Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 47 DAGBÓK EVRÓPUMÓTIÐ í Ment- on í Frakklandi stendur nú sem hæst, en í dag byrjar sveitakeppni opna flokks- ins þar sem sveit Jóns Baldurssonar er meðal þátttakenda. Mótið hófst á laugardaginn með para- sveitakeppni og síðan paratvímenningi. Fréttir af mótinu er hægt að nálgast á heimasíðu Evrópusam- bandsins, eurobridge.org. Vestur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ ÁG1095 ♥ 2 ♦ G8 ♣ÁG1073 Suður ♠ D ♥ KDG9874 ♦ Á10 ♣542 Vestur Norður Austur Suður 1 tígull 1 spaði Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Þetta spil kom upp í parasveitakeppninni og vafðist fyrir mörgum sagn- hafanum. Hvernig myndi lesandinn spila með litlum tígli út á drottningu aust- urs? Ef hjartatían kemur í mannspilin er lítil hætta á ferðum. En það er þó ótímabært að fara strax í trompið. Fyrst þarf að tryggja það að gefa ekki nema einn svartan slag og besta leiðin til þess er að svína spaðadrottningu: Norður ♠ ÁG1095 ♥ 2 ♦ G8 ♣ÁG1073 Vestur Austur ♠ K83 ♠ 7642 ♥ Á1063 ♥ 5 ♦ K96542 ♦ D73 ♣– ♣DD986 Suður ♠ D ♥ KDG9874 ♦ Á10 ♣542 Það gerði Fransmaður að nafni Moussa Chikhi. Síðan spilaði hann litlu laufi að blindum og vestur varðist vel með því að henda tígli. Chikhi tók á laufásinn, henti laufi í spaðaás og trompaði spaða. Spilaði svo tígli og vestur mátti velja á milli þess að spila hjarta frá Á10xx eða tígli út í tvö- falda eyðu! Glæsileg nýt- ing á tromptvistinum. Þeir sagnhafar sem spiluðu trompi í upphafi fóru beint einn til tvo nið- ur. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson STJÖRNUSPÁ Frances Drake KRABBI Afmælisbörn dagsins: Þú átt auðvelt með að fram- kalla sterkar tilfinningar hjá öðrum. Þú ert heillandi og hefur miklar tilfinningar til að bera. Það er líkt og þú getir galdrað. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Án þess að leggja nokkuð á þig heillar þú alla sem á vegi þínum verða í dag. Þér ratast ávallt rétt orð í munn. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú gætir notið örlætis ann- arra í dag. Eins gætir þú sýnt af þér mikla gjafmildi. Það skiptir ekki máli hvort gerist. Þú munt njóta hamingju. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú finnur til samkenndar með fólki í fjarlægum löndum og öðrum menningarheimum. Ástæða þess er sú að þú þekkir þjáningu þeirra. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Á þinn hægláta hátt reynir þú að bjarga heiminum í dag. Veittu þeim hjálparhönd sem þarfnast þess. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Samtöl við vini og vanda- menn eru innileg og djúp í dag. Ást og ósérhlífni er í há- vegum höfð. Þetta er ánægjulegt. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Öll vinna tengd efnum, lyfj- um, gasi og olíu mun ganga vel í dag. Í raun gætir þú margfaldað tekjur þínar eða bætt orðspor þitt á einhvern hátt. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þetta er fullkominn dagur til þess að hlaupast á brott – einkum til þess að fara í frí. Þú æskir þess að komast frá skuldbindingum og gömlum vana. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú gætir fengið yndislega gjöf í dag. Gjöfin gæti verið tákngervingur ástar eða aðdáunar. Hvað sem því líður skaltu líta á þetta sem for- réttindi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Samræður í dag kunna að snúast um draumóra og óraunhæf markmið. Ekki hafa áhyggjur af þessu. Sum- ir dagar eru svona. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú munt væntanlega vera í stöðu til þess að ráðleggja eða aðstoða samstarfsfólk í dag. Reyndu ekki að sýna mikilvægi þitt, hjálpaðu frek- ar. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Fátt annað en skemmtun kemst að hjá þér í dag. Un- aður, rómantík og flótti frá hversdagslegum viðfangs- efnum eru þín helstu mark- mið. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Staða himintunglanna gerir það að verkum að dagurinn verður með rólegasta móti. Farðu þér hægt og vertu ekki með neinar kúnstir. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. HLUTAVELTUR Þessi duglega stúlka, Hrafndís Brá Heimisdóttir úr Þykkvabæ, efndi til hlutaveltu og seldi myndir sem hún málaði sjálf. Hún safnaði kr. 8.614 sem hún gaf til Lundar, hjúkrunar- og dvalarheimilis aldraðra á Hellu. Þau Stefán Atli Rúnarsson og Árdís Eva Friðriksdóttir héldu tombólu í Spönginni nýverið og söfnuðu kr. 3.218 til styrktar Barnaspítala Hringsins. NÓTTIN HEIÐNA Vestrið er fullt af vetrardraumum, voldugt og logagyllt, andvari berst frá Atlantshafi, austrið er rökkurmilt. Ég krossfesti kristnar dyggðir í kvöld, þegar hnígur sól, því hamingja mín er heiðin og villt. – Nú húmar við norðurpól. Ég geng eftir steinlögðum strætum og torgum, stefni í vesturátt. Í gegnum háreysti og glamur kvöldsins ég greini minn æðaslátt. Ég smýg inn í hús þitt og hlusta – heyri þinn andardrátt. Það er vetrarnótt og vestrið er orðið viðkvæmt og skuggablátt. Guðmundur Daníelsson. LJÓÐABROT 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Bxc6 dxc6 5. 0–0 f6 6. d4 exd4 7. Rxd4 c5 8. Re2 Dxd1 9. Hxd1 Bd7 10. Bf4 0–0–0 11. Rbc3 Re7 12. Bg3 Rg6 13. Rd5 Re5 14. f4 Rc4 15. b3 Bg4 16. He1 Ra3 17. Hac1 c4 18. Bf2 Bd6 19. Rec3 c6 20. Rb6+ Kb8 21. e5 fxe5 22. fxe5 Bb4 23. He3 Bf5 24. Re4 Staðan kom upp á Evrópu- meistaramóti ein- staklinga sem lauk fyrir skömmu í Istanbúl. Finnski alþjóðlegi meist- arinn Sampsa Nyysti (2.429) hafði svart gegn Ingvari Ásmunds- syni (2.327). 24 … Rxc2! 25. He2 25. Hxc2 gekk ekki upp vegna 25 … Hd1+ og svartur vinnur. Í fram- haldinu reyndist hvíta staðan einnig vonlítil. 25 … cxb3 26. axb3 Rd4 27. He3 Bxe4 28. Hxe4 Rxb3 29. Hb1 Bc5 30. Bxc5 Rxc5 31. Hc4 Re6 32. Hcb4 Hhf8 33. Rc4 b5 34. Rd6 Kc7 35. Hc4 c5 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Þessar stúlkur, Kristín Björg Sverrisdóttir og Þuríður Lilja Valtýsdóttir, héldu tombólu og söfnuðu kr. 3.400 til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælis- barns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/eða nafn ábyrgð- armanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík KIRKJUSTARF GÖNGUFERÐ innan sóknarmarka og grillveisla verður laugardaginn 21. júní kl. 16–20 frá Íþróttamið- stöðinni. Farið verður frá Haukahúsinu um Hraunavelli, Grísanes, Hellis- dal, Ásflatir um Skarð og með Ástjörn. Áætlaður göngutími 1–2 klst. í rólegri göngu. Striga- eða léttir gönguskór og klæðnaður eftir veðri. Leiðsögumaður er Jónatan Garðarsson, formaður sóknar- nefndar Ástjarnarsóknar. Að göngu lokinni er grillveisla í Haukahúsinu, 2. hæð. Þátttak- endur eru beðnir að hafa með sér grillmeti, en drykkir, salat og kartöflur eru í boði sóknar- nefndar. Grillmeistari er sr. Carl- os Ferrer sóknarprestur. Sam- söngur undir stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur, tónlistarstjóra Ástjarnarkirkju. Ástjarnarkirkja – gönguferð og grillveisla Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laugardaga kl. 11:00. Bænastund alla þriðjudaga kl. 20:00. Biblíufræðsla allan sólar- hringinn á Útvarpi Boðun FM 105,5. Hjálpræðisherinn á Akureyri. Flóa- markaður frá kl. 10–18 í dag. Ath. síðasta skipti fyrir sumarfrí. Kirkja sjöunda dags aðventista. Samkomur laugardag: Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19. Bibl- íufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric Guðmundsson. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnar- firði. Biblíufræðsla/guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Ólafur Kristinsson. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu- maður Gavin Anthony. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi. Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Einar Valgeir Ara- son. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum. Biblíufræðsla/guðs- þjónusta kl. 10.30. Ræðumaður Amicos og Sigríður Kristjánsdóttir. Biblíurannsókn og bænastund á sunnudögum kl. 13. Safnaðarstarf Fjármögnun - sérverslun Óskum eftir fjármögnunaraðila/meðeigendum við opnun stórrar sérversl- unar með gífurlega framtíðar- og vaxtarmöguleika. Viðskiptahugmyndin og uppdráttur liggur fyrir ásamt vöruumboðum og vörum sem hafa sannað sig nú þegar á íslenskum markaði. Til greina kemur fyrir rétta aðila að kaupa reksturinn og viðskiptatækifærið í heild sinni. Áhugasamir sendi svar á augldeild Mbl., merkt: „Tækifæri - 13808“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.