Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jóhann Berg-mann Guðmunds- son fæddist á Fögru- völlum á Seyðisfirði 4. júní 1903. Hann lést á dvalarheimil- inu Garðvangi í Garði 31. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þórunn Hafliðadótt- ir, f. 1. ágúst 1864, d. 1. desember 1944, og Guðmundur Magnús- son, f. 4. september 1861, d. 25. október 1935. Systkini Jó- hanns voru Sigríður Valgerður, f. 1898, d. 1980, Magn- ús, f. 12. júlí 1899, d. 7. nóvember 1927, Guðmunda Herborg, f. 31. desember 1900, d. 12. júlí 1977, og Anna, f. 1908, og dó á fertugsaldri. Jóhann missti unnustu sína, Margréti, ungur maður. Jóhann kvæntist 1948 Þórdísi Alberts- dóttur, f. 10. júlí 1898, d. 18. maí 1966. Jóhann bjó á Seyðisfirði þar til hann fór til Mjóafjarðar 19 ára gamall og gerðist bóndi. Með hon- um voru systkini hans og foreldr- ar. Tólf árum síðar brá Jóhann búi og fluttist aftur til Seyðisfjarðar ásamt foreldrum sínum. Vann hann þar sem verka- maður en faðir hans lést stuttu síðar. Þegar atvinnutæki- færum fækkaði flutti hann til Njarðvíkur þar sem mikill upp- gangur var í at- vinnulífinu. Hann var einn af hluthöf- um í Skipasmíðastöð Njarðvíkur og átti stóran þátt í því ásamt nokkrum frumkvöðlum að koma því fyrirtæki á laggirnar. Hann byggði húsið sitt Melstað, Klapparstíg 16, og árið 1948 fluttu inn á neðri hæðina, með Jóhanni og Þórdísi, Guðmunda, systir Jó- hanns, og Guðmundur Brynjólfs- son, eiginmaður hennar, ásamt dætrum sínum fjórum, Þórhönnu, Mögnu, Hrefnu og Margréti. Jó- hann og kona hans fluttu á efri hæðina árið 1950 og hann bjó á Melstað allt þar til hann fór á dval- arheimilið Garðvang í Garði haustið 1994. Jóhann Bergmann verður jarð- sunginn frá Njarðvíkurkirkju í Innri-Njarðvík í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Frændi eða Jóhann Bergmann Guðmundsson var bróðir ömmu minnar, Guðmundu Herborgar. Hann lifði í heila öld og upplifði eitt mesta framfaraskeið í Íslandssög- unni. Frændi var af þeirri kynslóð sem kom út úr torfkofunum í þær miklu tæknibreytingar sem við bú- um nú við og okkur finnast sjálfsagð- ar. Þegar ég fæddist var Frændi orð- inn 60 ára og búinn að búa í Njarðvík í fjölda ára. Hann byggði húsið sitt Melstað, Klapparstíg 16 og bjó í því alla tíð þar til hann fór á Garðvang 91 árs gamall. Amma mín og afi bjuggu á neðri hæðinni og bjó móðir mín, Margrét Jóhanna, í foreldrahúsum með tvö börnin sín, Rúnar, eldri bróður minn, og mig. Við Rúnar vor- um því þeirra forréttinda aðnjótandi að slíta barnsskónum á Melstað í nánum samvistum við ömmu, afa og Frænda. Ég var orðin þó nokkuð stálpuð þegar ég vissi að Frændi hét ekki Frændi heldur Jóhann, ég var oft að leiðrétta afa minn og ömmu sem kölluðu hann Jóa. Frændi missti konuna sína, Þór- dísi Albertsdóttur, Dísu, árið 1966. Ég man lítið eftir henni en það er sterkt í minningunni þegar ég fékk að fara á efri hæðina í heimsókn til Frænda og Dísu hvað ég lagði mig fram við að vera stillt því það var alltaf svo fínt hjá þeim. Seinna lærði ég það hvað Frændi var snyrtilegur, nákvæmur og reglufastur, það sá ég best á því þegar hann var að setja niður kartöflur, allt var þetta gert af mikilli nákvæmni og alltaf var rétt bil á milli, enda var garðurinn hans alltaf fallegur og lóðin vel hirt. Hlut- irnir voru alltaf á sínum stað og hægt var að ganga að því vísu. Það kom sér vel fyrir hann í seinni tíð þegar sjónin fór að daprast að hafa allt í röð og reglu. Eftir að Dísa dó kom Frændi alltaf niður í mat til ömmu, oft voru fjör- ugar umræður við matarborðið þeg- ar afi og Frændi voru að ræða um pólitík og báðir farnir að hækka róm- inn verulega, þeir höfðu sterkar skoðanir og ekki voru þeir alltaf sammála, en alltaf var stutt í hlátur- inn og gamanið. Það má kannski segja að margt sé líkt með skyldum, Frændi kallaði mig alltaf Púðurkerl- ingu og var þá að vísa í skapferli mitt og hafði mikið gaman af hvað stelpan var fljót að springa. Frændi var góður söngmaður og söng um árabil með kirkjukór Innri- Njarðvíkurkirkju og um tíma var hann líka í kór Keflavíkurkirkju. Hann hafði ákaflega gaman af því að taka mig í fangið sem litla stelpu og syngja fyrir mig um hana Tótu litlu tindilfættu og hélt ég lengi vel að enginn annar kynni þetta lag nema Frændi. Þær voru langar stundirnar þegar við Rúnar biðum á aðfanga- degi jóla eftir að Frændi og afi kæmu heim að messu lokinni, svo hægt væri að byrja jólin. Frændi var alla tíð fróðleiksfús og bókhneigður mjög. Tækifæri til náms voru ekki til staðar þegar hann var að alast upp, þannig að hann sótti nánast allan sinn fróðleik í bækur, hann hafði stálminni og var nánast hægt að fletta upp upplýsingum í minninu hans. Í fjölskyldunni var það alltaf viðkvæðið ef við vorum í vafa „Spyrjum bara Frænda“ og það stóð ekki á svörum. Þegar komið var í heimsókn til Frænda á meðan hann bjó enn þá á Melstað sat hann ávallt í stólnum sínum með bók í hönd og var landa- bréfabókin ávallt við hlið hans enda gat hann lýst staðháttum af ná- kvæmni á erlendri grundu sem hann hafði aldrei komið til. Þær voru held- ur ekki ófáar ferðirnar sem hann fór í bókasafnið og var ég viss um að hann væri langt kominn með að lesa allar bækurnar þar, því hann fór svo oft. Ég komst svo að því að svo var nú ekki enda voru góðir reyfarar hans uppáhald og átti hann það til að lesa sömu bækurnar aftur ef honum fannst þær góðar. Gjafirnar frá Frænda voru alltaf bækur, hann vissi það að lestur var undirstaða náms og vildi stuðla að því að okkur vegnaði vel. Hann var ákaflega stolt- ur af systrunum og systrabörnunum og gladdist með okkur á tímamótum í námi og starfi. Litlu munaði að Frændi hefði flust til Ameríku sem ungur drengur, en það komu upp veikindi hjá fjölskyld- unni sem ætlaði að taka hann með sér. Mikið er það sem við hefðum farið á mis við ef Frænda hefði ekki notið við. Það er svo margt sem ég gæti skrifað um hann Frænda minn,um gönguferðirnar og Slippinn, um snyrtimennskuna og nægjusemina sem margir mættu taka til fyrir- myndar í nútímaþægindum. Hann unni náttúrunni og landinu sínu. Ég hef einungis stiklað á stóru um síðari hluta ævi Frænda og án efa hefur mikið vatn runnið til sjávar áð- ur en ég kom til sögunnar. Hann var daglegur gestur á heimili foreldra minna frá því að amma mín dó og allt þar til hann fór á Garðvang. Ég fékk að búa hjá honum í eitt og hálft ár þegar ég var á húsnæðisbrölti. Við vorum sammála um það að sú sam- búð hafi verið báðum til gagns og ánægju. Frændi var stór og mikill persónu- leiki og hafði mikil áhrif á líf mitt, kenndi mér margt og var ótrúlega þolinmóður við litla skottu sem var mjög uppátækjasöm fyrstu árin og þurfti að kanna margt. Það var gaman að heimsækja hann og allt þar til yfir lauk var hann að upplýsa mig og fræða. Hann átti ekki alltaf auðvelt líf en ávallt skein ljúfmennskan af honum. Hann var orðinn þreyttur og lúinn og búinn að sjá á eftir mörgum sem hann unni, m.a. bróður sínum sem ungur mað- ur, unnustu sinni Margréti, Þórdísi konunni sinni, systur sinni Guð- mundu og Margréti Jóhönnu, móður minni, sem var alltaf sólargeislinn hans. Ég kveð elskulegan Frænda minn í þeirri vissu að nú líði honum vel hjá fólkinu sínu sem hann þráði að fara til. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Þórunn Magnúsdóttir. Mér fannst Frændi svakalega kaldur að þora að vera kommúnisti. Sönnunargagnið, Þjóðviljinn, kom inn um bréfalúguna og lá í ganginum þar sem allir gátu séð hann. Að hann skyldi þora þetta eins og hann bjó nálægt Vellinum. Hann bjó svo ná- lægt Vellinum að í hvert skipti sem flugvélarnar flugu yfir hristist húsið. Glerið í stofuskápnum hans glamraði og hristingurinn var svo mikill að ég var hrædd um að við myndum detta fram af honum. Það er að segja ekki við heldur myndirnar af okkur ætt- ingjunum. Uppi á skápnum var hann með myndir af systurdætrum sínum og börnunum þeirra. Ég held að það hafi líka verið myndir af ættingjun- um hennar Dísu heitinnar sem hann var kvæntur. Ég man vel eftir stofunni hans Frænda, við krakkarnir fengum að leika okkur þar og ég man eftir stóra teppinu sem við gátum farið í bílaleik á og keyrt eftir kantinum. Það var svo skrýtið hvað þetta teppi minnk- aði með árunum. Á gamlárskvöld hlupum við systkinabörnin um alla íbúð hjá Frænda til að telja flugelda út um gluggana. Við fórum upp rauð- an stigann til að fara upp á loft til Frænda, mér fannst rauði stiginn alltaf svo flottur og meira að segja eftir að ég varð fullorðin var það allt- af sérstök stemmning að fara upp þennan stiga. Frændi átti klukku sem sló, einn af fáum hlutum sem hann tók með sér á hjúkrunarheimilið. Afi og amma sem bjuggu á neðri hæðinni áttu líka klukku sem sló og það var alltaf hátíðarstemmning á gamlárs- kvöld þegar þær slógu báðar tólf á miðnætti. Mér fannst alltaf hátíðlegt líka þegar þeir afi fóru á svört jakkaföt og sungu í kirkjukórnum. Þeir tóku báðir í nefið og notuðu rauða tóbaks- klúta, það var gaman að fylgjast með Frænda taka í nefið, hann var alltaf svo snyrtilegur að það var varla að það færi eitt tóbakskorn til spillis. Frændi sat oft við bláa eldhús- borðið niðri hjá afa og ömmu og ræddi lífsins gagn og nauðsynjar við afa, þeir höfðu víst ólíkar stjórn- málaskoðanir, að minnsta kosti urðu umræðurnar stundum háværar og við krakkarnir sátum með við borðið og fengum að dýfa mjólkurkexinu í kaffið þeirra. Það voru nú ekki bara stjórnmál sem voru rædd við eldhús- borðið, ýmsar sögur voru líka sagð- ar. Ég man sérstaklega eftir þegar Frændi var að segja frá því þegar hann var að reyna að fá sér far við Stapann og enginn stoppaði. Hann var viss um að fólk hefði haldið að hann væri Stapadraugurinn og ekki þorað að taka hann upp í. Frændi átti dularfullan kartöflu- kjallara. Hann var úti í skúr, snyrti- legasta skúr sem ég hef nokkurn tíma séð. Ég man greinilega hvernig lyktin var í skúrnum og man hvernig ég fylgdist með Frænda lyfta hler- anum og hvernig ég horfði á eftir honum í bláum samfestingi á leið nið- ur í kartöflukjallarann. Ég var hálf- hrædd um að hann kæmi ekki upp aftur en auðvitað kom hann, en ég man að ég þorði ekki einu sinni út á brún, svo óhuggulegur var þessi kjallari. Mörgum árum seinna fór ég út í skúr og varð alveg steinhissa á hvað þessi kjallari var lítill og mein- leysislegur. Það var eins og með gólfteppið, ótrúlegt hvað hlutirnir JÓHANN BERGMANN GUÐMUNDSSON ✝ Ólafur Olgeirs-son fæddist í Reykjavík 29. febr- úar 1932. Hann lést á Hrafnistu í Hafnar- firði aðfaranótt 13. júní síðastliðins. For- eldrar hans voru Evlalía Steinunn Guðbrandsdóttir, frá Merkigerði á Eyrar- bakka, f. 20. október 1903, d. 21. október 1989, og Olgeir Vil- hjálmsson, fyrrver- andi bifreiðaeftir- litsmaður, frá Dísukoti í Holtum í Þykkvabæ, f. 3. apríl 1893, d. 18. febrúar 1984. Systkini Ólafs voru Vilhelmína Karen, fyrrverandi gjaldkeri hjá 1962, sambýliskona Elín G. Krist- jánsdóttir, f. 6. nóvember 1961, sonur þeirra er Kristján Hafberg, f. 1. ágúst 1980. Ólafur lauk gagnfræðaprófi. Hann vann ýmis störf, þar til hann fór að vinna við teppavefnað í Axminster, var þar í fimmtán ár. Síðan keyptu þeir bræður mat- vöruverslun sem þeir ráku í um þrjú ár. Ólafur fann sig ekki í þessu starfi, og sjórinn kallaði aft- ur á Friðgeir. Síðan gerðist hann sendibílstjóri og var sinn eigin at- vinnurekandi við Nýju Sendibíla- stöðina 1973–1999. Þau fyrirtæki sem hann starfaði lengst hjá í akstri voru Kjötbúðin Borg, hann keyrði Tímann, sem þá var og hét, á næturnar í nokkur ár. Lengst keyrði hann hjá Sölufélagi garð- yrkjumanna. Árið 1999 lét hann af störfum vegna veikinda, sem hann átti við að stríða til síðasta dags. Útför Ólafs fer fram frá Vídal- ínskirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Ríkisútvarpinu, f. 16. maí 1930, d. 29. júlí 1985, og Friðgeir, fyrrverandi skipherra hjá Landhelgisgæsl- unni, f. 3. október 1936, d. 9. ágúst 1996. Ólafur kvæntist 22. nóvember 1958 Helgu Jörundsdóttur, f. 8. september 1935, frá Ingjaldshóli á Snæ- fellsnesi sem nú heitir Snæfellsbær. Börn þeirra eru: 1) Ingi- björg, f. 19. júlí 1955, gift Gísla G. Jóhanns- syni, f. 23. maí 1953, sonur þeirra Ólafur Björnsson, f. 23. apríl 1974. 2) María Kolbrún, f. 5. júní 1959. 3) Kristjón Hafberg, f . 12. október Elsku pabbi, nú ert þú farinn frá okkur til allra hinna sem þér þótti svo vænt um, en fóru á undan þér. Við vitum í hjarta okkar að það verða góðir endurfundir. Það var svo gott að hafa þig hjá sér og gott að snúa sér til þín þeg- ar við þörfnuðust þín að tala við og alltaf varst þú til taks fyrir okkur. Elsku pabbi, þetta voru löng veikindi en ávallt varst þú bros- andi og jákvæður. Nú er þessu lokið. Við söknum þín sárlega en vitum þó að þér líður vel þar sem þú ert núna. Megi Guð styrkja mömmu og okkur í þessari miklu sorg. Við þökkum þér fyrir allt það sem þú gerðir fyrir okkur. Þú varst okkur góður faðir og frábær vinur. Elsku mamma, nú hefur þú misst eiginmann, vin og sálufélaga sem þú studdir svo trygg og trú í lífinu, bæði í sorg og gleði. Þú hjálpaðir honum með öllum þínum kærleika í veikindum hans. Þú varst stoð hans og stytta. Við er- um svo stolt af að geta sagt að þú sért hún mamma okkar. Nú er komið að okkur að vera stoð þín og stytta í þessari sorg þinni. Við elskum þig. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (M. Joch.) Börn og tengdabörn. „Dáinn, horfinn“ – harmafregn! hvílíkt orð mig dynur yfir! En eg veit að látinn lifir; það er huggun harmi gegn. – – (Jónas Hallgr.) Ég hafði aldrei haft mikla trú á föstudeginum 13. En sú hjátrú varð að veruleika hjá mér föstu- daginn síðastliðinn. Þá fékk afi minn hvíldina langþráðu. Þrátt fyrir vitneskjuna um það sem verða vill er áfallið ætíð mikið þeg- ar dauðinn knýr dyra. Það getur oft verið erfitt og sárt að horfast í augu við staðreyndir, en svona er lífið, mennirnir áforma en Guð ræður. Afi var mikill maður, með enn stærra hjarta. Maður sem var ávallt brosandi og mikil gleði í kringum. Þótt hann ynni mikið og kæmi heim þreyttur átti hann allt- af tíma aflögu fyrir aðra. Maður sem vildi allt fyrir alla gera. Þann- ig mun ég muna hann. Afi, þótt þú sért farinn þá verður þú ávallt í hjarta mínu. Minning um góðan mann lifir. Elsku amma mín, sorg þín er mikil við að missa þinn besta vin. En afi skildi þig ekki eina eftir, þið eignuðust þrjú börn og tvö barna- börn sem mynda þessa litlu fjöl- skyldu og öll munum við standa þétt saman á þessum erfiðu tím- um. Þú ert hetjan og ég veit að afi var stoltur af þér og það erum við öll, fjölskylda þín og vinir. Ég kveð afa með virðingu og ÓLAFUR OLGEIRSSON AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disk- lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Ekki er tekið við hand- skrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmark- ast við eitt til þrjú erindi. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Frágangur afmælis- og minningar- greina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.