Morgunblaðið - 20.06.2003, Side 14
ERLENT
14 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
HEIMILDARMYNDIN „What to do
about whales“, sem gerð er af nýsjá-
lensku kvikmyndagerðarfólki, verð-
ur frumsýnd á heimsvísu á Íslandi í
dag.
Myndin var tekin á árunum 1999–
2000 á fjórum stöðum, í Japan,
Bandaríkjunum, á Nýja-Sjálandi og
Íslandi. Að sögn aðstandenda mynd-
arinnar er hún fyrsta alþjóðlega
heimildarmyndin sem gerð hefur
verið um hvali þar sem áhrif ólíkra
menningarheima, stjórnmálaskoð-
ana og tilfinninga á ákvarðanir um
framtíð hvalastofna eru könnuð. Að
þeirra sögn er myndinni ætlað að
fjalla á hlutlausan hátt um tog-
streitu tvenns konar viðhorfa til
hvalveiða og hvalaskoðunar.
Myndin er gerð af nýsjálensku
kvikmyndagerðarfólki, Michael
McIntyre og Kate Clere, en fyr-
irtæki þeirra, Second Nature Films,
hefur gert fjölmargar náttúrulífs-
myndir. Michael McIntyre hefur
rannsakað og kvikmyndað líferni og
aðstæður hvala um allan heim síð-
ustu tíu ár og þá hefur hann starfað
sem umhverfismálaráðgjafi hjá
Sameinuðu þjóðunum.
Að sögn Ásbjörns Björgvinssonar
hjá Hvalamiðstöðinni á Húsavík
kom kvikmyndagerðarfólkið fyrst
til hans fyrir fjórum árum í leit að
myndatökustöðum og dvaldi síðan í
tvær vikur á Húsavík fyrir tveimur
árum við tökur. Hinir staðirnir sem
myndin var tekin á eru, að sögn Ás-
björns, þekktir hvalaskoðunar-
staðir, Cape Cod í Bandaríkjunum,
Kaikoura á Nýja-Sjálandi og Ogata í
Japan.
Á morgun verður „What to do
about whales“ sýnd á Húsavík í
tengslum við árlega hvalahátíð þar.
Heimildar-
mynd um
ólík viðhorf
til hvalveiða
Morgunblaðið/Alfons
Það eru ekki allir á eitt sáttir um það hvort og hvernig skuli nýta hvali.
RÁÐHERRAR sjávarútvegsmála
við Norður-Atlantshaf lýsa sameig-
inlegum áhyggjum sínum af óheftum
veiðum úr sumum fiskstofnum sem
stjórnun fiskveiða nær ekki til. Þeir
velta fyrir sér ýmsum leiðum til að
takast á við þennan vanda, til dæmis
auknu eftirliti, skráningu veiðiskipa
og kvóta.
Þetta kom meðal annars fram á
áttundu ráðstefnu sjávarútvegsráð-
herra ríkja við Norður-Atlantshaf
(NAFMC) var haldin í Halifax í Kan-
ada dagana 16. til 18. júní sl. Auk
sjávarútvegsráðherra Kanada sátu
fundinn sjávarútvegsráðherrar Ís-
lands, Noregs, Færeyja, Grænlands,
Rússlands og framkvæmdastjóri
sjávarútvegsmála Evrópusambands-
ins.
Úthafsveiðar
Ráðherrarnir höfðu komið sér
saman um að þema áttundu ráðstefn-
unnar yrði framkvæmd á samkomu-
lagi Sameinuðu þjóðanna um úthafs-
veiðar (UNFA) – rammaviðmið fyrir
Norður-Atlantshaf.
Allt frá því að NAFMC varð til ár-
ið 1995 hafa ráðherrar sjávarútvegs-
mála við Norður-Atlantshaf lagt
mikla áherslu á að vernda og stjórna
deilistofnum og leggja þeir aðal-
áherslu á að nota UNFA til að ná
þessu markmiði. Á ráðstefnu þessa
árs lýstu ráðherrarnir yfir ótvíræð-
um stuðningi sínum við það starf að
hrinda ákvæðum UNFA í fram-
kvæmd.
Ráðherrarnir báru saman bækur
sínar um reynsluna af því að beita
ákvæðum samningsins um verndun
og stjórnun fiskstofna. Þeir ræddu
einnig þörfina fyrir að taka sameig-
inlega á þeim fiskveiðum sem ganga
þvert á markmið verndunar. UNFA
inniheldur skilvirk rammaviðmið um
hvernig taka eigi á hnattrænum
vandamálum við stjórn á sameigin-
legum nytjastofnum. Ráðherrarnir
lögðu einnig mikla áherslu á mikil-
vægi þess að skilgreina varúðarráð-
stafanir og að samþætta þær allri
stefnumótun í umsjón nytjastofna í
Norður-Atlantshafi.
Samhæfing verndunar
Ráðherrarnir voru sammála um
mikilvægi þess að tryggja að allar
staðbundnar fiskveiðistjórnunar-
stofnanir miði störf sín við megin-
reglur UNFA eins og þær eru skil-
greindar í tíundu grein samningsins.
Þeir fjölluðu ítarlega um þörfina fyr-
ir aukna samhæfingu verndunar og
umsjónar fiskstofna í Norður-Atl-
antshafi. Viðurkennd var skylda
strandríkja og ríkja, sem veiða á út-
höfum, til samstarfs um að tryggja
samhæfðar aðgerðir hvað varðar
sameiginlega deilistofna og víðförula
fiskstofna í Norður-Atlantshafi, eins
og hún er skilgreind í sjöundu grein
samningsins.
Ráðherrarnir fullyrtu að mikil-
vægi vísindalegrar ráðgjafar við
verndun fiskstofna undirstrikaði hve
mikil þörf væri á áframhaldandi sam-
starfi um vísindalegar rannsóknir og
aukinni gagnkvæmri miðlun gagna.
Þeir fjölluðu einnig um mögulegt
hlutverk svæðisbundinna fiskveiði-
stjórnunarstofnana við verndun
þessara fiskstofna.
Ráðherrarnir ræddu að lokum um
helstu verkefni til framtíðar í vernd-
un sameiginlegra fiskstofna. Þeir
voru sammála um að vandinn við að
koma á góðum starfsháttum og
verndun fiskstofna þvert á efnahags-
lögsögur sé ekki göllum í núverandi
lagarömmum að kenna heldur fyrst
og fremst skorti á pólitískum vilja
innan margra ríkja. Ráðherrarnir
lögðu til að síðar væri hægt að taka
upp á ráðstefnunni hvernig bæri að
nálgast verndun á grundvelli vist-
kerfa til að tryggja sjálfbæra nýtingu
lifandi auðlinda hafsins til lengri tíma
litið.
Ráðherrarnir staðfestu samþykkt
Allsherjarráðs Sameinuðu þjóðanna
nr. 57/143 og lögðu einkum áherslu á
mikilvægi skilvirkrar framkvæmdar
á ákvæðum samningsins. Þar eru
með talin þau ákvæði sem varða tví-
hliða, svæðisbundið og staðbundið
samstarf við að fylgja honum eftir.
Hvatt var til þess að áfram yrði hald-
ið á því sviði.
Næsti fundur á Íslandi
Sendinefnd Íslands var skipuð
þeim Árna M. Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra, Ármanni Kr. Ólafs-
syni, aðstoðarmanni ráðherra, og
Kolbeini Árnasyni, skrifstofustjóra í
sjávarútvegsráðuneytinu.
Þátttakendur á ráðstefnunni voru
sammála um að níunda ráðstefna
sjávarútvegsráðherra ríkja við Norð-
ur-Atlantshaf skyldi haldin á Íslandi.
Á níundu ráðstefnunni verður fjallað
um aðferðir og leiðir til að auka verð-
mæti fiskafurða og víxlverkan nýrra
og hefðbundinna afurða.
Áhyggjur af óheftum veiðum
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
A
U
2
14
41
06
/2
00
3
Aðalfundur
Baugs Group hf.
Aðalfundur Baugs Group hf., verður
haldinn í dag föstudaginn 20. júní kl. 13.00
í Skála á Hótel Sögu.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 3.5
í samþykktum félagsins.
2. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins:
a. Heimilisfang Baugs Group hf. verði að Túngötu 6,
Reykjavík.
b. Heimild til stjórnar um hækkun hlutafjár félagsins
um 100.000.000 kr., eitthundraðmilljónirkróna að
nafnverði, sem nota skal til sameiningar eða kaupa
á hlutum í öðrum félögum, svo og að hluthafar falli
frá forkaupsrétti sínum vegna hækkunarinnar, verði
framlengd til 31. maí 2004.
c. Heimild til stjórnar um hækkun hlutafjár félagsins
um 10.000.000 kr., tíumilljónirkróna að nafnverði,
sem nota skal til sölu hlutabréfa til stjórnenda og
starfsmanna samkvæmt kaupréttaráætlun stjórnar,
svo og að hluthafar falli frá forkaupsrétti sínum vegna
hækkunarinnar, verði framlengd til 31. maí 2004.
3. Tillaga um heimild stjórnar félagsins til kaupa á
hlutabréfum í félaginu.
4. Umræður og afgreiðsla um önnur málefni sem
löglega eru upp borin.
GEORGE W. Bush
Bandaríkjaforseti tekst
nú á við nýjar ásakanir
þess efnis að hann hafi
ýkt verulega þá ógn
sem stóð af gereyðing-
arvopnaeign Íraka til að
auka stuðning Banda-
ríkjamanna við Íraks-
stríðið. Það er þingmað-
ur demókrata, John
Kerry, sem sakar Bush
um blekkingar en
Kerry er jafnframt eitt
líklegasta forsetafram-
bjóðandaefni Demó-
krataflokksins fyrir
kosningarnar á næsta
ári.
„Hann blekkti okkur öll,“ sagði
Kerry í gær. „Það er ein ástæða þess
að ég hef hug á að bjóða mig fram
sem forseti Bandaríkjanna.“
Að sögn Kerrys, sem barðist í
Víetnamstríðinu og studdi stríðið í
Írak, byggðist rökstuðningur Bush
fyrir stríði einkum á upplýsingum
sem nú lítur út fyrir að hafi verið
rangar. Annars vegar á því að Írakar
hafi sótt sér efni til kjarnorkuvopna-
framleiðslu til Afríku og hins vegar
því að stjórn Saddams hafi búið yfir
flugvélum sem gerði þeim kleift að
gera árás á Bandaríkin með lífefna-
vopnum.
Bush óttast að lenda í sömu
vandræðum og Blair
Á hinn bóginn segir Kerry of
snemmt að fullyrða um það hvort
stríðið hafi verið réttlætanlegt.
Fyrst segir hann þingið þurfa að
rannsaka nákvæmlega
hver vitneskja banda-
rísku stjórnarinnar
um Írak hafi í raun og
veru verið fyrir stríðið.
Bush hefur lagt sig
fram um að sýna Tony
Blair, forsætisráð-
herra Bretlands,
stuðning í þeirri orra-
hríð sem hann hefur
átt í á breska þinginu
vegna Íraksstríðsins.
Að því er fram kemur
á fréttavef BBC virðist
umræðan um gereyð-
ingarvopnaeign Íraka í
Bretlandi og ásakanir
á hendur Blair hafa farið illa í Bush,
hugsanlega vegna þess að hann ótt-
ist að lenda í viðlíka vanda og Blair.
Að frumkvæði stjórnarandstöð-
unnar hefur efri deild Ástralíuþings
hafið rannsókn á þeim upplýsingum
sem ríkisstjórnin notaði til að byggja
á ákvörðun sína um stuðning við
Íraksstríðið. John Howard, forsætis-
ráðherra landsins, lagði í gær
áherslu á að bandaríska leyniþjón-
ustan teldi enn að þrír vetnisfram-
leiðslubílar sem fundust í Írak kynnu
að hafa verið notaðir til að framleiða
lífefnavopn. Howard, sem var dygg-
ur stuðningsmaður innrásarinnar í
Írak, sendi 2.000 manna herlið til
landsins til að berjast við hlið banda-
rískra og breskra hermanna. Hann
hefur haldið því fram að upplýsingar
leyniþjónustunnar hafi sýnt að Sadd-
am Hussein ætti gereyðingarvopn
og væri í tengslum við hryðjuverka-
hópa.
Kerry sakar Bush
um blekkingar
John Kerry
New Hampshire. Canberra. AP.
UM ÞESSAR mundir er verið að
vinna að þróun nýrra lyfja, sem ætl-
að er að ráða við þá fjölskrúðugu
bakteríuflóru, sem orðin er ónæm
fyrir venjulegum lyfjum. Munu þau
að sjálfsögðu koma sér vel fyrir
sjúklinga, að minnsta kosti í ein-
hvern tíma, en samt hafa margir
sérfræðingar varað við þeim. Segj-
ast þeir óttast, að þau geti reynst
stórhættuleg komandi kynslóðum.
Gerð nýju lyfjanna er þannig, að
það verður miklu erfiðara fyrir
bakteríur að mynda ónæmi gegn
þeim. Er ástæðan sú, að lyfin líkja
að mörgu leyti eftir varnaraðferðum
sjálfs líkamans. Ýmsir sérfræðingar
segjast þó vissir um, að bakteríurn-
ar muni að lokum komast yfir þess-
ar nýju víggirðingar og þá verði
komnar fram bakteríur, sem skeyti
hvorki um nýju lyfin né varnarvið-
búnað líkamans. Var sagt frá þessu
á fréttavef BBC, breska ríkisút-
varpsins.
Rætist þessar hrakspár geta smá-
skeinur orðið upphaf að alvarlegri
og óviðráðanlegri sýkingu. Varnar-
leysi líkamans myndi þá einnig
greiða öðrum bakteríum götuna og
verða til að stórauka langvinna sjúk-
dóma á borð við hjartasjúkdóma og
lungna- og meltingafærasjúkdóma.
Skelfilegar afleiðingar
Hafist var handa við þróun nýju
lyfjanna, sem kallast „ramp“, vegna
þess hve margar bakteríur eru
orðnar ónæmar fyrir venjulegum
lyfjum en Graham Bell, prófessor
við McGill-háskólann í Kanada, seg-
ir að mönnum hætti til að gleyma
því, að bakteríurnar muni að lokum
sigrast á þessum nýju lyfjum eins
og öðrum. Afleiðingarnar af því
gætu orðið skelfilegar.
Bakteríur eru jafn erfiðar við-
fangs og raun ber vitni vegna þess,
að þær æxlast mjög ört. Arfberar
þeirra verða fyrir ýmsum stökk-
breytingum og öðru hverju kemur
fram stökkbreytt baktería, sem er
ónæm fyrir lyfjum. Rannsóknir hafa
einnig sýnt, að sumar bakteríuteg-
undir geta skipst á arfberum, til
dæmis þeim, sem gera þær ónæmar.
Varað við nýjum
ofurlyfjum
Geta hugsanlega orðið mjög
hættuleg komandi kynslóðum
ANDREW Luster, erfingi Max
Factor-snyrtivörufyrirtækisins, var
handtekinn í Mexíkó á miðvikudag
en hann hefur verið á flótta undan
réttvísinni frá því í janúar.
Luster var dæmdur í fangelsi í 124
ár í janúar síðastliðnum fyrir að hafa
nauðgað þremur konum, sem hann
hafði áður slævt með lyfjum. Nokkru
áður lét hann sig hverfa og hefur síð-
an verið ákaft leitað. Það var maður,
Duane Chapman, sem vinnur við að
hafa uppi á eftirlýstum sakamönn-
um, sem fann Luster í bænum
Puerto Vallarta í Mexíkó. Á hann nú
tilkall til rúmlega 730.000 króna, sem
settar höfðu verið til höfuðs Luster.
Mexíkóska lögreglan handtók raun-
ar Chapman ásamt Luster en í
Mexíkó er „sakamannaleit“ á banda-
ríska vísu ólögleg og jafngildir
mannráni.
Luster er afkomandi Max Fact-
ors, stofnanda snyrtivörufyrirtækis-
ins, og átti í vændum arf upp á tvo til
þrjá milljarða ísl. kr.
Max Factor-erfingi
handtekinn á flótta
Los Angeles. AFP.