Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 45 Hvernig flutt var yfir á úlfur, lamb og heypokinn, ekkert granda öðrum má eitt og mann tók báturinn? HÉRNA í gamla daga voru flestar gátur rímaðar og þessi þvældist verulega fyrir mér. Ég rembdist eins og rjúpan við staurinn áður en rétta lausn- in fannst og var loksins orðin reið, hvað var karlinn eiginlega að þvæl- ast með úlf og lamb? Ég vissi vel að lambið myndi éta heyið ef það fengi næði og úlfur og lamb fóru ekki saman, sagan í Grimmsævintýrum um úlfinn og kið- lingana var sönnun þess. En hvernig á þessi gamla gáta heima í þætti um blóm vikunnar? Það er til lausn á öllum gátum og líka tengingu gátunnar við blóm. Innan ættkvíslarinnar Vibrunum finnast bæði úlfarunni og lamba- runni og svo skemmtilega vill til að þær þrífast báðar hér á landi. Vibrunum-ættkvíslin er nokkuð stór, allt að 200 tegundir. Uppruni hennar er í tempraða beltinu allt frá N-Ameríku til Japans. Þetta eru runnar, sem ýmist eru lauf- fellandi eða sígrænir. Þeir blómg- ast margir hverjir mjög snemma, jafnvel fyrir laufgun og sumir hafa mjög falleg ber. Líklega er meira en hálf öld síð- an fyrst var farið að rækta lamba- runna og úlfarunna (úlfaber) á Ís- landi og nú er byrjað að rækta þriðju tegundina, bersarunna eða Vibrunum edule, sem ekki er komin mikil reynsla á. Ég hef átt bæði lambarunna og úlfarunna í nálægt því tíu ár og eru þeir báðir í miklu uppáhaldi hjá mér. Lambarunninn, Vibrun- um lantana, er lágvaxinn og til- tölulega hægvaxinn a.m.k. í mín- um garði, er líklega orðinn 1 m á þessum tíu árum, en er talinn geta náð allt að 2 m hérlendis, þótt hann geti orðið allt að 5 m í útlandinu. Blöðin á lambarunn- anum eru mjög falleg, egglaga og enda í sljóum oddi, fíntennt og dá- lítið hrukkótt. Blöðin eru dökk- græn á litinn, en fyrst á vorin virðast þau nær grá, því þau eru þakin dúnhárum bæði á efra og neðra borði, en þegar líður á vorið falla dúnhárin af efra borði blað- anna. Blöðin sitja hvert gegn öðru á greinunum, eru gagnstæð, og blómin myndast á enda stönguls- ins. Mér var svo sannarlega ekki rótt í vor þegar kuldakastið kom í byrjun maí. Það var allt farið að lifna í garðinum og þar var úlfa- runninn engin undantekning. Blómhnapparnir, sem myndast haustið áður, voru farnir að stækka og opna sig dálítið, svo nú bjóst ég við öllu hinu versta. En viti menn, lambarunninn minn bara eins og dokaði við og stóð svo í fullum blóma í lok mánaðarins. Blómin á lambarunn- anum eru rjómahvít og sitja mörg saman í hálfgerðum sveip og er blómskipunin oft- ast nálægt 10 cm í þvermál. Lamba- runninn blómstraði ekki fyrstu tvö árin eftir að ég eignaðist hann, en síðan hefur hann blómstrað á hverju ári og verður fallegri og fallegri eftir því sem árin líða. Hann þarf trúlega þokkalegt pláss því greinarnar sveigjast dálítið út. Berin á lambarunnanum eru mjög sérstök og falleg. Þau eru fyrst græn á litinn, verða síðan rauð og lokum svört þegar þau eru fullþroskuð. Það hefur ekki gerst enn hjá mér en hver veit hvað gerist í haust. Úlfarunninn, V. opulus, hefur líka reynst mér afar vel, en að óreyndu skyldi maður ekki ætla að þessir tveir runnar væru ná- skyldir, svo gjörólíkt er laufið. Blöð úlfarunnans minna helst á blöð af hlyni, eru sem sagt með 3–4 tenntum og yddum sepum og eru aðeins hærð á neðra borði. Úlfarunni blómgast seinna en lambarunni, venjulega í júlí, og blómskipunin er mjög sérstæð því yst er krans af stórum hvítum „blómum“ sem eru í rauninni um- mynduð háblöð til þess eins að draga athygli að blómunum sjálf- um, sem eru mun minni og lítið áberandi. Berin eru rauð, en ég man ekki eftir að hafa fengið þroskuð ber af úlfarunnanum mínum. Úlfarunninn virðist ætla að verða hærri en lambarunninn, en allur þéttari og ekki eins breið- ur. Hann hefur mjög fallega haustliti, gula og rauðbrúna. Úlfa- runni vex villtur í Noregi og er þar mjög skuggaþolinn, en hér blómstrar hann aðeins á frekar sólríkum stöðum. Í gömlum ís- lenskum garðyrkjubókum er mik- ið talað um haustkal, sem ég hef ekki orðið vör við. Líklega eru garðyrkjustöðvarnar komnar með harðgerðari kvæmi en áður var. Úlfarunni og lambarunni eiga skilið miklu meiri útbreiðslu en þeir hafa enn hlotið og ekki spillir fyrir að þeir virðast þola ótrúlega vel skordýrafárið, sem hrellir svo mörg tré og runna í görðum. Þó er betra að velja þessum „úlfum og lömbum“ frekar skjólríkan stað í garðinum. Ættkvíslin Vibrunum Lambarunni, Vibrunum lantana. VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r nr. 492 S.Hj. lif u n lifun tímarit um heimili og lífsstíl númer fimm 2003 Auglýsendur! Hafðu samband í síma 569 1111 eða í gegnum netfangið lifunaugl@mbl.is Tímaritið Lifun fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn 2. júlí. debenhams S M Á R A L I N D ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 2 15 10 6/ 20 03 Ilma›u ilmvatnsdagar í Debenhams 19. – 26. Júní Dior Addict ilmurinn hlaut hin virtu "Grand Prix Avantages de la Beauté" verðlaun fyrir framandi ilm og glæsilega hönnun á flösku. Af því tilefni verður sérstakt kynningartilboð á dömu og herra Dior ilmum í Debenhams vikuna 19. – 26. júní. Tilboð: Ef keypt er 50 ml Dior Addict EDP fylgir annað 20 ml glas með. Ef keypt er 100 ml Higher After Shave Lotion fylgir Higher Deo Stick og sápa með. Fullt af öðrum skemmtilegum tilboðum. ILMA‹U DIOR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.