Morgunblaðið - 20.06.2003, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 9
Á KYNBÓTASÝNINGU sem haldin
var nýlega á Gaddstaðaflötum við
Hellu hlaut Eydís, átta vetra hryssa
frá Djúpadal, aðaleinkunnina 8,02.
Knapi var Helga Björk Helgadóttir
og eigandi er Benedikt Valberg, afi
Helgu. Hún er aðeins 16 ára að
aldri og þykir þetta býsna góður ár-
angur hjá svo ungum sýnanda.
Helga segist hafa umgengist
hesta frá því hún man eftir sér og
æft stíft frá tíu ára aldri. Hryssuna
Eydísi hefur hún verið með í þrjú
ár. Um helgina taka þær þátt í Ís-
landsmeistaramóti barna, unglinga
og ungmenna í Mosfellsbæ. Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Stífar æfing-
ar í mörg ár
Hellu. Morgunblaðið.
Góður árangur á kynbótasýningu á Gaddstaðaflötum við Hellu
ÞÝSKA fyrirtækið RAG Trading
hefur hætt í bili við áform um að
reisa rafskautaverksmiðju á Grund-
artanga. Að sögn Páls Magnússonar,
stjórnarformanns Fjárfestingar-
stofu, treysti fyrirtækið sér ekki í
frekari nýfjárfestingar í bili en hefur
áhuga á að koma mögulega að verk-
efninu á síðari stigum. Aðrir erlendir
fjárfestar hafa einnig sýnt áhuga og
af þeim sökum hefur ríkisstjórnin
samþykkt að verja fimm milljónum
króna í undirbúningsvinnu vegna
mats á umhverfisáhrifum.
RAG Trading festi nýlega kaup á
gríðarstóru efna- og málmtæknifyr-
irtæki í Þýskalandi, Degussa, og er
það talin helsta ástæðan fyrir minnk-
andi áhuga á stórri fjárfestingu hér á
landi í bili. RAG Trading er dóttur-
fyrirtæki RAG Coal International
AG, eins stærsta kolaframleiðanda
heims, sem veitir um 90 þúsund
manns atvinnu. Til marks um hve
fjárfestingin í Degussa er stór þá
veltir það fyrirtæki um 12 milljörð-
um evra, eða rúmum 1.000 milljörð-
um íslenskra króna, og er með um 47
þúsund starfsmenn á sínum vegum í
300 verksmiðjum víða um heim.
Gæti skapað 150 störf
Fram hefur komið í Morgun-
blaðinu að fulltrúar RAG Trading
settu sig í samband við Fjárfesting-
arstofu-orkusvið sl. haust og lýstu
yfir áhuga á að reisa 340 þúsund
tonna rafskautaverksmiðju hér á
landi. Eftir að hafa skoðað nokkra
staði leist þeim best á Grundartanga,
við hlið Norðuráls í landi ríkisjarð-
arinnar Kataness. Reiknað hefur
verið með að slík verksmiðja kosti 20
milljarða króna í fyrsta áfanga og
geti skapað um 150 ný störf. Höfðu
viðræður átt sér stað við fulltrúa
Grundartangahafnar og Norðuráls
um möguleg viðskipti í framtíðinni.
Rafskaut eru notuð við álframleiðslu
þar sem eitt tonn af þeim þarf til að
framleiða hálft tonn af áli.
Stjórnvöld halda undirbúningi
áfram með 5 milljóna framlagi
RAG Trading hættir í bili við áform um rafskautaverksmiðju
SKIPULAGSSTOFNUN hefur bor-
ist tillaga Vegagerðarinnar að mats-
áætlun vegna mats á umhverfisáhrif-
um Útnesvegar um Klifhraun í
Snæfellsbæ, frá Gröf að Arnarstapa.
Hægt er að nálgast tillöguna hjá
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 í
Reykjavík, eða á vefsíðum Vega-
gerðarinnar og Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen, VSÓ.
Vegna framkvæmdarinnar hefur
Skipulagsstofnun leitað umsagna frá
Snæfellsbæ, Fornleifavernd ríkisins,
Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, Um-
hverfisstofnun og Veðurstofunni.
Athugasemdir þurfa að hafa borist
skriflega til Skipulagsstofnunar eigi
síðar en 30. júní næstkomandi. Í til-
kynningu frá stofnuninni segir að
ákvörðun um matsáætlunina muni
liggja fyrir 14. júlí nk.
Matsáætlun
vegna
Útnesvegar
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Laugavegi 46, sími 561 4465
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18, laug. frá kl. 10-16.
20%
afsláttur
af flestum
vörum í dag
og á morgun
Bankastræti 14, sími 552 1555
25% afsláttur
af yfirhöfnum
Í sumarfríið
Bolir, peysur, kjólar
og stuttbuxur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
50% afsláttur
af austurlenskum húsgögnum
Opið virka daga kl. 11-18, laugardag kl. 11-15.
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
Sumartilboð
30% afsláttur af peysum
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Kringlunni & Hamraborg
568 4900 552 3636
Kringlukast
20% afsláttur
af öllum vörum
Lokasala
kvenfataverslun, Skólavörðustíg 14,
sími 551 2509.
Verslunin hættir um
mánaðamótin
30-60% afsláttur
Sumarblússur og buxur
skyrtur frá 1.750
Laugavegi 34, sími 551 4301
Heilsudrekinn
Kínversk heilsulind
Ármúla 17a
Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.isKung Fu