Morgunblaðið - 20.06.2003, Side 29
Ljósmynd/Pétur Tryggvi
GALDRAR hafa alla tíð verið
vinsæl íþróttagrein á Vestfjörðum.
Einn slíkan má lesa úr frétt Morg-
unblaðsins 16. júní
síðastliðinn, undir
yfirskriftinni
„Skaðlaust en
hræðilega ljótt“.
Þar segir meðal
annars að eitruð-
ustu efnum sem
þekkjast í heiminum er eytt hér á
Ísafirði.
Þó hafa vísindamenn staðfest að
það er ekki hægt að eyða þeim.
Hér er eiturefnunum „eytt áður
en þeim er hleypt út í andrúms-
loftið“, segir í fréttinni.
Í þessu felst galdurinn, vegna
þess að enginn skilur hvernig hægt
er að hleypa því út, sem hefur ver-
ið eytt.
Galdrar þessir eru skaðlausir en
hræðilega ljótir, en það gerir
galdrana ekki síður áhugaverða,
því að fólk er farið að taka meira
eftir þeim þar sem galdrastafirnir
eru ekki splunkunýir lengur.
Ekki hefur verið gert mikið úr
undrinu en talið er að það eigi sér
eðlilegar skýringar.
Um galdra á
Vestfjörðum
Eftir Pétur Tryggva Hjálmarsson
Höfundur er gull- og
silfursmiður á Ísafirði.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 29
LISTIR
LAUGARDAGINN 21. júní nk.,
þegar sólargangur er lengstur hjá
okkur hér á Íslandi, verður Kvenna-
hlaupið haldið í fjór-
tánda sinn. Hlaupið
verður frá Garða-
torgi í Garðabæ kl.
14. Einnig er hlaupið
frá Mosfellsbæ kl.
12, Akureyri kl. 11
og á yfir 100 stöðum
hérlendis og erlendis. Þátttaka hef-
ur aukist jafnt og þétt á undan-
förnum árum og vonandi er að svo
verði einnig að þessu sinni. Bein-
vernd er samstarfsaðili Kvenna-
hlaupsins í ár og á yfirskrift hlaups-
ins, „Sterk bein alla ævi – hreyfðu
þig reglulega!“ að minna á gildi
reglulegrar hreyfingar fyrir heils-
una og beinin.
Markmið Kvennahlaupsins er að
vekja áhuga kvenna á reglulegri og
hollri hreyfingu. Áhersla hefur verið
lögð á að gera öllum konum á land-
inu kleift að vera með og að hver
kona taki þátt í hlaupinu á sínum
forsendum. Það er ósk þeirra er að
hlaupinu standa að Kvennahlaupið
verði til þess að sem flestar konur
geri reglubundna hreyfingu hluta af
sínum lífsvenjum.
Beinþynning er alvarlegt heilsu-
farsvandamál hér á landi eins og
víða annars staðar og fer vaxandi,
m.a. með auknum fjölda aldraðra og
breyttum lífsháttum. Beinþynning
er einkennalaus þar til brotastigi er
náð en afleiðingarnar eru beinbrot
við lítinn áverka. Allir, bæði konur
og karlar, eiga á hættu að verða fyr-
ir afleiðingum beinþynningar síðar á
ævinni og hver og einn þarf að huga
að vernd beina sinn allt frá æsku.
Lengi býr að fyrstu gerð. Grunnur-
inn að heilsu beinanna er lagður í
æsku, því það er í uppvextinum, þeg-
ar beinin eru að vaxa og þroskast,
sem við leggjum inn í beinabankann
fyrir efri árin.
Beinin eru lifandi vefur sem er í
stöðugri endurmyndun allt lífið. Þau
þarfnast bæði næringar og áreynslu
til að haldast sterk og heilbrigð, því
er hollt mataræði og regluleg hreyf-
ing grundvöllurinn að góðri heilsu.
Góð næring sem felur í sér nægjan-
legt kalk, sem helst er að finna í
mjólkurmat og ýmsu dökku grænu
blaðgrænmeti, og D-vítamín skipta
máli á öllum aldri og einnig hæfileg
líkamsþjálfun. Tog vöðvanna á bein
er nauðsynlegt til að bein viðhaldi
styrk sínum. Stæltir vöðvar og sterk
bein fara því oftast saman. Líkamleg
áreynsla, s.s. göngur, hlaup, leikfimi
og aðrar íþróttir sem fela í sér
þungaberandi áreynslu, hefur góð
áhrif á beinin. Þegar við styrkjum
stóru vöðvana verndum við jafn-
framt bein, eflum jafnvægi og við-
brögð gegn byltum og vinnum gegn
vægu þunglyndi.
Hæfileg líkamsáreynsla á öllum
aldri er því eitt mikilvægasta vopnið
gegn beinþynningu og ótímabærum
beinbrotum.
Sterk bein alla
ævi – hreyfðu þig
reglulega!
Eftir Halldóru Björnsdóttur
Höfundur er íþróttafræðingur og
framkvæmdastjóri Beinverndar.
STOFNUN Norðurbakka ehf. var eitt af stærstu kosn-
ingamálunum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Hafn-
arfirði vorið 2002. Það var ekki undarlegt þar sem að-
dragandinn að stofnun hlutafélagsins og
eignaraðild Hafnarfjarðarbæjar var í
hæsta máta óvenjulegur og gagnrýnis-
verður. Eftir nánast enga kynningu eða
umfjöllun í bæjarkerfinu samþykkti bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar 18. desember
2001 að gerast þriðjungs eigandi í nýju
hlutafélagi, Norðurbakka ehf., sem ætl-
að var að standa fyrir uppbyggingu
bryggjubyggðar fyrir allt að 1.800 íbúa. Mjög hallaði á
hlut Hafnarfjarðarbæjar í samstarfssamningi hluthaf-
anna þriggja, en skv. honum keypti Norðurbakki ehf.
eignir hluthafanna á hafnarbakkanum á 190 m.kr. hvers
um sig, samtals 570 m.kr. Samkvæmt 2. gr. samstarfs-
samningsins var fasteignamatið á eignum Hafnarfjarð-
arbæjar 239,5 m.kr., fasteignamat eigna Þyrpingar hf.
146,6 m.kr. og eigna J&K ehf. 77,2 m.kr. Lítið jafnræði
það. Kaupverðið skyldi hins vegar ekki greitt fyrr en
hinn 1. júlí 2003 og þá með þeim hætti að kröfunum
skyldi þá breytt í aukið hlutafjárframlag. Auk þessa
voru ákvæði í samningnum um að Hafnarfjarðarbær
skyldi greiða kostnað við uppfyllingar og fleira sem má
áætla allt að 500 m.kr. Til að bæta gráu ofan á svart hef-
ur það síðan verið upplýst að lóðasamningur bæjarins
vegna eignar Þyrpingar (Norðurstjörnuhúsið) var löngu
útrunninn og bænum því heimilt að leysa til sín þá lóð.
Stóryrði og efndir
Samfylkingin í Hafnarfirði sá sér leik á borði og nýtti sér
til hins ýtrasta í kosningabaráttunni þennan klaufalega
og óhagstæða samning sem þáverandi meirihluti Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks gerði. Fundu þeir
samningnum og fyrirhugaðri framkvæmd flest til for-
ráttu og höfðu þar stóryrði um. Nú er 1. júlí 2003 að
renna upp og ekkert bendir til annars en að Hafnar-
fjarðarbær missi forræðið yfir eignum sínum á norður-
bakkanum í hendur hlutafélags hvers tilvera svífur í
lausu lofti. Lítum aðeins á hvað hefur gerst í Norður-
bakkamálinu frá því Samfylkingin komst í meirihluta í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar:
1) Eitt af fyrstu verkum Samfylkingarinnar í júní 2002
var að samþykkja tæplega 6 m.kr. lánveitingu bæjarins
til Norðurbakka ehf. Ekki kæmi á óvart að því láni yrði
seinna breytt í hlutafé.
2) Samfylkingin sá ekki ástæðu til að stöðva borunar-
framkvæmdir í Hafnarfjarðarhöfn, sem fyrri meirihluti
hafði hrundið af stað rétt fyrir kosningar án heimildar í
fjárhagsáætlun 2002. Þessari rannsóknarvinnu lauk ekki
fyrr en í ágúst 2002 og kostaði bæjarbúa yfir 30 m.kr.
Niðurstaða hennar staðfesti einungis fyrri athuganir þ.e.
að dýpi niður á fast væri á bilinu 30–40 m.
3) Í október 2002 kynnti Norðurbakki ehf. grunn-
hugmyndir um landfyllingu í austurátt. Að mínu mati
eru þær hugmyndir litlu betri en þær fyrri, en Samfylk-
ingin þegir þunnu hljóði. Hún hefur kosið að senda hug-
myndirnar á flakk á milli nefnda og embættismanna til
umsagnar í stað þess að taka af skarið sbr. yfirlýsingar
sínar fyrir kosningar.
4) Það eina sem mér vitanlega hefur gerst á þessu ári
er að bæjarstjórn hefur samþykkt að hefja gerð deili-
skipulags fyrir norðurbakkann.
Erfitt er að ráða í hvað vakir fyrir Samfylkingunni
annað en að þeir ætli að ýta málinu á undan sér. Í kosn-
ingabaráttunni lögðu þeir sérstaka áherslu á upplýs-
ingagjöf og gott samstarf við bæjarbúa – og töldu sig
vera að boða ný vinnubrögð. Nú ári síðar eru bæjarbúar
engu nær um framtíðaráætlanir á norðurbakkanum því
engin kynning og umræða hefur farið fram. Samfylking-
armaðurinn Gunnar Svavarsson er nú stjórnarformaður
Norðurbakka ehf. og ætti að vera í lófa lagið að bæta úr
því eða hvað?
Ég hygg að flestir Hafnfirðingar séu sammála um að
nýta eigi norðurbakkann til að stækka þjónustusvæði
miðbæjarins í framtíðinni frekar en að koma þar upp
mikilli íbúðarbyggð. Til þess að sú vinna geti farið af
stað þarf að mínu mati að byrja upp á nýtt – og hverfa
frá þessum óraunhæfu hugmyndum og slíta jafnframt
hlutafélaginu Norðurbakka ehf. Hafnarsvæðið er allt of
dýrmætt til að ráðskast sé með það eins og skiptieign í
Matadorspili. Mér finnst það t.a.m. ekki vera traustvekj-
andi að einn hluthafanna (Þyrping hf.) skipti um eig-
endur tvívegis innan árs frá stofnun Norðurbakka ehf.
Samfylkingin í Hafnarfirði á næsta leik.
Hvað gerir samfylkingin í norðurbakkamálinu?
Eftir Sigurð P. Sigmundsson
Höfundur er hagfræðingur.
NÝIR tímar í ís-
lenskri samtíma-
ljósmyndun er heiti
sýningar sem opnuð
verður í Listasafni
Reykjavíkur – Kjar-
valsstöðum í kvöld kl.
20. Sýningin er sett
upp í beinu framhaldi
af samstarfsverkefni
sem Listasafnið stofn-
aði til í fyrra með
Þjóðminjasafni Ís-
lands og Ljósmynda-
safni Moskvu. Þá var
sett upp í Moskvu yf-
irlitssýning á íslenskri
ljósmyndun frá upp-
hafi ljósmyndunar á
Íslandi til dagsins í
dag.
Á sýningunni á
Kjarvalsstöðum getur
að líta kjarnann úr
þeirri sýningu sem fór
héðan til Moskvu með
aðaláherslu á samtímaljósmyndun.
Við sjáum sjoppur sem horfið hafa
úr Reykjavíkurborg, eyðingu að
verki innan eyðibýla, fólk í óvægnu
umhverfi Norður-Atlantshafsins,
álfabyggðir innan þéttbýlis og skrif-
stofur forsetaframboða, svo eitthvað
sé nefnt. Sýningarstjórar ljós-
myndasýningarinnar eru þeir Eirík-
ur Þorláksson, Einar Falur Ingólfs-
son og Pétur Arason.
Einar Falur segir að á sýningunni
sé miðlinum ekki búinn þröngur
rammi, heldur sýnd verk sem séu
afar fjölbreytileg hvað varðar stíl-
brögð og afstöðu höfunda til efnis-
ins. „Hér eru verk ljósmyndara sem
hafa endurnýjað hið gamla mynd-
mál landslagshefðarinnar, endur-
spegla land og ljós af kunnáttu-
samlegu næmi, en einnig er tekið á
náttúrunni á drungalegri hátt og
ljóðrænni. Margir sýnenda vinna
innan þess sviðs sem kallað er
heimildaljósmyndun en afrakstur-
inn er afar ólíkur. Í samtímanum er
ljósmyndavélinni óspart beitt við að
draga fram einkenni á vörum og
endurspegla tíðarandann, eða búa
til nýja strauma. Hér eru ljós-
myndir eftir fulltrúa tískugeirans og
ímyndaheimsins. Og aðrir skrá
ásjónur manna á formlegri hátt eða
halda dagbók um tilveru sína með
myndum. Á síðastliðnum áratugum
hefur færst mjög í vöxt að
myndlistarmenn notfæri sér skrán-
ingarmöguleika ljósmynda-
tækninnar við að myndgera hug-
myndir sínar. Hluti listamannanna
sem kenndir eru við SÚM notaði
ljósmyndir og allar götur síðan hef-
ur ljósmyndin verið mikilvægur
miðill í sköpunarferli íslenskra lista-
manna. Hér má sjá uppákomur sem
lifa í myndum, heimildir um atburði;
myndir sem unnar hafa verið og
breytt á stafrænan hátt, frásagna-
raðir um tilbúna atburði og svið-
setningar. Myndefnið er æði ólíkt:
fiskar og ljósabúðir, skreyttar kon-
ur, tjöld og snjóskaflar, sauðahorn
með brúðuhausum, jafnvel teikn-
aðar eftirmyndir ljósmyndaðra
fossa.“
Við opnunarathöfnina í kvöld
verður einnig veitt viðurkenning úr
Listasjóði Guðmundu S. Kristins-
dóttur að upphæð 300.000 krónur.
Markmið Listasjóðsins er að
styrkja listakonur með því að veita
árlega sérstakt framlag til viður-
kenningar og eflingar á listsköpun
kvenna. Þetta er í sjöunda sinn sem
veitt er úr sjóðnum. Sýningin stend-
ur til 17. ágúst.
Falskar tennur - Bjargey Ólafsdóttir, 2000.
Náttúran,
manneskjan
og tískan
VESTAN við sól og norðan við
mána nefnist sýning sem nú stend-
ur yfir í anddyri Norræna hússins.
Þar eru ljósmyndir Ragnars Th.
Sigurðssonar við texta eftir Ara
Trausta Guðmundsson.
Þeir Ragnar Th. og Ari Trausti
ferðuðust saman um norður-
heimskautssvæðið og útnorðrið eða
um Grænland, Færeyjar og Ísland
með það í huga að gera farandsýn-
ingu sem yrði sýnd í þessum lönd-
um. Myndefni 48 ljósmynda Ragn-
ars Th. er fólk, menning og náttúra
landanna þriggja.
Ljósmyndunum er komið fyrir í
16 þriggja mynda röðum þar sem
ein mynd frá hverju landi lýtur að
tilteknu þema og er þeim er ætlað
að kynna löndin innbyrðis.
Sýningin var fyrst opnuð í Norð-
urlandahúsinu í Þórshöfn í Fær-
eyjum. Næsti áfangastaður var
Listasafn Akureyrar, þaðan sem
hún kemur til sýningar í Norræna
húsinu. Héðan fer sýningin til Nuuk
í Grænlandi, þar sem hún verður
sett upp í Katuaq – menningarhúsi
Grænlendinga.
Sýningin er opin daglega kl. 9–
17, sunnudaga er opið kl. 12–17.
Henni lýkur 31. ágúst.
Ein ljósmyndaraða Ragnars Th. Sigurðssonar.
Ljósmyndir úr
útnorðrinu