Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 27 Hallgrímskirkja Sýningu á myndverki Guðjóns Ketilssonar lýkur í dag. Verkið, sem mætir kirkjugestum í forkirkju Hall- grímskirkju, er blár veggur með hvítri lágmynd (tré). Gallerí Hár og list, Strandgötu 39, Hafnarfirði Sýningu Brynju Árnadóttur á pennateikningum lýkur á sunnudag. Opið 9–18 virka daga og 14–18 um helgar. Sýningum lýkur Rauða húsið, Eyrarbakka Lovísa Lóa Sigurðardóttir myndlistar- maður sýnir 11 myndverk unnin með olíu og blandaðri tækni á striga. Sýningin stendur fram í ágúst. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is ÞAÐ má segja að hver listvið- burðurinn fylgi í kjölfar annars á Björtum dögum í Hafnarfirði í þessum mánuði, tón- leikar af ýmsum toga, listsýningar og leik- sýningar svo eitthvað sé nefnt og raunar svo mikið og fjölbreytt að erfitt er að henda reiður á og gera því öllu skil. Hafnfirðing- urinn Alda Ingibergs- dóttir hélt einsöngs- tónleika í listamið- stöðinni Hafnarborg og með henni var pí- anóleikarinn Ólafur Vignir Albertsson. Fyrri hluti efnis- skrárinnar samanstóð af íslenskum einsöngs- perlum sem allar fjalla um sumarið á einn eða annan hátt. Sveinbjörn Sveinbjörnsson áttu fyrstu þrjú lögin (Álfarnir, Roðar tinda sum- arnótt og Til næturinnar), síðan voru tvö smalalög eftir Skúla Hall- dórsson (Smaladrengurinn og Smalastúlkan), Hjarðmærin eftir Ragnar H. Ragnar, Smalavísa eftir Þórarin Jónsson, tvö lög eftir Jó- hann Ó. Haraldsson (Bara syngja og lifa og Litla lindin mín) og Fugl- inn í fjörunni og Ég elska þig eftir Jón Þórarinsson. Af lögum Svein- björns fannst undirrituðum lagið Álfarnir vera best flutt. Lög Skúla voru bæði virkilega vel lifandi í flutningi Öldu og Ólafs. Lag Ragn- ars H. Ragnar er dálítið sérkenni- legt og alls ekki auðsungið og ekki laust við að rödd Öldu væri dálítið stíf á köflum. Smalavísa Þórarins Jónssonar var falleg og vel sungin og það sama á við um lög Jóhanns Ó. Haraldssonar. Fuglinn í fjörunni dansaði tindilfættur og léttur í með- förum Öldu og Ólafs. Efnisskráin eftir hlé samanstóð af aríum og söngvum eftir Mozart, Arditi og Bernstein. Fyrst söng Alda tvær aríur eftir Mozart, Vorr- ei spiegarvi, oh Dio, konsertaríu Kv. 418, og Welcher Kummer, sem er aría Konstönsu úr Brottnáminu úr kvennabúrinu. Báðar fjalla ar- íurnar um ástina en þó á ólíkan hátt. Mozart samdi Kv 418 fyrir Aloysiu Weber 20. júní 1783 og Brottnámið var frumflutt í Vín 16. júlí 1782. Hinn vinsæli söngvals allra kólorat- úrsóprana Il Bacio eða Kossinn er eitt af fáum söngverkum ítalska hljómsveitar- stjórans og tónskálds- ins Luigi Arditi (1822– 1903) sem eru þekkt í dag. Alda flutti Koss- inn með glans og mikl- um húmor og náði að skapa góða stemningu og í lokin hljómaði „háa“ D glæsi- lega og tandurhreint. Gamanóperan Candide eftir Bernstein var frum- flutt í október 1956, úr henni söng Alda mjög fallega aríu Cunegonde, Glitter and be gay. Sem aukalög söng alda lag úr Show Boat eftir Kern og aríu úr Leðurblökunni eft- ir Léhàr sem var stórglæsileg og flott. Alda er greinilega mikill kól- oratúrsópran og hefur mikla hæð, sem heyra mátti aftur og aftur, t.d. ítrekað Es fyrir ofan „háa“ C og áð- urnefnt D. Röddin, sem er mikil og stór, átti til að stífna af og til en þess á milli tiplaði hún létt á tón- unum. Undirritaður hefur á tilfinn- ingunni að röddin hafi fengið meiri fyllingu í seinni tíð. Ólafur Vignir er löngu þjóðkunnur undirleikari sem af öryggi styður vel við söngvarann og átti sinn þátt í að gera þessa tón- leika ánægjulega. Bara syngja og lifa TÓNLIST Hafnarborg Alda Ingibergsdóttir sópran og Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari. Fimmtu- dagurinn 12. júní kl. 20.30. EINSÖNGSTÓNLEIKAR Jón Ólafur Sigurðsson Alda Ingibergsdóttir KÓR Flensborgarskólans ásamt ein- söngvurum og hljóðfæraleikurum flytur fjölbreytta efnisskrá í Hafn- arborg kl. 20 í kvöld. Stjórnandi er Hrafnhildur Blomsterberg. Tónleik- arnir eru liður í menningar- og listahátíðinni Björtum dögum og á efnisskránni er m.a. að finna íslensk- ar kórperlur, kafla úr Sieben Lieder eftir Johannes Brahms, þrjú ung- versk þjóðlög eftir Béla Bartók, negrasálma og fleira. Sérstakir gest- ir tónleikanna verða tveir nýskipaðir sönghópar úr röðum eldri kórfélaga. Kórinn hefur undanfarin ár gert víðreist og má þar nefna þátttöku í alþjóðlega kóramótinu Kaggik 2000 í Kanada og alþjóðlegri kórakeppni á Spáni síðastliðið sumar þar sem kór- inn hlaut fyrstu verðlaun í einum af þremur flokkum keppninnar. Þá hef- ur kórinn nýlokið tónleikaferð um Austurland. Kór Flens- borgarskólans í sumarskapi Laugardagur Kaffihúsið Græna kannan kl. 11 Kvennahlaup ÍSÍ. Hlaupnir verða 2 km og 5 km. Kaffihúsið er opið frá 11–18. Verslun og listhús Vala verða opin frá 11–18. Aðaltorg Sólheima kl. 13–17 Úti- markaður fyrir listmuni og lífrænt grænmeti. Þema helgarinnar er Vefstofan og Listasmiðjan. Hægt verður að fylgjast með listamönn- um að störfum kl. 13–18. Sumarsýning Ingustofu Sólheima 13–18 Leirgerð Sólheima sýnir af- rakstur vinnu sinnar. Græna kannan kl 16 Sumarkabarett í kaffihúsinu. Söngsveit Leikfélags Sólheima flytur lög eftir Bítlana, Abba, úr Grease o.fl. gamla smelli. Gestaleikari er Björgvin Franz Gíslason. Sunnudagur Verslun og listhús Vala Opin frá 11– 18. Ingustofa, Sólheimum kl. 13–18 Leirgerð Sólheima sýnir afrakstur vinnu sinnar. Græna kannan Opið kl. 11–18. Sumarkabarett kl. 16 Gestaleikarar eru Kaffibrúsakarlarnir Gísli Rún- ar Jónsson og Júlíus Brjánsson. Aðaltorg Sólheima kl. 13–17 Úti- markaður fyrir listmuni og lífrænt grænmeti. Listasumar er hluti af listahátíð- inni List án landamæra sem er haldin í tilefni af Evrópuári fatl- aðra 2003. Listasumar á Sólheimum í Grímsnesi NÚ er að hefjast röð orgeltónleika í Reykholtskirkju. Það er Guðmundur Sigurðsson organisti Bústaðakirkju, sem opnar tónleikaröðina, en hún verður sjö laugar- daga í sumar og hefjast allir tón- leikarnir kl. 20.30. Laugardaginn 21. júní leikur Guðmundur Sig- urðsson, laugar- daginn 28. júní Kjartan Sigur- jónsson, formaður Félags íslenskra organleikara, laugardaginn 5. júlí Árni Arinbjarnarson, laugardaginn 12. júlí Sigrún Þórsteinsdóttir, laug- ardaginn 19. júlí Reynir Jónasson, laugardaginn 2. ágúst Douglas A. Brotchie og það er Marteinn H. Frið- riksson dómorganisti sem lýkur tón- leikaröðinni laugardaginn 9. ágúst. Tónleikarnir eru skipulagðir í sam- vinnu við Félag íslenskra organleik- ara og organistarnir sem leika á tón- leikunum leggja fram vinnu sína til styrktar uppsetningu orgelsins og fagna með því endurkomu þess að kirkjutónlist í landinu. Orgeltónleika- röð í Reykholti Guðmundur Sig- urðsson organisti. ERLING Jóhannesson, leikari og leikstjóri, og Hallfríður Ólafsdóttir, flautu- og pikkolóleikari, eru bæj- arlistamenn Garðabæjar árið 2003. Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri afhenti þeim Erling og Hallfríði starfsstyrk listamanna árið 2003 við hátíðarmessu í Vídalínskirkju 17. júní. Erling Jóhannesson er einn af stofnendum Hafnarfjarðarleikhúss- ins þar sem hann hefur starfað sem einn af listrænum stjórnendum leikhússins, sem leikari, handrits- höfundur, leikmyndahönnuður og leikstjóri. Hallfríður Ólafsdóttir hefur verið fastráðin hjá Sinfón- íuhljómsveit Íslands frá árinu 1997 sem flautu- og pikkolóleikari. Frá árinu 1999 hefur Hallfríður verið fyrsti flautuleikari Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Bæjarlista- menn Garðabæjar Bæjarlistamennirnir Erling og Hallfríður ásamt Ásdísi Höllu Bragadóttur bæjarstjóra, Tryggva Pétri og Gunnhildi Höllu, börnum Hallfríðar. SÝNINGUM á Veislunni lýkur nú um helgina en hún hefur gengið fyrir fullu húsi á Smíðaverkstæði Þjóð- leikhússins í rúmt ár. Hilmir Snær Guðnason fékk Grímuna, Íslensku leiklistarverðlaunin, sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir leik sinn í Veislunni. Hann hefur dvalið erlendis um hríð en mun leika í sýning- unum nú um helgina. Leikendur í sýningunni eru, auk Hilmis Snæs, Arn- ar Jónsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Elva Ósk Ólafsdóttir, Inga María Valdi- marsdóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Stefán Jónsson, Erlingur Gísla- son, Þóra Friðriksdóttir, Yapi Donatien Achou, Kjart- an Guðjónsson og Brynhildur Guðjónsdóttir. Píanó- leikari og umsjónarmaður tónlistar er Jóhann G. Jóhannsson. Hilmir Snær snýr aftur í Veisluna Morgunblaðið/Árni Sæberg Hilmir Snær Guðnason og Tinna Gunnlaugsdóttir í hlutverkum sínum í upphafi sýningarinnar Veislunnar. DÓMKÓRINN í Reykjavík heldur sumartónleika í Reykholtskirkju á laugardag kl. 14. Flutt verða ýmis kórlög, gömul og ný, sem tengjast þessum árstíma, m.a. verk eftir þá Edvard Grieg, Anton Bruckner, Jo- hannes Brahms og Bob Chilcott. Þá flytur kórinn, undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, fjögur ný íslensk sálmalög, sem samin voru fyrir Dómkórinn í fyrrahaust. Tónleikar Dómkórsins ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.