Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 48
ÍÞRÓTTIR
48 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 20 maí
kl 20.00 mfl . kv.
STJARNAN - Njarðvík
Mætum öll á völlinn
og styðjum Stjörnuna
S T J Ö R N U V Ö L L U R
1 . d e i l d
FÓLK
HALLA Jóhannesdóttir körfu-
knattleikskona sem lék með KR-
ingum á síðustu leiktíð og var kjör-
in efnilegasti leikmaður liðsins hef-
ur ákveðið að ganga í sitt gamla
félag, ÍR, og mun leika með liðinu á
komandi leiktíð.
HJALTI Kristjánsson, fyrirliði 1.
deildarliðs Breiðabliks í knatt-
spyrnu, verður frá keppni næstu
vikurnar vegna meiðsla í hné. Blik-
ar verða því án hans og Árna
Kristins Gunnarssonar, sem er í
banni, þegar þeir mæta HK í Kópa-
vogsslag í 1. deildinni í kvöld.
JÓHANN Helgi Aðalgeirsson er
kominn aftur í raðir úrvalsdeild-
arliðs Grindavíkur í knattspyrnu.
Hann hefur verið í láni hjá 2. deild-
arliði Sindra frá byrjun tímabils-
ins.
BJARNI Þorsteinsson er einn af
sjö leikmönnum norska knatt-
spyrnufélagsins Molde sem er með
lausan samning að tímabilinu loknu
og getur farið frá félaginu án
greiðslu eftir næstu mánaðamót.
Jákup Mikkelsen, landsliðsmark-
vörður Færeyja, er einnig einn sjö-
menninganna. Mikkelsen fer að
líkindum til Danmerkur en nokkur
úrvalsdeildarlið þar eru að leita að
markverði.
ESPEN Silseth, framkvæmda-
stjóri Molde, segir að félagið hafi
rætt við flesta af þessum leik-
mönnum en það sé ekki lengur
sjálfgefið að öllum verði boðinn nýr
samningur. Bjarni hefur leikið níu
af tíu leikjum Molde í úrvalsdeild-
inni í ár, átta þeirra í byrjunarliði,
en hann er nú sitt þriðja tímabil í
herbúðum félagsins.
gær en Stjarnan situr á botni 1.
deildar.
Þingmaðurinn Bjarni Benedikts-
son, formaður knattspyrnudeildar
Stjörnunnar, er ánægður með nið-
urstöðu mála. „Það var sameig-
inleg niðurstaða þjálfaranna og
meistaraflokksráðsins að það væri
skynsamlegt að fá Ragnar til
starfa. Þetta er í mikilli sátt við
þjálfarana og við erum mjög
ánægðir að hafa fengið Ragnar til
starfa. Valdi og Rúni eru báðir
spilandi þjálfarar og vilja geta
tekið fullan þátt í æfingunum og
nú geta þeir það,“ sagði Bjarni
Benediktsson í samtali við Morg-
unblaðið.
RAGNAR Gíslason, fyrrverandi
leikmaður Stjörnunnar, hefur ver-
ið ráðinn sem þriðji þjálfari meist-
araflokks Stjörnunnar í knatt-
spyrnu. Valdimar Kristófersson,
þjálfari Stjörnunnar, og aðstoð-
armaður hans, Rúnar Páll Sig-
mundsson munu ásamt Ragnari
vera við stjórnvölinn hjá Stjörn-
unni.
„Ég, Valdi og Rúni munum stilla
upp liðinu fyrir leiki liðsins í sam-
einingu en ég mun stýra æfingum
hjá liðinu. Leikmenn liðsins verða
að gjöra svo vel að taka sig saman
í andlitinu og leika af krafti það
sem eftir er sumars,“ sagði Ragn-
ar í samtali við Morgunblaðið í
Þriðji þjálfarinn
hjá Stjörnunni
MANCHESTER United hefur tit-
ilvörnina í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á heimavelli sínum,
Old Trafford, laugardaginn 16.
ágúst í leik á móti grönnum sínum
í Bolton. Með Guðna Bergsson inn-
anborðs hafði Bolton betur á Old
Trafford á síðustu leiktíð, 1:0, með
marki Kevins Nolans svo líklega
vilja ensku meistararnir ná fram
hefndum.
Arsenal á sömuleiðis heimaleik
en liðið tekur á móti Everton á
Highbury. Stórleikur verður á An-
field þegar heimamenn í Liverpool
fá Eið Smára Guðjohnsen og fé-
laga í Chelsea í heimsókn en liðin
áttust við í úrslitaleik um Meist-
aradeildarsæti á Stamford Bridge
í lokaumferð deildarinnar í maí
þar sem Chelsea-menn fögnuðu
sigri.
Leikirnir í 1. umferðinni 16.
ágúst eru annars þessir:
Arsenal – Everton
Birmingham – Tottenham
Blackburn – Wolves
Charlton – Man. City
Fulham – Middlesbrough
Leeds – Newcastle
Leicester – Southampton
Liverpool – Chelsea
Man. Utd. – Bolton
Portsmouth – Aston Villa.
Í 2. umferðinni sem er á dagskrá
23. ágúst mætast:
Aston Villa – Liverpool
Bolton – Blackburn
Chelsea – Leicester
Everton – Fulham
Man. City – Portsmouth
Middlesbrough – Arsenal
Newcastle – Man. Utd.
Southampton – Birmingham
Tottenham – Leeds
Wolves – Charlton
Manchester United og Arsenal
mætast á Old Trafford 20. sept-
ember og á Highbury 27. mars
2004.
Titilvörn Manchester
United hefst gegn Bolton
Borgvardt vekur áhuga
ALLAN Borgvardt, danski framherjinn hjá FH-ingum, hefur slegið
í gegn með Hafnarfjarðarliðinu í upphafi Íslandsmótsins og er
frammistaða hans farin að vekja áhuga erlendra liða. Borgvardt,
sem er 23 ára gamall og kom til FH-inga í vor ásamt landa sínum
Tommy Nielsen, hefur skorað þrjú mörk fyrir FH-inga og gert mik-
inn usla í vörnum andstæðinganna.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að Lokeren í Belgíu og
Stoke City hafi sýnt Borgvardt áhuga og fleiri erlend félög hafa
sett sig í samband við umboðsmann hans.
Borgvardt kom til FH frá danska úrvalsdeildarliðinu AGF þar
sem samningur hans var útrunninn en verði úr að hann semji við
annað lið verður hann að gera það fyrir 1. september en þá verður
lokað fyrir félagaskipti.
Eftir leikinn á móti Litháum fór-um við að hugsa hvort ekki
væri rétt að endurskoða þessa
ákvörðun í ljósi
þess að við vorum
með tvo mjög hæfa
þjálfara sem hefur
gengið mjög vel að
vinna saman og hafa góð áhrif á
liðið og leikmenn þess. Stjórnin
ræddi þessi mál fram og til baka
og hún fól mér að ganga til samn-
ingaviðræðna við þá. Ég sagði á
fréttamannafundinum í maí að við
gerðum okkur strax grein fyrir því
að það yrði erfitt að finna hæfan
mann sem við réðum við peninga-
lega. Ég þreifaði aðeins á þjálf-
aramarkaðnum ytra og það sem
mér fannst spennandi var einfald-
lega allt of kostnaðarsamt,“ sagði
Eggert við Morgunblaðið.
Eggert segist bera miklar vænt-
ingar til þeirra Ásgeirs og Loga.
„Ég hef fylgst grannt með vinnu-
brögðum þeirra og það hefur verið
sérlega ánægjulegt að sjá breyt-
inguna á liðinu. Ekki bara á spila-
mennskunni heldur hafa þeir sér-
lega góð áhrif á hópinn.“
Ásgeir hefur verið svokallaður
tæknilegur ráðgafi landsliðsins.
Fyrst hjá Guðjóni og síðan Atla og
einnig sem landsliðsnefndarmaður.
Telur þú að hann geti komið með
eitthvað nýtt inn í landsliðið?
„Ég held að Ásgeir hafi aldrei
skipt sér beint af málunum heldur
var hann bakvið tjöldin. Hans
skoðun var alltaf sú að þjálfarinn
réði alfarið öllu varðandi liðið og
val þess og ég varð aldrei var við
að hann gripi inn í. Hann hefur
hins vegar öðlast mikla reynslu af
að geta horft hlutlaust á þetta og
bæði það og hans gríðarlega
reynsla eftir áralanga atvinnu-
mennsku getur ekki annað en
hjálpað til. “
Þú réðst Loga sem landsliðs-
þjálfara 1995 en varð síðan að
segja honum upp tæpum tveimur
árum síðar. Er ekki svolítið und-
arlegt að vera í þeirri stöðu nú að
ráða hann í annað sinn?
„Mér finnst bara mjög ánægju-
legt að gera það. Mér bar sem for-
maður að taka þá ákvörðun í sam-
ráði við stjórn KSÍ að víkja Loga
frá vegna slaks árangurs landsliðs-
ins. Það var alls ekki létt verk og
tók mikið á en hvað okkur Loga
varðar þá höfum við alltaf hvað
hvor fyrir sig stendur. Ég hef allt-
af vitað að Logi væri hæfur þjálf-
ari þó svo hann hafi ekki náð ár-
angri á þeim tíma með landsliðið.
Síðan þá hefur hann öðlast dýr-
mæta reynslu og lært af því að
hafa verið landsliðsþjálfari og séð
svona eftir á kannski hvað hefði átt
að vera öðruvísi. Logi kemur
sterkari til leiks núna og ég fagna
því að hann hafi sýnt og sannað að
hann hafi átt rétt á að koma inn í
þetta aftur.“
Eggert segist ekki gera neinar
sérstakar kröfur til þeirra Loga og
Ásgeirs hvað riðlakeppni EM varð-
ar. „Síðustu leikir hafa gengið
mjög vel og okkar von er að gengi
liðsins haldi svona áfram. Við get-
um gert kröfur um að liðið vinni
Færeyinga en það er ekkert sjálf-
gefið eins og úrslitin í riðlinum
hafa sannað. Ef það kemur upp að
við vinnum í Færeyjum skjótumst
við í toppsætið og erum þá komnir
í ævintýralega stöðu fyrir leikina
við Þjóðverja í haust. “
Eggert segir mikinn létti fyrir
sig að vera búinn að ganga frá
þjálfaramálunum og ekki síður að
landsliðið er komið á rétta sporið á
nýjan leik.
„Ég tel draumastöðu fyrir KSÍ
að hafa getað klárað þetta mál með
því að fá þá Loga og Ásgeir til
starfans og tel að þetta hafi verið
besti kosturinn í stöðunni,“ segir
Eggert Magnússon, formaður KSÍ.
Besti kosturinn
Morgunblaðið/Arnaldur
Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson stýra landsliðinu í knattspyrnu næstu ár og þar með hefur
KSÍ horfið frá þeirri ætlun sinni að ráða útlending í stað Atla Eðvaldssonar.
Á BLAÐAMANNAFUNDI sem KSÍ
efndi til í kjölfar afsagnar Atla
Eðvaldssonar í byrjun síðasta
mánaðar tilkynnti Eggert Magn-
ússon, formaður KSÍ, að hann
hefði fengið umboð stjórnar KSÍ
til að leita erlendis að nýjum
þjálfara. Á sama fundi var til-
kynnt að Ásgeir Sigurvinsson
hefði verið ráðinn landsliðs-
þjálfari tímabundið. Skömmu
síðar var Logi Ólafsson ráðinn
við hlið Ásgeirs. Í fyrradag
greindi formaðurinn svo frá því
að leitinni erlendis væri lokið –
Ásgeir og Logi yrðu landsliðs-
þjálfarar til haustsins 2005.
Eftir
Guðmund
Hilmarsson