði hefur ekki hlotið refsingu
áður.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar
Gíslason, Haraldur Henrysson,
Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf-
stein. Verjandi ákærða var Kristján
Stefánsson hrl. Málið sótti Ragn-
heiður Harðardóttir, saksóknari hjá
ríkissaksóknara.
Refsing þyngd
í kynferðis-
brotamáli
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, fagnaði fimm-
tugs afmæli sínu á Kjarvalsstöðum í
gærkvöld ásamt eiginkonunni, Ár-
nýju Erlu Sveinbjörnsdóttur sem
verður fimmtug í dag. Fjöldi vina
og vandamanna kom til að gleðjast
með þeim hjónum á þessum tíma-
mótum, þar á meðal samferðamenn
jafnt sem andstæðingar Össurar í
stjórnmálunum.
Á myndinni eru Össur og Árný á
góðri stund á Kjarvalsstöðum í
gær.
Morgunblaðið/Jim Smart
Össur fimmtugur