Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 28
LISTIR 28 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ F LESTIR eiga að vita af borginni við ósa Nevafljótsins yst í Finnska flóanum, á tímum rússneska keis- aradæmisins nefnd Sánkti Péturs- borg. Umskírð í Pétursborg 1914 og svo Leníngrad nokkrum árum eftir að bolsévikar komust til valda, en eftir fall Sovétríkjanna fljótlega aftur í Skt. Pét- ursborg. Vitneskjan gerist helst fyrir heimssögulega atburði á tuttugustu öld, einnig að hún var vagga stigmagnandi atburðarásar á ofanverðri nítjándu öld sem er tímar liðu leiddi til októberbyltingarinnar. Lokahnykkurinn hófst hinn sjöunda nóvember 1917, er fáeinum lausum skotum var hleypt af fallbyssum beitiskipsins Auroru í átt til stjórnsetursins í Vetrar- höllinni. Náði til Moskvu tólfta desember, stóð yfir í 10 daga og endaði með valdatöku bolsévika. Borgin álitin ein sú fegursta í veröldinni, nafn- toguð fyrir yndisþokka sinn og glæsibyggingar, ekki síst Vetrarhöllina, byggð í barokkstíl og hugmyndin sótt til Versailles. Enn- fremur sérstæð rismikil guðshús, söfn, leikhús, óp- eru og yfirleitt allt sem móðurborg má prýða. Í Vetrarhöllinni er hið nafnkennda Hermitage- listasafn (Eremitage) einnig til húsa, eitt hið stærsta og mikilvægasta í veröldinni, að baki þess mikil saga. Pétursborg telst er svo er komið önnur helsta menn- ingarmiðstöð Rússlands og var höfuðborg landsins allar götur frá 1712, eða þar til bolsévikar fluttu stjórnsýsluna aftur til Moskvu. Við andlát Vladímírs Íljítjs Úljanovs Leníns 1924 vildu þeir heiðra þessa vöggu byltingarinnar með því að gefa henni nafn hins mikla leiðtoga og fræðikenningasmiðs. Þessi atburðarás er þó engan veginn til umfjöll- unar hér, heldur að borgin státar af afreki sem fáar ef nokkrar stórborgir gera, nefnilega að hægt er að heimfæra fæðingu hennar nákvæmlega upp á dag, þ.e. 27. maí 1703, líkast til einnig klukkustund. Skeði þegar Pétur I risti með korða sínum tvo torfstrimla úr rennvotum grassverðinum, lagði hvorn yfir annan svo þeir mynduðu kross og mæltist svo: Á þessum stað skal borg mín byggð. Yfirleitt eiga miklar menningarborgir sér æva- forna sögu og eru hér Róm og París klár dæmi, Kaupmannahöfn nærtækast, þótt engan veginn sé hægt að bera þessa París norðursins saman við hinar að stærð og vigt. En sameiginlegt með öllum að þær eiga sér langa þróunarsögu, hinar fyrstnefndu hálfu lengri, og hvernig sem á málið er litið afar hæpin gjörð að ætla sér að skipuleggja borg fram í tímann, hvað þá á þann veg að hún skuli djásn ríkisins og höfuðborg í náinni framtíð. Hér um flókið þróunar- ferli að ræða, undiröldu sem í flestum tilvikum ræð- ur ferðinni, óskilgreinda örlagavefi sem rás aldanna leggur hönd að. En í þessu tilviki var enginn venju- legur maður á ferð, öllu frekar risi, jafnt að andlegu sem líkamlegu atgervi og með ótakmarkaðan metnað fyrir hönd þjóðar sinnar. Þrjúhundruð ár er þannig enginn aldur fyrir slíka móðurborg og frá þeim sjón- arhóli er Pétursborg fátt annað en yfirþyrmandi kraftaverk. Fyrir utan nokkra tugi smáþorpa hvar bjuggu Finnar og Rússar var svæðið sem hún stendur á svo sem ekki neitt, mestmegis mýrarflákar, auðn og tóm svo langt sem auga nam, en eins og sagan hermir kom þá maður með reglu- striku … Margur mun á einhvern hátt þekkja til þjóðsagna-persónunnar Péturs I (1675–1725), mannsinssem fór í skó Alexanders Nevskíjs fursta afNovgorod, þess er bar sigurorð af sænska hern- um við Neva 1236. Í stóra norræna stríðinu sem hófst 1703 hrakti Pétur Svía endurtekið af landsvæðinu, gaf þeim loks náðarhöggið sem herveldi við Eystrasalt 1721. Í annað sinn á fimm öldum opn- aðist Rússum sjóleiðin til vesturs og nú til frambúðar, og fyr- ir þá dáð tók Pétur sér nafnbótina hinn mikli og jafnframt imperator, keisari. En það var þó nokkru áður, eða sem fyrr segir 27. maí 1703, að hann markaði borg sinni stað í útjaðri ríkisins til vesturs, mitt á óshólmum Nevafljótsins, tók þar- með forskot á framtíðina. Þegar 1712 var hún opinberlega útnefnd höfuborg Rússlands, með alla samanlagða stjórn- sýslu; þing, hirð og sendiráð, einnig tilheyrandi stofnanir svo sem listasöfn, bókasafn, leikhús, stjörnuathugunarstöð og vísindaakademíu. Og í nágrenninu voru hallirnar Or- aníumbaum og Péturshirð byggðar, hin íburðarmikla sum- arhöll Péturs í anda Versala, sem að sumu leyti er álitin taka þeim fram, í báðum tilvikum þetta allt að sjálfsögðu með að- stoð fjölda erlendra sérfræðinga, ráðgjafa og stjörnuarki- tekta tímanna. Sem sagt upp á dag, þrjú hundruð ár frá því að Pétur mikli mælti af munni fram þau spaklegu orð 27. maí: Á þessum stað skal borg mín byggð. Hins örlaga- þrungna atburðar minnst víða um heim, og þá ekki síst með viðamiklum hátíðahöldum í borginni sjálfri. Einvaldurinn stóð við orð sín, hvorki hik né fum hér, en bygging borgarinnar kostaði ómældar fórnir, eins og segir; stjörnufræðilega mörg mannslíf, meðal annars drjúgan hluta 40.000 sænskra stríðsfanga sem einnig voru settir í verkið. Staðsetningin var í flestum skilningi í senn hagkvæm og vit- urleg, náttúran hins vegar nær óyfirstíganleg hindrun, mar- tröð og fífldirfska að ætla sér að skipuleggja höfuðborg á mýrarflákunum við ósa Nevu. En miklir menn taka miklar ákvarðanir og miklum áskorunum, og það hefur sjaldan sannast jafn rækilega og einarður ásetningur hins óvægna og framfarasinnaða keisara. Með staðsetningu borgarinnar opnaði hann Rússlandi dyr til vesturs og um leið vestrænni menningu alla ljóra hins um aldir einangraða og lokaða ríkis. Eðlilega urðu til margar þjóðsögur um tilorðninguborgarinnar, ein þeirra að hún hafi sigið full-sköpuð af himnum ofan til jarðar, önnur að Eud-oxia, fyrsta kona Péturs, hafi lagt á hana eilífa bölvun þegar henni var útskúfað, hin þriðja að Pétur hafi í bráðræði sínu og óþolinmæði verið eilítið hirðulaus með reglustrikuna og eigi það sinn blessunarlega þátt í lífrænum og bugðóttum götum, síður þráðbeinum í kruss og þvers. Blakka hliðin á goðsögunum er sagður viðvarandi og arf- gengur ótti mannskepnunnar við reiði og hefnd náttúrunnar. Ótti sem fékk byr undir báða vængi í hvert sinn sem hið mikla fljót flæddi yfir bakka sína, hreif hús, menn og skepn- ur með sér í þungan vatnsflauminn. Og ekki laust við að menn væru á móti hinum ósveigjanlega ásetningi drottn- arans að þvinga vestur-evrópskum siðum og hugsunarhætti upp á hið forna ríki, evrópusera Rússland. Klofningur sem allar götur síðan má telja þjóðareinkenni Rússlands, viðhald þjóðlegra geymda um leið og nýir siðir og venjur skyldu teknar upp. Jafnvel bolsévikar voru þessu marki brenndir þá þeir lokuðu landinu um leið og þeir hugðust skapa fyrir- myndarríki. Hins vegar siguðu þeir múgnum á arfleifð for- tíðar sem skyldi burtmáð, og þótt það gengi um sinn var í þeim grunnfæra ásetningi fall þeirra falið. Enginn getur af- neitað uppruna sínum, fortíðin segir alltaf til sín sem hluti núsins og án þess að rétta henni hönd, engin framtíð. Pétur var jötunn að burðum og samsvaraði sér vel þótt hann væri heilir tveir metrar og sjö sentimetrar að hæð, en þrátt fyrir framfara- og menningarást var hann um margt frumstæður og fara margar sögur af óvenjulegum háttum hans og uppátækjum. Trúði í fyrstu meir á eigin jötunkrafta en orku vélanna, þannig tókst með snarræði að afstýra því að hann reyndi að stöðva vél með handafli sem hefði orðið til að hann missti höndina. Hann var áhugasamur um tannlækn- ingar og vissi hann af einhverjum með tannverk í nágrenninu hafði hann engar vöflur á og dró úr viðkomandi tönn- ina. Varðveitti tennur fórnardýranna og er sekkur með hluta þeirra til sýnis á Hermitage-safninu. Þá getur í sumarhöll Péturs að líta risastórt staup í glerkassa, sem hann var vanur að barmafylla af vodka og rétta þeim sem hann grunaði að sætu á svikaráðum við sig. Á þá lagt að svelgja vökvann í einum teyg í botn, einnig mun hann hafa haft lúmskt gaman af því að gera fólk ofurölvi í kringum sig og kom þá staupið stóra að góðum notum. Ekki laust við að þær hugleiðingar sæki á, að Pétur hafi verið vitandi um ljómann í kringum feril Ágústar sterka kjörfursta af Saxlandi og konungs Póllands (1526–86), jafnframt menningar- og fram- farahungur hans. Ágúst sterki var mikill fagurkeri sem Dresden, höfuðsetur hans, er enn til vitnis um jafnvel og þrátt fyrir eyðinguna miklu í lok seinni heimsstyrjaldarinnar, þar í ofanálag glataðan arki- tektúr Stalínstímabilsins. Uppbygging Sánkti Pét- ursborgar sem háborgar menningar og lista ber nokkurn svip draumaborgarinnar við Saxelfi, einkum er fram liðu stundir og Elísabet, dóttir Péturs mikla, komst til valda eftir órólega tíma. Eftir andlát Pét- urs sátu fjórir keisarar í valdastóli á aðeins sextán ára tímabili; Katrín I, Pétur II, Anna I og Ívan IV. En þegar skörungurinn Elísabet tók upp merki föð- ur síns, lægði allar öldur og varð nú mikill viðsnún- ingur samfara eflingu og útvíkkun ríkisins og stóð uppbyggingin yfir öll 23 ríkisár valkyrjunnar. Það var og í tíð hennar að hafist var handa um byggingu Vetrarhallarinnar, jafnframt því að fagurlistaaka- demía var stofnuð hvar engin stéttaskipting skyldi, allir sem á annað borð sýndu hæfileika jafnir og réttháir. Andlát Elísabetar bar að sama ár og bygg- ingu hallarinnar lauk, sem hafði ekki tekið nema átta ár að reisa og þykir ótrúlegt afrek enn þann dag í dag. Hin mikla hallarsamstæða brann til kaldra kola 1837, utan hin glæsilega framhlið, en öll endurbyggð í fyrri mynd. Í henni 1.050 herbergi/salir, 1.786 gluggar og 117 tröppugangar(!), er þó hvergi yf- irþyrmandi tilsýndar og virðist þægileg íveru sem er meira en óvenjulegt um slík bákn. Pétur III stórfursti sonur Elísabetar tók viðaf móður sinni en valdatíð hans endaslepp,náði einungis yfir hálft ár, sagan hermir aðkonu hans, Katrínu II (1729-96), hafi legið yfirmáta á að verða ekkja og keisaraynja. Makinn reikull og hafði meiri áhuga á leikbrúðum og tindát- um en ómældri ástarþörf spúsunnar sem hann van- rækti. Að því kom að stuðningsmenn Katrínar gerðu Pétri samsæri undir yfirskyni illa þokkaðrar aðdáun- ar á Friðriki II Prússakonungi, og lauk þar ævi hans. Katrín II, sem fékk viðurnefnið mikla, var svipmikill kvenskörungur, lífsþyrst og drottnunargjörn, taum- laus vergirni hennar helst þekkt og haldið á lofti á Vesturlöndum. Umhugsunarlaust valdi hún sér losta- gosa og vildarmenn og tók ekki hið minnsta tillit til skoðana ráðherra sinna. En hún átti sér fleiri hliðar og þessi fyrrverandi prinsessa lítilsiglds furstadæm- is, Anhalt-Zerbst í landi Þýðverja, tók hugmyndir Péturs mikla um keisaradæmið sér til fyrirmyndar. Leitaðist í einu og öllu við að feta í fótspor hans og leyndi því ekki að hún mat rit Péturs til jafns við biblíuna. Las franska rithöfunda sem best höfðu skrifað um siðgæði, náttúru og trúarbrögð, lá yfir alfræðibókum, ritum Voltaires og Rouss- eaus og stóð í bréfaskriftum við Voltaire, Helvetius og Dide- rot. Hafði náið samband við hinn síðastnefnda sem gerðist sérlegur umboðsmaður hennar um listaverkakaup í París, en á því sviði var hún ekki einhöm og náðu viðskipti hennar vítt um Evrópu. Hins vegar voru umsvif Katrínar öllu minni í heimalandinu, spurn hvort það hafi að hluta til verið vegna þess að hún er sögð hafa látið prenta ótakmarkað magn af rúblum til kaupa á erlendum listaverkum, en þann frumlega leik með matadorpeninga gat hún trúlega síður iðkað á heimaslóðum. Þá var hún talsmaður frjálshyggju, en ein- ungis utan landsteinanna, vanmat landa sína um leið og hún lyfti undir útlendinga. En hvað sem öðru líður var stjórn- kænsku Katrínar viðbrugðið, hér var hún hál sem áll og hafði öll spjót úti til að soga til Rússlands sem mest af menningar- verðmætum Vestur-Evrópu, sem henni tókst með miklum bravúr. Katrín fékk einn góðan veðurdag þær upplýsingar beint frá sendiherra sínum í París, að Diderot væri í fjárþröng og hugleiddi að selja hið viðamikla bókasafn sitt, sem hann hafði að meginhluta viðað að sér við samningu hinnar miklu al- fræðibókar í 28 bindum sem hann ritstýrði ásamt stærðfræð- ingnum og heimspekingnum Jean l’Alembert, sömuleiðis einn af ásum upplýsingaaldar. Hún brá skjótt við og bauðst til að kaupa safnið allt eins og það lagði sig og galt meira fyr- ir en Diderot hafði sett upp. Gerði hann um leið að umsjón- armanni bókasafns síns sem var stórsnjallt herbragð. Er Katrín frétti seinna að Diderot hefði einnig látið mestan hluta handrita sinna fylgja bókasafninu varð hún himinlif- andi og galt honum laun fyrir umsjón þess í 50 ár fyrirfram (!), og skar ekki við nögl sér. Þarmeð hafði Diderot 41.000 livres, til umráða sem var stórfé í höndum hans og í sömu andrá varð Katrín þekkt, metin og virt í röðum heimspek- inga tímanna … – Hér lítillega greint frá þeim þrem meginásum sem lögðu grunn að ævintýraborginni við ósa Nevu, en skylt að koma nánar að heimildum og víkja meira að henni sjálfri í næsta vikupistli. SJÓNSPEGILL Bragi Ásgeirsson bragi@internet.is Pétur mikli við skipulagningu borgar sinnar. Málverk eftir Alexander von Kotzebune, 1862. „Á þessum stað skal borg mín byggð.“ Heimsborg reis upp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.