Morgunblaðið - 20.06.2003, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 31
ÚT ER komin skýrsla umþolmörk ferðamennsku ífriðlandinu á Lónsöræf-um. Það er Ferðamála-
ráð, í samstarfi við Háskóla Ís-
lands og Háskólann á Akureyri,
sem lét vinna skýrsluna, og eru
Lónsöræfi ein af fimm vinsælum
ferðamannastöðum þar sem rann-
sókn á þolmörkum hefur verið
unnin. Búið er að vinna úr nið-
urstöðum fyrir þjóðgarðinn í
Skaftafelli, en úrvinnsla stendur
yfir á gögnum frá Landmanna-
laugum, Mývatnssveit og þjóð-
garðinum í Jökulsárgljúfrum.
Þolmörk ferðamennsku eru skil-
greind sem sá hámarksfjöldi ferða-
manna sem getur ferðast um
svæði án þess að það leiði af sér
óviðunandi hnignun á umhverfinu
eða upplifun ferðamanna og íbúa
svæðisins. Ef áhrif ferðamennsku
verða óviðunandi á náttúrulegt eða
manngert umhverfi, heimamenn
og ferðamenn, má álykta að einum
eða fleiri þáttum þolmarka sé náð.
Almenn ánægja meðal ferða-
manna sem koma á Lónsöræfi
Skýrslan um Lónsöræfi var
kynnt á málþingi á Höfn fyrir
skemmstu, en það sóttu um 30
einhvern hátt, þannig að ákveðnir
hlutar lands henti tiltekinni gerð
ferðamanna? Ætti að halda Lóns-
öræfum eins ósnortnum og hægt
er og höfða þá til göngumanna
sem vilja ekki mikla uppbyggingu
eða umferð? Lónsöræfin hafa alla
burði til að vera þannig vegna þess
að náttúran þar er svo óaðgengi-
leg,“ sagði Bergþóra.
Heimamenn hafa verið að
byggja göngubrýr undanfarið og
hafa tvær verið teknar í gagnið.
Bergþóra segir þær gera svæðið
ennþá skemmtilegra gönguland en
ella og tengja saman ólík svæði.
Nú er hægt að ganga alveg frá
Snæfelli norðan Vatnajökuls og
niður í Lón, án umtalsverðra vand-
kvæða.
Magnús Oddsson, ferðamála-
stjóri, sagði í erindi sínu á mál-
þinginu að þolmarkarannsóknirnar
séu tímamótaverkefni í ferðaþjón-
ustu og gífurlega faglega hafi verið
að verki staðið hvað varði fram-
kvæmd og úrvinnslu. Í máli hans
kom einnig fram að samgönguráð-
herra hefur falið embætti ferða-
málastjóra að hefja undirbúning að
gerð nýrrar stefnumótunar til
næstu tíu ára í ferðaþjónustu og
ætla megi að rannsóknirnar verði
mikilvægt innlegg í þá vinnu.
manns. Bergþóra Aradóttir, sér-
fræðingur hjá Ferðamálasetri Ís-
lands og einn höfunda skýrslunn-
ar, segir almenna ánægju ríkjandi
hjá þeim ferðamönnum sem leggja
leið sína um Lónsöræfi og af því
megi draga þá ályktun að þol-
mörkum hvað varðar viðhorf gesta
sé ekki náð. Sömuleiðis séu heima-
menn ánægðir með stöðu mála.
Hvað varðar innviði megi hins veg-
ar álykta að þolmörkum geti verið
náð á vissum sviðum. Aðgengi að
Lónsöræfum sé fremur torvelt og
samkvæmt rannsókninni sé umferð
í mesta lagi, miðað við hversu
hættulegur og erfiður vegurinn inn
á svæðið sé. Þá séu menn ósáttir
við stöðu salernismála og gisting í
skálum á svæðinu sé fullnýtt
nokkra daga á ári. Við mat á gróð-
urfari og öðrum umhverfisþáttum
voru fjórar gönguleiðir á svæðinu
skoðaðar og í ljós kom að þolmörk-
um er náð á tveimur þeirra og að
hluta til að einni til viðbótar.
Hægt að ganga frá Snæfelli í
Lón án teljandi vandkvæða
Bergþóra segir töluverðar um-
ræður hafa spunnist um hvort
skipta eigi Íslandi upp í svæði sem
höfðað gætu til ólíkra hópa ferða-
manna. „Á að beltaskipta landinu á
Niðurstöður rannsóknar á þolmörkum ferða-
mennsku á Lónsöræfum kynntar
Morgunblaðið/RAX
Nýlega voru birtar niðurstöður rannsóknar um þolmörk ferðamennsku í friðlandinu á Lónsöræfum. Svæðið nýtur
vaxandi vinsælda hjá göngufólki en vegir og aðstaða þola ekki mikinn fjölda ferðamanna í viðbót.
Umferð um Lóns-
öræfi fullmikil mið-
að við aðstæður
Lónsöræfi eru einn af
fimm vinsælustu ferða-
mannastöðum þar sem
rannsókn á þolmörkum
hefur verið unnin.
Ferðamenn sem heim-
sækja svæðið eru
ánægðir en aðgengi að
svæðinu er torvelt.
Heimamenn hafa byggt göngubrýr í Lónsöræfum undanfarið og hafa tvær
verið teknar í gagnið. Þolmörkum á tveimur gönguleiðum er náð.
konum til valda. „Það vantar upp
á að áhrif kvenna séu formgerð í
völdum,“ sagði Ingibjörg Sólrún.
Sækjast konur í völd?
Umræður voru með líflegasta
móti og ein þeirra spurninga sem
skeggrædd var sú hvort konur
sæki nógu mikið í það að komast
til valda. Einhverjar töldu svo
ekki vera og Elín sagðist taka
undir það að konur þyrftu að
sækja meira fram sjálfar. Ein-
hver nefndi að konur væru ein-
faldlega svo skynsamar að þær
sæktust síður eftir því að vinna
myrkranna á milli, eins og valda-
stöður krefjast gjarnan. Konur
virðast síður vilja, að mati þátt-
takenda í málstofunni, fórna
áhugamálum fyrir vinnuna. At-
vinnulífið þarf að koma til móts
við konur í þessum efnum, nefndi
einhver úr salnum.
Konur sem innkaupastjórar
heimila og sem kjósendur eru
mikilvægur og valdamikill hópur
jafnt fyrir stjórnmála- og fjár-
málalífið kom upp úr kafinu á
málstofunni. Völdin eru þó ekki
eins mikil út á við. Eins og kom
fram í framsögu Svanborgar Sig-
marsdóttur, stjórnmálafræðings
hjá Borgarfræðasetri, eru konur í
miklum minnihluta í nefndum og
ráðum á vegum hins opinbera.
Hún sagði fækkun kvenna á þingi
einnig vera áhyggjuefni. Að mati
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
er fyrst og fremst við flokksstofn-
anir og fjölmiðla að sakast í þess-
um efnum. Hún nefndi umræðu-
þætti í sjónvarpi sem dæmi um
„uppeldisstöðvar fyrir unga karla
í pólitík“. Fjölmiðlar sýndu körl-
um meiri athygli en konum.
Málstofugestir voru sammála
um að grípa þurfi til aðgerða til
að auka völd kvenna, með því að
virkja bæði konur og karla. „Við
eigum að standa saman um að
auka hlut kvenna í sameiginleg-
um völdum í samfélaginu,“ sagði
Ingibjörg Sólrún við góðar und-
irtektir.
sagðist hvorki telja völdin liggja
hjá Alþingi né hjá aðilum fjár-
málamarkaðarins. Völdin væru
hér og þar, en alls staðar hjá
körlum.
Miklar umræður spunnust um
svokallað tengslanet, sem nauð-
synlegt þykir fyrir þann sem
sækist eftir völdum að koma sér
upp. Var það mál kvenna að karl-
ar virðast duglegri við að koma
sér upp slíku neti af tengiliðum
sem reynst geta mikilvægir. Ingi-
björg Sólrún sagðist telja að kon-
ur í stjórnunarstöðum væru oft
feimnar við að ráða aðrar konur
til starfa. Þegar kona ræður konu
til starfa komi oft upp leiðinleg
umræða um að viðkomandi sé
eingöngu ráðin í tiltekið starf af
því að hún er kona. Hún sagði
mikilvægt fyrir konur að koma
sér upp tengslaneti og koma fleiri
gðist þó
ð einka-
verið að
rra sem
nið, sem
ar eru í
r selja.
na eru
ni með
lín.
r
adóttir,
i marg-
hindran-
um sem
u. Hún
ulífs og
körlum
miklum
ki kona
ngibjörg
aukin völd
Morgunblaðið/Jim Smart
fram á námstefnunni Hamhleypur – konur í
gær.
Karlar eiga að láta meira til sín taka í
jafnréttismálum að mati Valgerðar. „Í stað
þess að nálgast jafnrétti kynjanna sem sér-
tækt viðfangsefni sem höfði einungis til
kvenna hefur sú skoðun rutt sér til rúms að
jafnréttismál séu mál samfélagins í heild.
… Þjóðfélagið í heild er best sett ef hver
einstaklingur gerir það sem hann er hæf-
astur til. Karlar hafa hag af breytingunni
vegna aukinnar ábyrgðar á fjölskyldunni.
Karlar og konur hafa sömu hagsmuni af því
að hið gullna jafnvægi á milli vinnu og fjöl-
skyldulífs náist.“
Að sögn Valgerðar var það ögrandi og
allt annað en auðvelt verkefni að rífa sig
upp sem bóndakona í sveit með eiginmann
og tvö lítil börn og koma sér upp öðru
heimili í Reykjavík til að geta sest á þing.
„Ég er fyrsta landsbyggðarkonan sem tek
sæti á Alþingi, Margrét Frímannsdóttir
kom reyndar inn um leið og ég en hún bjó
við þær aðstæður að geta ekið til vinnu,
sem var einfaldara. Ég held því fram að
konur á landsbyggðinni hafi almennt ekki
fengið að taka þátt í landspólitík. Þá er ég
að tala um að eiginmennirnir hafi ekki leyft
það og þær þá kosið að halda friðinn. Þetta
er vonandi að breytast.“
Góð reynsla af fjölmiðlum
„Baráttan heldur áfram,“ sagði Val-
gerður við hamhleypurnar í salnum. „Ég
hef ekki fengið neitt á silfurfati. Ég hef tek-
ist á við karla á fjögurra ára fresti í mínum
flokki um sæti á framboðslistum. Ef ég
nennti að vera á neikvæðu nótunum gæti ég
sagt að í öllum tilfellum hafi karlar verið að
reyna að ná af mér sætinu. Ég hef orðið of-
aná í öllum tilfellum og það er aðalatriðið.
Ég hef reynt að nálgast jafnréttismálin á já-
kvæðum nótum í gegnum árin. Ég hef góða
reynslu af fjölmiðlum í ráðherratíð minni
og það skiptir miklu máli.“
um annarrar handar. Engin kona
sölu bankanna. Í vor komu þrettán
með tillögur um framtíðaráform
di Sementsverksmiðjuna. Engin
r í þeim hópi. Konur þurfa að sýna
umkvæði,“ sagði Valgerður.
sagði ekki hægt að fjalla um jafn-
ál án þess að tiltaka lögin um fæð-
lof sem án alls efa hafi verið mesta
ramál í jafnréttisbaráttunni í mjög
tíma. „Þetta er það mál, sem ég er
ægðust með af þeim málum sem
kt hafa verið á Alþingi síðan ég tók
r. Það er í raun broslegt að nú er
ðrómur um það að 40 ára konur og
nur verði mun vinsælli starfs-
en karlkyns jafnaldrar þeirra
ess að karlarnir geta verið stans-
æðingarorlofi fram eftir öllum
etta er frábært,“ sagði Valgerður
kar hlátur viðstaddra.
varp á Hamhleypum 2003
r jafnrétti
Morgunblaðið/Jim Smart
r eðlilegt að fólk velti fyrir sér
g mér hafi verið tekið þegar ég kom
nnan karlaheim,“ sagði Valgerður
dóttir.