Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 50
ÍÞRÓTTIR 50 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT KNATTSPYRNA Efsta deild kvenna, Landsbankadeild: Hásteinsvöllur: ÍBV - FH..........................20 1. deild karla: Akureyrarvöllur: Þór - Víkingur R...........20 Kópavogsvöllur: Breiðablik - HK .............20 Keflavík: Keflavík - Leiftur/Dalvík ..........20 Stjörnuvöllur: Stjarnan - Njarðvík...........20 2. deild karla: Helgafellsvöllur: KFS - Fjölnir ................20 Þróttarvöllur: Léttir - Tindastóll..............20 3. deild karla: Skallagrímsvöllur: Skallagrímur - Númi .20 Sandgerðisvöllur: Reynir S. - Leiknir R. .20 Tungubakkavöllur: ÍH - Freyr .................20 Grýluvöllur: Hamar - Ægir .......................20 Árskógsstrandarv.: Reynir Á. - Neisti H.20 Blönduósvöllur: Hvöt - Vaskur .................20 Vopnafjarðarvöllur: Einherji - Höttur.....20 Eskifjarðarv.: Fjarðabyggð - Leiknir F ..20 Í KVÖLD KNATTSPYRNA Efsta deild karla Landsbankadeild ÍBV - Fram ................................................5:0 Staðan: KR 5 3 1 1 6:6 10 Fylkir 5 3 0 2 9:4 9 ÍBV 5 3 0 2 11:7 9 Þróttur R. 5 3 0 2 8:7 9 KA 5 2 2 1 8:6 8 FH 5 2 2 1 7:5 8 ÍA 5 1 3 1 5:4 6 Valur 5 2 0 3 7:9 6 Grindavík 5 1 0 4 5:10 3 Fram 5 0 2 3 4:12 2 Markahæstir: Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ............. 7 Sinisa Kekic, Grindavík .............................. 4 Björgólfur Takefusa, Þróttur R................. 3 Haukur Ingi Guðnason, Fylkir .................. 3 Hreinn Hringsson, KA ............................... 3 Jóhann H. Hreiðarsson, Valur ................... 3 Sören Hermansen, Þróttur R. ................... 3 1. deild karla Afturelding - Haukar...............................2:1 Henning E. Jónasson 41., Sturla Guðlaugs- son 50. - Baldur Guðmundsson 85. Staðan: Víkingur R. 5 3 2 0 7:2 11 Þór 5 3 1 1 12:9 10 Keflavík 4 3 0 1 11:6 9 HK 5 2 2 1 6:3 8 Afturelding 6 2 2 2 6:9 8 Njarðvík 5 2 1 2 9:8 7 Haukar 5 1 2 2 5:8 5 Leiftur/Dalvík 5 1 1 3 5:8 4 Breiðablik 5 1 1 3 4:7 4 Stjarnan 5 0 2 3 5:10 2 2. deild karla Víðir - Selfoss ............................................0:2 - Jón Sveinsson, Valgeir Reynisson. Staðan: Völsungur 5 5 0 0 23:6 15 Selfoss 6 4 1 1 15:6 13 ÍR 5 3 0 2 11:7 9 Fjölnir 5 3 0 2 12:11 9 KS 5 3 0 2 11:10 9 Víðir 6 3 0 3 8:9 9 KFS 5 2 0 3 11:17 6 Tindastóll 5 1 0 4 10:16 3 Léttir 5 1 0 4 5:17 3 Sindri 5 0 1 4 3:10 1 3. deild karla A Drangur - Víkingur Ó. ..............................0:5 Staðan: Víkingur Ó 4 4 0 0 15:1 12 Skallagr. 4 3 0 1 11:6 9 Númi 3 2 1 0 9:5 7 Bolungarvík 4 2 0 2 4:8 6 Grótta 5 1 1 3 8:9 4 Deiglan 4 1 0 3 5:8 3 BÍ 3 1 0 2 4:9 3 Drangur 5 1 0 4 4:14 3 Efsta deild kvenna Landsbankadeild Stjarnan - KR ............................................0:3 Ásthildur Helgadóttir 57., 90, Þórunn Helgadóttir 58. Valur - Breiðablik.....................................1:2 Laufey Ólafsdóttir 32. - Ólína G. Viðars- dóttir 15., Eyrún Oddsdóttir 63. Staðan: KR 6 5 1 0 29:3 16 Valur 6 4 1 1 17:8 13 ÍBV 5 4 0 1 23:7 12 Breiðablik 6 4 0 2 18:14 12 Stjarnan 6 2 0 4 9:13 6 FH 5 1 0 4 3:13 3 Þór/KA/KS 6 1 0 5 4:19 3 Þróttur / Haukar 6 1 0 5 6:32 3 Álfukeppnin B-riðill: Tyrkland - Bandaríkin.............................2:1 Okan Yilmaz 38., Sanli Tuncray 69. - DaM- arcus Beasley 35. Brasilía - Kamerún...................................0:1 - Samuel Etoo 83. Svíþjóð Öster - Örgryte......................................... 1:2  Atli Sveinn Þórarinsson lék síðustu 3 mínúturnar með Örgryte. ÍSLANDSMÓTIÐ í holukeppni, sem jafnframt er þriðja mótið á Toyota- mótaröðinni, verður haldið á Hólmsvelli í Leiru um helgina og hefst í dag en á sunnudaginn kemur í ljós hver fagnar Íslandsmeist- aratitlinum, bæði í kvenna- og karlaflokki. Núverandi meistarar ætla báðir að freista þess að verja titilinn, Guðmundur Ingvi Ein- arsson og Herborg Arnarsdóttir, en þau eru bæði í Golfklúbbi Reykja- víkur. Keppendur verða 90 talsins, 75 karlar og fimmtán konur, og verð- ur fyrst leikin 36 holu forkeppni, síðan fara 16 efstu í útslátt- arkeppni, og svo koll af kolli þar til einn stendur uppi sem sigurvegari í hvorum flokki. Sérlega skemmti- legt fyrirkomulag og þægilegt fyrir áhorfendur. Búast má við mjög jafnri og skemmtilegri keppni, bæði hjá körl- unum og konunum á fyrstu tveimur mótunum í Toyota-mótaröðinni hafa nokkrir lítt þekktir kylfingar kvatt sér hljóðs og má þar fyrstan nefna Heiðar Davíð Bragason, GKj, sem hefur leikið mjög vel í sumar. Heimamennirnir Helgi Birkir Þór- isson og Örn Ævar Hjartarson gefa ekkert eftir á heimavelli sínum og fleiri mætti nefna sem teljast geta líklegir til afreka í Leirunni um helgina. Meistarinn frá síðasta ári, Guðmundur Ingvi, mætir til leiks og atvinnukylfingurinn Ólafur Már Sigurðsson úr Keili tekur þátt í sínu fyrsta móti hér á landi í sumar. Einnig er rétt að nefna Sigurpál Geir Sveinsson, Íslandsmeistarann í höggleik, en hvorki Birgir Leifur Hafþórsson né Björgvin Sig- urbergsson verður með að þessu sinni. Áhuginn er mikill á þessu móti og má sem dæmi nefna að þegar skráningu lauk var hæsta forgjöf hjá körlunum 4,1 og 25 kylfingar á biðlista eftir að komast að. Baráttan í kvennaflokki verður eflaust líka mjög hörð þó svo að stúlkurnar séu talsvert færri. Meistarinn frá því í fyrra, Herborg Arnarsdóttir úr GR, er mætt til leiks á ný eftir barneignarfrí og má fastlega reikna með að hún verði með í baráttunni um efsta sætið. Anna Lísa Jóhannsdóttir og Ragn- hildur Sigurðardóttir, báðar úr GR eins og Herborg, mæta einnig ákveðnar til leiks og annar reynslu- bolti, Þórdís Geirsdóttir úr Keili, lætur sig ekki vanta. Þá eru ótaldar stúlkurnar skemmtilegu úr GKj, Helga Rut Svanbergsdóttir, Nína Björk Geirsdóttir og Katrín Dögg Hilmarsdóttir. Spennandi barátta í holu- keppninni í Leirunni Það dugði Haukum lítt að haldaboltanum er þeir sóttu Aftur- eldingu heim í gærkvöld því þegar þeir sofnuðu á verð- inum var þeim refs- að rækilega og Aft- urelding vann 2:1. Sigurinn skilar Mos- fellingum upp fyrir Hauka í 5. sæti deildarinnar en Hafnfirðingar fær- ast niður um eitt, fara í 7. sætið. „Við ætluðum að fá stig því annað hvort beið okkar botninn eða efri hluti deildarinnar,“ sagði Magnús Einarsson, fyrirliði Aftureldingar, eftir leikinn en hann stóð í ströngu í lokin. „Við ætluðum að sækja en Haukar eru með spilandi lið og voru betri í fyrri hálfleik en við nýttum hins vegar færin okkar. Við færðum okkur aftar eftir að við skoruðum, við gerum það oft og verðum að vinna okkur út úr því.“ Heldur lá á heimamönnum fram eftir fyrri hálfleik en það dugði skammt því færin létu á sér standa. Um miðjan hálfleik slökuðu Hafn- firðingar á klónni og heimamenn komust inn í leikinn en þegar gest- irnir tóku aftur við sér gleymdu þeir sér stundarkorn í vörninni og Henn- ing E. Jónasson koma Mosfellingum í 1:0 eftir snaggaralega sókn. Áður en gestirnir voru búnir að setja sig í stellingar eftir hlé bætti Sturla Guðlaugsson við marki fyrir Mosfellinga eftir góðan undirbúning Þorvaldar Más Guðmundssonar. Það sló Hauka útaf laginu og þótt þeim tækist að halda boltanum á miðjunni var lítil yfirvegun í sókn- inni enda varnarmenn Afturelding- ar þar fastir fyrir. Fimm mínútum fyrir leikslok minnkaði Baldur Guð- mundsson muninn með marki úr aukaspyrnu og viðkomu í varnar- veggnum svo að félagar hans tóku viðbragð en vörn Mosfellinga stóðst áhlaupin. Maður leiksins: Magnús Einars- son, Aftureldingu. Mosfellingar stóðust áhlaupin Stefán Stefánsson skrifar Leikurinn var mjög kaflaskiptur,fyrri hálfleikur var mjög fjör- ugur og bæði lið fengu mörg góð marktækifæri, en sá síðari var frekar ró- legur og fá mark- tækifæri litu dagsins ljós. Í fyrri hluta fyrri hálfleiks voru það Blikarnir sem réðu ferðinni og náðu foryst- unni á 15. mínútu þegar Ólína G. Viðarsdóttir skoraði eftir að Guð- björg Gunnarsdóttir, markvörður Vals, náði ekki að halda boltanum eftir aukaspyrnu Margrétar Ólafs- dóttur. Frekar klaufaleg mistök hjá Guðbjörgu. Stuttu eftir markið tóku Vals- stúlkur völdin á vellinum og jöfnuðu metin á 33. mínútu þegar Laufey Ólafsdóttir skoraði fallegt mark. Rakel Logadóttir fékk tvö góð marktækifæri til að koma Val yfir undir lok fyrri hálfleiks en misnotaði þau bæði. Síðari hálfleikur byrjaði mjög ró- lega og ekkert markvert gerðist fyrr en á 60. mínútu en þá fékk Rakel Logadóttir enn eitt færið til að skora en skaut naumlega framhjá úr góðu færi. Aðeins þremur mínútum síðar skoruðu Blikar sigurmarkið. Mar- grét Ólafsdóttir náði knettinum eftir slæm mistök hjá Valsstúlkum og hún brunaði upp hægri kantinn og sendi knöttinn á Eyrúnu Oddsdóttur sem renndi knettinum örugglega í markið. Undir lok leiksins fékk Val- ur tækifæri til að jafna metin og var það engin önnur en Rakel Logadótt- ir sem fékk fjórða góða færið sitt en sem fyrr náði hún ekki að skora. Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Breiðabliks, var kátur eftir leikinn þegar Morgunblaðið náði tali af hon- um. „Við litum á þennan leik sem bikarúrslitaleik og nú munar aðeins einu stigi á okkur og Val. Við ætlum okkur að vera í toppbaráttunni en ef við hefðum tapað í kvöld hefðum við verið allt of langt í burtu frá topp- liðunum. Stelpurnar stóðust álagið og stóðu sig vel á baráttudegi kvenna.“ Pála M. Einarsdóttir var sterkust í liði Vals og steig ekki feilspor í vörninni en hún var mjög svekkt eft- ir leikinn. „Þetta var virkilega svekkjandi, við fengum fullt af fær- um og hefðum átt að nýta þau og sigra í þessum leik. Við megum hins- vegar ekki láta þessi úrslit slá okkur út af laginu og við verðum að mæta ákveðnar til leiks í alla leikina sem við eigum eftir,“ sagði Pála í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn. KR enn í toppsætinu KR sigraði Stjörnuna nokkuðörugglega í gærkvöldi í Garða- bænum með þremur mörkum gegn engu. KR-ingar tóku öll völd strax í upp- hafi leiksins gerðu sig líklega til þess að valta yfir Stjörnu- stúlkurnar. Leikmenn Stjörnunnar komust vart fram yfir miðju en það var sama hvað KR-stúlkurnar reyndu, þær áttu í miklum erfiðleik- um með að finna veikan blett á varn- arleik Garðbæinganna. Stjarnan lék varnarleik sinn það vel að KR náði ekki að skapa sér teljandi færi í fyrri hálfleik. Lilja Dögg Valsdóttir í liði Stjörnunnar var með Ásthildi Helgadóttur KR-ing í gjörgæslu, sem varð til þess að sóknarleikur KR-inga var bitlausari en þeir eiga að venjast. Fyrri hálfleikur var því ansi bragðdaufur og þegar flautað hafði verið til leikhlés hafði hvorugu liðinu tekist að skora. Seinni hálfleikur hófst á svipuðum nótum og sá fyrri hafði spilast. Stjarnan varðist á mörgum leik- mönnum en KR stjórnaði leiknum og sótti án þess að skapa sér hættu- leg færi. Lilja Dögg fékk gult spjald snemma í hálfleiknum sem varð til þess að það losnaði aðeins um Ást- hildi og þar með sóknarleik KR- inga. Varnarstífla Stjörnunnar brast loks eftir 56 mínútur þegar Ásthild- ur skallaði knöttinn í mark Stjörn- unnar eftir aukaspyrnu Eddu Garð- arsdóttur. Þórunn Helgadóttir var svo á ferðinni mínútu síðar og kom gestunum í tveggja marka forystu. Við það sat allt þar til á 90. mínútu þegar Ásthildur kórónaði ágætan leik sinn með glæsilegu marki. Hún tók knöttinn tók á bringuna við miðjuhringinn eftir útspark Stjörn- unnar og skaut honum viðstöðulaust af um 40 metra færi í stöng og í mark Stjörnunnar. Sanngjarn 0:3 sigur KR varð því niðurstaðan. Blikar sóttu öll stigin til Vals BREIÐABLIK sigraði Val, 1:2, á Hlíðarenda, í úrvalsdeild kvenna í gærkvöld. Með sigrinum eru Blikastúlkur komnar með 12 stig, að- eins einu stigi á eftir Valsstúlkum sem eru í öðru sæti deildarinnar. Atli Sævarsson skrifar Benedikt Rafn Rafnsson skrifar  SPÆNSKI landsliðsmaðurinn Guti sem leikur með Real Madrid hefur látið þá skoðun í ljós að með kaupunum á David Beckham eigi hann litla framtíð hjá Madridliðinu. Guti segist vilja róa á önnur mið enda sé landsliðsferill sinn í hættu ef hann fær ekki að spila nægilega mik- ið með Real Madrid.  HOLLENSKI tenniskappinn Richard Krajicek hefur neyðst til að leggja tennisspaðann á hilluna vegna þrálátra meiðsla í olnboga. Krajicek hefur lengi verið í fremstu röð tenn- ismanna og hápunkturinn á ferli hans var þegar hann sigraði á Wimbledon-mótinu árið 1996.  TIM Howard, landsliðsmarkvörð- ur Bandaríkjanna í knattspyrnu, er líklega á leið til Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Howard er 24 ára gamall og talið er að Manchester United þurfi að borga um 1,5 millj- ónir punda fyrir Howard.  MÓNAKÓ, sem hafnaði í öðru sæti frönsku 1. deildarinnar í knatt- spyrnu í vor, hefur fengið leyfi til að halda áfram keppni í deildinni. Franska knattspyrnusambandið úr- skurðaði fyrir skömmu að Mónakó skyldi fellt niður í 2. deild vegna fjár- hagslegra örðugleika. Félagið frá furstadæminu áfrýjaði þeim úr- skurði og hafði sitt í gegn. FÓLK RÓSA Júlía Steinþórsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, leikur hvorki með Val né landsliðinu það sem eftir er ársins. Rósa hefur tilkynnt fé- lögum sínum í Val að hún sé ófrísk og þar með komin í frí frá knattspyrnunni fram í jan- úar. Rósa lék alla leiki lands- liðsins á síðasta ári og spilaði sinn 24. landsleik í febrúar þegar Ísland lék gegn Banda- ríkjunum. Hún er einn reynd- asti leikmaður Vals með 107 leiki að baki í úrvalsdeildinni. Rósa ekki meira með í ár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.