Morgunblaðið - 20.06.2003, Síða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 43
ÍT ferðir
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal
Sími 588 9900, fax 588 9901,
netfang: itferdir@itferdir.is www.itferdir.is
Barcelona
Costa Brava
29 stiga hiti í gær!
7 sæti laus til Barcelona á morgun,
21. júní, vikuferð!
Nokkur sæti laus 28. júní í 2 vikur!
SKELLTU ÞÉR Í SÓLINA !
Jónsmessuhátíð í Dölunum verður
haldin á morgun, laugardaginn 21.
júní. Dagskráin hefst kl. 19 með sam-
eiginlegu útigrilli við gamla kaup-
félagið í Búðardal. Félagar úr
kvæðamannafélaginu Iðunni kveða
og yrkja, bátaeigendur bjóða upp á
siglingar og gönguferð verður undir
leiðsögn Einars Jóns Geirssonar. Kl.
22.30 verður Jónsmessubálkösturinn
tendraður og Lalli Hannesar
skemmtir á Bjargi.
Á Eiríksstöðum er lifandi sögusýn-
ing. Starfsfólk og börn á víkinga-
klæðum, lifandi leiðsögn við eldinn og
brauðbakstur sem börnin geta tekið
þátt í.
Sumardagskrá í Þjóðgarðinum
Snæfellsjökli hefst um sumarsól-
stöður á morgun, laugardaginn 21.
júní, kl. 14. Gengið verður frá Sand-
hólum, um Dritvík og á Djúpalóns-
sand, hist á bílastæði við Djúpalóns-
sand. Gangan tekur um 2–4 klst.
Barnastund verður kl. 11 og er fyrir
börn á aldrinum 6–12 ára og er hist
við Arnarbæ á Arnarstapa. Þátttaka
er gestum að kostnaðarlausu og allir
velkomnir.
Sólstöðuganga um Öskjuhlíð
verður á morgun, laugardaginn 21.
júní, á sumarsólstöðum. Lagt verður
af stað frá Perlunni vestanverðri um
kl. 17 og gengið fram að sólstöðumín-
útu kl. 19.10. Farinn verður hæga-
gangur og verður því hægur vandinn
að spjalla við samferðamenn. Allir
velkomnir.
Landsmót kleinusteikingarfólks
verður haldið á morgun, laugardag-
inn 21. júní, á Safnasvæðinu á Akra-
nesi. Þar munu steikingarmeistarar,
kvenfélög, húsmæður og húsbændur
af öllu landinu keppa um titilinn
„Kleinumeistari Íslands“, en þetta er
í fyrsta skipti sem haldið er landsmót
kleinusteikingarfólks. Dómnefnd
mun dæma um bestu kleinurnar út
frá útliti, bragði og stökkleika. Bæði
einstaklingar og hópar geta keppt en
æskilegt er að hver bakari hafi a.m.k.
einn aðstoðarmann. Veitt verða verð-
laun fyrir þrjú efstu sætin. Hver
þátttakandi tekur með sér það hrá-
efni sem viðkomandi er vanur að nota
við kleinugerð. Einnig nauðsynlegan
búnað svo sem rafmagnshellu, pott
og kleinufeiti.
Landsmót kleinusteikingarfólks er
liður í dagskránni Viðburðaveisla á
Akranesi 2003 en það er röð 8 ólíkra
viðburða sem fram fara á Safna-
svæðinu í sumar.
Á MORGUN
Sumarferð kvennadeildar
Reykjavíkurdeildar Rauða kross
Íslands verður farin fimmtudaginn
26. júní nk. Mæting er á Umferðar-
miðstöðina kl. 8.30 og lagt af stað kl.
9. Farið verður í Osta- og smjörsöl-
una sem býður upp á ostabakka sem
verður tekinn með. Sögusafnið í
Perlunni verður skoðað og Íslensk
erfðagreining heimsótt. Þá verður
farið í heimsókn til forsetahjónanna
á Bessastöðum og bjóða þau upp á
léttar veitingar. Frá Bessastöðum
verður farið á Eyrarbakka og Sel-
foss. Í Ölfusi verður snæddur kvöl-
verður á veitingastaðnum Básum.
Verð fyrir ferðina er kr. 3.000. Þátt-
taka tilkynnist fyrir 23. júní.
Á NÆSTUNNI
ÞAÐ var mikið um að vera í Ólafsfirði á 17.
júní, lýðveldisdaginn sjálfan. Veðrið lék við
bæjarbúa að mestu leyti. Það var Slökkvilið
Ólafsfjarðar sem sá um hátíðahöldin og
skemmtiatriði, sem tókust hreint glimrandi
vel.
Sérstaka lukku vöktu ökuferðir slökkvi-
liðsbílanna þriggja sem börnin fengu að
prófa.
Annars hófust hátíðahöldin kl. 4 við Tjarn-
arborg með ræðu forseta bæjarstjórnar. Þá
steig Fjallkonan á svið og að þessu sinni var
það Þórgunnur Reykjalín skólastjóri. Hljóm-
sveitin Kyrkja köttinn spilaði og lék og svo
var boðið upp á þrautabraut. Þrír slökkvibíl-
ar ferjuðu börnin um bæinn og á meðan var
boðið upp á grillaðar pylsur. Allan tímann
skein sólin og það var ekki fyrr en farið var á
Gullatún til að spreyta sig á vatnsrenni-
brautinni að það fór að rigna. Enda var
þema dagsins fólk og vatn.
Hestamannafélagið Gnýfari bauð upp á
reiðtúra og börnin nýttu sér það. Þegar leið
á daginn var boðið upp á ókeypis bíósýningu
í Tjarnarborg. Sem sagt, fínn dagur.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Ökuferðir slökkviliðsbílanna vöktu lukku.
Veðurblíða
17. júní
Ólafsfirði. Morgunblaðið.
alltaf á föstudögum