Morgunblaðið - 20.06.2003, Side 25
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 25
GENGIÐ verður á fjallið Þor-
björn í Grindavík næstkomandi
laugardagskvöld. Jónsmessu-
gangan er hluti af sólstöðuhátíð
Bláa lónsins en undanfarin ár
hefur gangan notið mikilla vin-
sælda, enda er fátt betra en að
njóta útivistar á Jónsmessu-
nótt.
Góð stemning í Bláa lóninu
Lagt verður af stað frá sund-
laug Grindavíkur kl. 21 og er
áætlað að gangan taki rúmar
tvær klukkustundir. Kristján
Kristjánsson (KK) söngvari
verður með í för og tekur lagið
með hópnum þegar á fjallstind-
inn er komið. Göngunni lýkur
svo við Bláa lónið en heilsulind-
in verður opin til klukkan eitt
um nóttina í tilefni sólstöðuhá-
tíðar og mun KK áfram halda
uppi góðri stemningu fyrir
gesti Bláa lónsins.
Sætaferðir verða til Grinda-
víkur frá BSÍ klukkan 20.15 og
frá SBK í Keflavík kl. 20.30.
Sætaferðir frá Bláa lóninu
verða til Grindavíkur, Reykja-
víkur og Reykjanesbæjar
klukkan eitt.
Jóns-
messu-
ganga á
Þorbjörn
Grindavík
BJART veður var og ferskur vind-
ur lék um viðstadda þegar sam-
starfssamningur var undirritaður
og fyrsta skóflustunga tekin að
nýrri viðbyggingu Fjölbrautaskóla
Suðurnesja (FS) í gær. Þar verður
m.a. að finna mötuneyti og alrými
fyrir nemendur, svið, stjórn-
unarálmu, þrjár mjög fullkomnar
raungreinastofur, bókasafn og hall-
andi fyrirlestrasal.
Hið nýja rými mun, að sögn Ólafs
Jóns Arnbjörnssonar, skólameist-
ara FS, koma sér einkar vel fyrir
skólann, þar sem hann er í örum
vexti og mikil þörf er fyrir þjón-
usturými og fleiri kennslustofur.
„Þessi nýbygging gerir okkur
kleift að ná betri nýtingu á húsnæði
skólans, sem hefur farið ört vax-
andi undanfarin ár. Hér er um að
ræða mikla og þarfa viðbót á mögu-
leika okkar til að veita mennt-
unarþjónustu til ört stækkandi
hóps, bæði í dagskóla og öld-
ungadeild. Það var farið að þrengja
verulega að nemendum, sem í haust
verða væntanlega í fyrsta skipti yf-
ir 800 talsins í dagskóla.“ sagði
Ólafur. „Þetta mun gjörbreyta allri
aðstöðu fyrir okkur hér í skólanum.
Skólinn mun nú mynda eina heild
og við munum skapa allt rými í
skólanum í samræmi við þessa ný-
byggingu.“
Sigrún Lilja Jóhannsdóttir, ritari
nemendafélags FS, tók fyrstu
skóflustunguna af mikilli leikni og
kom fram í máli skólameistara að
vel væri við hæfi að ung stúlka tæki
skóflustunguna á þessum hátíðar-
degi íslenskra kvenna.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Fyrsta skóflustunga
tekin að viðbyggingu
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Sigrún Lilja Jóhannsdóttir, ritari nemendafélags Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, mundar skófluna af fimleika og krafti.
SLÖKKVILIÐ varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli hefur tekið í
notkun nýjan slökkvihermi sem líkir
eftir eldi í flugvélum og gerir kleift
að þjálfa slökkviliðsmenn við raun-
verulegar aðstæður af fyllsta öryggi
og án umhverfisspjalla.
Í herminum er notast við gasloga
sem stjórnað er á fullkominn hátt
svo líkja megi eftir aðstæðum sem
mæta slökkviliðsmönnum við björg-
un fólks úr brennandi flugvélum.
Ekki er því lengur þörf á að kynda
stóra olíuelda á flugvellinum til æf-
inga og öryggi slökkviliðsmanna að
sama skapi tryggt við æfingar.
Í fréttatilkynningu frá varnarlið-
inu kemur fram að Bandaríkjafloti
hefur þegar tekið 15 slík tæki í þjón-
ustu sína og er áætlað að þau verði
30 alls auk smærri útgáfu sem nota
má um borð í flugmóðurskipum. Nýi
búnaðurinn kostar 37 milljónir
króna.
Nýr slökkvi-
hermir tek-
inn í notkun
Keflavíkurflugvöllur
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Hinn nýi eldhermir er kallaður „geimskipið“.
ÓLAFUR Björnsson, fyrrverandi útgerðarmaður í
Keflavík, endurheimti á dögunum dragnótarbátinn
Baldur GK 97 (áður KE 97).
Ólafur lét smíða bátinn fyrir sig fyrir áratugum og
gerði út með góðum árangri og hefur því sterkar
taugar til hans. Reykjanesbær hefur ákveðið að koma
bátnum fyrir á nýrri uppfyllingu við smábátahöfnina,
skammt frá Duus-húsum þar sem safn bátalíkana
Gríms Karlssonar er til sýnis. Ólafur var að þrífa bát-
inn í Keflavíkurhöfn þega ljósmyndari heilsaði upp á
hann. Kvaðst hann vonast til að báturinn yrði tekinn
upp á næstunni.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Baldur KE þrifinn
Keflavík