Morgunblaðið - 20.06.2003, Síða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Síðasta settið
gríptu tækifærið
Ármúla 44 • Sími 553 2035 • www.hphusgogn.is
Tegund: ASTAIR 3+2+1, ljósbrúnt leður
Verð áður 469.300,-
Verð nú 375.400,-
20% afsláttur
sími 544 2140
Matar- og kaffistell
Brúðargjafir & gjafalistar
48 tegundir
Ísland og Evrópusambandið
Þrjár leiðir
mögulegar
ÍDAG koma út á vegumAlþjóðamálastofnun-ar Háskóla Íslands
tvö rit um stöðu og valkosti
Íslands í Evrópusamstarfi,
sem unnin hafa verið í
samstarfi við norsku al-
þjóðamálastofnunina
NUPI. „Ísland og Evrópu-
sambandið: EES, ESB-að-
ild eða „svissnesk lausn““
er yfirskriftin á aðalritinu,
en því fylgir sjálfstæður
viðauki um sjávarútvegs-
mál, nánar tiltekið um end-
urskoðaða sameiginlega
fiskveiðistefnu Evrópu-
sambandsins og hugsan-
lega aðkomu Íslands og
Noregs að henni.
Auðunn Arnórsson
stjórnmálafræðingur ann-
aðist fyrir hönd Alþjóða-
málastofnunar HÍ ritun
hinnar íslensku útgáfu að-
alritsins, en samtímis kemur út í
Ósló norsk útgáfa þess.
Hvert er efni bókarinnar og
hvernig er hún uppbyggð?
„Ritið skiptist í þrjá megin-
hluta. Í fyrsta hluta er sjónum
beint að þróun Evrópusambands-
ins síðan árið 1994, einkum stækk-
unarferlinu og endurskoðun stofn-
ana- og ákvörðunarkerfa þess. Í
öðrum hluta er að finna samantekt
um þátttöku Íslands í Evrópusam-
vinnu og um reynsluna af EES-
samstarfinu, sem nú spannar heil-
an áratug. Í þriðja hluta eru rök
færð fyrir því að Ísland standi
frammi fyrir þremur kostum hvað
varðar framtíðartengingu við
ESB – áframhaldandi EES-aðild,
ESB-aðild eða „svissneskri
lausn“, þ.e. tvíhliða samningum
við ESB.
Þessi úttekt er samin í nánu
samstarfi NUPI og Alþjóðamála-
stofnunar HÍ. Frumkvæðið að
verkinu áttu menn hjá NUPI.
Grundvallarhugmyndin kviknaði
af ósk um að leggja eitthvað nýtt
af mörkum til að koma um-
ræðunni um framtíðartengsl Ís-
lands og Noregs við ESB í skýrari
farveg.“
Er íslenska útgáfan þá þýðing á
norskum texta?
„Aðeins að nokkru leyti. Íslensk
útgáfa aðalúttektarinnar byggist
á þeirri norsku, en verulegir hlut-
ar hennar eru frumunnir, enda er
aðeins að hluta til hægt að heim-
færa aðstæður í Noregi upp á ís-
lenskar aðstæður.
Viðaukinn um sjávarútvegsmál
fylgir báðum útgáfum aðalritsins.
Hann er skrifaður á ensku og ber
titilinn „Iceland, Norway and the
EC Common Fisheries Policy.
The potential for reform – a
springboard for Iceland and
Norway?“ Þórólfur Matthíasson,
dósent við viðskipta- og hagfræði-
deild Háskóla Íslands, Sveinn
Agnarsson, hagfræðingur á Hag-
fræðistofnun HÍ, og Örn D. Jóns-
son, prófessor í viðskipta- og hag-
fræðideild, eru meðhöfundar að
greinargerðinni. Hjalti Þór Vign-
isson stjórnmálafræð-
ingur hafði umsjón með
verkinu fyrir hönd Al-
þjóðamálastofnunar.“
Hverju er vonast eft-
ir að bókin fái áorkað?
„Tilgangurinn er
fyrst og fremst að þessi úttekt geti
nýst sem verkfæri sem stuðlar að
upplýstri og faglegri umræðu um
Evrópumál á Íslandi. Leitast við
að greina þau mál sem efst eru á
baugi Evrópusamvinnunnar og
umræðunnar um hana. Höfundar
ritsins og viðauka þess hafa lagt
sig fram um að skrifa lesvænan
texta, sem geti þjónað sem grund-
völlur fyrir umræðu um Evrópu-
málin, hvaða afstöðu sem hver og
einn kann að hafa til þess hvernig
tengingu Íslands við Evrópu skuli
vera háttað.“
Er einhver ákveðin afstaða tek-
in til þess hvaða kostur sé bestur
fyrir Ísland?
„Nei. Í þessari úttekt er ekki
tekin afstaða til þess hvaða val
væri Íslandi fyrir bestu. Það er
ekki hlutverk rannsóknastofnana
eins og Alþjóðamálastofnunar HÍ
og NUPI að taka afstöðu til póli-
tískra álitamála. Það er hlutverk
stjórnmálaumræðunnar að kom-
ast að niðurstöðu um það val, ekki
háskólasamfélagsins. Að okkar
mati er mikilvægt að sem flestir
taki virkan þátt í þessari stjórn-
málaumræðu, og að því viljum við
stuðla með því að bjóða upp á út-
tekt sem þessa, þar sem staðan og
valkostirnir eru skýrðir.
Það er hins vegar okkar mat, að
óhætt virðist að slá því föstu að
það sé ekki spurning hvort Ísland
eigi að tengjast samrunaferlinu í
Evrópu heldur hvernig. Flestir
sem hafa komið að umræðu um
Evrópumál á Íslandi virðast sam-
mála um að nauðsynlegt sé, í nafni
íslenskra hagsmuna, að landið
tengist ESB með einum eða öðr-
um hætti.
Það er von okkar að ritin verði
kærkomið framlag til umræðunn-
ar og höfði jafnt til al-
mennings, skólafólks,
stjórnmálamanna,
embættismanna og yf-
irleitt alls áhugafólks
um þessi málefni.“
Hversu lengi hefur
ritið verið í vinnslu?
„Undirbúningur hófst í Noregi
haustið 2002 og á Íslandi í byrjun
þessa árs.“
Hvar verður hægt að kaupa
bókina?
„Ritin verða seld hjá Alþjóða-
málastofnun HÍ í Odda og í Bók-
sölu stúdenta. Pantanir má senda
á netfangið smallst@hi.is.“
Auðunn Arnórsson
Auðunn Arnórsson fæddist í
Reykjavík 7. október 1968. Hann
varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Kópavogi 1988; lauk
MA-prófi í sagnfræði og stjórn-
málafræði frá háskólanum í
Freiburg im Breisgau í Þýzka-
landi 1994 og Master of Europ-
ean Studies-gráðu frá Evrópuhá-
skólanum í Brugge í Belgíu 1996.
Auðunn starfar sem blaðamaður
á Morgunblaðinu, en þar hóf
hann fyrst störf árið 1995. Sam-
býliskona Auðuns er Margrét
Sveinbjörnsdóttir, kynning-
arstjóri hjá Íslensku óperunni.
Mikilvægt að
sem flestir
taki þátt í
umræðunni
NÚ ER sá tími ársins sem hesta-
menn þeysast um fjöll og firnindi á
fákum sínum. Sumir fara í margra
daga ferðir um friðsælt hálendið en
aðrir láta sér nægja að bregða sér á
bak á láglendinu. Þessi myndarlegi
hópur hestafólks var við Hellu þeg-
ar ljósmyndari Morgunblaðsins
kom auga á hann á dögunum. Var
ferðinni heitið með hestastóðið í
sumarhagana. Veðrið lék við hesta-
mennina og hestarnir nutu þess að
spretta úr spori í blíðviðrinu. Sjálf-
sagt hlökkuðu hrossin líka til að fá
að hlaupa frjáls um hagana í sumar.
Morgunblaðið/Kristinn
Á hestbaki vestan við Hellu