Morgunblaðið - 20.06.2003, Side 16
ERLENT
16 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FINNAR eru furðu lostnir og slegn-
ir yfir afsögn Anneli Jäätteenmäki,
fyrstu konunnar til að gegna emb-
ætti forsætisráðherra í Finnlandi,
eftir að hún varð uppvís að lygum um
hvernig trúnaðarskjöl úr utanríkis-
ráðuneytinu komust í hendur hennar
fyrir þingkosningarnar í mars þegar
hún var í stjórnarandstöðu. Litið var
á Jäätteenmäki sem brautryðjanda
fyrir finnskar konur í stjórnmálum
þegar hún tók við embættinu 19. apr-
íl en hún er nú álitin dragbítur á mál-
stað þeirra.
Finnsk dagblöð virtust fordæma
Jäätteenmäki einum rómi, meðal
annars blöð sem styðja flokk hennar,
Miðflokkinn, vegna hneykslismáls-
ins, svokallaðs „Íraksleka“, sem varð
henni að falli. „Þetta er neyðarlegur
endir á ferli hennar sem forsætisráð-
herra,“ sagði dagblaðið Aamulehti.
„Forsætisráðherratíð Jäätteen-
mäki lauk á eins dapurlegan hátt og
hugsast getur, en hún setti sjálf upp
gildruna og gekk í hana,“ sagði
stærsta dagblað Finnlands, Helsing-
in Sanomat.
Harri Holkeri, fyrrverandi for-
sætisráðherra, var ómyrkur í máli.
„Þetta er mjög dapurleg staða. Ég
fordæmdi Írakslekann þegar
hneykslismálið kom upp og ég for-
dæmi hann núna,“ sagði hann.
Sagði þinginu ósatt
Tarja Halonen, forseti Finnlands,
var mjög alvarleg í bragði þegar hún
féllst á afsökunarbeiðni forsætisráð-
herrans í fyrrakvöld. Fyrir aðeins
tveimur mánuðum héldust þær í
hendur, brostu og drukku kampavín
til að fagna því að konur gegndu nú
tveimur æðstu embættunum í
finnska stjórnkerfinu.
Jäätteenmäki var sökuð um að
hafa logið því hvernig hún hefði
fengið trúnaðarskjöl úr utanríkis-
ráðuneytinu um stefnu finnsku
stjórnarinnar í Íraksmálinu fyrir
finnsku þingkosningarnar í mars.
Hún hélt því þá fram að Paavo
Lipponen, þáverandi forsætisráð-
herra, hefði sagt ráðamönnum í
Bandaríkjunum, meðal annars
George W. Bush forseta, að Finnar
vildu ganga í bandalagið gegn stjórn
Saddams Husseins, þvert á yfirlýsta
hlutleysisstefnu Finnlands.
Lipponen sagði að enginn fótur
væri fyrir þessari ásökun og stjórnin
hefði ekki horfið frá hlutleysisstefn-
unni í utanríkismálum. Ásökunin
kann hins vegar að hafa skipt sköp-
um í kosningunum því að flokkur
Lipponens, Jafnaðarmannaflokkur-
inn, tapaði naumlega fyrir Mið-
flokknum.
Jäätteenmäki sagði á þinginu í
fyrradag að hún hefði ekki óskað eft-
ir trúnaðarskjölunum og verið mjög
undrandi þegar hún hefði fengið út-
drætti úr þeim á faxi. Nokkrum
klukkustundum síðar skýrði hins
vegar aðstoðarmaður forsetans frá
því að hann hefði sent Jäätteenmäki
skjölin á faxi eftir að hún hefði falast
eftir þeim og gefið honum upp leyni-
legt faxnúmer sitt.
Þessi afhjúpun varð til þess að
þingmenn Miðflokksins komust að
þeirri niðurstöðu síðar um daginn að
forsætisráðherrann yrði að segja af
sér.
Talið áfall fyrir konur
Anne-Mari Holli, stjórnmálafræð-
ingur við Helsinki-háskóla, sagði að
afsögn Jäätteenmäki væri álitin mik-
ið áfall fyrir finnskar konur í stjórn-
málum. „Hefði karlmaður hegðað
sér með sama hætti hefði fólk sagt að
hann væri hræðilegur stjórnmála-
maður, en þegar kona hegðar sér
svona eru allar kynsystur hennar í
brennidepli, þannig að þetta er skref
aftur á bak fyrir konur,“ sagði hún.
Suvi-Anne Siimes, leiðtogi
Vinstribandalagsins, sagði að
hneykslismálið gæti einkum veikt
stöðu kvenna í Miðflokknum. „Það
var mikil dulin andstaða innan
flokksins við það að hún yrði formað-
ur hans,“ sagði hún.
Jan Sundberg, stjórnmálafræði-
prófessor við Helsinki-háskóla,
kvaðst efast um að niðurstaðan hefði
orðið sú sama ef Jäätteenmäki væri
karlmaður. „Það er auðveldara að
snúa baki við og einangra konu en
karlmann í stjórnmálum og það hef-
ur verið gert við Jäätteenmäki. Eng-
inn ráðherra hefur varið hana, ekki
einu sinni forystumenn í flokknum
hennar.“
Vilja halda stjórnar-
samstarfinu áfram
Ólíklegt þykir að boðað verði til
kosninga vegna afsagnar forsætis-
ráðherrans. Leiðtogar stjórnar-
flokkanna þriggja, Miðflokksins,
Jafnaðarmannaflokksins og Sænska
þjóðarflokksins, hafa sagt að þeir
vilji halda stjórnarsamstarfinu
áfram.
Gert er ráð fyrir því að finnska
þingið komi saman á þriðjudaginn
kemur til að ræða hvort mynda eigi
nýja stjórn eða láta nægja að skipta
um forsætisráðherra. Búist er við að
niðurstaðan liggi fyrir nokkrum dög-
um síðar.
Líklegt þykir að Matti Vanhanen,
varnarmálaráðherra og flokksbróðir
Jäätteenmäki, taki við forsætisráð-
herraembættinu. Hann er einkum
þekktur sem sérfræðingur í málefn-
um Evrópusambandsins og beið
ósigur fyrir Jäätteenmäki í for-
mannskjöri Miðflokksins í fyrra,
varð þá varaformaður flokksins.
Afsögnin er talin skaða
konur í stjórnmálum
Lehtikuva
Anneli Jäätteenmäki, forsætisráðherra Finnlands (t.h.), afhendir finnska
forsetanum, Törju Halonen, afsagnarbréf sitt í fyrrakvöld.
Finnar forviða
á falli Anneli
Jäätteenmäki
Helsinki. AFP, AP.
’ Enginn ráðherrahefur varið hana,
ekki einu sinni for-
ystumenn í flokkn-
um hennar. ‘
METHALLI var á viðskipt-
um Bandaríkjanna við útlönd
á fyrsta fjórðungi þessa árs
eða alls 136,1 milljarður doll-
ara. Á síðasta ári var hann
alls 480,86 milljarðar. Góðu
fréttirnar eru, að nú bendir
flest til, að bandarískt efna-
hagslíf sé á uppleið. Vísitala,
sem spáir fyrir um umsvifin á
næstu mánuðum, hækkaði um
0,1% í apríl en um 1% í maí.
Sky með
danska rás
SKY Radio, sem er í eigu
fjölmiðlakóngsins Ruperts
Murdochs, varð hlutskarpast
er danska stjórnin bauð út
nýja útvarpsrás, sem nær til
allrar Danmerkur. Með út-
boðinu var bundinn endi á 78
ára gamla einokun danska
ríkisútvarpsins. Samkvæmt
skilmálunum verður Sky
Radio að senda árlega út inn-
lent fréttaefni í 1.000 klukku-
stundir og 30% tónlistar
verða að vera eftir norræna
listamenn.
Úthúðaði
„evrópska
kynþætt-
inum“
MAHATHIR Mohamad, for-
sætisráðherra Malasíu, út-
húðaði í
gær hinum
„evrópska
kynþætti“
og sagði, að
hann
stefndi að
heimsyfir-
ráðum. Með
því átti
hann við
hvíta mann-
inn, sem
hann sagði haldinn hernaðar-
og kynþáttahyggju og setja
sig ekki úr færi með að ráð-
ast á múslíma. Kom þetta
fram í ræðu Mahathirs á
þingi stjórnarflokksins. Lagði
hann áherslu á að hann væri
enginn hatursmaður hvítra
manna, sem væru „mjög
slungnir, hugprúðir og haldn-
ir óslökkvandi fróðleiks-
þorsta“. Hann sagði hins veg-
ar, að þeir væru líka
„gráðugir og hika ekki við að
taka landið frá öðrum“. Ekki
fór á milli mála, að hann átti
við Írak er hann sagði að
hvítir menn væru reiðubúnir
að fara í stríð á fölskum for-
sendum „til að drepa börn,
gamalt fólk og sjúkt“.
Játar mútu-
greiðslur
JACOBUS Michiel du Plooy,
suður-afrískur ráðgjafi, hefur
játað að hafa borið mútur,
rúmar 27 millj. ísl. kr., á Mas-
upha Sole, fyrrverandi yfir-
mann virkjanamála í Afríku-
ríkinu Lesotho. Sole afplánar
nú 15 ára fangelsi fyrir að
hafa þegið nærri 150 millj. ísl.
kr. í mútur frá ýmsum vest-
rænum fyrirtækjum. Du
Plooy segist hafa greitt mút-
urnar fyrir hönd ítalska fyr-
irtækisins Impregilo en
forsvarsmenn þess neita
harðlega. Ekki hefur verið
tekin ákvörðun um málssókn
gegn Impregilo.
STUTT
Bjartara
fram undan
Mahathir
Mohamad
MEIRA en 90 manns er saknað
eftir að farþega- og vöruflutn-
ingaskip rákust saman í mikilli
þoku á Yangtze-ánni í Kína í
gær að því er opinberir emb-
ættismenn tjáðu fjölmiðlum.
Slysið átti sér stað klukkan
átta að morgni að staðartíma,
miðnætti að íslenskum tíma, í
grennd við Peilinglun-borg sem
er um 270 km frá hinni miklu
Þriggja-gljúfra-stíflu á
Yangtze-á.
A.m.k. 100 manns voru um
borð í farþegaskipinu, Peazhou,
þegar slysið varð og hafði 10
manns verið bjargað í gær en
skipið sökk við áreksturinn.
Skipin máttu ekki sigla
Bæði skipin voru að brjóta
reglur um siglingar á ánni að
því er embættismaður tjáði
AFP-fréttastofunni en sam-
kvæmt þeim er ekki leyfilegt að
láta úr höfn í þoku.
Ekki er ljóst hvort lokun
gátta hinnar 185 m háu stíflu
fyrr í þessum mánuði hafi átt
einhvern þátt í slysinu en frétt-
ir herma að eftir það sé nánast
ómögulegt að sigla á löngum
köflum árinnar.
Níutíu
saknað
eftir slys á
Yangtze
Peking. AFP. ÍSRAELSKIR hermenn byrjuðu í
gær að rífa niður fyrstu byggðu út-
varðarstöð gyðinga á Vesturbakk-
anum eftir að hafa ráðist framhjá
tugum reiðra ungmenna sem
reyndu að hindra þá. Áður hafði Ísr-
aelsher fjarlægt nokkrar útvarðar-
stöðvar sem enginn bjó í.
Hundruð óvopnaðra hermanna
réðust til atlögu við um 200 unga
landtökumenn sem höfðu safnast
saman við útvarðarstöðina Mitzpeh
Yitzhar, nálægt palestínska bænum
Nablus á norðurhluta Vesturbakk-
ans. Um 30 manns meiddust í rysk-
ingunum, enginn alvarlega.
Landtökumennirnir reistu vegar-
tálma úr grjóti og kveiktu í hjól-
börðum við útvarðarstöðina til að
hindra för hermannanna. Herinn
lokaði útvarðarstöðina af og setti út-
göngubann á íbúa nálægra palest-
ínskra þorpa eftir að landtökumenn-
irnir höfðu kveikt í ökrum í grennd
við þau, að sögn palestínskra sjón-
arvotta.
Nokkur timburhús eru í útvarð-
arstöðinni og átta fjölskyldur hafa
búið í henni.
Samkvæmt Vegvísinum til friðar í
Mið-Austurlöndum eiga Ísraelar að
fjarlægja allar ólöglegar útvarðar-
stöðvar sem ísraelskir landtöku-
menn hafa reist frá því að Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
komst til valda í mars 2001. Ísr-
aelskar friðarhreyfingar segja að
stöðvarnar séu alls um 60.
Ísraeli bíður bana
í sprengjuárás
Landtökumennirnir hafa sagt að
þeir ætli að torvelda niðurrif stöðv-
anna án þess að beita ofbeldi. Leið-
togar þeirra ræddu málið við Shar-
on í gær á fundi sem þeir sögðu að
hefði verið „erfiður og þrunginn
spennu“.
Fyrr í gær beið ísraelskur kaup-
maður bana í sjálfsmorðsárás tví-
tugs Palestínumanns í matvöru-
verslun í norðurhluta Ísraels.
Heilagt stríð, róttæk hreyfing Pal-
estínumanna, lýsti sprengjutilræð-
inu á hendur sér.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fer til Ísraels í dag
til að ræða friðarvegvísinn sem for-
sætisráðherrar Ísraela og Palest-
ínumanna samþykktu á fundi í Jórd-
aníu 4. júní.
Fyrsta landtökubyggð
gyðinga rifin niður
Mitzpeh Yitzhar, Jenín. AFP.
Reuters
Ísraelskur slökkviliðsmaður kannar rústir matvöruverslunar sem eyði-
lagðist í sjálfsmorðsárás Palestínumanns í norðurhluta Ísraels í gær.